Morgunblaðið - 15.07.1953, Page 1
40. árgangur
156. tbl. — Miðvikudagur 15. júlí 1053
Prentsmiðja Morgunblaðsina
Umierðneftirlit Breta
ú Súez stendur enn
Annars alit með kyrrum kjörum í gær
Oeirðir á þjóðhátíðardegi Frakka:
Lögregla Parisar neyddist til
að skjóta ú 200Q N.-Aíríkubúa
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
ISMAILA, 14. júlí: — Bretar lina enn hvergi á eftirliti með umferð
til og frá borginni Ismaila, en þó eru horfur mun friðvænlegri við
Súez nú en verið hefir, og má segja, að þar hafi ekki dregið til
neinna nýrra tíðinda.
EGYPTAR RÓLEGIR
Eftir fréttum að dæma fiá varð
stöðvum, þar sem Bretar stanza
umferð alla til og frá borginni,
hafá Egyptar tekið þessari íhlut-
un furðurólega og æsingalaust.
Samt hefir umferð öll tafizt stór-
um.
SENDIHERRANN ILLA
SÉÐUR
Kunnugir telja, að nokkrir dag
ar kunni að líða, áður en umferða
hömlum verður létt af. Formæl-
andi egypzku stjórnarinnar segir,
að Bretar hafi gert hvarf ílug-
mannsins að stórmáli til að geta
náð kverkatökum á Egyptum. Og
í egypzkum blöðum er látið að því
liggja, að sendiherrann brezki
verði illa séður í landinu hér eft-
ir, enda er honum kennt um að
eiga nokkra sök á, hvernig komið
er málum.
EGYPSKUM YFIRVÖLDUM
KE'NNT UM
Umferðarbanni Breta var
skellt á í gær. Fullyrtu þeir, að
brezkur flugmaður hefði verið
numinn brott með vitund og vilja
egypzku stjórnarinnar. Ef honum
hefði ekki verið skilað síðdegis í
gær, yrðu umferðarhömlur settar
milli Ismailia og annarra lands-
hluta.
Egyptar töldu sér vera alls ó-
kunnugt um hvarf brezka flug-
mannsins, og því er nú komið sem
komið er.
Æðsta ráðið
kvati saman
MOSKVU, 14. júlí: — Æðsta ráð-
ið, eða þjóðarsamkunda Rússa-
veldis, hefir verið kvatt saman
til fundar í Moskvu 28. júlí n.k.
Uorseti ráðsins hefir undirritað
þingkvaðninguna, en> hann er
enginn annar en Vorosjilof, mar-
skálkur.
Þetta verður annar fundur
æðsta ráðsins eftir dauða Stalins,
en fyrsti fundurinn var haldinn
rétt eftir dauða marskálksins, í
marz. Æðsta ráðið er að nafni
til æðsta löggjafarsamkunda
Rússlands, og velur það einnig
ríkisstjórnina.
Það er fróðra manna mál, að
veigamesta atriði verði að fá
samþykki samkundunnar fyrir
brottrekstri Beríu, innanríkis-
ráðherra, en hann var líka vara-
forsætisráðherra. Annars liggur
ekkert fyrir um dagskrá sam-
kundunnar.
Rússnesku blöðin eiga enn
varla nógu sterk orð til að lýsa
moldvörpustarfi Beríu, og eyða
sum þeirra allt að fjórðungi les-
máls síns að þeim málum
— Reuter-NTB
Bandamenn láta undan síga
og búast um í skolgröfum
Ekki hillir undir vopnahlé í Panmunjom
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
SEOUL, 14. júlí: — í morgun hófu kommúnistar heiftarleg áhlaup
á austanverðum miðvígstöðvum Kóreu. Tókst þeim að rjúfa skarð
í varnir S.Þ. á þremur stöðum. Er talið, að þeir hafi teflt fram
60 þúsund manna liði.
®-----------------------—-----
VOPNAHLÉLANGT UNDAN
Um sömu mundir komu samn-
inganefndir deiluaðila saman til
fundar í Panmunjon. Ekki hefir
verið gefið út nein tilkynning
eftir fundinn, en fréttamenn í
Seoul eru þeirrar skoðunar, að
langt sé enn í land, að vopnahlés-
samningar náist.
