Morgunblaðið - 15.03.1953, Blaðsíða 2
MORGUISBLAÐIÐ ''
Sunnudagur 15. marz 1953
íí
I
Og
i arniað áfensi i Finnkndi
C
!A UMRÆÐUFUNDI þeim, sem
haldinn var í stúdentafélagi
Eeykjavíkur 20. jan. s.l. um
áfengismálið, hélt hr. Jóhann
Möller forstjóri því fram, að
íieyzla sterkra drykkja hefði
minnkað að verulegurn mun upp
á síðkastið í Finnlandi, og þakk-
.aði; hann þetta því, að kostur,
vteri þar nú á sterku öli. Taldi
liann, að þetta ætti að vera til
íyrirmyndar fyrir oss Isiend-
inga. í seinni ræðunni, sem Möll-
■ef, flutti á fundinum, tok hann
það fram, að þessum ummælum
sínum hefði ekki verið hnekkt
á fundinum, og var það rétt. —
33g les sitt af hverju um áfeng-
ismálin, eins og vera ber, og
séi-staklega um gang þeirra á
Tíorðurlöndum. Mér kom full-
yrðing forstjórans um ástandið.
í Finnlandi á óvart og þótti húnj
Tortryggiieg, en af því að égj
tiafði engar tölur tiltækar á J
fundinum til þess að hnekkja*
Jnenni, hugsaði ég mér að bíoa
að svara honum, þangað til ég
gæti aiveg óvéfengjanlega hrak-(
ið þessar fullyrðingar. í Helsing-
fors er stofnun, sem heitir'
Haittiusjárjestöjen Yhteistoimi-;
Ikunta, og vér gætum kallað sam-|
vínnunefnd bindindsfélaga. Erj
Jaún miðstjórn bindindismálanna
tl Finnlandi og hefir skrifstofu
•jþar í borginni. Forstöðumaður
jliennar er sósíalráðið Vihtori
IKarpio, og hefi ég haft náin
ijcynni af honum síðastliðin '27 ár,
eti formaður nefndarinnar er
Alpo Lumrae, landshöf ðingi "í
Mikkeli, og varaformaður henn-
ar er dr. theol. Rafael Holmström
ákólastjóri. Var hann forseti
:Xiorræna bindinisþingsins í Hels-
:w. I
samþykkir raótmæli
ingfors 1950. Út af ölmálinu og
ummælum Möllers á fyrrneínd-
um fundi, sneri ég mér til skrif-
stofu samvinnunefndarinnar
finnsku og spurðist fyrir um,
hvort þessar fullyrðingar væru
réttar. í bréfi frá skrifstofunni,'
dags. 7. þ. m., segir:
„Það er ekki rétt, að áfengis-
neyslan hafi minnkað fyrir ölið.
Brennivínsneyslan hefur að vísu
nokkuð minnlrað, en í staðinn
hefur neyzla annarra sterkra
drykkja aukist (Auðkennt af
mér. B. T.) (Flestir þessir drykk-
ir hafa jafnmikið alkohol-inni-
hald eða meira en brennivínið).
Áfengisneyzlan á hvert manns-
barn í Finnlandi, reiknuð í 100%
alkohol, hefir verið sem hér
segir síðustu árin:
1945 ... 1.74 lxtrar
1946 .... . ... 1.90 —
1947 . . . . . . . . 1.80 —
1948 .... . . . . 1.75 —
1949 . . . . . . . . 1.47 —
(stimpilskattur 300 finnsk mörk
á hvert innkaupaskírteini minnk-
aði neyzluna, en síðar var skatt-
niður
100
1.73 lítrar
1.79 —
1.83 —
jjsingið í Reykjavík
J UNDIRBÚNINGSNEFND nor-
xæna bindindisþingsins hefurráð-
ið Árna ritstjóra Óla aðalritara
xiorræna bindindisþingins í sum-
£.[ og ritstjóra þingtíðindanna,
•enn fremur til skrifstofustaría frá
20. marz, og ber öllum innan-
lands, þeim sem óska upplýsinga
•um þingið, að snúa sér til hans.
jAUir þeir, sem ætla að láta skrá
yig til þátttöku í þinginu, eiga að
jgefa sig fram við Árna Óla. —
Ivíenn eru hér með minntir á það,
«ð frestur til þess að láta skrá-
setja sig rennur út 15. apríl n.k.,
: <.g taka skulu þeir greinilega
íram, hvort þeir ætla að taka
1)átt í förinni til Geysis (kostar
121.00 ísl. kr. með eínni máltíð),
■til Þingvalla (kostar kr. 34.00),
■ .annarri hvorri, báðum eða hvor-
, cigri.
