Morgunblaðið - 25.03.1953, Page 4
4
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 25. marz 1953
84. dagur ársins.
ArdegisflæSi kl. 02.05.
SíSdegisflæði kl. 14.52.
Næturlæknir er í lænavarðstof-
nnni', sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki, sími 1760.
Ljósastofa Hvítabandsins að Þor
finnsg. 16, er opin kl. 1.30 til 5 e.h.
Rafmagnsskömmtunin:
1 dag er skömmtunin í 5. hverfi
frá kl. 10.45 til 12.30 og á morg-
un, fimmtudag, í 1. hverfi frá kl.
10.45—12.30. ,
I.O.O.F. 7 = 1343258í/2 = Sp.kv.
Dagbók
-n
• Veðrið .
i 1 gær var suðvestan átt og rign-
ing á Suðurlandi en á Vestur-
og Norðurlandi og norðan til
á Austurlandi, var norð-aust-
' an átt og snjókoma. — 1 Rvík
var 8 stiga hiti kl. 15.00, 1
st. frost á Akureyri, 6 st.
frost í Bolungarvík og 3 stig
á Dalatanga. — Mestur hiti
hér á landi í gær kl. 15.00,
mældist á Hólum í Hornafirði,
Kirkjubæjarklaustri og Loft-
' sölum, 9 stig, en minnstur hiti
í Bolungarvík, 6 stiga frost.
I London var hitinn 12 stig,
II stig í Höfn og 18 stig í
París. —
-------------------—O
• Messur •
Ðómkirk jan : — Föstuguðsþión-
usta í kvöld kl. 8.15. Sr. Jón Auð-
uns. —
Hallgrímskirk ja: — Föstuguðs-
þiónusta kl. 8.15 í kvöld. — Séra
Sigurjón Þ. Árnason.
Fríkirkjan: — Föstuguðsþjón-
usta kl. 8.30. Sr. Þorsteinn Björns
son. —•
Laugarneskirkja: — Föstuguðs-
þjónusta kl. 8.20 (athugið breytt-
an tíma). — Sr. Garðar Svavars
son. —
• Bruðkaup •
14. þ. m. voru gefin saman í
hjónaband í Kaunmannahöfn ung-
frú Grethe Hundlh, Odensgade 17
og Sigurður Breiðfjörð Guðmunds
son, rafvirki, Vatnsnesveg 28 í
Keflavík. —
Nýl. voru gefin saman í hjóna
band í Washington D.C., ungfrú
Margrét Thors, sendiherrahjón-
anna þar og L. Blaine Clarke for-
stjóri. —
• Afmæli •
70 ára afmæli á í dag frú Liija
Gísládóttir frá Neðra Ási, Hjalta-
■dal, Skag., nú til heimilis Elliheim
ilinu í Reykjavík.
ólafur Frímann Sigurðsson,
skrifstofustjóri, Vesturgötu 45,
Akranesi, varð 50 ára s.l. mánu-
dag. Heimsóttu hann fjöldi vina
þar á meðal karlakórinn Svanir,
sem söng þar úti og inni nokkur
lög afmælisbarninu til heiðurs. Er
þetta ásamt sæg heillaskeyta, vitm
um vinsældir Ólafs og þeirra
hjónanna. —O.
• Skipaíréttir •
ESmskipafélag íslands b.f. •
Brúarfoss fór frá Reykjavík kl.
17.00 í gærdag til Kaupmannahafn
ar, Hull og Leith. Dettifoss kom tii
New York 18. þ.m. frá Reykjavík.
Goðafoss fór frá Hamborg 24. þ.
in. til Antwerpen, Rotterdam og
Hull. Gullfoss fer frá Reykjavík i
kvold kl. 22.00 til Miðjarðarhafs-
landa. Lagarfoss fer frá Reykja-
vík kl. 20.00 í gærkveldi til New
YorkT Reykjafoss kom tii Rvíkur
22. þ.m. frá Antwerpen. Selfoss
hefur væntanlega farið frá Gauta
borv 23. þ.m. til Hafnarfiarðar.
Tröllafoss fór frá New York 20.
þ.m. til Rvíkur. Drangajökull kom
til Reykjavíkur 23. þ.m. frá Hull.
Straumey lestar áburð í Odda í
Noregi 23. þ.m. til Reykjavíkur.
Ríkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík á morg
un austur um iand til Siglufjarð-
ar. Esja var á Akureyri í gær á
austurleið. Herðubreið er á Aust-
fjörðum á norðurleið. Helgi Helga
son er á Breiðafirði. Baldur fói
frá Reykjavík í gærkveldi til Búð-
ardals og Hjallaness.
