Morgunblaðið - 31.12.1952, Side 7
Miðvikudagur 31. des. 1952.
MOK£U N BLAÐIÐ
7
Þá er þess eirtnig getið, að
Landssmiðjan hafi smíðað ný.fan
áburðardreifara fýrir húsdýra-
áburð, eftir uppfinningu Guð-
mundar Jóhannessonar, ráðs-
manns á Hvanneyri.
Sútunarverksmiðjan h.f. tók
upp nýja og mjög endurbaetta
sútunaraðferð loðskinna fgæru-
skinna), áður óþekkta hérlendis.
Var henni gefið nafnið Zabo-
sútun.
Getið er þess, að Aðalsteinn
Hichter, arkitekt, hafi fundið upp
nýja gerð fieka-steypuraóta, er
muni auka afköstin í byggingar-
iðnaðinum, einkanlega víð bygg-
ingu smáíbúðarhúsa.
Stálsmiðjan hóf undirbúning að
smíði stáiskips, dráttarbáts fyrir
Reykjavíkurhöfn, og er það tal-
ið marka timamót í sögu skipa-
bygginga hérlendis, þar eð þetta
yrði fyrsta stálskipið, smiðað á
íslandi.
í fiskiðnaði hefur sérstaklega
verið drepið á framfarir við reyk
ingu á ýmiskonar fisktegundum
hjá Fiskiðjuveri rikisins, og fjöl-
breyttari framleiðslu ýmsra vöru
tegunda úr reyktum fiski, svo
sem „kippers", harðreyktri síld
og karfaflökum.
Forstjóri Ofnasmiðjunnar,
Sveinbjörn Jónsson, kynnti nýja
uppfinningu, millihitara, er hindr
ar eyðileggingu af völdum kísil-
myndunar á miðstöðvarkerfum,
þar sem hveravatn er hitagjaf-
inn.
Agnar Breiðfjörð kynntí nýja
uppfinningu, flotvörpu, sem tal-
ínn er merkur viðburður í ís-
lenzkri veiðarfseragerð.
Málningarverksmiðjan Harpa
h.f. hóf framleiðslu á plast-
málning'u, mattolux, og fram-
leiðslu á sýruhertri lakkíegund,
harpoflint. Hvorttveggja óþekkt
framleiðsla áður hér á landi.
Dúkaverksmiðjan h.f. á Akur-
eyri tók í notkun nýja vé) til
fiamleiðslu á efni í vinnuvettl-
inga, og er það nýjung hér á
landi. Getur verksmiðjan annað
landsþörfum á þessu sviði.
Að lokum er freistandi að geta
þess, að mikill útflutningur var
á allskonar brotajárni frá Islandi
til ýmsra Evrópulanda á árinu,
sökum mikillar eftirspurnar, og
leiddu frásagnir um þessa efni-
vörusölu frá íslandi til þess, að
merkur Vestur-Íslendíngur, sér-
fræðingur á sviði stálherzlu og
stálframleiðslu, Jón Ólafsson,
reit opinskáa ádeilugrein, er birt-
ist í Lesbók Morgunblaðsins hinn
10. október, gegn tómlætí íslend-
inga í því að setja ekki upp stál-
bræðslu í landinu sjólfú. Hug-
myndin er sannarlega umhugs-
unarverð.
IÐNSÝNINGIN 1952
Árið 1952 var haldín mikil iðn-
sýning í Reykjavík í tilefni af
200 ára afmæli verksmiðjuiðn-
aðarins á íslandi. Rekur íslenzk-
ur verksmiðjuiðnaður upphaf
sitt til Innréttinga Skúla Magnús
gonar.
Félag ísl. iðnrekenda og Lands
samband iðnaðarmanna áttu hug-
myndina að því, að þessi sýning
var haldin. Buðu þau Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna, Sam-
bandi ísl. samvinnufélaga og
Reykjavíkurbæ að tiínefna full-
trúa í sameiginlega sýningar-
nefnd. Iðnsveinaráð Alþýðusam-
bands íslands hlaut einmg full-
trúa í nefndinni. Urðu 2. fulltrú-
ar frá F.Í.I., 2 frá LX og einn
frá hverjum hinna aðlianna í
sýnningamefndinni.
