Morgunblaðið - 25.08.1953, Síða 14

Morgunblaðið - 25.08.1953, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 25. ágúst 1953 SUÐURRÍKJAFÓLKIÐ SKÁLDSAGA eftir ednu lee ^ -JC Framhaidssagan 15 hefði farið um húsið og tekið með sér allt iauslegt. Allt nema ryðgað búrið hans Petey sem hékk tómt á króknum í eldhús- itiu. Fyrsta hugsun mín var að Mitty væri dáin og örvæntingin greip mig á nýjan leik, með miklu sterkari tökum en nokkru sinni áður. Mér fannst eins og myrkur færast yfir mig fiá öll- um hliðum. Ég greip í glugga- kistuna til að detta ekki á með- an myrkrið fjarlægðist aftur. Áður en ég vissi af var ég kom- in út og hljóp eins og fætur tog- uðu frá húsinu. Allt sem fyrir mig hafði borið þyrmdi yfir mig. Einmanaleg æska mín sem Mitty hafði varpað birtu yfir. Einmana- kenndin, sem ég hafði þjáðst af í skólanum .. Laura Lee og Oakes, glötuð mér fyrir fullt og allt. Fagrar framtíðarvonir mínar sem nú voru allar hrundar í rúst- ir. Ég hafði ekki hugmynd um það hvert ég var að hlaupa eða hvers vegna. En allt í einu var ég kom- in inn í kirkjugarðinn og þar lét ég fallast niður á eitt leiðið. Ég hafði. leitað uppi gömlu leik- félagana mína, englana á leg- steinunum. Þeir voru enn á sín- um stað, þó allt annað hefði breytzt. Nú fannst mér það óskiljan- legt að Mitty væri dáin. Að hún lægi hreyfingarlaus og lífvana í mjórri gröf. En hvar annars stað- ar gat hún verið? Og hverníg átti ég að finna hana? Ég ætlaði að koma við í búð- inni hjá herra Bratton og spyrja um hana. Ég stóð upp og gekk út úr garðinum eftir stígnum. Nú hljóp ég ekki greitt. Ég óskaði þess af öllu hjarta að Mitty væri lifandi. Að ég mundi finna hana. Og með hverju spori, sem ég gekk var ég ákveðnari í því um leið að taka hverju sem að hönd- um bæri. —o— Það var ekki laust við að mér fyndist búðin hjá herra Bratton hafa minnkað að umfangi síðan ég kom þar síðast. Þó þekkti ég aftur krúsirnar með sætindunum sem höfðu freistað mín. Herra Bratton hallaði sér yfir borðið alveg eins og hann hafði gert áður. Hann hafði ekkert breytzt. Þegar ég sagði honum hver ég væri, kannaðist hann fljótlega við mig. „Munið þér ekki eftir mér? Ég kom hingað svo oft með Mitty .... frú McDaniel". „Jú“, sagði hann. Ég sagði honum frá því að ég hefði komið til að heimsækja hana en hefði komið að húsinu mannlausu og spurði hann hvort hann vissi, hvar hún væri niður komin. „Hún var flutt burt“, sagði hann. Ég var fegin að hann vissi ekki hvaða áhrif þessi orð hans höfðu á mig. „Send burt?“ át ég upp eftir honum. „Send hvert?“ Rétt eins og það væri hvers- dagslegur viðburður að eldri kon ur væru „sendar burt“, sagðist hann ekki muna sérstaklega eft- ir því. Ég spurði hann hvort hann vissi um nokkurn sem mundi geta gefið mér nánari upplýsing- ar. „Ég býst við að réttast væri þá að leita uppi frú Stopper", sagði hann þegar hann hafði hugsað sig um góða stund. ! „Frú Stopper. Eigið þér við móður Janet Stopper?" „Jú. Hún getur sagt yður frá frú McDaniel þar sem Hún er formaður hjálparstarfseminnar,' sem lét senda frú McDaniel burt“. Ég var honum þakklát fyrir upplýsingarnar og ég vona að ég hafi þakkað honum fyrir, enda þótt ég muni ekki eftir því. Eg man óljóst eftir því, þegar ég gekk upp tröppurnar á húsi Stopperfólksins. Frú Stopper kom sjálf til dyra, horfði á mig hvössum augunum á bak við gull spangargleraugu og spurði hrana lega hvað mér væri á höndum. Ég spurði eins kurteislega og ég gat, hvort hún vissi hvar ég gæti fundið Mitty. Hún spennti greipar á maganum og spurði, hvers vegna mig langaði til að vita það. Ég leit undrandi á hana. „Nú, ég verð að fá að vita það“, sagði ég. „Mitty er sama sem móðir mín“. Það kom einhver undarlegur glampi í augun á henni. „Ef hún er yður sem móðir, þá ættuð þér að gera henni þann greiða að láta hana í friði“. Við horfðumst í augu, og ég sá það á svipnum sem kominn var á andlit hennar, að af ein- hverjum ástæðum bar hún iilan hug til mín og hún mundi aldrei hjálpa mér til að finna Mitty. „Ég held að þér skiljið þetta ekki vel“, sagði ég. „Ég er viss um að Mitty mundi verða því mjög fegin að sjá mig“. Hlátur hennar var eins og gagg í hænu. „Ég efast ekki um það. Ef nokkurn tíma hefir verið til veikgeðja manneskja þá er það hún“. Ég beit