Morgunblaðið - 14.08.1953, Síða 6

Morgunblaðið - 14.08.1953, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 14. ágúst 1953. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgSnrm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar ICristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriítargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. Bros og bióm i Búkarest ÞAÐ hefur verið undarlega hljótt um hið útbásúnaða Búkarestmót á síðum Þjóðviljans síðan það hófst. Frá því á miðjum vetri var í blaðinu haldið uppi lát- lausum áróðri fyrir þátttöku í mótinu og sérstaklega tekið fram, að menn þyrftu ekki að vera kommúnistar til að mega fara! Voru hin mestu vildarkjör boðin að sögn blaðsins og skyldi suðurreisan um dýrðarlönd kommúnismans öllu öðru fram taka, sem menn höfðu áður séð af mannfagnaði og menningar- viðburðum. Mátti helzt skilja, að jörðin myndi breyta snúningi sínum og heimsásinn lægi hér eftir um hina einu Búkarest. Því stinga hinir þurru og hrifn- ingarlausu fréttapistlar, sem Þjóðviljinn hefur holað niður á afviknum stað í blaðinu mjög í stúf við glamuryrðin og gylli- boðin, sem áður birtust þar á hinum sömu síðum. Einn af blaðamönnum Þjóð- viljans er með í förinni, sem mestmegnis er skipuð flokks- bundnum kommúnistum, og hef- ur hann sent blaði sínu fréttir af menningarviðburðunum. — Allar eru þær fréttir svo fáránlega úr garði gerðar, að hinni mestu furðu sætir, og skilst þá hæglæti Þjóðviljans og hógværð hans í öllum frásögnum af mótinu. ★ Það var fyrirfram vitað í hvaða tilgangi Búkarestmótið er hald- ið. Gegnir þar sama máli og með Berlínarmótið fyrir tveimur ár- um. Með mótinu er settur á svið stórfelldur blekkingarsjónleikur, sem á að telja auðtrúa æsku- mönnum vestan járntjaldsins trú um, að allt sé í stakasta lagi aust- an þess; þar drjúpi smjör af hverju strái, fólkið glaðlegt, feitt og frjálst í samanburði við auð- valdshorgrindurnar í Atlantshafs löndunum. Slíkum Búkarestmót- um er ætlað að hylja á nokkrum dögum áraskelfingu og neyð hinna fjölmennu þjóða, sem aust- an járntjaldsins búa. Sjónhverfingunni og söngnum í Búkarest er ætlað að yfirgnæfa hörmungarvein og stunur þeirra þúsunda, sem gista daunillar dýflissur einræðisstjórna komm- únismans víðs vegar um Austur- Evrópu. Glaðværð Búkarestfar- anna er ætlað að yfirskyggja sorgir og söknuð allra þeirra milljóna, sem böðulsexi komm- únismans hefur svipt ástvinum sínum. — Matarbúr borgarinnar skulu hylja sárt hungur og solt- inn maga hins fátæka verka- manns frá ströndum Hvítahafs- ins suður að Svartahafi. Heim- urinn allur skal halda, að í ríkj- um kommúnismans sé maðurinn orðinn sælli en meðan hann lifði við móðurskaut. í þeim tilgangi einum sitja sendinefndirnar þessa dagana að sumbli í hinni rúmensku höfuð- borg — og gestgjafarnir eru ein- ræðisstjórn landsins, sem komst til valda með blóðugri byltingu og bræðravígum. Því er það, að orð fréttaritara Þjóðviljans hljóma sem naprasta háð, 6r hann segir hin auðtrúa ungmenni skiptast á köllunum: Friður — vinátta — friður! Friðurinn sem rúmenska þjóð- in þekkir er friður dauðans, vin- áttan er tengsli böðulsaxarinnar við byssuna. Ekki ber því að neita, að ein- staka sinnum bregður fyrir skyn- semis neista hjá fréttaritara Þjóð- viljans í frásögn hans af mótinu. Hann