Morgunblaðið - 23.04.1953, Page 9

Morgunblaðið - 23.04.1953, Page 9
Fimmtudagur 23. apríl 1953 MORGUISBLADIÐ 9 Magnús Símonarson og Óli Bjarnason munamál Grímseyinp Þefr leita nú fyrir sér um aðsloð hér SAMGÖNGUMÁI. GRÍMSEY- INGA hafa löngurn verið eitt erfiðasta vandamál eyjanna. Nú á síðustu árum hafa að vísw verið reglubundnar póstferðir þangað, t:n þær eru strjálar, og allskostar ófullnægjandi, segjum t.d. ef slys bera að höndum. Póstbátur- inn frá Akureyri kemur þangað hálfsmánaðarlega á sumrin, en á þriggja vikna fresti á veturna. VILJA FÁ FLUGVÖIX Grímseyingar hafa skíijanlega mikinn hug á að ráða bót á þessu, og þá helzt með því að koma upp flugvelli á eynni. Vínna þeir nú að því máli af kappi, og eru tveir fulltrúar þeirra staddir feér í bæn um af því tilefni. Kru það þeir Magnús Símonarson, hreppstjóri <og Óli Bjarnason, hreppsnefndar- maður og útgerðarmaðnr í Gríms ■ev. Blaðið átti stutt tal við þá félaga í gær. SKOBXIR FJÁRMAGN — Erindi okkar bingað suður, segja þeir, er að fá stuðning til að hrinda flugvallarmálinu í fram- kvæmd, ef þess er nokkur kostur. Við höfum þegar raett við flúg- vallarstjóra og flugmálaráðherra. Hafa þeir báðir tekið málaleitan okkar vel, þótt á þessu stigi máls- ins sé ekki hægt að segja um, hvað úr verður, þar sem enn er ekki vitað um, hvemig gengur með útvegun fjármagns til fram- kvæmdanna. KOSTAR UM 25« ÞÚS. KR. — Hafið þið lengi uirnið að þess um málum? — Okkur hefur að sjálfsögðu lengi dreymt um að fá flugvöll, en skriður komst ekki á málið fyrr ,en fyrir tveimur árum, og þá var það Akureyringur. Árni Bjarnason, bókaútgefandi, sem átti frumkvæðið. Við höfum síðan reynt ýmsar leiðir, en gengið hægt til þessa. Eýjafjarðarsýsla hefur heitið 10 þús, krónum, Grímseyingar sjálfir 10 þús. og KEA 5 þús. Auk þess hafa feng- izt loforð fyrir 20 þús. kr. að láni. En þetta hrekkur skammt, þar sem áætlað er, að völlurinn kosti alls um 250 þús. krónur. — Yrði hann ein braut 800 m. löng. MESTA HAGSMUNAMÁLIÐ — Við teljum að flugvöllur sé svo mikilvægt atriði fyrir okkar fámennu og afskekktu byggð, að ekkert annað komist þar nærri, halda Grímseyingarair áfram. — Við munum því ekkert láta ógert, er verða má máli þessu til stuðn- ings. Auk okkar nota ai' vellín- um getur hann og orðið tíl mik- illa bóta við síldarleitarflug. — Hafa flugvélar aldrei komið fil Grímseyjar? — Jú, sjóflugvélar hafa þrisvar lent við eyna og helekopterflug- vél heimsótti okkur sJL sumar. EYJAN HEFUR AÐDRÁTTARAFL — Þá er og eitt atríCS, sem ef til vill skiptir ekki miklu máli í þessu sambandi, en það gefur auga leið að með auknum sam- göngum má búast við að skemmti ferðafólk leggi allmikið leið sína til eyjarinnar. Heimsskautabaug- urinn liggúr sem kunnugt er yfir Grímsey og miðnætursólin sést þar í 3—4 vikur. Er þá fagurt mjög 5 eynni og landsýn. oft stór- kostleg. *0 ÍBÚAR — Hvað eru íbúar eyjarmnar nú margir? — Þeir eru um 70. Á árunum 1945—1949 fluttu um 50 burtu, en síðan má segja að tala