Morgunblaðið - 25.08.1953, Síða 1

Morgunblaðið - 25.08.1953, Síða 1
16 síður 40. árgangur 190. tbl. — Þriðjudagur 25. ágúst 1953. Prentsmiðja Morgunblaðsins Hann sigraði Mossadek Fazlollah Zahedi, hershöfðingi, sem nú hefur tekið við stjórnar- taumunum í Persíu. Persar hvaltir til að vera á varðbergi gegn flugu- mönnum kommúnista Formaður Verkamannaflokks landsins heitir nýju stjórninni stuðningi sinum Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB. TEHERAN, 24. ágúst. — Mossadek, fyrrum forsætisráðherra Persíu, var í dag fluttur frá Liðsforingjaklúbbnum í Teheran, þar sem hann hefur verið í stofufangelsi, í aðalfangelsi borgarinnar. — Einnig voru nánustu samstarfsmenn hans í fyrrverandi ríkisstjórn og helztu ráðgjafar handteknir. Persakeisari hefur sagt, að Persía rambi nú á' barmi glöt- unar og þurfi skjótrar efnahags- aðstoðar við, ef landið á að kom- ast á réttan kjöl aftur. FATEMIS ENN LEITAÐ ÁKAFT Zahedi, núverandi forsætisráð- herra Persíu, sagði í dag, að Mossadek yrði ákærður fyrir samsæri gegn hinni löglegu stjórn landsins og tilraunir til að láta myrða mörg hundruð and- stæðinga sína. -— Persneska lög- reglan leitar Fatemís, fyrrum ut- anríkisráðherra, en hann hvarf, er stjórn Mossadeks var steypt af stóli. ERLENDAR FYRIRSKIPANIR UM UNDIRRÓÐUR OG ÓEIRÐIR Þjóðin hefur verið hvött til að vera á varðbergi gegn flugu- mönnum kommúnista (Tudeh- flokksins), sem taka við öllum fyrirskipunum sínum erlendis frá og reyna að æsa til óeirða o gskipuleggja algert öngþveiti í landinu. RÆÐST Á MOSSADEK OG KOMMÚNISTADEKUR HANS Form. persneska Verkamanna- flokksins, Dr. Baghai, hefur flokkinn að undanförnu og sagði hann hafa leyft flokknum alis kyns hermdar- og níðingsverk á andstæðingum sínum. Kvaðst Dr. Baghai þess fullviss, að hin nýja stjórn nyti stuðnings þjóðarinnar og hét henni liðsinni flokks síns. Verður Marokkó- deilan rædd í Oryggisráðinu? NEW YORK, 24. ágúst — N.k. miðvikudagskvöld kemur Örygg isráðið saman til fundar, til að ákveða, hvort Marokkódeilan verði rædd í ráðinu. Hafa Araba- ríkin óskað þess og í erindi sínu til Öryggisráðsins fullyrða þau, að deilan um Marokkó geti leitt til stórra og óheillavænlegra tíð- inda. Til þess að málið verði rætt í ráðinu, verða 7 af 11 fulltrúum þess að greiða atkvæði með því. — Þykir ólíklegt, að svo verði. Rússnesku keriiennirnir vilju vitu sonnleikunn um ústundið Vestur-Evropu Hafa borið banaorð af mö’rgum forsprökk- um albanska komm- únistaflokksins BELGRAD, 24. ágúst — Tilkynnt var hér í dag, að 20 menn hafi nýlega verið dæmdir til dauða í Albaníu. — Voru þeir í smá- skæruhersveitum, sem höfðust við í skógunum sunnan við höf- uðborg landsins, Tírana. — Menn þessir voru nýlega teknir hönd- um, enda hafa þeir oft átt í höggi við hersveitir kommúnista og borið banaorð af mörgum hátt- settum kommúnistaforsprökkum í Albaníu. —Reuter-NTB. 1 LUNDÚNUM, 24. ágúst — Full trúar 11 landa hafa nýlega gert með sér samkomulag um sykur- ráðizt harkalega á Mossadek fyr- verð. Er samkomulagið í gildi ir stuðning hans við kommúnista- næstu 5 ár. — NTB-Reuter. SAARBRUCKEN, 22. ágúst — Forsætisráðherra Saars, Jo- hannes Hoffman, hefur tilkynnt, að forsprakki þýzksinnaðra manna í Saar, Hubertus zu Löv- enstein, prins, hafi skipulagt neðanjarðarstárfsemi, er miðaði að því að gera uppreisn í land- inu. — Prinsinn er nú staddur í V.