Morgunblaðið - 25.08.1953, Page 8

Morgunblaðið - 25.08.1953, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 25. ágúst 1953 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands. í lausasölu 1 krónu eintakið. > C_______—--------------------------- UR DAGLEGA LIFiNU j Eftirmæli um Stalin UNDANFARNA daga hefur Þjóð viljinn birt ræðu þá, sem Malen- kov flutti Æðsta ráði Sovétríkj- anna fyrir skömmu um efnahags- mál landsins. Löngum hefur því verið haldið fram í Þjóðviljanum og öðrum málgögnum kommúnistaflokks- ins, að allt það, sem „auðvalds- blöðin“ skýrðu frá um þjóðfélags og efnahagsmáÉí Sovétríkjunum væri bláber uþpspuni og . „auð- valdslýgi“ eins og það hefur smekklegast verið orðað. Ef sú frétt hefur verið birt, að rússnesk framleiðsla væri lé- leg, vörur óvandaðar, lítið um matvæli á markaðinum og rúss- nesk alþýða byggi við sultarkjör hafa svör kommúnista jafnan verið hin sömu; að slíkt væri að- eins illviljaðar blekkingar og áróður. Hvergi væri efnahagsástand- ið jafn gott sem í hinum miklu Sovétríkjum, þar sem byggt hefði verið upp sæluríki sósíalismans og sérhver hefði þar nóg að bíta og brenna. Þar væri það alþýðan, sem völdin hefði, en ekki illvilj- aðir auðmenn, alþýðan fram- leiddi fyrir sjálfa sig og hirti ágóðann af framleiðslunni um leið og hún neytti hennar. Hin kommúniska hagfræði, hæfilega útþynnt af Marxisma og Stalinisma, hlaut að sjá hinni rússnesku þjóð fyrir beztu lífs- kjörum, sem heimurinn hefði enn séð. Slíkir væru ávextir 35 ára kommúnistastjórnar og þannig hafa rök hinna íslenzku komm- únista um sæluástandið í Sovét hljómað áratugum saman. skapurinn er þar í vanhirðu. I mörgum héruðum landsins er uppskera korns og annarra nytja jurta lítil á samyrkjubúum og ríkisbúum og nýtingar slæmar. Stafar þetía af lélegum rekstri akuryrkju. Það skal játað, að vexti búfjár- stofnsins er mjög ábótavant. Því fer víðs fjarri að við höfum full- nægt sem skyldi vaxandi þörf fólksins á kjöti.... Enn er vöxt- ur nautgriparæktarinnar ekki nægilega ör og afrakstur rýr. Þá hefur og framleiðsla kart- aflna og grænmetis dregizt al- varlega aftur úr.“ Og rússnesk kaupmannastétt virðist ekkert betri en sú í auð- valdslöndunum: „Vér getum ekki unað við núverandi útsölumagn verzl- unarinnar. Auk þess eru al- varleg mistök í sjálfu skipu- lagi verzlunarinnar.... Því fer f jarri, að húsnæðisþörfinni hafi verið fullnægt, alls staðar er enn mikill húsnæðisskort- Áðurnefnd ræða Malenkovs hlýtur að hafa komið sem þruma úr heiðskíru lofti yfir þá, sem lagt hafa trúnað á sögusagnirnar um sældarbrauðið í Sovét. Æðsti maður ríkisins lýsir Því blákalt yfir, að í rauninni sé allt annað ástand og ömur- legra í Rússlandi en Xass- fréttastofan og Þjóðviljinn hafa skýrt frá í fjöldamörg ár. Þar skorti matvæli til dag- legrar neyzlu, fólkið sé fá- tækt og illa klætt og efnahag- ur landsins riðandi og rekinn af óhagsýni, sem nálgist illan vilja! Minna mátti gagn gera. Sjálfur Malenkov var allt í einu orðinn skeleggasti bandamaður auð- valdsblaðanna í rógsherferðinni gegn ríki alþýðunnar, ef taka hefði mátt mark á blöðum komm únista á liðnum árum. Það var sannarlega beiskur bikar sem Þjóðviljinn