Formaður nefndarinnar var
Sveinn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Belgi Bergs, verk-
fræðingur, og arkitekt sýningar-
innar var Skarphéðinn Jöhanns-
son.
Iðnskólinn nýi, er verið hafði
6 ár í srníðum og enn. óíullgerð-
ur, varð sýningarstaður. Var
smíði hans hraðað um sumarið
með sérstöku tilliti til þessa.
Iðnsýningin var opnuð 6. sept.
með hátíðlegri athöfn. Var hún
opin til 20. október, ávallt við
mikla aðsókn. Höfðu þá 73.377
gestir séð sýninguna, og er það
einsdæmi um nokkra sýningu
áður hér á landi.
Sýning þessi mun hafa verið
bíurðarmeiri og fjölþættari öðr-
um sýningum, er sézt hafa hér-
lendis. Reykjavíkurbær veitti
sýningunni nokkurn fjarhagsleg-
an styrk. Aðaltekjur sýningar-
innar, auk aðgangseyris, voru
leigugjöld iðnframleiðenda fyrir
sýningarrúm. Sjmingarsvæðið
voru 56 stofur i Iðnskólanum
með samtals 3600 fermetra gólf-
fleti. Sýnendur voru yfír 200 iðn-
framleiðendur, frá Reykjavík,
Hafnarfirði, Akureyri og víðar
af landinu.
Firnamikið var ritað um sýn-
inguna i dagblöðum bæjarins, á
meðan hún stóð yfir, og voru
ummælin yfirleitt mjög lofsam-
leg. Ýmsir, er um sýninguna rit-
uðu, fullyrtu jafnvel, að hún
stæði ekki að baki erlendum iðn-
aðarsýningum.
Eitt var það þó, sem að var
fundið í ræðu og riti, og talinn
ljóður á sýningunni: Ýmsir sýn-
ingarmunir iðnfyrirtækja voru
ekki fáanlegir á markaðnum um
sömu mundir. Gleymdist mörg-
um, vegna þess hve sýningin bar
á sér íburðarmikinn kynningar-
blæ í líkingu við erlendar vöru-
sýningar, að iðnfyrirtækjunum
var ætlað að sýna, í tilefni þess-
arar 200 ára hátíðarsýníngar,
hvað þau gætu framleitt bezt.
án tillits til hvort hráefni væru
fyrir hendi o. s. frv. til þess að
framleiða nóg magn af þessari
vöru eftir óskum neytenda. Með
öðrum orðum: Sýningin var
kynningarsýning, en ekki sölu-
sýning, þó að hún hefði e. t. v.
gjarnan mátt vera það öðrum
þræði.
Hin almenna kynning iðnað-
arins sem atvinnuvegar á íslandi,
vísbendingar um framtiðarverk-
efni hans og hvatningin til æsku-
lýðsins um að láta drauminn um
íslenzka stóriðju verða að veru-
leika, var einn veigamesti þátt-
urinn í sýningunni. Verður árang
ur hennar hvorki mældur né veg-
inn, en mörgum varð að orði, er
sýninguna sá, að sig hefði aldrei
órað fyrir að svo fjölþættur iðn-
aður væri kominn á íslandi, né
svo stórfelldir framtíðarmögu-
leikar á þessu sviði ónotaðir.
