Morgunblaðið - 25.08.1953, Blaðsíða 16
Veðurúfii! í dag:
Þykknar upp með SA-ált.
Rigning.
ritliöfundur Breta látinn.
Sjá blaðsiðu 9.
Ædr
c
reymr
iíldarmiðunum nyrðra
Fann síld í 1500 metra fjarlægð
a
VARÐSKIPIÐ Ægir, sem Asdic-fisksjáin var sett í, hefur verið
á miðum síldveiðiskipanna nyrðra undanfarna daga. Þar verður
tækið reynt og sérfræðingur frá verksmiðjunni mun kenna skips-
höfninni stjórn þess og meðferð.
Pétur Sigurðsson, forstjóri
landhelgisgæzlunnar, skýrði
Morgunblaðinu svo frá í gær, að
þegar væri fengin reynsla fyrir
því, að hægt er að finna síld með
tækinu.
Um daginn fann það síldartorf
ur, sem voru í 1500 metra fjar-
lægð út frá skipinu. Varðskipið
sigldi þegar á þennan stað og var
þar gengið ur skugga um, með
dýptarmælum, að þar voru síld-
artorfur, enda tók síldin skömmu
síðar að vaða í allstórri torfu.
Varðskipið hefur stöðugt sam-
band við síldartalstöðina á Rauf-
arhöfn og gerði skipherrann þeg-
ar viðvart, en þá voru skipin á
austursvæðinu í síld.
Akranesbátar með
rúmai* 4060 tunnur
Fiskrannsóknir
í Faxaflóa
VARÐ- og eftirlitsskipið María
Júlía er nú hér úti í Faxaflóa og
verður þar nokkra daga í sam-
bandi við fiskrannsóknir á veg-
um fiskideildar atvinnudeildar
háskólans. Árni Friðriksson,
fiskifræðingur, vinnur við þess-
ar rannsóknir og er hann með
skipinu.
Önnur skip strandgæzlunnar
eru við gæzlustörf.
Sæmdir ríddara-
kroisi Dannebrogs-
í fráreimslisgöngimum
iöltuu Norðurlandssíldar nemur
ú ramleoa 150 búsnnd tunnum
Þessar myndir eru teknar í orkuveri frafossstöðvar nóttina sem frárennslisgöng stöðvarinnar vora
fyllt af vatni í fyrsta skipti. Eru myndirnar báðar teknar því sem næst á sama tolettinum, sú íií
vinstri áður en göngin fylltust, en hin á eftir. — Þetta er svelgurinn, þar sem vatnið beljar fram
í göngin, eftir að hafa fallið niður á vatnshjól rafalanna, en falllæðin er um 40 metrar. — Engin
hreyfing er á vatninu, því það var látið flæða inn í göngin að neðanverðu. (Ljósm. Sig. Norðdahl).
á 3 dögum
AKRANESI, 24. ágúst — Ágæt
veiði hefur verið hjá reknetja-
bátunum héðan af Akranesi um
helgina. — .Síðan á laugardag
hafa borizt hér á land rúmlega
4600 tunnur og í dag var lítils-
háttar saltað á söltunarstöðvum
hér. Síldin er að öðru leyti fryst.
En regluleg síldarsöltun Faxa-
síldar er þó ekki hafin hér, er
frekar um tilraunir að ræða.
Á laugardaginn var landað hér
1100 tunnum og var hæsti báturj
Sveinn Guðmundsson með 126 j
tunnur, Ásmundur með 109 og
Sæfari VE 96 tunnur. Á sunnu- j
idaginn var landað 1435 tunnum
og var Heimaskagi með 307 og
Svanur 159.
í dag var mesti afladagurinn á
síldarvertíðinni og lönduðu bát-1
arnir, sem voru 19, alls um 2100
tunnum.
Hæstu bátar í dag eru:
Ásmundur með 295 tunnur,
Bjarna Jóhannesson 231, Sæbjörg
VE 177, Aðalbjörg 167, Sigurfari
138, Sæfaxi 135, Farsæll 128, Ás-
björn 120, Sigrún 112 og Böðvar
með 101 tunnu.
Skemmianir Hauka
Salt- og bræðslasild
265 jþás. mál ag tn.
