Morgunblaðið - 21.01.1953, Blaðsíða 1
[ 40» árgangu
16. tbl. — Miðvikudagur 21. janúar 1*53
PrentsmiSja Morgunb iaðsina
Varaforsælisráðherra áuslur-
Þýzkalands næsfa fómardýrið
Krafizf, sð hsnn verði sstíiár undir lögreglyeffirlif
BEílLÍN, 20. jan. — Forystumenn í austur-þýzka CDU-flokknum
hafa krafizt þess, að formaður flokksins, Ottó Nuschke, varafor-
sætisróðherra Austur-Þýzkalands, verði settur undir lögreglueftir-
lit. Enn fremur segir í fréttum frá Berlín, að aðalritari flokksins,
Geraid Götting, hafi snúið sér til austur-þýzku lögreglunnar' og
fari'ð þess á leit við hana, að hún hafi vakandi auga með Nuschke.
NAFN IIANS NOTAD ♦
Þó hefur nafn hans verið notað
móti Dertinger, fyrrum utanríkis
ráðherra landsins, sem nýlega
hefur verið handtekinn, ákærður
fyrir „landráð, svik og njósnir í
þágu Vesturveldanna," því að í
fyrradag birtist í aðalmálgagni
CDU, Neue Zeit, yfirlýsir.g þess
efnis, að Dertinger hafi „því mið-
ur verið sannur að sök“, eins og
Dertinger. — Bíður í skugga
gálgans.
þar er komizt að orði, og er
þessi yfirlýsing undirskrifuð af
Nuschke.
EINN AF ÞREMUR
Nuschke, sem nú er 70 að aldri,
er einn þriggja manna úr CDU-
flokknum, sem enn er í ráðherra-
sessi í Austur-Þýzkalandi. Hinir
eru Luitpold Steidle, heilbrigðis-
málaráðherra, og Friedrich Bur-
meister, póst- og símamálaráð-
herra. — En ekki er álitið, að
hinn fyrr nefndi verði látinn
skipa embætti sitt lengi, því að
farið er að brydda á allharðri
gagnrýni á embættisrekstri hans
og ekki alls fyrir löngu hlaut
harn slæma útreið á austur-
þýzku læknaþingi. Var honum m.
a. borið á brýn að hafa staðið
gegn því, að ýmsar nýjustu upp-
götvanir á sviði læknavísindanna
hærust til Austur-Þýzkalands.
Víldi vinna fyrir
íslendinga, -
aSvinnulaus síðan
-k BREZKA blaðið Daily Herald
skýrir frá því nýlega, að Breti
nokkur að nafni Hr. Charles
Johnson, sem búsettur er í
Hull, hafi lýst því yfir, að
hann sé himdeltur vegna þess
að hann hafi boðizt til að út- ★ Wayne Morse- öldungardeild-
vega um 200 vcrkamenn til arþingmaður, einn af aðal-
þess að skipa upp úr íslenzk- 1 stuðuingsmönnum Eisenhow-
um togara. Gerði hann það
Eisenhower tók við for-
setaembættinu í gær
FBÉTTl B
siuiiu Hláli
I
k LUNDUNUM, 20. nóv. Anton
Eden, utanrikisráðherra Breta,
hélt í dag ræðu í Neðri deild
brezka þingsins um handtökur
þýzku nazistanna á dögunum.
— Kvað hann það hafa verið
brezku hernámsstjórninni
nauðsynlegt vegna þeirra
saka, sem hún gæti sannað á
þá, og sagði, að vestur-þýzka
stjórnin vissi ekki um þær á-
stæður, sem til þess hefði leg-
ið, að Þjóðverjar þessir hefðu
verið handteknir. Hefði þessi
atburður m. a. af þeim sökum
komið nokkuð flatt upp á
hana.
er í forsetakosningunum, réð-
ist i dag harkalega á hann og
ásakaði hann um takmarka-
laust dekur við Taft-arminn
innan repúblikanaflokksins.
Kashani, forseti íranska þings
ins og fyrrum einn af aðal-
stuðningsmönnum Mosadekks,
forsætisráðherra, hefur sent
forsætisráðherranum bréf, þar
sem hann hvetur hann til þess
að taka ekki við alræðisvaldi
því, sem futltrúadeild íranska
þingsins veitti honum í fyrra-
dag. — NTB-Reuter.
600.000 Gyðingar í
rússneskum þrælabúðum
KAUPMANNAHÖFN, 20. jan. —
Samband bandarískra Gyðinga
hefur tilkynnt, að því sé kunn-
ugt um, að um 600.000 Gyðingar
séu í rússneskum þrælabúðum. —
I Sovétríkjunum eru um 2 millj.