„Hvaða hlutir eru það eiginlega,
sem ekki eru búnir til hér á
landi“„ hafði ritstjóri eins dag-
blaðsins eftir reykvískri húsmóð-
ur, eftir heimsókn hennar á sýn-
inguna. ^
Kexframleiðsla
Dagblöðin í Reykjavík eiga
mikið lof skilið fyrir það, hve
frábærlega vel þau kynntu sýn-
inguna, og örvuðu fólk til þess
að skoða hana. Auk almennra
fréttagreina birtust nokkrar ítar-
legar ritgerðir í dagblöðum um
einstakar iongreinar á sýning-
unni, þeirra á meðal um hús-
gagnaiðnaðinn (2. okt.), vefnað-
ariðnaðinn (28. og 30. sept.), mat-
vælaiðnaðinn (17. sept.), bygg-
ingariðnaðinn (2. okt.), efnaiðn-
aðinn (25. sept.) og málmiðnað-
inn (14. sept.) í „Morgunblaðinu“
og um skipabyggingar (18. sept.),
veiðarfæraframleiðslu (23. sept.),
steinsteypuiðju (26. sept.), heim-
ilistækjaiðnað (2. okt) og heimilis
iðnað (-15. okt.) í dagblaðinu
„Tíminn".
Það er ekki réttur vettvangur
að lýsa ítarlega Iðnsýningunni
1952 í stuttu áramótayfirliti um
iðnaðinn, en nokkrar líkur eru
fyrir því að Félag ísl. iðnrek-
enda muni efna til útgáfu minn-
ingarrits um sýninguna, þar sem
rifjað verður upp það markverð-
asta, er þar gat að líta, með
rnyndum og skýringum.
SÖLUVIKA ÍSLENZKRA
IÖNAÐARVARA
Samband ísl. smásöluverzlana
og Félag ísl. iðnrekenda beittu
sér fyrir svonefndri söluviku ís-
lenzkra iðnaðarvara vikuna 16.—
22. nóvember.
Verzlanir sýndu íslenzkar vör-
ur þá viku í gluggunj og hillum,
og var heitið verðlaunum fyrir
beztu útstillingarnar. Þótti þetta
gefa góða raun sem fyrsta til-
raun í þessa átt.
FRAMLEIÐSLA f EINSTÖKUM
IÐNAÖARGREINUM
Um fiskiðnaðinn og verðmæti
útfluttra fiskiðnaðarvara eru til
opinberar skýrslur og mun sam-
kvæmt fyrri venju verða skýrt
frá niðurstöðum þeirra hér í
blaðinu í áramótagrein um út-
flutningsframleiðsluna. Einnig
mun að líkindum áramótayfirlit
um landbúnaðinn fjalla að
nokkru um iðnaðarstarfsemi í
sambandi við nýtingu og úr-
vinnslu ýmissa landbúnaðaraf-
urða, sem þó er flokkuð til iðn-
aðar í hagskýrslum.
Um aðra iðnaðarframleiðslu
eru ekki til neinar opinberar
skýrslur fyrir liðið ár, svo vitað
sé. Hins vegar hefur skrifstofa
Félags ísl. iðnrekenda leitast við
að fá upplýsingar frá nokkrum
verksmiðjum um ársframleiðslu
þeirra árið 1952. Eru það ekki
tæmandi upplýsingar, en eiga að
vera réttar, svo langt sem þær
ná, og til nokkurs fróðleiks fyrir
þá, sem vilja bera þær saman við
framleiðslu fyrri ára.
2 verksmiðjur framleiddu 590 tonn af kexi.
.Sælgætisframleiðsla
2 verksmiðjur framleiddu 43.5 tonn af brjóstsykri.
6 verksmiðjur framleiddu 168.6 tonn af súkkulaði, konfekti
og karamellum.
Kaffibrennsla og kaffibætisframleiðsla
3 verksmiðjur brenndu og möluðu 542.7 t. af kaffi óg
1 verksmiðja fiamleiddi 178.8 t. af kafíibæti.
Smjöriíkisframleiðsla
7 verksmiðjur framieiddu 1.650 tonn af smjörlíki.
Sultuframleiðsla
1 verksmiðja framleiddi 64 tonn af ávaxtasultu.
Öl- og gostlrykkjaíramleiðsla
1 verksmiðja framieiddi S86.500 lítra af öli.
3 verksmiðjur íramleiddu 1.191.961 lítra af gosdrykkjum.
1 verksmiðja framieiddi 5.010 lítra af saft og ávaxtasafa.
