Morgunblaðið - 14.08.1953, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.08.1953, Blaðsíða 12
Veðurúflit í dag: SA kalði og rigning öðru hvoru. Hý stjóraafkreppa í Frakklacdi? Sjá grcin á bls. 7. 181. tbl. — Föstudagur 14. ágúst 1953. Noregur vann Island 3:1 Öl! mörkin skoruð í fyrri hálfleik NORÐMENN unnu íslendinga í landsleiknum í knattspyrnu, sem fram fór í Björgvin í gær, með 3:1, og voru öll mörkin skoruð í fyrri hálfleik. íslenzka liðið var nákvæmlega eins skipað og í Kaupmannahöfn. Samkvæmt lýsingu Sigurðar Sigurðssonar var leikurinn heldur linur knattspyrnulega séð, og bætti það sízt úr, að völlurinn var vatnsblautur mjög eftir þrumurigningu, sem var nokkru áður en leikurinn hófst. Áhorfendur voru um 15 þúsund. FJfRRI HALFLEIKUR íslendingarnir virtust eiga erfitt með að finna sjálfa sig í fyrri hálfleiknum, þótt þeir gerðu ýmsa hluti vel, enda óvanir blaut- um og síeipum grasvelli, og áttu Norðmenn fleiri og hættulegri tækifæri, eins og mörkin sýna. Á 8. mínútu hleypur Leif Olsen vinstri útherji, upp kantinn og gefur yfir til Kristiansen, vinstri innherja, sem skoraði óverjandi. — Á næstu mínútu skaut Ríkarð- ur Jónsson föstu skoti rétt fram- hjá marki Norðmanna, og Helgi Daníelsson varði- mjög fast óg hættulegt skot á íslenzka mark- ið rétt á eftir. Annað mark Norðmanna kom á 18. mínútu. Voru sömu menn að verki og áður. Olsen gaf til Kristiansen, sem skoraði. — Gunnar Thoresen, hægri útherji Norðmanna, bætti þriðja mark- inu við á 23. mínútu. Þannig stóðu leikar, þ^r til 3. mín. voru eftir af hálfleik, en þá léku Þórður og Ríkarður knettinum upp völlinn, Ríkarð- ur gaf síðan yfir tíl Gunnars Gunnarssonar, sem skoraði. SÍÐARI HÁLFLEIKLR Síðari hálfleikurinn var sínu betri en sá fyrri af hálfu Íev lendinga, en hvorugum tókst þá að skora, þótt hurð skylli alloft nærri hælum. — Sveinn Helga- son, sem hafði staðið sig vel í fyrri hálfleiknum, lék ekki með í þeim síðari vegna lasleika. Guð- björn Jónsson kom inn á og lék vinstri bakvörð, en Haukur Bjarnason miðframvörð. Liðin skiptust á upphlaupum, og virtust Norðmennirnir vera ágengari við markið, en Helgi markvörður varði meistaralega, bjargaði tvisvar eða þrisvar með góðum úthlaupum á réttu augna- bliki og klófesti allar þær send- ingar, sem að markinu komu. BLAUTUR VÖLLUR HÁÐI ÍSLENDINGUNUM í skeyti um leikinn frá NTB segir að hinn biauti völlur hefði sýnilega háð íslendingunum mjög, og að þeir hafi fyrst farið að sýna, hvað í þeim bjó, er á leið og völlurinn þornaði. Hafi þeir þá sýnt góða tækni og sam- leik. Liðið hafi annars verið eins og búist var við. Markvörðurinn, Helgi Daníels son, var bezti maður ísienzka liðsins. Varði hann oft ótrúlega vel. Þá hafi Karl Guðmundsson, hægri bakvörður, einnig sýnt ágætan leik og miðframherjinn Þórður Þórðarson verið bezti maður sóknarinnar, en framlín- an hefði verið mun lakari en vörnin. Áður var það Heil Hitler Berlín, 13. ágúst. — Komm- únistastjórnin hefur gefið út til- skipun um að hætta skuli að ljúka sendibréfum með kveðj- unni ,,virðingarfyllst“. Héðan í frá skal nota kveðjuna „fyrir einingu og friði“. Tðnnabjöllur va!da 100 þús. kr. tjóni á malvælum í skipi Henda varð 500 kössum af döðlum í GOÐAFOSSI, sem kom þ. 3. þ. m. til Reykjavíkur voru 500 kassar af steinalausum döðlum frá írak, sem skipið hafði tekið í Hollandi. Þegar skipa átti döðlunum hér á land, veittu menn því athygli að utan á kössunum var krökkt af örsmáum pöddum. Var þá farið að skoða í kass- ana. Tekin voru sýnishorn