Morgunblaðið - 31.08.1952, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 31.08.1952, Blaðsíða 12
Veðurúflii í dag: Austan og N-austan kaldi. Skýjað, en úrkomulítið. 197. tbl. — Sunnudagur 31. ágúst 1952. ReykfafflsrbréJ er á bl*. 7. Ríkissjóður og vátryggj- endur í Dynskógadeilunni 1, Fimm lögfræðingar fóru fil Vikur. BÆÐI vátryggjendur farmsins í Persier og ríkið munu nú ætla að gæta réttar síns í sambandi við deiluna um járnið á Dynskóga- fjöru. Er nú sennilegt að ekki líði á löngu þar til endanlega verð- ur skorið úr um eignarrétt og björgunarrétt yfir járninu. Sepiembersýningin. RÍKISSJÓÐLR 0€ VÁTRYCGJEíNOUR KOMA I!NN 1 gærdag fóru með bifreið frá Reykjavík, austur til Víkur L Mýrdal 5 lögfræðingar, þeir Ólaf- ur Bjöi'nsson, fulltrúi Ólafs Þor- grímssónar vegna Kerlingardais- bænda, Kristján Guðlaugsson vegna Klaustursbræðra, Vilhjálm ur Jónsson vegna Erlendar Ein- arssonar og Björns B. Björnsson- ar, Jóhann Steinason f.h Svein- bja’mar Jónssonar vegna vá- tryggjenda farmsins í Tersier og Theodór B. Líndal hrl. vegna ríkissjóðs. 8ÆNDURMR KREFJAST LÖGBANNS Mun málið nú komið á það stig, að Kerlingardaisbændur hafa krafizt lögbanns víð því að nokkur annar aðili en þeir sjálfir f bjargi járninu af söndunum og jafnframt munu þeir hafa krafizt lögbanns' gegn ráðstöfunum á því járni, sem þegar hefur verið bjaigað, meðan ekki er skorið úr um eignar og björgunarrétt. Togarar Bæjarúl- gerðar Reykjavíkur B.V. INGÓLFUR Arnarson kom af Grænlandsmiðum tií Reykja- víkur með fullfermi af saltfiski á fimmtudagskvöld 28. ágúst og hélt eftir skamma viðstöðu áfram til Esbjerg þar sem aflinn verður seldur. B.v. Skúli Magnússon er á Grænlandsmiðum og fiskar í ís. B.v. Hallveig Fróðadóttir og Jón Þorláksson eru á ísfiskveið- um hér við land fyrir Þýzkalands markað. , Togararnir Þoxsteinn Ingólfs- son, .Jón Baldvinsson og Þorkell máni eru allir á •saltfiskveiðum við Grænland. * B.v. Pétur Halldórsson sejdi afla sinn, 295 tonn af saltfiski, í Esbjerg í byrjun vikunnar og lagði af stað heimieiðis eftir há- degi á þriðjudag 26. ágúst. Unnið er við pökkun og verkun á saltfiski og hertum fiski í fisk- verkunarstöðinni og unnu um 100 manns þar.í vikunni. Hundruð skipa leifuðu hafnar á Seyðisfirði SEYÐISFIRÐI, 30. ágúst. — Norsk síldveiiðskip leituðu hafnar hér í vikunni svo hundruðum skipti vegna veð- urs. Komust þau ekki fyrir á aðalhöfninni og lágu út allan fjörð. Flest skipin fóru aftur út I fyrradag og i gær, þegar lægt hafði. — B. Nýaðferðvið geymslu síldar FRÁ NOREGI berast þær fregn- ir, að ný aðferð hafi verið fundin upp til þess að geyma síld. Með henni helzt fiskurinn sem nýr í a.m.k. 3 mánuði. Voru nýlega framreiddir réttir úr sild, sem þessi aðferð hafði verið notuð við og voru allir á einu máli um að síldin væri sem ný. Síldin var sett í tunnur undir opinberu eftirliti. Síðan voru tunnurnar innsiglaðar og geymdar í þrjá mánuði, en þá voru þær opnaðar og samkvæmt efnagreiningu var fitumagn þeirra 12.3%. Aðeins 2,16% sýru- magn. var í síldarlýsinu við suðu þessara sílda, en það er mjög mikilvægt við framleiðslu