Gyðinga.
Enn fremur segir i tilkynningu
sambandsins, að engir Gyðingar
hafi upp á síðkastið verið út-
refndir liðsforingjar í Rauða
hernum, stjórnarerindrekar né
settir í önnur mikilsverð em-
bætti.
skömmu áður en löndunar-
bannið gekk i gildL {
k Hefur hann kvartað yfir því
til verkaiýðssambanðsins, sem
hann er félagi í, að síðan þetta
gerðist hafi hann ekki getað
fengið vinnu, hvernig scm
hann hafi reynt. — „Verka-
lýðsfélagið getur ekkert gert,“
sagði hr. Johnson, þegar hið
brezka blað átti við hann stutt
samtal. „Það getur ekki neytt
atvinnurekendur til þess að
láta mig hafa atvinnu og verk
stjórarnir við höfnina hafa að-
eins sagt við mig, að þeir
þurfi ekki á vinnu minni að
halda.“ |
-k „Þetta hófst, þegar um 200 LUNDÚNUM, — Formaður
hafnarverkamenn komu til Gyðingasambands Ungverja-
mín og báðu mig um að spyrj- lands, Lajos Stöckler, hefur ver-
ast fyrir nm það hjá umboðs- ið handtekinn af ungversku ör-
manni íslenzks togara, sem yggislögregíunni, að því er tii-
var nýkominn með fisk til kynnt hefur verið.
Hull, hvort þeir gætu ekki í Austur-Þýzkalandi hefur dr.
fengið atvinnu við að losa fisk Georg Honigmann, ritstjóri, ver-
inn úr honum. íslendingarnir ið handtekinn af austur-þýzku
voru fúsir til þess að taka öryggislögreglunni. Hann er
þessa menn i vinnn, en þá Gyðingur að ætterni, og hefir
skall löndunarbannið á, svo verið ritstjóri blaðsins „Bz am
að til þess kom ekki. — Síðan Abend“, sem gefið er út í Austur
hef ég verið atvinnulaus,“ Berlín. — Kona hans hefur einnig
sagði þessi brezki verkamaður verið. kommúnisti um langa hrið,
að lokum í viðtali sínu við hið en var handtekin um leið og mað-
hrezka blað. ur -hennar.
liéll stefnuskrárræSu hinnsr nýju sljórnar.
OsSaSi vinveiSfyíií ríkjaim áframbaldandi aSsfoS
og eflingn S. b.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
WASHINGTON, 20. jan. — í dag var Dwight D. Eisenhower, hers-
höfðingi, formlega settur inn í hið nýja embætti sitt sem forsett
Bandaríkjanna. Er hann hinn 34. forseti Bandaríkjanna. — Var
athöfnin hin hátíðlegasta og fór hún fram fyrir framan þinghúsi®
í Washington.
Geysilegur mannfjöldi — um 125.000 manns — hyllti hann,
er hann hafði svarið við Biblíu móður sinnar að gera allt
það, sem í hans valdi stæði, til þess að þjóna landi sinu og
þjóð eftir beztu getu.
Voru handfekin
Sættir í deilu
manna tókust í nótt
SÁTTANEFNDIN í deilu útgerðarmanna og sjómanna hér I
Reykjavík og Hafnarfirði, boðaði samninganefndir aðila á sinn
fund kl. 9,30 í gærkvöldi. Lagði nefndin þá fram nýja miðlunar-
tillögu.
Kiukkan að ganga tvö í nótt tókust svo samningar í vinnudeil-
unni, sem hófst 1. janúar s.l. — Samningamenn undirrituðu hina
nýju saroninga, en báðir aðilar þó með þeim fyrirvara, að sam-
þykki funda í félógum þeirra komi til.
Bæði útgerðarmenn og sjómenn munu svo í ðag halda fundi,
þar sem gengið verður til atkvæða um nýju samningana.
Eisenhower bóf dagsverk
sitt raeð því að fara í kirkju
með fjöLskyldu sinni og hinni
nýju stjórn hans. — Eitir
guðsþjónustuna fór hann á-
samt konu sinni til hótels
þess, er hann bjó á, í höfnð-
borginni, en seinna um dag-
inn héldu þau til Hvíta húss-
ins, þar Truman og kona lians
tóku á móti þeim. — í fylgd
með Eisenhower og konu hans
voru forseti fulltrúadeHdar
Bandaríkjaþings, Joseph Mar-
tín, og núverandi forseti Öld-
ungadeildarinnar, Style Bridg
es, öidungadeildarþingmaður.