Utanáskrift þingsins er Nor-
íræna bindindisþingið í Reykja-
vík 1953, Árni Óla, ritstjóri, I.ang
fcoltsvegi 77, Reykjavík.
' 'Áðgangseyrir skal greiddur í
Jþingbyrjun, kr. 50.00 ísl. Nánar
tíitekið síðar hvar.
ó'Eriendu gestirnir koma, að for-
íxHalausu, til Reykjavíkur að
Ulorgní 31. júlí með Brand V frá
33ergen og með A.P. Bernstorff,
■íiukaskipi Sameinaða félagsins,
ífrá Kaupmannahöfn. Bæði skipin
láta úr höfn í Reykjavík 6. ágúst,
kl. 6 síðdegis.
Þeir, sem óska að taka þátt í
í.cj-fundum kvenna. kennara,
i fúdenta, bílstjóra, kristna ráðs-
; Sns og lækna, skulu segja til sín
s-i-riflega tíl Árna ritstjóra Óla. —
lóérfundir þessir veroa röstudag-
líin 31. júií, kl. 10—13 og 15—17,
laugardaginn x. ágúst, kl.
it,—13. — Hatíðieg móttökuat-
3 ,.ofn fýrir ' allt nórræna þingið
liefst 31 jtíli; kl. 19.30, í Þjóð-
3«~ikhuwnu,-en r.orræna foindindis'
t-mgið verður sett 1. ágúst, kl.
eða ú nóni. B.T,
urinn lækkaður
mörk).
1950 ......
1951 ......
1952 ......
Frá því 1933, að núverandi
áfengislög gengu í gildi, hefurj
neyzlan aðeins einu sinni (1946) j
verið meiri en síðasíliðið ár“.
Þetta segir skrifstofustjóri sam-;
vinnunefndarinnar finnsku. Töl-;
urnar tala sínu máli, og þær
'sýna, svo að ekki verður um
villst, hver sannléikurinn um
ölið og áfengisneyzluna í Finn-
landi. Þykist ég nú hafa hrakið
ummæli hr. Jóhanns Möller og
kippt fótunum undan fullyrðing-
um hans um það, að sterkt öl til
neyzlu hafi reynst vel fallið til
þess að draga úr neyzlu sterkra
drykka í Finnlandi.
P.t. Reykjavík, 11. marz 1953.
Brynleifur Tobíasson.
BúslaSasókn
NÆSTKOMANDI þriðjudags-
kvöld verður haldinn stofnfund-
ur kvenfélags Bústaðasóknar.
Verður fundurinn haldinn i Kaffi
Höll og hefst kl. 9 síðd.
Eins og skýrt hefur verið frá,
hefur verið unnið að undirbún-
ingi að stofnun félagsins um nokk
urt skeið. Ákveðið hefur verið að
félagið skuli hafa forgöngu um að
afla ýmissa kirkjumuna og vinna
að hvers konar mannúðarmálum
og öðrum þeim, sem kvenfélög
safnaðanna í bænum láta til sín
taka, svo sem kirkjubyggingar-
mál.
Undirbúningsnefnd hefur beðið
Morgunblaðið að hvetja konur í
sókninni til að fjölmenna á stofn
íundinn.