GRAFA SKOTGRAFIR
Formælanda 8. hersins farast
svo orð um bardagana í Kóreu,
að kommúnistum hafi tekizt að
reka 3 km langan fleyg inn í
varnarbelti bandamanna á þrem
ur stöðum. Reyna kommúnistar
að komast að baki varnarstöðv-
um Suður-Kóreumanna í stórum
sveig. Búast þeir nú um í skot-
gröfum í óðaönn.
Cassíanus verndar-
dýrlingur hraðritara
PÁFAGARÐI: — Píus páfi hefir
lýst yfir, að heilagur Cassíanus
skuli verða verndardýrlingur
ítalskra hraðritara. Hefir páfi
þannig orðið við tilmælum, sem
komu fram á þingi hraðritara í
Neapel 1951.
Heilagur Cassíanus var kennari
í Imola í Mið-ltalíu um 300 árum
eftir Krist. Neitaði hann að færa
heiðnum guðum fórnir og var því
dreginn fram fyrir 200 drengi,
sem voru fjandsamlegir honum
vegna kennslu hans. Loks ■ réðu
þeir honum bana með ritföngum.
Mirmihluta-
stjórn de
Gasperis
RÓMABORG, 14. júlí: — De
Gasperi féllst í dag á að mynda
ríkisstjórn, þá 8. í röðinni, en
hann setti fyrst ríkisstjórn á lagg
irnar 1945.
Þessi verður minnihlutastjórn,
þar sem flokkur forsætisráðherr-
ans, kristilegir lýðræðissinnar,
náði ekki meirilhluta í kosningun-
um í sumar, en samstarfsflokkar
hans 3 verða ekki með í ríkis-
stjórn að þessu sinni.
Kristilegir lýðræðissinnar eiga
265 þingmenn af 590. Undir eins
og stjórnin leggur fram frumvarp
sem ekki hlýtur náð fyrir neinum
hinna flokkanna, eru dagar henn-
ar taldir. Kunnugir eru því þeirr
ar skoðunar, að stjórn de Gasperis
sitji ekki nema í sumar, en á með-
an reyni hann að skapa skilyrði
traustari stjórnar. Reuter—NTB
Townsend og
Margrét fá
ekki að eigast
LUNDÚNUM, 14. júlí: — 1 tima
ritinu Tribune, sem styður vinstri
arm Verkamannaflokksias, er
skýrt svo frá, að ríkisstjórnin hafi
synjað þeim Townsend, höfuðs-
manni í flughernum, og Margrétu
kóngsdóttur, að eigast. Höfuðs-
maðurinn, sem þefir undanfarin
10 ár verið starfsmaður í konungs
garði, er skilinn, og hefir ríkis-
stjórn stutt kirkjuna í að fyrir-
muna elskendunum að eigast af
þeim sökum.
1 Tribune segir m. a.: „Við er-
um þeirrar skoðunar, að Margrét,
kóngsdóttir, hafi rétt til að velja
sér maka eins og annað fólk. —
Flestir munu og þeirrar skoðunar
nema ríkisstjórnin, sem kvað hafa
synjað málaleitan af þessu tagi.
Máiið verður þeim mun athyglis
verðara, þegar þess er gælt,, að 3
ráðherrar núverandi stjórnar eru
sjálfir skildir við konur sínar“.
Townsend er nú 38 ára, en
Margrét rúmlega tvítug.
Kommúnlslar æstu
til óspektaana
Fjöldi særðra flutlur í sjúkrahús
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
PARÍSARBORG, 14. júlí: — Árásarsveitir Parísarlögreglunnar hófu
í dag skothríð á mannfjölda, sem lét ófriðlega á götum borgarinnar.
Flest voru það Norður-Afríkubúar. Fregnir herma, að allmargir
hafi særzt i skothríðinni. Um 3000 lögreglumenn áttu hlut að þvi
að bæla niður óróann.
UM 2000 AFRIKUMENN
Kommúnistar hafa haft fyr-
ir sið að efna til hópgöngu á
þjóðhátíðardegi Frakka, og
tóku að þessu sinni hópar N.-
Afríkumanna þátt í henni. —
Flestir voru þeir frá Algeirs-
borg og Marokkó.