síldar- lýsis, að sýrumagnið sé sem minnst. Þykir þessi nýja aðferð mjög merkilegt skref í þá átt, að nýta síldiná betur, bæði til neyzlu og vinnslu í verksmiðjum. I gærkvöldi átti að opna 4. Septembersýninguna, en að undanförnu hafa listamennirnir 12 verið önnum kafnir við uppröðun listaverk-1 anna. Mynd þessa tók ljósm. Mbl. og sjást listamennirnir Hjörleif- ur Sigurðsson, Gunnlaugur Scheving og Karl Kvaran vera að koma einu listaverkanna fyrir. r I gærkvöldi áfti aS opna fjórðu Sepfembersýniuguua 12 Ibfamenn sýna þar rúml. 70 lisfaverk KLUKKAN 9.30 í gærkvöldi átti að opna Septembersýninguna í Listamannaskálanum við Austurvöll. Að þessu sinni eru þar frammi rúmlega 70 listaverk eftir 12 listamenn. Sýningin verður opin í hálfan mánuð. Píanótiljómle ika r T] HarryEberlámánud. HINN þekkti píanóleikari Harry Ebert frá Stokkhólmi heldur hljómleika í Þjóðleikhúsinu á mán udagsk vö! dið. — Nokkrir íslenzkir listamenn. sem ég hefi hitt og starfað með eins og t. d. Stefán íslandi og hinn ágæti barytónsöngvari Guð- mundur Jónsson, höfðu sagt mér margt um ísland, náttúrufegurS. þess, sö'gu og menningu. ísland hefur því lengi staðið mér fyrir hu?skotssjónum sem drauma- land, sem ég hefi þráð sð koma til, segir Harry Ebert í viðtali við blaðið. — Óskadraumurinn er rú orð- inn að veruleika og ég hefi ekki orðið fvrir vonbrigðum, bætir ha-’n við. Á hliómleikunum á mársud.ags- kvöldið Ieikur Harry Ebert aðal- lega preTudiur eftir Debus=". Þá leikur hann einnig toccata og fugu í D-moH eftír Bach ort "okk- ur verk eftir Sibilius og Rach- maninoff, en Ebert var nemandi hans um tíma. Loks leikur Ebert verk eftir Chopin. Harry Ebert er einn af bekkt- ustU píanóleikurum Svíþjóðar.. Hann byrjaði að leika opinber- lega þegar hann var 12 ára. Hann hefur haldið hljómleika víða um land og meðal annars í Carnegie Hall í New York, en þekktastur er hann sem hinn frábæri undir- leikari Jussi Björlings. Hauslveður enn fyrir norðan 1 AKUREYRI, 30. ágúst. — Eftir ’tvær frostnætur að undanförnu, brá hér til norðanáttar, og í nótt sem leið var mikil rigning I byggð og heldur áfram í dag. I nótt snjóaði í fjöll. Útlit með kartöfluuppskeria var víða allsæmilegt, en nú hefir kartöflugras nær allsstaðar gjör- fallið í görðum og veldur stór- tjóni í héraðinu. H. Vald. Valurvann 2:1 KNATTSPYRNULIÐ Vals, sem nú er í Færey.jum, lék þriðja leik sinn þar í fyrrakvöld við Havnar Boldfelag. Leikar fóru þannig að Valur vann með 2:1. Danskur frömuður í hðimilis iðnaði heldur sýningu hér FJÓRÐA SEPTEMBER- ® SÝNINGIN • Þetta er fjórða Septembersýn- ingin, sem haldin er. Til þeirra var í upphafi stofnað til þess að gefa almenningi kost á að sjá og fylgjast með því hvað gerðist í vinnustofum yngstu og næst yngstu myndlistarmannanna, en margir hinna fyrrnefndu sýndu á fyrstu Septembersýningunni verk sín opinberlega í fyrsta skipti hérlendis. . freð Haldin í Þjóðminjasafninu. VON ER Á góðum gesti bráðlega hingað til lands frá Danmörku. Stjórn Sambands íslenzkra héimilisiðnaðarfélaga hefur í samráði við sendiherra Dana hér boðið einum af helztu frömuðum