ALLA síðustu viku hömluðu ógæftir síldveiðum við Norðurland,
svo að vikuaflinn í salt varð aðeins 1462 uppsaltaðar tunnur. —
Var saltsíldaraflinn á miðnætti s.l. laugardag orðinn alls 148.201
tunna. — Þá var bræðslusíldaraflinn orðinn 117.138 mál. Höfðu
síldarverksmiðjunum aðeins borizt 105 mál síldar í vikunni. —•
Á sunnudaginn var hins vegar talsverð söltun á Raufarhöfn, Seyðis-
firði og Vopnafirði, en á þessum stöðum mun hafa verið saltað í
4000—4500 tunnur síldar. Er saltsíldaraflinn því orðinn rúmlega
hálft annað hundrað þúsund tunnur.
------------------®
í FRÉTT frá danska sendiráðinu
er skýrt frá því, að Friðrik IX.
Danakonungur hafi sæmt for-
mann Búnaðarfélags íslands,
Þorstein Sigurðsson, bónda í
Vatnsleysu, og formann Stéttar-
sambands bænda, Sverri Gísla-
son, bónda í Hvammi, riddara-
krossi Dannebrogsorðunnar.
Aflahlulur úr réðri
790 krónur
AKRANESI, 24. ágúst — 3 trillu-
bátar voru á sjó í gær, sunnudag,
frá Akranesi. Voru þeir með ýsu-
lóð. Aflinn var aðallega ýsa og
lúða. Fóru þeir allir til Reykja-
víkur og seldu aflann þar.
Vissi ég að einn bátanna fékk
700 kg. og hlutu mennirnir 2 sem
á bátnum voru, 700 kr. í hlut.
SéS rekneljaveiði
hjá Hafnarfjarðar-
bálum
HAFNARFIRÐI — Reknetjabát-
arnir öfluðu frekar vel um helg-
ina. Afli þeirra var þó æði mis-
jafn. Mestan afla fékk Hafnfirð-
ingur, en hann kom í gær með
um 200 tunnur og s. .1 sunnudag
70. Fiskaklettur var með 134 tunn
ur og Draupnir 90. Síldina veiddu
þeir í Jökuldjúpinu.
í ráði er, að togarinn Surprise
fari á veiðar við Grænland nú í
vikunni. Einnig fer b.v. Júní n. k.
laugardag. Þeir eiga báðir að
veiða í herzlu. —G.
Sumir fengu 2 tn.
síldar í net
í GÆR bárust þær fregnir til
síldartalstöðvarinnar á Raufar-
höfn, frá reknetjabátunum, sem
eru við veiðar austur í hafi, að
í fyrrinótt hefði verið góð veiði
hjá bátunum, allt upp í 2 tunnur
síldar í net. — Flestir þeirra,
en bátarnir munu vera orðnir
átta eða 10, eru með 50—60 rek-
net.
Síldaraflinn í vikulokin (í svig-
um er getið aflans á sama tíma
í fyrra):
Saltsíld 148.201 tunna, uppsalt-
að (32.177).
Bræðslusíld 117.138 mál —•
(27.417).
RÖÐIN ÓBREYTT
Fryst síld 6.616 tunnur (7.766).
Þar sem aðeins 15 þeirra skipa,
sem tekin voi’u upp í síðustu
skýrslu, bættu við sig smáslöttum
í vikunni, þykir ekki ástæða til
þess að birta veiðiskýrsluna í
heild að þessu sinni, en þess skal
getið, að röð fjögurra aflahæstu
skipanna er óbreytt.
Ytra-Krossanes brann til
ka Wra kola sJ. laugardag
HAFNARFIRÐI, 24. ágúst —
Knattspyrnufélagið Haukar efndi
til sinnar fyrstu skemmtunar að
jxessu sinni s.l. laugardag í Engi-
<dal. Var dansað á upplýstum
Þalli til kl. 2 e. m. og skemmti
ffólk sér hið bezta. Var mikill
Vnannfjöldi samankominn í Engi-
Vlal, svo sem ávallt hefir verið
“undanfarin ár. — Einnig var
skemmtun þar s.l. sunnudags-
•kvöld.
J S.l. föstudagskvöld skemmtu
þeir Guðmundur Jónsson, óperu-
■söngvari, Brynjólfur Jóhannes-
•con, hollenzka söngkonan Char-
•oxx Bruse og fleiri í Bæjarbíói. —
Var húsið þéttsetið og skemmti
fólk sér með ágætum. — G.
Óvænt heimsókn
‘KHÖFN, 24. ágúst — í dag komu
9,0 bandarískar þrýstiloftsflugur
í heimsókn til Danmerkur. —
Voru flugmennirnir á ævinga-
flugi, en þeir hafa bækistöðvar
í Bretlandi. —jNTB.