Vefjariðnaður
3 verksmiðjur framleiddu 113.312 metra af ullardúkum.
2 verksmiðjur framleiddu 28 tonn af bandi og garni.
2 verksmiðjur framleiddu 28.9 tonn af lopa.
1 ’verksmiðja framleiddi 300 ullarteppi.
1 verksmiðja framleiddi 30.000 rn. r.f vir.nuvettlingaefni.
Fatnaðariðnaður og skóframleiðsia
2 sjófataverksmiðjur og 2 vinnufataverksmiðjur framieiddu
alls 128.530 flíkur af allskonar vinnu-, skjól- og sjófatnaði.
1 verksmiðja framíeiddi 402 sík. af trollbuxum.
3 verksmiðjur framleiddu 15.222 þús. aí vinnuvettlinguna.
4 verksmiðjur íramieiddu 6.508 stk. af karimannafrökkum.
5 verksmiðjur framleiddu 8.832 stk. aí kvenkápum.
6 verksmiðjur framleiddu 18.870 sett eí kárímannafötum.
1 verksmiðja framleiddi 46.632 stk. af baðmuiiarnaérfötum.
1 verksmiðja framieiddi 36.465 pör af karlmannasokkum.
2 verksmiðjur framleiddu 27.712 stk. bí manchetskyrtum.
5 verksmiðjur framieiddu 75.372 pör aí ailskönar skóm.
Umbúðaframleiðsia
Kassagerðin íramleiddi 4.48).319 ksrtonöik.jur, 3.721.334 bylgju-
pappakassa og 50.679 trékassa.
Leðurvöruframleiðsla
1 verksmiðja framieiddi 5.200 pör sf hcrzkum og.
1 verksmiðja framleiddi 1.696 kventcskur.
Kemiskur iðnaður
ísaga h.f. framleiddi 95.300 m3 af súrefnj og 4G.500 lrg.
acetylengasi.
2 verksmiðjur framleiddu 850 tonn aí msiningu og lökkum.
1 verksmiðja framleiddi 20 tonn af kertum. • . ~ '
3 verksmiðjur framleiddu 224 tonn af biautsápu.
3 verksmiðjur framleiddu 102 tonn af þvotiadufti. '
2 verksmiðjur framieiddu 5 tonn af gólíáburði.
2 verksmiðjur framleiddu 3.4 tonn af stangásáþu. i i ’ "' j
2 verksmiðjur framieiddu 3.9 tonn af fcanosápu.
1 verksmiðja framleiddi 1 tonn af rsÉstiduíti. I
Byggingarvöruframleiðsla
1 verksmiðja framleiddi 153.100 vikurholsteina og 79.690 vikur-
plötur til einangrunar.
1 verksmiðja framieiddi 4.50 tonn af gosull.
' yuþ'ó ' í
Málmiðnaður og raftækjaiðnaður ,<
1 verksmiðja framleiddi 10.000 stáltunnur.
1 verksmiðja framleiddi 500 olíugeyma. ;
1 verksmiðja framleiddi 800 reiðhjói. v
2 verksmiðjur framleiddu 8.500 m2 af miðstöðvarofnum.
1 verksmiðja framleiddi 830 sík. af stálvöskúm.- - - -
1 verksmiðja framleiddi 1000 stk. þvegla.
Vélsmiðjan Héðinn framleiddi m. a. 12 vökvaknúnar linuvinður,
12 roðflettingarvélar eftir innlendri uppfínnihgu, vélar og tæki
í 2 fiskimjölsverksmiðjur, frystitæki í .2 nýsköpunartogara og >
ennfremur hraðfrystitæki, flutnings-' bg’ fiökuna-rbönd -fyrir
fjölda hraðfrystihúsa. L *
Raftækjaverksmiðjan h.f. framleidöi: IQS3 eldavélar, 601 ofn,
78 hitara og hitadunka, 550 kæliskápö, 360 þvottávéiar (í sam-
vinnu við Vélsmiðjuna Héðinn), 413 þ.ottapotta og 350 trlk.