af döðtum hér og hvar úr kössun- um og send Búnaðardeild At- vinnudeildar Háskólans til rann- sóknar. Rannsakaði Geir Gígja dýr þossi og reyndust þau vera tanna bjöllur (Oryzaephilus surinam- ensis), og voru döðlurnar sundur- boraðar af dýrunum, sem höfðu einkum aðsetur sitt þar í döðl- urium, sem steinarnir höfðu áður vcrið. Voru þar bæði fullvaxn- ar bjöllur, lirfur og púpur. Ekk- ert er vitað um hvar eða hve- nær bjöllur þessar hafa komizt í döðlukassana, Döðlur þessar munu hafa ver- ið ný uppskera, sem nú er talin alveg ónothæf til manneldis vegna skemmdanna. Tannabjöll- tir hafa borizt frá Ameríku um aðrar heimsálfur, og erií nú víðs- vegar um Evrópu. Hingað til lands hafa þær ílutzt annað slagið á undanförn- um árum, oftast í þurrkuðum ávöxtum, en ekki eru þær ennþá orðnar landlægar hér. Bjöllur þessar sækja í margskonar nær- ingarefni úr jurtaríkinu, svo sem mjöl, brauð, ávexti ýmiskonar, kryddvörur o. fl. Tannabjöllurn- ar eru örsmáar, aðeins nokkrir millimetrar á lengd, en þeim fjölgar ört þegar lífsskilyrðin eru hagstæð, og geta þær þá gert matvæli, sem þær komast í, ó- nothæf á tiltölulega skömmum tíma. Það er svo að döðlum þessum að segja, að allir kassarnir 500 að tölu, voru eyðilagðir, en farmur þessi mun hafa verið um 100 þús. kr. virði. Þegar rrTungufoss'r var fíleypt af sfokkunum Milíi 41-50 skip á íeiS til híifnar EITTHVERT ólag var á símalín- unni tll Rauíarhafnar í gær- kvöldi og hafði blaðið ekkert samband við fréttaritara sinn þar. — En eftir fregnum frá Siglufirði í gærkvöldi var lítils- háttar sHdveiði á austursvæðinu í frærdag. Millí 40—50 skip köst- uðu, en árangurinn af hverju kasti var litill, þetta 20—30 tunn- ur. Þoka var nokkur á miðunum í gærdag. í gærkvöldi tóku síldveiðiskip- in að siírla til hafnar, flest ætluðu til Raufarhafnar með afla sinn og að landa síldinni til söltunar. Flest skipanna voru með 50— 100 tunnur, en þau hæstu, sem munu hafa verið innan við 10 talg ins, voru með yfir 100 og allt upp í 250 tunnnr. Meðal þessara skipá var kunnusrt um Hauk 1.,^ með 250, Víði frá Eskifirði, 250, Ársæl Sigurðsson var með 150 og eins mun Helgra hafa verið með 150— 200 tunnur. , Fvrstii skipin munu hafa kom- ið til Raufarhafnar kl. 10—11 í gærkvöldi. Þá voru söltunar- stöðvarnar tilbúnar að taka á | móti síld. Ekki er að efa að þar j hefur verið saltað á öllum sölt- ! unarstöðvum í alla nótt og saltað j mun verða fram eftir degi í dag. Myndirnar hér að ofan voru teknar í Kaupmannahöfn, er „Tungu- fossi“ var hleypt þar af stokkunum. — Á efri myndinni eru, talið frá vinstri: J. M. Barfoed, forstjóri Burmeister & Wain’s, Jón Guð- mundsson, forstjóri Eimskipafélagsins í Höfn, Sigurður Nordal, sendiherra, frú Ingibjörg Thors, guðmóðir skipsins, og Nicls Munck, forstjóri B. & W. — Neðri myndin er af skipinu sjálfu. Jungufossi' hleypt af stokkunum í FRÉTT frá Eimskipafélaginu, er birtist hér í blaðinu í gær, var sagt frá því, að hinu nýja skipi félagsins hafi verið hleypt aí stokkunum á miðvikudaginn frá skipasmíðastöð Burmeister & Wain í Kaupmannahöfn. Frú Ingibjörg Thors gaf skipinu nafnið Tungufoss. Birtist hér mynd af Tungufossi í þeim svifum, sem hann er hlaupinn af stokkunum. Skipið verður um 1700 rúm- lestir að stærð. álíka stórt og Lenli með þaklð á rafmagnislaur og Tannabjalla. — a: fullvaxið dýr. b: púpa. c: lirfa og b: fálmari af Iirfu. Brúarfoss. Verður það flutninga- skip einvörðungu, ætlað til þátt- töku í þeim flutningum, sem Eimskipafélagið hefur nú með