Morgunblaðið - 25.03.1953, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 25. marz i953
MORGUNBLAÐIÐ
B
Kariakórinn Heimir
í Skagafirði 25 ára
KARLAKÓRINN Heimir í Skaga'
firði var stofnaður fyrir áramót- ’
in 1928 og hefur starfað óslitið^
síðan. Þessa 25 ára starfs minnt- j
jst kórinn með því, að efna til
íjölmenns gestaboðs að Varma-
hlíð, og hófst það síðla laug-1
ardagskvölds þess 24. f. m. og
stóð fram á sunnudagsmorgun,1
því að svo er nú háttað störfum
bænda, að þeir komast ekki að
heiman fyrr en seint á kvöldin,
ef langan tíma á að vera að
heiman, enda telja þeir ekki eftir
sér að verja einni næturstund til
góðs mannfagnaðar.
Hófi þessu stjórnaði formaður
kórsins, sr. Gunnar Gíslason í
Glaumbæ, en söngstjórinn, Jón
Björnsson bóndi að Hafsteins-
Stöðum, sagði sögu kórsins. Kór-
inn skemmti og með miklum og
góðum söng. Skiptust á einsöng-
ar, tvísöngvar og kórsöngur. —
Tvísöngva sungu þeir Pétur Sig-
fússon bóndi í Álftagerði, og
Steinbjörn Jónsson Hafsteins-
Btöðum. Einsöngva þeir Árni
Kristjánsson Hofi, Pétur Sigfús-
son óg Jóhannes Jónssdh Mikla-
bæ, en söngstjórinn lék undir á
orgel. Einn einsöngvari kom enn
fram í kórsöng, Stefán Jónsson
Miklabæ. Kórinn söng mörg lög,
nokkur við píanóundirleik, er frú
Sigríður Auðuns annaðist. Marg-
ir gestanna fluttu ræður og við
ágætlega búið veizluborð
skemmtu menn sér við almennan
SÖng. Kórnum bárust kveðjur
frá vinum og söngbræðrum ut-
an héraðs og innan og karlakór-
inn Geysir á Akureyri sendi fagr-
an silfurbikar að gjöf.
Á þessum tímamótum kórsins
kaus hann sér þrjá heiðursfé-
laga, þá Gísla Magnússon bónda
í Eyhildarholti, fyrsta söngstjóra
kórsins, Harald Jónsson hrepp-
Stjóra á Völlum, hinn góðkunna
einsöngvara kórsins á fyrstu ár-
um hans, og Völker Lindemann,
veitingamann í Varmahlíð, en
þar hefur kórinn æfingar sínar
®g nýtur mikllar gestrisni hús-
bóndans.
í Heimi eru nú um 40 söng-
menn, eru í þeim hópi 8 bræður,
synir hjónanna í Eyhildarholti,.
Gísla og Guðrúnar Sveinsdóttur.
Má þetta merkilegt teljast. Ann-
að er og athyglisvert. Kórfélagar
eiga heima í 6 hreppum sýsl-
unnar, og er því um langan
veg að sækja æfingar fyrir
suma þeirra. — Aðeins síð-
ustu árin hafa bílarnir létt
þeim ferðalögin. Þegar á þetta
er litið, og marga aðra ei’fiðleika
störfum hlaðinna manna, er mjög
merkilegt, að kórinn skuli hafa
lifað fram á þennan dag og hald-
ið árlega uppi miklu starfi. —
Nokkrar tölur sýna þetta ljósast.
Kórinn hefur haldið 92 opinberar
söngskemmtanir, en auk þess
sungið á útisamkomum og við
jarðarfarir. Hann hefur farið 3
söngfarir um Húnavatnssýslu og
eina um Eyjafjörð, mætt á þrem
söngmótum á Akureyri.
Enn starfa í kórnum nokkrir
af stofnendum hans. Má þá fyrst
nefna Jón Björnsson, sem einnig
hefur verið stjórnanda kórsins
síðan 1929. Halldór Benediktsson
bóndi á Fjalli hefur verið í
stjórn kórsins, síðan stjórn var
fyrst kosin 1935. Björn Ólafsson
bóndi á Kritholti, núverandi
gjaldkeri kórsins. Gísli Stefáns-
son bóndi í Mikley, formaður
kórsins síðastliðin 12 ár. Þótt
ég minnist hér þessara stofnenda
og miklu starfsmanna félagsins
og ekki annarra, sökum íúm-
leysis, vil ég fullyrða það, að kór-
inn á því láni að fagna að vera
skipaður þeim mönnum ein-
göngu, sem miklu vilja fórna
fyrir félag sitt. Er því ekki að
fúrða þótt góður árangur hafi
náðst af aldarfjórðungsstarfi
þessa merka og vinsæla söngfé-
lags okkar Skagfirðinga.