AKUREYRI, 24. ág. — Síðdegis síðastliðinn laugardag brann bær-
inn að Ytra-Krossanesi til kaldra kola. Enn fremur brann hey,
er stóð við bæinn. Innbú bjargaðist að mestu. Allt var óvátryggt.
ELDURINN KOM UPP
í HEYI VIÐ ÍBÚÐARIIÚSIÐ
Klukkan rúmlega fimm s.l.
laugardag varð eldsins vart í
heyi, sem stóð við gamlan her-
mannaskála, norðan við íbúðar-
hússbygginguna í Ytra-Krossa-
nesi í Glæsibæjarhreppi. Fjög-
urra ára drengur, dóttursonur
bóndans Brynjólfs Sigtryggsson-
ar, varð eldsins fyrst var. Hljóp
hann inn til heimafólksins, en
heima var Brynjólfur einsamall
af karlmönnum, kona hans og
tvær dætur auk dóttursonarins
unga. Brynjólfur brá þegar við
og gerði slökkviliðinu aðvart,
sem kom innan stundar. Var síð-
an gengið að björgun innbús eft-
ir að sýnt var, að eldurinn mundi
breiðast út.
REYNDIST ÓKLEIFT AÐ
BJARGA IIÚSINU
Ekki reyndist kleift að verja
bæinn, enda nokkur kaldi af
.norðri, og stóð þvi beint af hey-
j inu á húsið. Slökkviliðið gat lítið
aðhafzt, því að ekki var hægt að
ná í vatn nema í 400—500 metra
fjarlægð. Var aðstaða öll svo
slæm, að ekki reyndist mögulegt
’ að gera neitt til bjargar húsinu,
sem fuðraði upp á svipstundu.
Húsið var gamalt tvílyft timbur-
hús á hlöðnum grunni.
| Brynjólfur telur, að ekki geti
hafa verið um sjálfsíkveikju í
heyinu að ræða, þar sem hiti
hafi ekki verið í því. — Fyrir
skömmu hafði verið kveikt upp
í eldavél inni í húsinu, og er
möguleiki á, að neisti frá skor-
steininum hafi orsakað íkveikj-
una. Heyhlaða var skammt vest-
an bæjarins og tókst að bjarga
henni.
| Innbú náðist að mestu, en það
jvar allt óvátryggt. Heyið, sem
var um 150 hestar, gereyðilagð-
ist. — Jörðin er eign ríkissjóðs.
■— Vignir.
Fleiri bátar munu á næstunni
hefja veiðar á þessum fjarlægu
miðum, og í gær var kunnugt um
nokkur skip sem verið var að
búa á veiðar. Stærri bátarnir
munu geta tekið 500—-600 tómar
tunnur.
Helgi Sigurðsion
vann íslandsblkarinn
S. L. laugardag fór fram nið ár-
lega íslandssund í Nauthólsvík,
en það er keppni í 500 m frjáisri
aðferð í sjó, og hlýtur siguxvig-
arinn íslandsbikarinn að verð-
Iaunum.
Að þessu sinni voru keppend-
ur aðeins tveir. Sigurvegari varð
Helgi Sigurðsson, Ægi, sem synti
vegalengdina á 7:34,0 sex. og
vann bikarinn í annað sinn í röð.
Annar varð Ari Guðmundsson,
Ægi, sem synti vegalengdina á
7:58,0 sek.
45 ÞÚS. TUNNUR
Hæstu söltunarstöðvar á land-
inu, Hafsilfur h.f. og Jarlinn s.f.
á Raufarhöfn, hafa nú saltað I
um 13.700 tunnur og 12.300, en
alls mun söltunin þar, á fimm
söltunarstöðvum, vera orðin rúm
lega 45.000 tunnur.
50 MÁL UFSA
Þá segir ennfremur, að í vik-
unni sem leið hafi 50 málum af
ufsa verið landað í bræðslu og
frystar voru 92 tunnur.
Þór á heiiiíleið að
lokiimi viðgerð.
VARÐSKIPIÐ ÞÓR er nú á leið
til landsins eftir mikla og gang-
gerða viðgerð á aðalvél skipsins,
scm miklir gallar reyndust vera
á, og ekki tókst að bæta úr hér
heima.
Með skipinu er sérfræðingur
frá vélverksmiðjunni og standa
vonir til að tekizt hafi að bæta
úr þessum göllum.