mátti teiga daginn þann, sem ræðan Malenkovs birtist! Til frekari staðfestingar fara hér á eftir nokkrir valdir kaflar ræðunnar, í ágætri þýðingu Sverris Kristjánssonar: Fyrst fær iðnaðurinn sinn skammt: „Mörg fyrirtæki framleiða enn vörur sem eru ekki nógu full- komnar að gæðum og fullnægja hvorki þörfum né smekk neyt- enda vorra. Verkamönnum iðnaðarins má vera mikil hneysa að því, að neytendur vilja þráfaldlega heldur vörur af erlendum uppruna." Um landbúnaðinn segir Malen- kov: „Ennþá eru þess mörg dæmi um samyrkjubú og jafnvel um heil landbúnaðarhéruð, að bú- Þær eru dáfallegar lýsingarn- ar sem æðsti maður Sovétríkj- anna gefur á hag alþýðunnar undir ráðstjórn, eftir að komm- únisminn hefur úthellt blessun sinni þar í heilan mannsaldur. Það virðist þó augljóst, að Malenkov hefur ekki sagt ástand- ið í Rússlandi verra en það er og þrátt fyrir það þætti slíkri grunnmúraðri auðvaldsþjóð sem íslendingum æði illt að búa við þau lífskjör sem Malenkov kveð- ur ríkja í sínu heimalandi. Þar ríkja mistök á mistök ofan, blessað skipulagið er meira og minna gallað og hinar marglof- uðu áætlanir hafa ekki staðizt. Menn neyðast nú til þess að trúa því, að allt sé ekki með felldu í Sovétríkjunum, að einhver brest- ur sé á sæluríki alþýðunnar, eft- ir að hafa heyrt hina.hógværu lýsingu sjálfs Malenkovs! Að vísu er hún í flestu sam- hljóða því sem Mbl. hefur lengi skýrt frá, og haft eftir margvís- legum heimildum, en engin þeirra er þó áreiðanlegri eri hin nýjasta þeirra, Malenkov sjálfur. Ætti hér eftir ekki að þurfa að deila um afkomu almennings austur þar, sem augsjáanlega er I harla bágborin á vestrænan mælikvarða. j En þá hlýtur sú spurning að ' vakna, hvert hafi verið hið óvið- jafnanlega lífsstarf hins mikla Stalins og hvort öll sú hagsæld, sem hann var sagður hafa búið rússneskri alþýðu var ekki sjón- hverfing ein saman. Ef Malenkov segir sannleikann, hlýtur Stalin að hafa rekið einhverja aftur- haldssömustu einræðisstjórn, sem nokkru sinni hefur litið dagsins Ijós, þar sem hagur fjöldans hef- ur algjörlega verið fyrir borð borinn og hann mátt lifa við sult og seyru. Eftir frásögn Malenkovs hefur Stalin svelt og kúgað þjóð sína um áratugi, og eftir því sem dýrð sósíalismans hefur aukizt, því fastar hefur rússnesk al- þýða orðið að herða sultarólina. Það er sannarlega einstök kaldhæðni, að Þjóðviljinn skuli neyðast til að birta slík ummæli, og það eftir ekki ó- merkari manni en Malenkov, bezta vitninu ' um ástandið í Sovét, sem „auðvaldinu“ hef- ur enn hlotnazt. 'g UNDANFARNA daga hefur Persía dregið að sér athygli alls heimsins og varla hafa furðu legri hlutir gerzt en atburðirnir þar í síðustu viku. Enda hefur ekki verið meira rætt um annað bæði meðal almennings og stjórn málamanna, — og enn er Persía þungamiðja heimsstjórnmálanna. ★ ★ MARGX stuðlaði að því, að Mossadek var steypt úr valdastóli; í Persínu munu nú vera um 15 milljónir íbúa og af þeim býr meiri hlutinn við slík eymdarkjör, að fáheyrt er. Fólk þetta skiptir sér lítið af stjórn- málum, en hins vegar hafa póli- tískir ævintýramenn beitt því fyrir stríðsvagn sinn, æst það upp, látið það fremja hryðjuverk og efna til