heim- ilisiðnaðar og listiðnaðar í Danmörku, frú Gertie Wandel, að koma híngað í næsta mánuði og halda hér sýningu á heimilisiðnaði. Ætlar sendiherra, frú Bodil-®" Begtrup, að veita Sambandinu mikilsverða aðstoð sína við mót- töku frúarinnar og dvöl hennar hér, og Þjóðminjavörður lána sal í hinu nýja húsi Þjóðminjasafns- ins til að hafa í sýninguna. Frú Gertie Wandel er hámennt uð kona og þjóðfræg í Danmörku.! Hún er í stjórnum þeirra félaga, gem starfa að eflingu heimilisiðn- aðar og listiðnaðar þar í landi, hefur helgað hajög krafta sína þeim málum nú um aldarfjórð- ungs skeið, en jafnframt hefur hún hin síðustu árin ætíð orðið að taka sæti í bæjarstjórninni í Gentofte, þar sem hún á heima, og síðastliðið vor var hún kjörin á ríkisþingið. Sæmd hefur hún verið ýmsum heiðursmerkjum. LISTAMENNIRNIR ER SÝNA VERK SÍN NÚ Þeir, sem verk eiga á sýning- unni nú eru Valtýr Pétursson, Kristján Davíðsson, Kjartan Guð jónsson, Ásmundur Sveinsson, Guðmunda Andrésdóttir, sem sýnir myndir sínar í fyrsta skipti hér á landi, Hjörleifur Sigurðs- son, sem nú ér í fyrsta sinn'þátt- takandi í Septembersýningu, Jó- hannes Jóhannesson, Karl Kvar- an, Sigurjón Ólafsson, Sverrir Haraldsson, nýliði á September- sýningu og Þorvaldur Skúlason. VANDAÐUR BÆKLINGUR I sambandi við sýninguna gefa listamennirnir út vandaðan bækl- ing um sýninguna. Þar getur að líta mynd af einu verki hvers listamanns er þátt tekur í sýn- ingunni. Valtýr Pétursson skrif- ar „Nokkur orð um list“ og þar er jafnframt mjög athyglisvérð grein: „Söfn krefjast frelsis list- unum til handa“, þar sem sjón- armið nútíma-listamanna eru túlkuð af skilningi og velvild. LUNDÚNUM — Um þessar mundir eru 900 pilagrímar á IqíÖ til Lourdes. Pílagrímar í þessari ,för eru nálega allir frá írlandi. liýir sölumöguleikar fiski s Bandaríkjunum NOKKUR járnbrautarfélög í Bandaríkjunum eru nú að gera til- raunir með ýmsar fæðutegundir, sem þau láta frysta eftir að þær hafa verið soðnar. Er maturinn svo tekinn eftir þörfum, þíddur, hitaður upp og síðan borinn á borð. GEFIZT VEL | Hefur þessi aðferð reynzt á- gætlega og ætla járnbrautarfélög in að nota hana í enn ríkari mæli en hingað til. Tilraunir með sverðfisk hafa gefið góða raun. Er því líklegt, að fiskmeti verði meira notað í þessu skyni en hingað til, og eru hér miklir möguleikar fyrir duglega fiski- kaupmenn, sem vilja selja vöru sína. NÝIR MÖGULEIKAR i Sala á frosnum fiski í heild- sölu beint til þeirra, sem eiga | frystiskápa til heimilisfrysting- ar, gæti vel orðið þess virði, að hún sé athuguð. Álitið er, að fjöldi þeirra, sem eiga slík tæki í Bandaríkjunum, sé um 4 millj. og fer vaxandi að menn vilji nýta tækin á þann hátt, að kaupa all- mikið magn af frystum mat í einu og geyma heima. Er fisk- kaupmönnum í Bandaríkjunum, sem selja frosinn fisk, mjög ráð- lagt að notfæra sér þennan möguleika til aúkningar á fisk- sölunni. Þannig skapast stöðugt nýir möguleikar til sölu á frosn- um fiski, ef fiskkaupmenn eru nægilega vel á verði fyrir þeim nýjungum, sem fram koma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.