-Þýzkalandi. —Reuter-NTB. Hlysfa m\r á úfvarpssendingar þaðan en áður BERLÍN, 18. ágúst. — Major Ronzhim, rússneskur liðsforingi, sem flúði yfir á hernámssvæði Vesturveldanna í Þýzkalandi eftir dauða Stalíns, hefur sagt á blaðamannafundi, að Austur-Þjóð- verjar eigi að leggja sig meir en hingað til, eftir að komast í sam- band við rússneska hermenn í Austur-Þýzkalandi og fræða þá um kjör fólksins fyrir vestan Járntjald. í'ustyniim í 12 daga AÞENU, 24. ágúst — í dag var tveimur konum bjargað í Argostól úr rústum húsa sinna, er hrundu í landskjálft- unum á dögunum. — Höfðu þær verið í rústunum í 12 daga — og lifað á kartöflum einum sarnan. —Reuter-NTB Flotaæfingar við Formósu TAIPEH, 22. ágúst. — Undanfar- ið hafa kínverskir þjóðernissinn- ar haldið flotaæfingar úti fyrir ströndum Formósu. Hefur verið tilkynnt, að bandarískar flota- deildir hafi tekið þátt í þessum æfingum Kínverja. Bandaríska landvarnaráðu- neytið hefur tilkynnt, að frestað hafi verið að birta nöfn þeirra, sem kommúnistar í Kóreu hafa tilkynnt að hafi dáið í fangabúð- um og á öðrum yfirráðasvæðum þeirra. Hinn nýi soldán í Marokkó. Hershöfðingjar Hitlers í þjónustu Maierokovs Þeirra á meóal er hinn kunni hershöfðingi Paulus BERLÍN, 24. ágúst. — Nú er vitað með vissu, að 8 hershöfðingjar Hitlers — þar á meðal 3 nafntogaðir — eru í þjónustu rússneska hersins og hafa skipulagt að miklu leyti hinar svo kölluðu aíþýðu- lögreglur leppríkjanna. NAFNKUNNIR ÚR SÍÐASTA STRÍÐI Meðal þessara hershöfðingja eru þeir Paulus, yfirhershöfðingi, von Seydlitz, hershöfðingi og Schoerner, hershöfðingi. RÁÐGJAFI HERFORINGJARÁÐSINS Schörner er ráðgjafi rússneska herforingjaráðsins, en hinir tveir sjá um þjálfun þeirra liðsfor- ingja, sem senda á í „alþýðulög- l reglu“ leppríkjanna. — Þess má J geta, að Paulus var yfirmaður þýzku hersveitanna í orrustunni ! um Stalingrad. VILJA VITA HIÐ SANNA Sagði mæjorinn, að rússnesku hermennina þyrsti í slíkar upp- lýsingar, því að þeir vildu fræð- ast um ástandið í vestrænum löndum, eins og það er, en ekki eins og þeim hefur verið sagt af hinum pólitísku yfirmönnum sín- um. — Kveður mæjorinn þetta mjög mikilvægt, því að rúss- nesku hermennirnir séu raun- verulega þeir einu, sem steypt geti Malenkov-stjórninni af stóli. HLUSTA Á ÚTVARP Enn fremur upplýsti hinn rúss- neski mæjor, að rússnesku her- mennirnir séu farnir að hlusta meira á útvarpssendingar frá Vesturlöndum en þeir hafa gert. Sé þeim það að vísu nokkuð hættulegt og verða þeir að gera það í laumi. Bjéða Hau-Hau grið LUNDÚNUM, 24. ágúst — í dag vörpuðu brezkar flugvélar niður flugmiðum til Mau-Mau-manna og tilkynntu þeim þau grið, er stjórnin hyggst gefa öllum þeim hermadrverkamönnum, sem ekki hafa gerzt sekir um hryðjuverk og vilja láta af hermdarverkum sínum. Churchill aftur S.L. 3 daga hafa yfir 4000 tonn síldar borizt á land í Esbjerg. Er síldveiðin hin prýðilegasta og er álitið, að verðmæti síldarinnar, sem veiðzt hefur þessa daga, sé um 4 milljónir króna. — NTB-Reuter. LUNDUNUM, 24. ágúst — Sir Winston tók í morgun aftur við forystu brezka Ihaldsflokksins, auk þess sem hann tók aftur v'ið embætti sínu sem forsætisráð- herra brezku stjórnarinnar. Sem kunnugt er, hefur hann undan farið tekið sér frí frá störfum samkvæmt læknisráði. Ráðuneytisfundur verður á morgun undir forsæti Sir Win- stons. Verður einkum rætt um væntanlega Kóreuráðstefnu og þann klofning, sem kominn er upp meðal lýðræðisþjóðanna út af skipun hennar. — NTB-Reuter. Kínverjar sammála Rússum HONGKONG, 24. ágúst — Cou En Lai, forsætisráðherra Kína, sagði í dag, að kínverska komm- únistastjórnin væri samþykk til lögum þeim, er Visshinskí hefur flutt í stjórnmálanefndinni um væntanlega Kóreuráðstefnu. — NTB-Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.