Hópgöngumenn áttu í fullu
tré við þá fáu lögregluþjóna,
sem voru á leið þeirra til
Place de la Nation. Létu þeir
dólgslega, og hófu m. a. skot-
□-
-□
Samkvæmt nýjustu fréttum
hafa 5 manns látizt í óeirðun-
um, sem kommúnistar stofn-
uðu til í Parísarborg í dag.
Auk þess særðust 80 lögreglu-
menn, svo að flytja varð þá í
sjúkrahús ásamt 145 úr flokk-
um uppþotsmanna. Lögregl-
an neydidst til að skjóta á
mannfjöldann og beitti auk
þess byssuskeftum.
□-
-□
hríð á lögreglubifreið, sem á
vegi þeirra varð.
Árásarsveitir lögreglunnar,
sem komu þá á vettvang, réðu
niðurlögum upphlaupsmanna
eftir snarpan bardaga.
MESTU ÓEIRÐIR
SÍÐAN í FYRRAVOR
Þetta eru alvarlegustu óeirðir,
sem orðið hafa í Parísarborg síð-
an í maí í fyrravor, er kommún-
istar efldu óspektir gegn Ridg-
way, hershöfðingja.
UM 20 FLUTTIR
f SJÚKRAHÚS
Allt óeirðasvæðijð er nú á valdi
lögreglunnar, þar sem hún held-
ur strangan vörð. Sjúkrabifreið-
ar voru á ferli og fluttu særða í
sjúkrahús. Lögreglan hefir ekki
viljað gefa upp tölu særðra, en
gizkað er á, að um 20 manns hafi
verið fluttir í sjúkrahús. Af
þeim voru 4 lögreglumenn og
bandarískur ferðamaður, sem
skot lögreglu höfðu hæft.
Fjögtvr rússnesk
herfylki að
heiman
BERLfNARBORG: — Rússneski
herinn hefir sent 4 ný herfylki
til Austur-Þýzkalands s. i. viku.
Herfylki þessi komu rakleitt heim
an frá Rússlandi.
Ekki hefir verið gefin út til-
kynning um, hvort þetta er liðs-
auki eða aðrir fara heim í stað
herfylkjanna fjögurra.
Ufanríkisráðherrafundur
Trygigja þarf, að Kín-
verjar freisti ekki
franaar úrúsiarstriðs
Narvík stærsta járn-
grýfishöfnin
NARVÍK, 14. júlí — Unnið er
nú að verulegri stækkun og end-
urbótum hafnarinnar í Narvík í
Noregi. Þegar þeim endurbótum
lýkur, verður Narvík stærsta
járnútflutningshöfn í Evrópu.
Höfnin hefur reynzt ónóg að und
anförnu, þar sem 17 járngrýth-
lestir geta komið til hennar dag-
lega frá járnnámunum í Norður
Svíþjóð. Það er þýzka byggingar-
firmað Demag í Duisburg, sem
vinnur að endurbótunum. —dpa.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
WASHINGTON, 14. júlí: — Utanríkisráðherrar stórveldanna
þriggja hafa orðið á eitt sáttir um, að ríki þeirra muni gera ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir, að kínverska alþýðulýðveldið hefji
nýtt árásarstríð, ef vopnahlé skyldi nást í Kóreu. Þetta kemur m.a.
fram í tilkynningu sem þeir undirrita allir Salisbury, Dulles og
Bidault. Segir þar og, að *svo verði að ganga frá hnútunum, að
vopnahlé í Kóreu stofni ekki friðnum annars staðar í Austurálfu
í hættu.
Utanríkisráðherrarnir lýsa því
yfir, að þeir muni gera allt, sem
þeim sé unnt til að hjálpa Kóreu
mönnum til að sameina land sitt.
Enn fremur að nauðsyn sé að
halda áfram baráttu í Indó-Kína
til að tryggja hag hins andkomm
úniska heims.
Utanríkisráðherrar Breta og
Bandaríkjamanna hafa tekið
með fögnuði tillögum Frakka um
sjálfstæði til handa ríkjunum
þremur í Indó-Kína, Laos,
Kambódíu og Vietnam.
Fundum utanríjkigráðherranna
lýkur í kvöld.