Skipadeild SlS:
Hvassafell kom við í Azoreyjum
21. þ.m. á leið til Rio de Janeiro,
Arnarfeli fór frá Keflavík 18. þ.
m. áleiðis til New York. Jökulfel!
lestar freðfisk á Eyjafjarðarhöfn-
um. —
H.f. JÖKLAR:
Vatnajökull er væntanlegur til
Reykjavíkur á hádegi í dag. —ý
Drangajökull er í Reykjavík.
Flugferðir
Flugfclag Islands b.f.:
Innanlandsflug: 1 dag eru ráð-
gerðar flugferðir til Akureyrar,
Vestmannaeyja, Hólmavfkur, ísa-
fjarðar, Sands og Siglufjarðar. Á
morgun er áætlað að fljúga til Ak-
ureyrar, Vestmannaeyja, Blöndu
óss, Sauðárkróks, Fáskrúðsfjarð-
ar, Neskaupstaðar, Reyðarfjarðar
og Seyðisfjarðar. — Miliilanda-
flug: — Gullfaxi er væntanlegur
til Reykjavíkur frá Prestvík og
Kaupmannahöfn kl. 17.30 í dag.
Loftleiðir h.f-:
Millilandaflugvél Loftleiða átti
að koma frá New York í gær-
kveldi kl. 18.00, en vegna óhag-
stæðra veðurskilyrða varð hún að
snúa við til Gander og var ekki
væntanleg fyrr en seint í hótt eða
í morgun.
Vítaverð framkoma
Tvær stúikur gerðu sér það að
leik fyrir skömmu að segja ósatt
til um trúlofunarfrétt, sem birtist
hér í blaðinu fyrir nokkru. Sögðu
þær að Svanborg Ingvarsdóttir og
Heigi Guðmundsson hefðu opinber
að trúlofun sína, en það er al-
rangt. — Að þessu sinni verða
nöfn stúlknanna ekki birt, en fram
vegis verður ekki skirrzt við að
birta nöfn þeirra, sem gera sér
það að leik að skrökva til um trú-
lofunarfréttir hér í blaðinu. —
Það skal tekið fram, að stúlkurn-
ar sögðu ósatt til um nöfn sín, en
um hin réttu er þó vitað.
Happdræiti
Sjálfstæðisflokksins
Afgreiðsla happdrættís Sjálf-
stæðisflokksins er í Sjálfstæðis-
húsinu.
ffvoldbænir í
Hallgrímskirkju
á hverju virku kvöldi kl, 8., nema
nessudaga. Lesin píslarsagan, —
rangið úr passíusálmunum. Allir
'elkomnir. Sr. Jakob Jónsson.
• Blöð og tímarit •
Suðurland, 6. tbl., er nýkomið
út. Efni er m. a.: Viðtal við
Bjarna Bjarnason á Laugavatni
um menntaskóla þar, grein um
verðlag á mjólk. Jón Bjarnason
skrifar um ræktun og tamningu
hesta; grein eftir ritstj., um fugla
og blóm. Hinrik Þórðarson skrifar
greinina: Kýrnar borga. Gissur
Gissurason. Undan Austur-Eyja-
fjöllum. Björn Guðmundsson,
Hverjir komu með sauðfé til Is-
lands. Ávarp til bænda, um hér-
aðsþing Skarphéðins, afmælisgrein
um Brynjólf Gíslason, skyggnst
um á erlendum ritvelli, vísur til
Páls á Hjálmarsstöðum á áttræðis
afmælínu, o. fl.
Við inánans milda Ijós
heitir vals eftir Oiiver Guð
mundsson, sem er nýkomin út. C.
Billich útsetti. — Þetta er sjöunda
lag Olivers, sem hann hefur gef-
ið út. —
@ Heiður kommúnista
Ungverskir konnnúnislar reyna
nú mjög að auka fæðingatöluna
þar í landi. Þeir hafa í því skym
fest upp svohljóðandi auglýsinga-
spjöld í Budapest: — Það er
skylda giftra kvenna að eiga böru
og heiður hinum ógiftu.
Óháði Fríkirkjusöfnuður-
inn
Áheit og gjafir til Óháða frí-
kirkjusafnaðarins í Rvík. Afhent
presti safnaðarins: — Frá Einari
Þórðarsyni kr. 300,00. Kristbjörgu
í B., kr. 100,00. Aheit frá S. B. kr.
100,00. Frá ónefndri konu að aust
an, kr. 100,00. Minningargjöf uni
Tryggva Gunnarss., kr. 200,00. —-
Frá G. G. að austan kr. 100,00. —-
Móttekið með þakklæti.