Gríms- eyinga hafi verið óbreytt. GÓÐUR VETUR — Hvernig var veturinn hjá ykkur? — Veður héfur yfirleitt verið prýðilegt í allan vetur. Fram að áramótum voru ágætar gæftir og afli góður. Síðast í marz var farið að grænka, en þá kom kulda- kast hjá okkur eins og annars staðar hérlendis. Mikinn snjó hef- ur þó ekki fest, þar sem snjó- létt er í Grímsey. Brá okkur sannast sagna í brún, er við sá- um, hve mikil fönn var á Akur- eyri. ★ En nú er það flugvöllurinn, sem efst er í huga Grimseyinga. Þeir vilja helzt geta byrjað fram- kvæmdir á þessu sumri. Vonandi verður þeim vel ágengt með þetta mikla hagsmunamál sitt. Aðalfundur Akur- eyrardeildar Rauða krossins AKUREYRI, 21. apríl — Aðal- fundur Akureyrardeildar Rauða krossins var haldinn nýlega. Reksturskostnaður deildarinn- ar 1952 var kr. 5.642,97 og skuld- laus eign 31. des. kr. 128.352,97. Samþykkt var á fundinum að gefa úr sjóði deildarinnar til mæðginanna á Auðnum kr. 5 þús.und. Stjórn -deildarinnar var öll endurkpsiú, en hana skipa, Guð- mundur Karl Pétursson, yfir- læknir, formaður, Jóhann Þor- kelsson, héraðslæknir, varaform., Pétur Sigurgeirsson, prestur, rit- ari, Páll Sigurgeirsson kaupm., gjaldkeri. — Meðstjórnendur Jakob Frímannsson, kaupfélags- stjóri, Stefán Árnason, forstjóri, Kristján Kristjánsson fostjóri. —H. Vald. Nýir sendiherrar WASHINGTON 17. apríl: — Eisenhower forseti skipaði í dag tvo nýja sendiherra Bandaríkj- anna. í Tékköslóvakíu George Wadsworth og í Finnlandi Jack McFall. — NTB AKUREYRARBRÉF Góður borgari kveður Akureyri. — Óstundvísi í mörgum myndum. — ,,Mokið þið snjó“. — Fiskur á hverjum krók. — Hinir ritsnjölíu arftakar FYRIR skfkmaau siðan lýsti hinn nýskipaði skólaraeistari á Laugaj’ vatni meimtaskólann þar tekinn- til starfas við hátíðlega athöfn. Nýr þáttur er hafinn í íslenzk- um skólamálum. Menntaskóli hefir verið settur á stofn í sveit. — Hlutverki þessa mennta- skóla verður bezt lýst með orð- um skólameistarans sjálfs, þar sem hann segir: „Hér á sveita- nemandinn að geta aflað sér þeirrar menntunar, sem reynst getur honum haldgott veganesti á langri, lífsleið við margvísleg störf og hann á að læra að sam- ræma kunnáttu sína íslenzkum staðháttum. Kaupstaðanemand- inn á hér að komast í náin tengsl við íslenzka nátíúru, kynnast dá- semdum hennar og stæla krafta sína í fersku lofti hinnar íslenzku uppsveitar." „ÚR FERSKU LOFTI HINNAR ÍSLENZKU UPPSVEITAR ‘ Við höfum á undanförnum ár- um eignast mikinn fjölda mennta manna. Margir þeirra hafá kom- ið úr dreifbýlinu og „fersku lofti hinnar íslenzku uppsveitar“. Það er að sönnu þjóðargæfa, að sem flestir sona hennar og dætra feti veg lærdóms og mennta. Hitt mun aftur á móti vera vafasamur ávinningur, að meginþorri þessa æskufólks setjist að í þéttbýl- inu við sjávarsíðuna. Þannig hefir hinn menntaði unglingur úr sveitinni ekki „lært að sam- ræma kunnáttu sina íslenzkum staðnáttum.