óeirða. Hefur það verið harla auðvelt, því að fólk þetta hugsar sem svo, að ekki geti lífskjör þess versnað og ómaksins vert að styðja nýja og nýja ævintýramenn og sjá, hvort ekki rætist úr. ★ ★ & AF þessu hefur Mossadek notað sér í baráttu sinni. — Hann beitti lýðnum fyrir sig og ^daLedi xa l OCý oóóadeló prikaðist þannig upp í forsætis- ráðherraembættið. — Síðan gat hann fengið hann til að styðja utanríkisstefnu sína og var upp á síðkastið talinn einvaldur, ekki sízt eftir að vitað var, að komm- únistaflokkur Persíu stóð á bak við ráðagerðir hans. Auk þess voru rússneskir njósnarar fljót- lega „skotnir í honum“, vegna þess að þeir sáu, að hann var að fara með efnahag landsins til fjandans, ef svo mætti að orði komast. — Og það var einmitt þeirra óskadraumur, því að kommúnistaleiðtogarnir austur í Kreml hafa alltaf verið reiðu- búnir að innlima svona eitt og eitt land í rússnesku ríkjasam- steypuna — og hefur það verið vænlegt til árangurs að stofna til algers öngþveitis áður í viðkom- andi landi. — En hvað um það. Þótt Mossadek hafi verið bráð- slyngur stjórnmálamaður, þá VeU aadi ólri^ar. Lóðir í hirðu. FRAMFARIR í þrifnaði og ýmiss konar bæjarprýði í höfðuborginni eru svo örar, að árlega má sjá greinilegan mun. Skran við hús þekkist ekki framar í heilum hverfum, heldur er þar allt tandurhreint og þokka legt. Görðum manna fer stórum j fram. Það eru nú undantekning- ‘ ar, ef lóðir við hús inni í borg- , inni eru í óhirðu. Þær hafa verið teknar til margvíslegra þarfa eft- ir smekk og ástæðum eigenda. j Sums staðar fallegir blóma og tijágarðar, annars staðar renni- I sléttar grasflatir, gosbrunnar eða tjarnir hérna, matjurtir þarna eða > þessu öllu blandað hagan- lega saman. Lóðir í órækt eru undantekningar. Blómaker í friði. 4GÖTUM og gatnamótum hefir verið komið fyrir blómakerj- um. Þessi ker eru nú orðin þriggja ára gömul, og verður ekki annað sagt en hirðing þeirra / ^$1 | hafi tekið miklum framförum ' þessi ár, því að fyrsta sumarið þótti við brenna, að blómin væru ekki þessa heims, — heldur stein- dauð. Og almenningur kann að meta þessa bæjarprýði, því að ekki verður þess vart, að við þeim sé hróflað að ráði, þó að vegfarendur séu ekki alltjent varfærnir úr því að hver nýr sól- ' arhringur hefst. i Fyrir framan Háskólann hafa í sumar verið sett ný blómaker ! og ferleg, og kváðu skoðanir vera all skiptar um fegurð þeirra. En hvað sem um það-er, þá eru þau full angandi blóma. | Sumar verzlanir hafa jafnvel gerzt svo hugulsamar að setja ^ blómaker fyrir framan hjá sér. SAMT eru allt af einhverjir trassar, sem setja skugga á umhverfi sitt. Það er furðulegt að sjá gömul hús og í eðli sínu virðuleg ryðbrunnin og drunga- leg við sjálfan Laugaveg. Sums staðar hefir ryðið meira að segja unnið spjöll sín til fulls, svo að ekki er annað eftir en ryðskóf — eða ekkert. Aldrei hefir þurft nema einn gikk í hverja veiðistöð. Gikkj- unum fækkar í Reykjavík, en fólkinu fjölgar. Takmarkið er: Enginn gikkur. Biðin er ekki úr hófi. NOKKRAR línur frá „mat- gogg“. „Velvakandi! Mér þykir ómaklegt að saka Gildaskálann um slælega af- greiðslu, eins og skálagestur ger- ir í bréfi til þín fyrir skömmu. Sjálfur borða ég þarna oft og sýnist afgreiðsla ganga þar bæði fljótt og vel. Því verður hins vegar ekki neitað, að á málum safnast oft mikill fjöldi þar inn að kalla á svipstundu, svo að nokkur bið getur orðið. Ég held, að um eng- an sé að sakast um það, við því er ekkert að gera. Ég fyrir mitt leyti læt það ekki á mig fá. Er það áreiðanlega betra alls staðar annarrs staðar? Matgoggur.