í happdrætti
Sjálfstæðisflokksins
ern 50 vinnmgar, samtals að
uppliæð 130 J>ús. krónur. —
Gengisskrdning •
(Sölugengi):
1 bandarískur dollar ..
1 kanadadollar .....
1 enskt pund ........
100 danskar kr......
100 sænskar kr......
100 norskar kr......
100 finnsk mörk ....
100 belsk. frankar ....
1000 franskir fr. ....
100 svissn. frankar ..
100 tékkn. Kcs .....
1000 lírur .........
100 þýzk mörk ......
100 gyllini ........
Bókbindarafél. Islands
heldur aðalfund í kvöld kl. 8.30
í Aðalstræti 12, uppi.
Ú t varp
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
(Kaupgengi) t
1 bandarískur dollar .. kr.
1 kanadadollar ....... kr.
1 enskt pund .........kr.
100 danskar krónur .. kr.
j 100 norskar krónur .. kr.
j 100 sænskar krónur .. kr.
1100 belgiskir frankar kr.
j 1000 franskir frankar kr.
100 svissneskir frankar kr.
100 tékkn. Kcs........kr.
100 gyllini ..........kr.
16.32
16.62
45.70
236.30
315.50
228.50
7.09
32.67
46.63
373.70
32.64
26.12
388.60
429.90
16.26
16.56
45.55
235.50
227.75
314.45
32.56
46.48
372.50
32.53
428.50
Miðvikudagur 25. marz:
8.00 Morgunútvarp. — 9.10 Veður-
fregnir. 12.10—13.15 Hádegisút-
varp. 15.30 Miðdegisútvarp. 16.30
Veðurfregnir. — 17.30 Islenzku-
kennsla; II. fl. — 18.00 Þýzku-
kennsla; I. fl. 18.25 Veðurfregnir.
18.30 Barnatími: a) Útvarpssaga
barnanna „Boðhlaupið í Alaska“
eftir F. Omelka'; I. (Stefán Sig-
urðsson kennari). b) Tómstunda-
þátturinn (.Jón Pálsson). 19.15
Tónieikar (plötur). 19.30 Tónleik-
ar: Óperulög (plötur). 19.45 Aug-
lýsingar. 20.00 Fréttir. 20.20
, Föstumessa í Laugarneskirkju —
(Prestur: Séra Garðar Svavars-
son. Organleikari: Kristinn Ing-
varsson). 21.20 Kirkjutónlist
I (plötur). 21.30 Útvarpssagan:
„Sturla í Vogum“ eftir Guðmund
G. Hagalín; IX. (Andrés Björns-
son). 22.00 Fréttir og veðurfregn-
ir. 22.10 Brazilíuþættir; I: Frá
vetrarríki til sólarlands (Árni
Fi'iðriksson fiskifræðingur). 22.35
Dans- og dægurlög: Doris Day
syngur (plötur). 23.00 Dagskrár-
lok. —
I
Erlendar útvarpsstöðvar:
j Noregur: Stavanger 228 m. 1311-
kc. Vigra (Alesund) 477 m. 629 kc
í 19 m., 25 m., 31 m., 41 m. og 48 m
, Fréttir kl. 6 — 11 — 17 — 20. —
, Fréttir tii útlanda kl. 18.00, 22,0(
’ og 24.00. Bylgjulengdir: 25 m., 31
; m. og kl. 22.00 og 24.00, 25 m., 3?
m. og 190 m. —
Damnörk: — Bylgjulengdir
1224 m„ 283, 41.32, 31.51.
Svíþjóð: — Bylgjulengdir: 25.4
m„ 27.83 m. —
England: — Fréttir kl. 01.00 -•
03.00 — 05.00 — 06.00 — 10.00 -
12.00 — 15.00 — 17.00 — 19.00 -
22.00. —
LeiSréftiM)
HNÍFSDALSSÖFNUNIN
Mbl. tekur á móti fégjöf-
um í söfnun þá, sem hafin
er til nýrrar barnaskólabygg
ingar í Hnífsdal.
Aðalfundur
Skógræktarfélags Árnesinga verð
ur haldinn að Selfossi (í Tryggva-
skála) n.k. laugardag kl. 3.30 e.h.
Keflvíkingar
Kvennadeild SVFÍ í Kefiavík
minnir félagskonur og áðra velunn
ara á basar sem deiidin heldur n.
k. sunn-udag kl. 2, í Sjálfstæðishús
inu. Gjöfum óskað skilað sem fyrst
eða í síðasta lagi á föstudaginn til
Ásdísar Ágústsdóttir, Aðalgötu 24
eða Guðrúnar Sigurðardóttur,
Suðurgötu 51.