ARNESI, 14. marz: — Aðalíundur
Mjólkursamlags K. Þ. samþykkti
í gær eftirfarandi tillögu með at-
kvæðum allra atkvæðisbærra
fundarmanna:
..Aðalfundur Mjólkursamlags
Kaupfélags Þingeyinga haldinn í
Húsavik, 13. raarz, 19a3, mótrnæi-
ir eindregið þeirri aðíerð fram-
leiðsluráðs landbúnaðarir.s að
semja urn mjólkurverðlækkun til
framleiðenda, jafnhiiða því að
það bakaði þeim stórfellt tjón, en
öðrum stéttum hins vegar veittar
sérstakar kjarabætur með mjólk-
urlækkuninni. Fundurinn telur
að með þessum ráðstöfunum hafi
verið rofnar hinar lögbundnu
reglur um verðlagningu landbún-
aðarvara og gefið skaðlegt for-
d.æmi. Funáurinn leggur áherzlu
á, að slíku máli mætti ekki ráða
til lykta nema það hefði áður
verið bórið undir félagssamtök
allrar bændastéttarinnar. Sér
staklega þegar á það er litið að
bændur höfðu árið 1944 lækkað
vörur sínar í verði an þess að
aðrar stéttir hefðu lagt þar nokk-
uð á móti, þegar til kom. Fundur-
inn gerir þess vegna þá kröfu, að
Búnaðarþing það, er nú situr og
stéttarsamband bænda víti harð-
lega þetta gerræði framleiðslu-
ráðs og telur að nefndum aðilj-
um beri skylda til þess að beita
sér fyrir leiðréttingu fyrir hönd
bænda.“ — Fréttaritari,
Myni
um ÞJóðl
UM ÞESSAR mundir sýnir Vign-
ir. ljósmyndari, í sýningarglugga
Haraldar Árnasonar, fjöldann
allan af litmyndum af heiztu
.leikurum Þjóðleikhússins i ýms-
um gerfum og hlutverkum. —
Þessari myndasýningu er smekk-
lega fyrir komið, og mun vissu-
lega vérða bæjarbúum til mikill-
ar ánægju.
Þar sem aðeins lítill hluti af
myndum Vignis gat rúmazt í
gluggunum, mun verða skipt um
myndir innan hálfs mánaðar.
893 lélusi úr
influenzu
LUNDÚNUM, 14. marz: — Til-
kynnt var í Bretlandi í dag, að í
síðustu viku hel'ðu 893 manns dá-
ið úr inflúenzu þar í landi. Er það
120 manns færra en í vikunni ,
þar á undan. — Það, sem af er j
þessu ári hafa 2575 manns látizt j
úr inflúenzu þeirri, sem gengið I
hefur í Bretlandi undanlarna
mánuði, en er nú í rénum.
■— Reuter,
Nýr Sfandard Vanguard
Nýr Stamlard Vanguard kom fram á sjónarsviðið á bilasýningunni
í Genua í byrjun þess*a mánaðar. Þótt bíll þcssi sé í öllum aðal-
atriðum eins og sá Vanguard, sem hingað hefur flutzt, þá eru þó
nú margvíslegar endurbætur og einjtiig’ áíitsbreytingár á þessum
bíl, eins og myndin sýnir. ‘
Framhald af bls. 1
annarra þeirra er í Kína dvöldu
að Kínakommúnistarnir vildu vel
— að þeir vildu í raun og veru
hjálpa þjóðinni. Meðal þeirra
voru ýmsir menn sem voru virtir
og mikils metnir og á þá var
hlustað með athygli. Og margii;
urðu til að veita þeim að mál-
um.
En svo hófst bvltingin. Allt
gerbrcyttist. — Herinn æddi
áfram, drai), flutíi fólk á
brott, ruddi ölíum hindruiium
úr vegi, æsti fólkið, skapaði
ótta. Skelfingin var alger. Þá
komust menn að því að leið-
togarnir, sem áður voru taldir
heiðarlegir menn, voru alveg
eins og Rússlandskommúnisí-
ar. Þeir virtu mannhelgi
einskis. Nú voru þeir kúgaðir.
Þeir urðu persónulausir. Þeir
voru eins og sprellikarlar. —
Hönd flokksins hélt í spott-
ann og stjórnaði hreyfingum
þeirra og gerðum.