“ FTUR hefir mér borizt bréf um nafn Miklatúns, sem svo á að heita: „Hvers vegna þurfti nú nafna- nefndin að klína Miklatúnsnafni á Klambratún? Sviplausara gat það ekki orðið. Satt er það að vísu, að Klambrar og Klambra- tún er ekki gamalt heiti á þess- um stað, en hæpið var þó að breyta, en úr því að breyta skal um nafn, hefðum við Hlíðabúar a. m. k. kosið annað en þetta, sem minnir helzt á neflausa ásýnd. Ég held nú að bezt sé að fólkið ráði nöfnunum, þar sem því verð- ur við komið, en nefndirnar láti sér nægja að grípa inn í, þegar í nauðir rekur. Sjáið muninn: Hringtorg, Miklatorg (afkvæmi nefndar), Hlemmtorg (gamalt og gott nafn, sem varð til á vörum Reykvíkinga sjálfra). N. K.“ Oft er óveður- legt í öndverð- um þey. gleymdi hann einu: — Lýðnum, sem hann hafði beitt fyrir sig, örbirgð hans og eymdarkjörum. Hann gerði lítið sem ekkert til að bæta hag lýðsins og því fór sem fór: almenningur, þjóðin öll brást honum á úrslitastundu, og hann sat uppi með rússneska njósnara og persneska kommún- ista sem hina einu stuðnings- menn. HINS VEGAR hafði faðir núverandi keisara, Reza Pa- levi, sem brauzt til keisaratignar úr hinni mestu fátækt, aflað sér mikilla vinsælda á sínum tíma, Mossadek grætur — í olíu. enda beitti hann sér fyrir bætt- um kjörum alþýðu manna. Einn af höfuðandstæðingum hans var Mossadek, og lét keisari „setja hann inn“ oftar en einu sinni! Síðan hefur Mossadek hatazt við keisarafjölskylduna, og hefur það ekki sízt lent á núverandi keis- ara, eins og kunnugt er. — Hins vegar nýtur núverandi keisari góðs af vinsældum föður síns, enda hefur hann einnig beitt sér fyrir bættum kjörum almennings, m. a. hefur hann skipt jarðeign- um meðal leiguliða, en þær hafa Zahedi — Æviníýramaðurinn, sem lagði líf sitt í sölurnar fyrir keisara sinn. | hingað til að mestu verið í eigu um 10 þús. höfðingja; þeirra á meðal er Mossadek, sem er einn auðugasti jarðeigandi Persíu. ★ ★ ' EKKI hefur enn verið minnzt á þann mann, sem einna mestan þátt átti í því, að byltingin tækist í síðara skiptið. Er það Zahedi, hershöfðingi. — I Hefur hann alla tíð verið mikill andstæðingur Mossadeks og m. a. verið settur í fangelsi af hon- um. — í síðasta stríði þótti hann mjög þýzksinnaður og var álitið, að hann hefði átt í leynimakki við Þriðja ríkið um, að þýzkar hersveitir fengju herstöðvar í Persíu. — En Bretar komust að þessum fyrirætlunum hans, tóku hann höndum að næturlagi og fluttu til Palestínu, þar sem hann var alla styrjöldina. ★ ★ EFXIR styrjöldina varð hann innanríkisráðherra Persíu, en varð að láta af því embætti; síðan hefur hann verið ofsóttur ' af Mossadek, en alltaf sloppið við langvarandi fangelsisvist, enda er hann ævintýramaður hinn mesti og mikill vinur Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.