skýrir frá því, og leggur á það sérstaka áherzlu, að þátt- takendunum sé alveg frjálst að fara ferða sinna um borgina! Menn gegni þar sínum daglegu störfum, á svipaðan hátt og menn hér heima á íslandi! Á hverju átti fréttaritarinn von? Fór hann ef til vill í Bjarmalandsför sína með hálfum hug og geig í brjósti um, að hann myndi höfuðlaus heim aftur halda? Ekki verður annað á skrifun- um skilið. Jafnframt er. þess vandlega getið, að fólk austan járntjalds- ins syngi og dansi, borði mat og hafi gaman af blómum alveg eins og við eigum að venjast heima! Þá er því sérstaklega lýst, að hvergi hafi fréttaritarinn séð jafn mikla umferð, jafn frjálslegt fólk og jafn falleg vatnsföll. Verður þetta allt að teljast kommúnismanum sérstaklega til gildis og sanna ótvírætt hverju ströng framþróun undir marx- iskri fræðslu fær til leiðar komið í löndunum, þar sem „alþýðan“ hefur tekið völdin. | En þetta er í rauninni ekkert gamanmál. Það er auðvelt og meinlaust að blekkja hóp af auðtrúa út- 'lendingum og sýna þeim rík- mannlegt skart, þar sem tötrar eru fyrir.. Þeir fara heim sælir í sinni trú, að alls staðar sé fólkið jafn kátt og frjálsmannlegt sem í Búkarest í ágúst 1953 og á hverri járnbrautarstöð um Austur-Ev- rópu standi fólk daglega og veifi blómum. Öðru fylgir öllu meiri alvara, hinum þöglu, þungbúnu röðum soltinnar alþýðu, sem lönd komm únismans byggja. Það fólli á hvorki bros né blóm. 8 ár stríðsfangar EINSTAKLINGURINN er einsk- is virði. Ríkið er allt. Fyrir vilja valdhafanna skiptir engu um af- drif og örlög einstaklinganna. — Valdhafana vantar þræla til að höggva barrviðarskóga við Norð- ur-íshaf, valdhafana skortir vinnuafl til að leggja járnbraut um Kasakhstan. Með einu penna- striki er leyst úr vandanum. Átta ár eru frá lokum síðustu heimsstyrjaldar. Enn eru þrælk- aðir innan endimarka sovétríkj- anna hundruð þúsunda stríðs- fanga úr þeim hildarleik. í Kóreu voru nýlega undirrit- aðir vopnahléssamningar, sem fólu það í sér að herfangar allir skyldu hljóta frelsi. Nú berast fregnir af því að skömmu áður en fangaskiptin eru framkvæmd séu margir herfanganna dæmdir í fangelsi og þeir eigi ekki aftur- kvæmt að sinni úr fangabúðun- um. Vopnahlésnefndin á eftir að rannsaka þetta mál ýtarlegar. Getur það verið að sama sagan endurtaki sig nú og áður, að stríðsfangar úr Kóreustyrjöld verði enn í haldi eítir 8 ár, eða 1961? I a ervza UR DAGLEGA LIFiNU j 'g í „NÝJA RÍKINU“ talar sænska skáldið Strindberg um „tímabil launmorða og mann- fagnaðar“, og má með sanni segja, að hann hefði varla getað komizt betur að orði til að lýsa okkar tímabili. Varla líður sá dagur, að ekki sé hleypt af skoti einhvers staðar í heiminum og hin undarlegustu morð framin — eða þá, að mannfagnaðir séu haldnir. MENN halda mannfagnaði af margvíslegu tilefni, en algengust munu vera afmæli af ýmiss konar tagi. Þó er varla hægt að segja, að það sé fyrr en með fimmtugsafmælinu, sem nokkur dugur er í affnælishöld- v (JjóJa ueizli/i ólzal... ^era unum, en þá er líka ekki til set- unnar boðið, leyst er frá pyngj- unni og stonfað til dýrðlegrar veizlu. MÖftG afmælisbörnin eru svo heppin (eða óheppin) að þeirra er getið í blöðunum og oftast vill það verða svo, að um- rætj afmælisbarn verður svo sem ekkert smámenni í augum greinahöfunda; sé afmælisbarnið \JelualiGLnJii áLri^ar: Línur frá „faraldsfæti“. FARALDSFÓTUR hefir sent mér svo hljóðandi bréf: „Velvakandi minn. Eg er.eng- inn sérstakur heimsborgari, en hefi þó skoðað mig dálítið um í heiminum mér til takmarkalausr- ar ánægju. Ekki get ég að því gert, að oft ber ég saman íslenzkt og erlent. A dögunum var ég á megin- landinu og keypti lítilræði fyrir krónur mínar og mörk: Fékk ég þá enn einu sinni staðfestingu á, hversu við íslendingar erum miklir eftirbátar í „búðarmenn- ingu“, enda þótt allt standi hér til bóta í þeim efnum. Þótti mér jafnvel stundum nóg um dekrið, sem skiptavinir nutu, er þeir gerðu kaup sín. Hamborg — Laugavegur UM daginn þurfti ég að kaupa mér skóreimar . í Hamborg. I Ekki hafði ég fyrr gert kaupin en afgreiðslustúlkan kraup niður við fótskör mína og þræddi nýju1 reimarnar í skóna. Var ekki við annað komandi. Næstu skóbúð fór ég í uppi á Laugavegi. Það var í gær. Ég keypti mér brúna skó og skó- áburð. Þegar ég kom heim og athugaði varning minn betur, reyndist áburðurinn svartur. Mér flaug í hug: Hefði það geta gerzt nema hér, þar sem margt af- greiðslufólk virðist ekki vita meir um varning, sem það sel- ur, en ungbarn um loftslag í tunglinu? Námskeið fyrir afgreiðslufólk. EG sagði áðan og stend við það: Þetta stendur til bóta. Víða hitti ég fyrir fyrsta flokks af- greiðslu í Reykjavík. En þótt hún sé allgóð, uni ég ekki öðru en hún batni enn. Hitt þykir mér frekar á skorta, að afgreiðslufólk þekki varning sinn. Tillaga mín er þessi: Sam- tök vsrzlunarmanna og kaup- manna eiga að taka höndum sam- an og efna til námskeiðs fyrir verzlunarfólk, þar sem það getur notið fræðslu góðra manna. Ég tel sjálfsagt, að kaupmenn bæru kostnað af slíkum námskeiðum. Afgreiðslufólk sækti sér þangað hagnýta þekkingu annað hvert kvöld eða svo, og allir aðilar yrðu ánægðir. Ég hefi svo ekki þessi orð fleiri. Virðingarfyllst. Faraldsfótur“. Álmurinn dauðvona. CAMLA álmtréð við Tjörnina stendur kyrrt á sinni feysknu rót. Fyrir nokkrum dögum var hér skorað á Fegrunarfélagið, að það tæki á sig rögg og flytti á burt þetta gamla hrör. Og enn skal spurt: Hvers á tréð að gjalda að því skuli ekki hlíft við þeirri vansæmd að fúna niður fyrir allra augum? Ég hefi leitað álits manns, sem veit jafnlangt nefi sínu í jurta- fræði, og hann fullyrðir það, sem raunar allir sjá, að tréð heyi von- lausa baráttu fyrir lífi sínu. Enn er ekki um seinan, að upp- ræta gamla álminn áður en Reyk- víkingar halda hátíðlegt afmæli borgar sinnar. Lausnin býður. Kæri Velvakandi. Ég hlustaði á þáttinn um daginn og veg- inn í útvarpinu á mánudag, þeg- ar Jakob Jónsson flutti. Hann minntist þar á bindindismál og ofdrykkju. í því sambandi líka á Arnarhólinn og þá vesalinga, sem þar halda til og að eitthvað þyrfti fyrir þá að gera. Vitanlega er skammarlega bú- ið hér að áfengissjúklingum og sannarlega þyrfti að bæta kjör þessa fólks. En mér er spurn: Hví í ósköpunum gera góðtempl- arar ekkert raunhæft í þessum efnum. Er ekki hér, einmitt hér farvegur fyrir krafta þeirra? Meira en orð. HVERNIG væri, að þeir lánuðu Jaðar fyrir hæli eða þeir legðu fram fé þessu máli til braut argengis, þótt ekki væri nema þá upphæð, sem þeim er lagt á einu ári af almannafé? Þá fyrst er þeir taka sjálfir raunverulega til hendinni, geta þeir vænzt trausts