Þannig eru kommúnistar í
öllum löndum. Landar þeirra
trúa því ekki á þá að ÞEIR
geti verið vondir menn. Vit-
neskjan um það hefur ekki
fram að þessu opinberast
mönnum fyrr en það var um
seinan.
FRÉTTIR KOMMÚNISTA
Sr. Jóhann sýndi blaðamönn-
um úrklippur úr blöðum, sem
i'lytja fregnir frá fréttastofum
kommúnista, New China News
Agency sem hefur' aðalbækistöð
í Peking og er Tassfréttastofa
Kína. Þær úrklippur staðfesta
svo ekki verður um villzt þau
hryllingsmorð sem kommúnista-
byltingin í Kína hefur drýgt og
er ailtaf að drýgja. Dæmi:
11. apríl 1951 sendir Ncw
China News Agency út frétt ufn
að 70 þús. manns hafa safnazt
saman í Chungking og 300 þús.
manna hlýtt á útvarp frá ein-
um merkisatburði í sögu kín-
verska alþýðulýðveldisins.
Kona var ákærð af dóttur
sinni sem krafðist þess að hún
skyldi líflátin. Dóttirin sagði:
„Njósnarar eru ómannlegir.
Ég get ekki litið á þessa konu
sem móður mína. Ég bið rík-
isstjórnina að láta lífláta hana
svo fólkinu stafi ekki lengur
hætta af henni.“ Á sömu sam-
komu voru f jölmargir andbylt
ingarsinnar ákærðir og teknir
af lífi.
FORDÆMÍD
FRÁ RÚSSLANDI
Það er talinn ómetanlegur vel-
gerningur í þágu ríkisins að
ákæra foreldra sína í ríkjum
kommúnismans. Á það er lögð
sérstök áherzla, sagði sr. Jóhann.
Mönnunum er það ekki eðlilegt,
en það sýnir ákafa fórnarlund og
hollustu við stefnuna.
í þessu sambandi, hélt sr. Jó-
hann áfram, má minna á spádóm
Biblíunnar: „Börn munu rísa upp
gegn foreldrum sínum og valda
þeim dauða“. Og einnig má vitna
í sögu Ráðstjórnarríkjanna, sem
útgefin er af Sovétstjórninni
1948. Þar segir í þriðja bindi, bls.
358 frá líkri sögu: Baráttan gegn
Kúiökkunum (sjálfseignabænd-
unum) stóð þá sem hæst (1932).
Ungur drengur sem bjó í þorpi
einu í Úralfjöllum ásakaði föður
sinn, sem var formaður í þorps-
raðinu, um að vera hlynntan
Kúlökkunum. — Krafðist hann
dauðadóms yfir honum og var
orðið við óskum drengsins. —
Drengurinn varð þjóðhetja.
Er þetta ekki alveg það sama
og er að gerast í Kína? Það er
ekkj verið að frelsa þjóðina. Það
er verið að hneppa hana í hrylli-
iega fjötra.
Á ótalmörgum úrkiippum Jó-
hanns voru fréttir frá New
China News Agency um fjölda-
aftökur ..andbyltingarsinna“ og
,,auðvaldsfulltrúa“. — Hér eru
dæmi: 1951.
25. apríl: „198 andbyltingar-
sinnar voru teknir af lífi í Can-
ton í gær eftir að fjöldafundur
alþýðunnar hafði ákært þá og
iátið í Ijós fyrirlitningu sína á
þeim. Athöfninni var útvarpað.
Fftir að daúðndómunum hafði
verið lýsf fékk alþýðáh heimild
til að slá þá, bíta þá eða hrækja
á þá. Mannfjöldinn fagnaði af-
tökunum.
10. maí 1951: „293 voru líflátn-
ir í Shanghai 30. apríl s.l. eftir
að 10000 manns liöfðu æpt í einu
liljóði að þeir skyldu drcpnir".
| 11. maí 1951: „376 voru teknir
af lífi í Nanking 29. april og 50
í Hangschow. Á tveimur dögum
hafa því verið lífiátnir 719 í 3
bæjum: Nanking, Kangschow ogr
Shanghai. I Ilangschow var dóm-
urinn kveðinn upp af 110 þús.
manns sem krafðist dauðadóm*
og Uerréttur varð við óskum.
fólksins“.