höndum. Annað skip verður smíðað í sömu skipasmíðastöð, sem styttra er á veg komið. Verður það full- smíðað í febrúarmánuði næsta ár. En Tungufoss á að vera full- smíðaður í nóvember næstkom- andi. Verður nýja skipið 2500 smálestir, álíka stórt og Goða- foss. Með þessum tveim skipum verða komin upp þau skip fé- lagsins, sem ákveðið hefur verið að byggja fyrst um sinn. ★ í tilefni þess að skipinu var hleypt af stokkunum þenna dag, var nokkrum mönnum boðið til árdegisveizlu. Þar flutti frú Ingi- björg Thors ræðu, Jón Guð- Sjálfsfæðisfélögin í skemmtiför Á SUNNUDAG efna Sjálfstæðis- félögin í Hafnarfirði til skemmti- ferðar. Verða margir staðir skoð- aðir. — Viðkomustaðir verða: Krýsuvík, Strandarkirkja, Grýta, Þrastarskógur, Sogið, Þingvöllur og Gufunes. í skrifstofu flokks- ins eru gefnar upplýsingar um för þessa og þarf að vitja farseðla eigi síðar en í kvöld. Undanfarin ár hafa félögin efnt til berjaferðar. Svo verður einnig í ár, seinna í sumar. brandsson, Niels Munch, forstjóri B. & W„ og Páll Ólafsson, ísl. ræðismaður í Færeyjum._ Sjálfsíkveikja í hey«alta UM nónbil í gær var slökkvi- liðið kallað að Reynisstað við Skerjafjörð, en þar var eldur í heyi sem stóð úti á túni í galta. Það tókst skjótt að slökkva eld- inn, en um sjálfsíkveikju mun hafa verið að ræða, og urðu skemmdir á heyinu ekki miklar. Flugmálaráðherrann á ferð Wiesbaden, 13. ág. — Harold E. Talbott flugmálaráðherra Bandaríkjanna er kominn í nokk urra daga heimsókn til bæki- stöðva bandaríska flughersins í Þýzkalandi. MENN í Grafarholti tóku eftir því í gærmorgun, að bíll „hékk þar upp í rafmagnsstaur", eins og það var orðað í tilkynningu til rannsóki?.arIögTeghannar. — Var þetta scx manna fólksbíll. Þegar lögrcglan kom á staðinn var þar bíll, cr oltið hafði og kastast með þakið á rafmagns- staur, sem er þar nokkuð fyrir utan veginn. Hefur áreksturinn v?ð staurinn verið það mikill, að bíilinn lagðist að nokkru saman c.g líktist helzt söðulbökuðum hesti. Skrásetníng'arnúmer hafði ver ið tekið af bílnum og skoðunar- vottorð fannst ekkert í honum, Tók það nokkurn tíma að hafa ur" á. hvaða bíll þetta var. I bílnmn voru tveir karlmenn og e>n kona í þessari sögulegu fe"ð. Meiddist annar karlmaður- <nn eitthvað á fótum, en hin slunnu ómeidd. Rannsókn máls- ins var ekki loláð í gærkvöldi. Annar sigur hans á árinu Fræknasti maður brezka heims veldisins, Sir Edmond Hillary, sá sem kleif Mount Everest, hefur tilkynnt að hann ætli að gifts sig í september n.k. Er ekki vafi á því að allt brezka heimsveldið samgleðst hetjunni yfir þessum öðrum sigri hans á árinu. Lokíð við að reisa 2 olíutanka í Hafnariirði HAFNARFIRÐI, 13. ágúst. — Eins og getið hefur verið um, fékk Olíufélagið h.f. l?yfi hjá Hafnarfjarðarbæ til að reísa 4 olíutanka á Hvaleyrarholti fyrir starfsemi sína. Vélsmiðjurnar Atli og Oddi v Akureyri og Vélsmiðja Hafnarfjarðar tóku verkið að sér, en vinna hófst 16. júní s.l. Er nú lokið við að reisa tvo tanka og byrjað á hinum tveim. Hefur verkið gengið afbragðsveL Stærri tankurinn er 7000 tonn, sá næst stærsti 6000 og hinir tveir 3600 tonn hvor. — Þá hefir að mestu leyti verið lokið við’ að afgirða það svæði, sem félagið hefir til umráða. Einnig vérður þarna gríðarlega stórt.svæði fyr- ir starfsemina. Þegar lokíð verður við að reisa tankana, en það mun verða i ágústlok eða byrjun sept., verð- ur lögð leíðsla frá þeim niður á hafnargarðinn, en sú leiðsla verður um 1 km. —G. > /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.