almennings og Vaxa um leið upp úr því að vera ekki annað en skemmtifélagsskapur íyrir reglusama menn í augum margra. Hlustandi." Æ kafna kvik- sogur góðrar dyrum. fyrir konu t.d. úrsmiður, má lesa milli lín- anna, að varla hafi annar eins úr- smiður verið meðal vor, ef það er kennslukona, þá er ekki um neina venjulega kennslukonu að ræða o. s. frv. En það er nú einu sinni svo, að menn verða ekki fimmtugir á. hverum degi, svo að varla er hægt að fárast út af því, þótt þeir fái að vera stórkarlar einn dag ævinnar, auk þess sem það er ofurmannlegt að hrósa vini sínum á prenti þegar um er að ræða stórafmæli. OG SVO er það hátíðin sjálf. Afmælisbarnið er ekki vakið óþarflega snemma að morgni hins mikla dags, og vafa- laust er það ekki ótítt, að það sé vakið af maka sínum með ástúð- legum kossi, — sem kannski hefur ekki komið fyrir árum saman. Hver veit! En þannig er því einmitt farið um þessa merk- isdaga, að brugðið er út af venj- unni og allt aðrar reglur gilda en aðra daga ársins. Meira að segja mega hinir „rauðnefjuðu“ (sumir hverjir að minnsta kosti) fá sér einum of mikið, án þess að keflið sé tekið fram! Og er þá mikið sagt. — Síðan líður dagur- inn við gestakomur og vinafagn- að, símaþjónarnir koma í löngum bunum — og blómailmur berst um alla íbúðina. Loks kemur svo að hápunkti hátíðahaldanna: Dyrabjöllunni er hringt og úti stendur nokkurs konar sendi- nefnd með stóran pakka. Jú, loksins, það er ekki um að villast, hér eru fulltrúar vinnufélaganna á ferð með afmælisgjöfina, — kannski málverk eftir Jón Þor- leifsson eða gullúr frá Bartels. — Og allt er fullkomnað! KOSTURINN við þessa af- mælisdaga er einkum sá, að menn geta haldið upp á þá með fárra ára millibili, ef þeir vilja; hins vegar eru þeir fáir, sem eru eins heppnir og Bretadrottning að eiga tvo afmælisdaga á ári hverju, hinn opinbera og hinn ranuverulega. En kannski er líka hægt að bæta úr því, hver veit. —- Einnig tíðkast það mjög, að haldið sé upp á afmæli, þótt af- mælisbarnið geti þar hvergi nærri komið, t.d. 100 eða 150 ára afmæli, svo að nokkuð sé nefnt. En hvað gerir það til? Tilefnið er fyrir hendi, þótt afmælisbarn- ið hafi fyrir mörgum árum geng- ið á fund feðra sinna, og hví ekki að grípa gæsina, meðan hún gefst, eins og þar stendur; auk þess eru alltaf einhverjir, sem eiga gamla, ónotaða ræðu í poka- horninu, svo að þetta er allt svo blessunarlega auðvelt — eða hvað? EINNIG er það mjög al- gengt á þessum síðustu og verstu tímum, að menn haldi há- tíðleg giftingarafmæli sín. Og er þá einkum minnzt 25 ára hjúskap ar. Er þá uppi fótur og fit á heim- ilinu sem lög gera ráð fyrir, og er það þá einkum húsmóðirin, sem fær á sig allt bardússið, að venju. — Er vafalaust ekki óal- gengt, að hún komi einn góðan veðurdag til manns síns, elskuleg og full tilhlökkunar, segjandi: Jæja, góði minn, finnst þér ekki, að við ættum að slátra grísum? — Nei, hvers vegna það? spyr maðurinn með undrunartón, eins og hann botni hvorki upp né nið- ur í neinu. — Við eigum silfurbrúðkaup í næstu viku, veiztu það ekki — eða hvað? — Nú, jæja, — en ekki getum við látið grísina gjalda fyrir það. —- Og þar með er málið útrætt af hans hálfu. En sem betur fer eru ekki allir eiginmenn þannig sinnaðir, — og Framhald a bls. 8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.