I
BLOÐUGl HNIFURINN
Þannig mætti lengi telja. Siík-
| ar fréttir kommúnista sjálfra
I myndu fylla margar bækur. —>
j Fréttir þjóðernissinna á Formosu
herma að um 5 milljónir manna
j hafi verið teknar af lífi í Kina,
opinberlega eða leynilega.
En það, sagði sr. Jóhann,
eru tölur, sem ætlaðar eru til
skrásetningar í hinar rauðií
sögubækur. Milijónirnar er«
miklu flciri. Ég gæti trúað affi
meira en 1% þjóðarinnar hefðí
fallið fyrir blóðugum rakhnífí
marxismans, sé allt talið nieð.
þeir sem fluttir eru á brotfe
og koma aldrei aftur og þeir
sem stytta sér aldur af ein-
skærum ótta.
ÞAR ER EKKEUT SVIÐ
MENNINGAR
Sr. Jóhann Hannesson teiur
það skyldu sína að sjá svo um
að snöru marxismans verðf
ekki brugðið um háls íslend-
inga sofandi. Viiji menn endi-
lega fá þessa snöru um hals-
inn á sér vakandi, þá vill hanr»
fyrirfram gera mönnum að-
varí um hverr.ig hún verkar
þegar í hana er kippt. Þar senr.
marxismmn nær völdum, þar
er ekkert svið menningarinn-
ar lengur í friði, hvorki skól-
ar, kirKjur, visindi, listir, at-
vinnulíf, félagsiíf, heimilislíf
né neitt annað.
Hann telur að nauðsynlegt sé
að leggja meiri áherzlu á mann-
gildisuppeldi í skólum en gert
er. Uppeldi æskulýðsins verður
að veita þá festu, sem nauðsyn-
leg er til að ráða fram úr vanda-
málum lífsins. Uppeldið verður
að stefna að varðveizlu íslenzkr-
ar menningar og sjálfstæðis þjóð-
arinnar.
ANDLEG FRÆDSLA
OG KIRKJULÍF
Æskilegt væri að Skálholt yrðí
endurreist sem kirkjulegt helgi-
setur, þar sem menn gætu bæðí
notið andlegrar fræðslu og hvíld-
j ar og kynnt sér nýja strauma i
kirkjulegu lífi.
Eg tel það muni verða þjóð
og kirkju til heilla að ríki og
kirkja yrðu aðskilin, svo sern.
venja er í þjóðfélögum með lýð-
veldisskipulagi. Þyrfti að athuga
þetta mál vel er gengið verður
frá nýrri stjórnarskrá.
BÆTTUR AÐBUNAÐUR
Braggahverfunum í Reykjavík
er nauðsyniegt að útrýma. Þau
eru hvorki holl né til prýðis,
fólk þarf á betra húsnæði að
halda en gömlum bröggum frá
heimsstyrjaldarárunum. — Þá
tel ég nauðsynlegt, Reykjavíkur
vegna, að hafa viðbúnað, ef hér
skyldi verða tjón af völdum
stríðs, flest menningarleg fjör-
egg þjóðarinnar eru hér í einni
körfu. Flestar frændþjóðir vorar
eru þegar farnar að gera ráð-
stafanir til þess að menningar-
stofnanir hennar eyðileggist ekki
í stríði. — Við íslendingar gætum
endurreist forna sögustaði og'
hat't af þeim margfalt gagn, bæði
í viðbúnaðar skyni og sem sjálf-
stæðum menningarsetrum.
Vandamál sveitanna þarf að
taka föstum tökum. Saga síðustu
ára í Kína hefur sýnt hvað leiða
kann af vanrækslu sveitanna. Ég
vona að sú saga endurtaki sig
ekki’ á íslándi. því húh; ér ekkí
fög’ur — hvorki fyrir byltingún^
né eftir.