Sólheimadrengurin n
Dadda Þóra kr. .50,00. J. 80,00.
Gamalt áheit 100,00.
Hnífsdalssöfnunin
H. J. krónur 100,00.
Veika telpan
Ónefnd krónur 100,00. —
Sjálfstæðismenn,
miinið happdrætti S.jálfstæðis-
flokksins I
Hnífsdalssöfnunin
Steina kr. 28.00. Geir ólafsson,
loftskeytamaður kr. 500,00. Sæ-
björn Óiafsson, skipstjóri kr.
500,00. Auðunn Hermannsson,
Esso kr. 100,00.
Tekur upp störf á ný
BRUSSEL: — Baudouin Belgíu
j konungur er nú á góðum batavegi,
og hefur fyrir nokkrum dögum
tekið upp störf sín.
í TÍMANUM í gær er grein eftir
Hermann Jónasson, landbúnaðar-
ráðherra, sem heitir: „Á ísland að
vera réttarríki — eða skrílríki“.
Þar stendur svohljóðandi klausa:
„Fólk, sem annaðist hjúkrurt
sjúkra á sjúkrahúsum, hótaði að
gera verkfall og skilja ósjálf-
bjarga sjúklinga eftir í hirðuleysi
og varð að kaupa hjúkrunarfólk-
ið með sérstökum samningi, áður
en verkfallið hófst, til þess að
koma í veg fyrir, að þessi voði
yrði að veruleika/
Hér hlýtur að vera blandað
málum. Hjúkrun hinna sjúku
annast hjúkrunarkonur og að
nokkru leyti námsmeyjar frá
Hjúkrunarkvennaskóla íslands.
Þeim hefir aldrei dottið í hug að
yfirgefa ósjálfbjarga sjúklinga
sína, og hafa því ekki verið
keyptar til starfa með sérstökum
samningi. Hjúkrunarkvennastétt-
in er aðilji að Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja, og fær laun
sín greidd skv. launalögum opin-
berra starfsmanna, en þeir hafa
eins og kunnugt er ekki verkfalls-
rétt í þessu landi. Með þökk fyrir
birtinguna.
Reykjavík, 22. marz 1953
Stjórn Félags íslenzkra
hjúkrunarkvenna.
}lLz(5 rnaYgunkaffina
— Hafið þér aldrei gefið konu
yðar skartgripi? Þér eruð lélegur
eiginmaður, það verð ég að segja!
Jóhannes bóndi kom til höfuð-
boi'garinnar og í heimsókn til Sig-
urðar og konu hans. Á meðan Jó-
hannes bóndi sat inni í stofu hjá
frúnni, kom páfagaukur hennar
inn í stofuna, en Jóhannes bóndi
hafði aldrei á ævi sinni séð páfa-
gauk áður.
— Mamma, mamma, mig lang-
ar í kex, skríkti páfagaukurinn,
um leið og hann hljóp fram og aft-
ui' um stofugólfið.
— Segið mér eitt, frú, sagði
Jóhannes undrandi, — fæddist
hún dóttir yðar með öllum þessum
fjöðrum eða-------?
— Konan mín er alveg að fara
með taugarnar í mér. Eg verð að>
skilja við hana. Eg get ekki þolað
hana lengur.
— Vertu ekki að fá skilnað, það
kostar svo mikla peninga.
— Já, það mun kosta mig pen-
inga, ég veit það, en hvað kem-
ur méi- það við, þegar ég er að
verða heilsulaus aumingi?
— Eg skal aftur á móti gef»
þér betri hugmynd.
— Nú, hver er hún?
—• Keyptu handa henni stóram
vönd af rauðum rósum, og gefðw
henni, þegar þú kemur heim, Þá
verður hún svo undrandi, að húrs
dettur dauð niður, og þá losnarðui
við hana á ódýran hátt, og getur
notað blómin á kistuna.
★
Skozkur sölumaður var veður-
tepptur á Orkneyjum og sendi sím
skeyti til forstjórans: — „Er
veðurtepptur hér. Símið fyrir-
mæli“. —
Svarið hljóðaði á þessa leið: —-
»Byrjið í sumarfrí, frá og með>
deginum í gær að telja“.
Læknirinn sagði við Skotann.
að konan hans hefði átt að láta
taka úr sér kyrtlana, þegar hún
var lítil stúlka, og þegar Skotinn
hafði látið taka kyrtlana úr konu
sinni sendi hann reikninginn til
tengdaföður síns!