“. Sveitirnar hafa misst mikil mannsefni, sem þær sízt hafa mátt við. Menntunin hefir átt sína sök á straumi fólks- ins úr svéitunum í kaúpstaðina. Kunnáttan hefir þannig þokað íslenzkri sveitaæsku út fyrir stað hætti sína, en ekki samræmst þeim. Þarna hefir menntaskóli í sveit nýtilegt hlutverk að vinna, fram yfir aðra menntaskóla. Það er þjóðinni þarfur þroskavegur að samræma menntun og þekk- ingu þeim lifskjörum, sem hver og einn á við að búa. Að sönnu ' leitum við bættrar afkomu og betri lífskjara, og til þess á mennt unin að hjálpa okkur, en hún á ekki að valda flótta frá þeim bjai'giæðisháttum, sem fyrir eru, heldur efla þá og bæta. UNGUR, MEÐ GÓÐA MENNTUN OG MIKLA STARFSREYNSLU Veturinn 1939 kom nýútskrif- aður doktor í eðlis- og efnafræði sem kennari að Menntaskólanum á Akureyri þá aðeins 26 ára að aldri. Háskólamenntun sína hafði hann að mestu ■ hlotið í Þýzka- landi. í samfleytt 14 ár hefir hann síðan starfað hér við skólann og kennt ýmsar stærðfræðilegar námsgreinar, þó mest eðlis- og efnafræði. Dr. Sveinn Þórðarson er því enginn byrjandi sem skóla- maður, þótt enn sé hann ekki nema fertugur að aldri. Sönnun Jónasar frá Hriflu. Dr. Sveinn. Þórðarson. þess, að vel hafi tekizt með val hins nýja skólameistara á Laugar vatni, er að hann hefir mjög góða menntun, langa starfsreynslu og er ungur að árum samfara því að vera ötull starfsmaður, sem tekur á hverju máli með einurð og festu. Þórarinn Björnsson, skólameistari, hefir sagt að dr. Sveinn væri úrræðagóður í hverj um vanda og hinn ágætasti starfs- maður. Segir hann að eðlisfræði- stofa Menntaskólans á Akureyri sé eitt það bezta, sem þeir hafi þar í skóla, en hún er að mestu verk dr. Sveins. KENNARINN Eg hef kynnst dr. Sveini Þórð- arsyni bæði sem kennara og íþróttaunnanda. Milli þessa tvenns hefir hann þó glögg skil. Sem kennari er hann ákveðinn og raunsær eins og vísindin, sem hann kennir. Hann gerir miklar kröfur til nemandans, án þess að vera harður og óvæginn, enda er árangur hans í samræmi við það. — ,OG SKÍÐAFÉLAGINN Allir skíðamenn, sem stundað hafa íþrótt sína hér á Akureyri, þekkja dr. Svein, ekki þó fyrir leikni hans á skíðum, eða afrek sem keppanda, heldur sem frá- bæran starfsmann og stjórnanda á mótum skíðamanna og einlæg- an unnanda þessarar fögru og frjálsu iþróttar. Dr. Sveinn mun ekki hafa kynnst skíðaíþróttinni fyrr en hann kom hingað til Akureyrar, enda þótti hann bera sig viðvaningslega til fyrst er hann fór hér á skíði. En i þessu sem öðru kom fram dugnaður hans og einurð og brátt var hann fær allra sinna ferða um skíða- landið. í skíðaferðum tók dr. Sveinn ofan kennimannssvipinn og sá nú enginn hinn mista mun á honum og „hinum strákunum'1. Formaður Skiðasambands íslands Einar Kristjánsson, hefir látið þau orð falla, að aldrei hafi bann átt betri starfsfélaga, er unnið hafi verið að skiðamálum, heldur Bílar feiuitir í kaf á Ráðhústorgi á Akureyri. Ljósm.: Jón Sigurgeirsson ffá Helluvaði. en dr. Svein, en hann er sem kunnugt er ritari skíðasambands- ins. Mér hefir dr. Sveinn reynst við púltið virtur kennari og á