Þúsundir manna höfðu þá þeg-
ar safnazt saman á götum
Washingtonborgar til að hylla
hinn nýja forseta og konu
hans, þrátt fyrir mikinn kulda.
TVEIR FORSETAR
Frá forsetabústaðnum óku þeir
saman, Truman og Eisenhower,
til þinghússins, þar sem aðal-
atriði þesarar hátíðar fóru fram.
Þar var einnig geysilegur fjöldi
saman kominn til þess að sjá
hinn nýja forseta taka við em-
bætti sínu og er áætlað, að um
25.000 manns hafi verið á þing-
hústorginu einu saman. Þar voru
þingmenn, hæstaréttardómarar,
hinir nýju ráðherrar og fleiri
stórmenni einnig saman komin.
LUTTI STEFNUSKRÁR-
RÆÐUNA
l Þegar hinn nýi varaforseti
Bandaríkjanna, Richard Nixon,
hafði unnið eið sinn, gekk Eisen-
hower fram og vann sinn eið. —
Að því búnu tók hann í höndina
á Truman, kyssti konu sína og
hélt að því búnu stefnuskrár-
ræðu hinnar nýju stjórnar
repúblikana.
LJÓS OG MYRKUR
í ræðu sinni sagði hinn nýi
forseti, að hann væri fús til þess
að vinna með hverjum sem væri
að því að útrýma þeim ótta, sem
nú gerir svo mjög vart við sig
meðal allra þjóða heims. Hann
sagði, að hið góða og illa í heim-
inum stæðu nú andspænis hvort
öðru, grárri fyrir járnum en áður
hefði þekkzt í sögu mannkynsins.
Hann kvað baráttuna standa
milli frelsisins og þrældómsins,
— ljóssins og myrkursins. Segja
má, að ræðan hafi verið áskorun
til hins frjálsa heims um að
mynda skjaldborg um frjálsa
hugsun og önnur helgustu leið-
arljós mannkynsins á göngu þess
fram á leið. — Forsetinn hét öll-
um þeim ríkjum aðstoð Banda-
ríkjanna, sem vildi vinna með
þeim að því, að varðveita frels-
ið í heiminum og minnti á þá
fjölmörgu þætti, sem sameigin-
legir væru bandarísku þjóðinni
og þjóðum Evrópulandanna. —.
Hann kvað Bandaríkin hafa full-
an hug á þvi, að efla starf S. Þ.
og gera þær virkari i þeirri við-
leitni þeirra að tryggja örýggið
í heiminum.
NÍU STEFNUATRIÐI
í þessari ræðu sinni setti
hann fram 9 grundvatlar-
stefnuatriði hinnar nýju
stjórnar repúblikana: — í
fyrstu þremur atriðunum
kveður hann svo að orði, að
allir frjálsir menn í lieiminum
leggi traust sitt á styrk Banda
rikjanna og boðar aukinn
styrk þeirra og annarra
frjálsra þjóða til þess að geta
staðið gegn ofbeldisárásum. í
þremur næstu atriðunum við-
urkennir hann hið ágæta starf
S. Þ. og heitir þeim fullum
stuðningi hinnar nýju stjórn-
ar og í siðustu þremur atrið-
unum fordæmir hann alla kyn
þáttakúgun og lýsir þeirri
skoðun stjórnar sinnar, að
allir kynþættir séu jafnrétthá-
ir. Þar segir hann einnig, að
stjórn hans muni vinna að því
að gera S. Þ. að meiru en
tákni einu saman; hún vilji
gera þær að öflugu valdi, sem
beitt sé til eflingar friði og
farsæld í heiminum.
Að þessari ræðu sinin lokinni,
tók hinn nýi Bandaríkjaforseti
kveðjum mannfjöldans enn einu
sinni og ók ásamt konu sinni til
hins nýja heimilis síns í Hvíta
húsinu.
Dæmdur
III dauðð
PARÍS, 20. jan. — í dag var
aðalsakborningurinn í hinum
nýju réttarhöldum í Sofíu,
Todor Stdjanov-IIristov, liðs-
foringi, dæmdur til dauða. —
Verður hann skotinn innan
skamms. — Hinir sakborning-
arnir — 9 að tölu —, sem
handteknir voru um leið og
Todor, ákærðir fyrir að reyna
að kollvarpa kommúnista-
stjórn landsins, voru dæmdir
í 18—20 ára fangelsi.
— NTB-Reuter.