H. K.
Njósnarar handsamaðir
AÞENU — Gríska öryggislög-
reglan hefur handtekið 19 menn,
er „störfuðu í þágu erlends rík-
is“. Jafnframt fannst sendistöð,
sem njósnahringurinn átti. Var
henni komið fyrir í nýlenduvöru-
verzlun einni.
I íbúð ■ IVorðurmýri
■
■
Nýtízku 5 herbergja íbúðarhæð ásamt herbergi í risi
!* til sölu. — Laus 14. maí n. k.
(5
j§ Nýja fasteignasalan
!■ Bankastræti 7, sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81546
TILKYNNING TIL BÚKAMANNA
Bókaverzlun Kristjáns Kristjánssonar, sem áður var í Hafnarstræti
19 opnar í dag í nýju og rúmv^ðu húsnæði að Hverfisgötu 34.
Höfum á boðstólum allar fáaniegar bækur, ennfremur allmikið :íf fáséðum
bókum og heil tímarit.
Verzlunin hefur nú 09 framvegis:
Mikið úrval af nýjum bókum. Bækur á lækku*5u verði. Aílar tegundir af lesnum
bókum á mjög lágu verði. Heil tímarit og blöð og einstök hefti í tímarit. Ennfremur
pappírsvörur og ritföng.
Fornbókalager okkar er sd stærsti og fjölskrúðugosti d landinu
Hvort sem yðiu* vantar nýjar bækur eða gamlar, tímarit eða blöð,
þá spyrjið um það bjá okkur.
EóL averzíitn ^JJriótjánó ^JJriótjánóóonar,
Hverfisgötu 34 — Sími 4179
Trúlofunar-
hrmgar
$ 'r
flBm.BBJöRnsson
ÓSA& 3HftR.tGRlPftVERSl.uO
REVHJflVirt*
TIL LEIGU
Iðnaðar- eða geym«lu-
húsnæði. —
Á næstunni er til leigu í
nýju húsi, ekki langt fra
Miðbænum, kjallari, ca. 70
ferm. fyrir léttan iðnað eða
geymslu. Hitaveitusvæði. —
Tilboð merkt: „Iðnaður eða
geymsla — 472“, sendisr
Mbl. fyrir 31. marz
BLOÐAPPELSIMDR
úrvalstegund.
SÍTRÓMDR
fyrirliggjandi
C^QQGrt J*\riótjánóóon Cjri (Jo. kj.
íbúð í miðbænum
til sölu: Timburhús, 3 her-
bergi efri hæð, 2 lítil i kjall
ara. Allt í góðu standi. Sér
hitaveita. Garður. Eignarlóð
Lysthafendur leggi nöfn
merkt: „fbúð — 464“, inn
til Mbl. —
))MmmiOLSEiNi^((l!
SUKKAT í 5 kg kössum
Einnig
Appelsínu
Sítrónu
Blandað
SUKKAT
— Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu
Fulltrúaráðsfundur
Fundur verður haldinn í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, fimmtudaginn
26. marz klukkan 8.30 e. h.
I DAGSKRÁ:
m
■m
: 1. Tillögur um nýja umdæmisfulltrúa
: 2. Kosning fulltrúa á Landsfund Sjálfstæðisflokksins
: 3. Kosning 4 manna í kjörnefnd vegna alþingiskosninganna
» •
*
m
jft ~ r
: Aríðandi, að fulltrúarnir sýni skírteini fyrir 1953—1954. — Þeir fulltrúar, sem ekki hafa fengið hin nýju skírteini, eru vinsamlega beðnir
I; ai vitja þeirra fyrir fundinn í skrifstoíu flokksins. Nýjum umdæmisfulltrúum verður afhent sk'frteini á fundinum.
far ■
É Stjórn Fulltrúaráðsins