ýmis tæki.
1 verksmiðja framleiddi 800 „floureceflf-lampa.
ALLSHERJARVERKFALLIÐ !
OG ÁHRIF ÞESS Á IDNAÐINN
Verkfallið mikla 1.—19. des.1
náði sem kunnugt er til allra
greina iðnaðarins í Reykjavik,;
Hafnarfirði og víðar. — Fyrir [
neyzluvöruiðnaðinn var þetta;
mikið áfall. Desembermánuður.i
er mesti sölumánuður ársins. —!
Framleiðslu- og afgreiðslubann á i
iðnaðarvörum hjá innlendum |
verksmiðjum olli því að ýmsar j
erlendar iðnaðarvörur, fluttar!
inn áður á árinu og lítt seljan- j
legar í samkeppni við þær inn- j
lendu, voru keyptar unnvörpum j
á þessu tímabili. Rýrir það sam- |
keppnisaðsíöðu iðnfyrirtækjanna
um nokkra framtið. Ársfram- j
leiðslan er að sjálfsögðu rýrari, j
sem þessu timabili nemur, en auk j
þess hefur skyndistöðvun sem
þessi áhrif til rýrnunar á afköst-
in fyrsta skeiðið.
Vonandi er, cð langt verði sð
bíða stöðvunar af þessum sökum
öðru sinni.
LOKAORÐ
Iðnsýningin gerði árið 1952 að
merkisári í sögu iðnaðarins. Hún
opnaði augu almennings fyrir
gildi iðnaðar sem framtíðarat-
vinnuvegar á íslandi. Með því
var einum merkasta áfanga náð
í iðnaðarsögu landsins.
Þó að stofnun hlutafélagsins
Iðnaðarbanki íslands leysi ekki
úr lánsfjárskorti iðnaðarins á
þessu ári, standa vonir til að sá
viðburður verði talinn þýðingar-1
mnmi lyrir tramtiöarþroun 10n-
aðarins. . ,
Um áfkomu inniends iðnaðar
yfirleitt' á árinu rná segja, að
nokkuð - mei?a- •- jsJnvægi-. haii
skapazt en rikti fyrst eftir út-
gáfu frilistíírjna á-árinu 1951.
Nokkre.r iðnaðargreinar ha|a
orð'ð harkrJega fyrir b&rðinu á >
innflutniugi •erlendra - iðnaðar- ■
vara, einkaniega þeirra, scm
fluttar eru inn frá sterlings- og
dollarasvæðimi, j&fnvel pú,'"í<9
með bátaáiagi séú. Tiftölulnga '•
smávægilegar breytíngar fcátafrí-
listans og nins aimenna frílista
myndu. ,s(óí,upa.. ý_r. .vand: '
kvæðum neyzíúyöruiðntðarins
og tryggj^ þcnpan atvinnuveg
betur j lahdinú.
Aimennesta umkvörtim 5ðn- .
vörufrárfcieiðefida hnigpr að þvi, .
að lánsfé vanti til rekstrarins. F.r
sýpilegt,. a.ð - ,úr Jþyl -ýerc/ur að
bæta, ef iðhaSurinn á að hafa ■
nokkra samkeppnisaðstöótr 'VmS '
innflutning eriendra iðnaonr- ,
vara. •
Enduískoðún skatta- og toila-
löggjafariru-ar ;waiv ofarjcga- -ú
baugi sem dagskrármál iðnaönr-
ins á þessa ási sem undanfar'm
ár, svc og afnám siHuskatts 1
iðnaCarv'öra^a.. án þess að breyt- •
ing&r haf-i orðið á; þvi •skipiilagt.
Þó verður aS teija til Þöjnda -»
þessu sambandi nýxáll'inn hæstn- .
réttardóm sem-'..yii;ðist" g;-ía íi’í
kynpa.- s.S reik.n^
nemc. 2(1 söluskati af íslenzkjrr*|
Fr&mhaid á b’s. 3 )