í vörina í bræði minni, og spurði, hvert farið hefði verið með hana. Hinar góðu konur í Kvenfélag- inu höfðu látið senda frú Mc Daniel þangað sem hirt var vel um hana. Það hafði ekki verið neinn hægðarleikur að koma henni þar inn, vegna þess að hún hafði haft mig undir sínum vernd arvæng öll þessi ár og ég væri nú sú sem ég væri. En eitt var víst og það mátti ég vita, að ef z Jrrr—sxzr c_! ég væri að flækjast i kring um frú McDaniel, þá yrði henni fleygt út. Ég spurði ekki að því á hvern hátt ég gæti valdið Mitty tjóni. Ég þurfti ekki að spyrja að því. Ég vissi að skýringin fólst aðeins í einu orði .. orði, sem ég hafði heyrt sjálfa mig kallaða þennan morgun og um leið vissi ég að það orð hafði verið áhrifaríkast um ævi mína hingað til og allt útlit var til þess að það mundi vera það framvegis. —o— Ég stóð á fætur og horfði ekki með þrjósku heldur með auð- mýkt á frú Stopper og bað hana að segja mér hvar Mitty væri, en ég skyldi lofa því að koma ekki nálægt henni og heldur ekki skrifa henni. Ef ég gæti aðeins fengið að vita, hvar hún væri .. Hún studdi höndum á mjaðm- irnar og hló, þegar ég bar upp , bón mína. „Þú skalt ekki halda ) að þetta blíðubros hafi áhrif á' mig. Ég þessi þína manntegundj Ég veit að sumu fólki er auðvelt, að gefa loforð og jafn auðvelt að svíkja þau. Þú skalt ekki fá að gabba mig“. Hún stikaði fram að dyrunum og hélt þeim opnum fyrir mig. „Ég vara þig við enn einu sinni .. láttu frú McDaniel í friði“. Ég fór með strætisvagninum aftur til borgarinnar. Það var orðið áliðið dags. Ákvarðanir mínar um að finna Mitty hvað sem það kostaði og standa á mín- um rétti, voru allar í molum. Á morgun þegar ég hafði hvílst ætl aði ég að hugsa málið vandlega að nýju og finna einhver ráð. Ég vissi óljóst að ég átti bókstaflega engan að, engan sem ég gat snú- ið mér til, engan mér til aðstoð- ar, en ég var of þreytt til að gera mér fulla grein fyrir því. Nú átti ég ekki aðra þrá en að komast í rúm og hvíla mig. Þegar ég kom að skólahúsinu, sá ég að ljós logaði bæði í for- stofunni og stofunni. Ég ætlaði að reyna að komast upp án þess 2 „Það hlýtur að vera töluvert óþægilegt að burðast með þetta skurn,“ sagði Halastjarnan. „O—o“, sagði Jörðin. „Maður venst fljótt við það. Og nú eru á því menn.“ „Menn!“ rumdi í Halastjörnunni. „Hvað er nú það?“ Jörðin klóraði sér hugsandi á norðurheimsskautinu, en kom um leið við íshelluna, svo að þar losnuðu nokkrir vold- ugir ísjakar. „Tja,“ varð henni loksins að orði. „Ég held það sé einhvers konar óþverri.“ „Hoj,“ sagði Halastjarnan. Jörðin þagði aftur stundarkorn, eins og hún væri að hugsa sig um. Loks tók hún svo til máls: „Þeir iða og skríða um mig alla, svo að ég hef ekkert viðþol. Allt af fjölgar þeim og alltaf versna þeir. Þeir grafa í mig hingað og þangað til þess að ná í kol, málma og ýmis- legt fleira. Þeir leggja um mig járnbrautir, sem gufuvagnar þjóta eftir. Þeir sprengja göng í gegnum stærstu fjöll mín °g byggja brýr yfir vötn og ár. Þeir segja sjálfir að þeir ráði algerlega yfir mér.“ „Mér finnst það vera hálfkollótt fyrir stjörnu að láta slík skriðkvikindi ráða yfir sér,“ sagði Halastjarnan. „Geturðu ekki skekið þá af þér?“ „Ég hef reynt það,“ sagði Jörðin, „og það oftar en einu sinni. Glóandi hraunleðju hef ég spúð úr eldfjöllum mínum og grafið fyrir þeim heilar borgir. Hafrót hef ég ótal sinnum iátið koma og drekkt þeim í þúsundatali. Og þegar þeir ætla að gerast of nærgöngulir. ek ég mér og læt koma jarð- skjálfta.“ „Nú dugar það ekki samt?“ spurði þá Halastjarnan. „Það linar í bráðina, ekki er hægt annað að segja,“ and- varpaði Jörðin. „En það er alveg gagnslaust, er til lengdar Hercules dömu- og herrareiðhjól. GARÐAR GÍSLASON H. F., Reykjavík. 10 BLÁ GILETTEBLÖÐ í HANDHÆGUM Fyrir rintiið blöð Allir þessir kostir án hækkunar ® Blaðinu ýtt út fyrirhafnarlaust • Blöðin eru algjörlega olíuvarin • Sérstakt hólf fyrir notuð blöð • Engar pappírsumbúðir • Fyrirbyggð skemmd á blaðegginni • Blaðinu er ýtt út flugbeyttu 10 BLÖÐ í HYLKI KR. 13.25 1 Bláu Gillette blöðin Vetrarkápuefnin komin. — Margir fallegir litir. — Komið meðan úr nógu er að velja. Sendum gegn póstkröfu. Sími 2335. Vefnaðarvöruverzlunin, Týsgötu 1.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.