skíðúnurh góður félagi. Ég óská honum og hinni glæsilegu kor.u hans gæfu og gengis í hinu nýja starfi þeirra. Akureyringar saknn þar góðra borgara. s ÓSTUNDVÍS VETUR Fyrir skömmu heyrði ég einn af okkar eldri og reyndari skipstjór- um á Fpssunum segja, er hána ræddi um hin mifclu snjóþyngsli hér í bæ. „Það er méð veturinn, eins og með íslendinga sjálfa, hann fcemur nokfcuð seint. Stund- vísin er ekfci hans sterka hlið“. Veturinn .hefir nú herjað ,hér af miklum krafti í þrjár vikur. Snjó þyngslin. hafa verið svo mikil að samgöngulaust hefir verið á landi að heita má. Fjallvegir hafa ver- ið algerlega lokaðir. Nú nýlega kom hingað snjóbíll að sunnan með póst. Komið hefir fyrir að jafnvel snjóbilarnir hafa orðið að snúa við á ferðum sínum sökum ófærðar og stórhríðar. Stefán Steinþórsson póstur, sem hefir á hendi vetrarferðir. austur í Þing- eyjarsýslu, segir að það hafi aldrei komið íyrir í þau tíu ár, sem hann hefir að staðaldri farið þessa leið, að hann hafi ekki komizt yfir Fnjóskárgil á brúnni við Vsglaskóg vegna ófærðar, fyrr en nú. Svo mikinn snjó hafði sett niður á veginn niður að brúnni, að iullerfitt mátti telja gangandi manni. Mörg hliðstæð dæmi höfum við heyrt um fann- fergið og ófærðina. En nú er kom in sunnanátt, sem vonandi helst. Hún hefir nú staðið í tvo daga og hefir tekið alveg ótrúlega mikið á jafn skömmum tíma. Lækir fossa hér um götur bæjarins enda ekki að furða þar sem jafn mikið magn leysist úr föstu efni í fljót- andi. „MOKIÐ HÐ SNJÓ“ Og mikið hefir nú verið mokað af snjó þessar síðustu þrjár vik- ur; því eins og Davíð frá Eagra- skógi segir: — ,,en enginn gengur gangstétt, sem er grafin undir snjó“. Nú eru komin fullkomnari snjómoksturstæki heldur en þeg- ar Davíð orti „Snjómokstur" sinn. Nú gæti skáldið ávarpað tuttugu tonna jarðýtur „með miskunnar- lausri ró: — Mokið þér snjó“. Jarðýtan heldur af stað „með sömu spekt og ró", og drynjandi og pústrandi grefur hún göng í gegnum fjallháa skaflana. „Og bæjarstjórnin segir með borgara- legri ró: — Mokið þið snjó“. Verkamenn í tugatali taka sér skóflu i hönd, götur og gangstígir eru ruddir og bílar hlaðnir snjó aka fram á bryggju og velta hlassi sínu í sjóinn. AFLAHROTA En það er ekki aðeins snjór og snjómokstur, sern. umtal vekur. Mikil fiskigengd hefir verið hér við Norðurlandið undanfarna daga og vikur. Loðna hefir gengið hér inn á hverja vík og í kjölfar hennar fiskúrinn. Sjómenn taka svo til orða, að „fiskur sé hér um allan sjó“, og er sama hvar línu- spotti er lagður, að skarpmri stund liðinni er fiskur svo að segja á hverjum krók. Nú eru bað aðallega beituvandreéði, sem hamla sjósókn hér í verstöðvun- um við Eyjafjörð. Frá Dalvík er eingöngu róið á trillum og hefir aflast með ágæt- um á þær allar. Einn daginn iví- hlóðu þær. F'jórir mótorbátar er.u á vertið fyrir sunnan og hefir þeim gengið sæmilega. Þrír .þejgf eru með línu cg hafa tveir aflað um 800 skippund, en einn er með Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.