Morgunblaðið - 10.09.1953, Síða 10
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 10. sept 1953
10 ?
p 'ac." ag- -ar^.---rgr JttL. -arr~
! SUÐURRÍKJAFÓLKIÐ
SKÁLDSAGA EFTIR EDNU LEE
Framhaldssagan 29
svona eins og til þess að sam-
þykkja undrun mína. Og svo hélt
hann áfram. „Og mér líkar þetta
alvel prýðilega. Alveg prýðilega“.
Mitty opnaði nú dyrnar og inn
kom sígaunahjörðin hans hr.
Doiph, gullfallega ekkjan með
króana sína. — Það var alveg satt
hjá Dolph að hún væri falleg,
því hún var virðuleg sem drottn-
ing og síð pilsin flöksuðust um
fagurlega lagaða fótleggi henn-
ar, og á rauðum skóm hennar
voru litlar silfurbjöllur sem
hringdi í um leið og hún gekk.
Mitty tilkynnti að ungfrú
að ungfrú Camilla biði niðri eftir
því að gefa þeim að smakka á
brúðkaupskökunni, og ég endur-
tók ósk mína um það þau yrðu
viðstödd brúðkaup mitt.
„Því miður“, sagði Dolph, „en
kæra litla vinkona, við eigum
langa leið fyrir höndum, svo við
megum til með að fara núna“.
Þau fóru, og ég horfði á þau
klifra upp í skrautlega vagninn,
sem var bak við húsið og aka á
burt, með ógurlegum skarkaia.
Ég má ekki gleyma að þakka
Andrési fyrir að hafa gert brúð-
kaupsdaginn minn svona full-
kominn, hugsaði ég með sjálfri
mér.
„Kæru systkini, við erum hér
samankomin ....“.
Núna fyrst trúði ég því, og ég
vissi að ég hafði ekki trúað að
þessi draumur minn myndi ræt-
ast, vegna þess að ég var hrædd
um að eitthvað myndi koma í veg
fyrir það. Og jafnvel þegar ég
stóð tilbúin í snjóhvíta brúðar-
kjólnum mínum og með brúðar-
slörið fyrir andlitinu fyrir fram-
an þær allar, Mitty, sem brosti
gegnum tárin, ungfrú Camillu
sem grandskoðaði mig, og ungfrú
Ad, sem brosti og kinkaði kolli,
— jafnvel þá, trúði ég því ekki
að þetta væri satt.
Poteat kom inn og veikur óm-
ur af hljómlist barst inn þegar
dyrnar opnuðust, en ómurinn
hvarf þegar hann lokaði dyrun-
um. Hann hallaði sér upp að
vegnum augnablik, virðulegur í
sparifötunum, og hár hans var
eins og vel fægt silfur og hann
virti mig fyrir sér.
„Og þessa fallegu brúði verð
ég að gifta“, sagði hann, og gekk
yfir til mín, kyssti mig á kinn-
ina og hélt síðan áfram, „ég er
stolur af þér, Jessica.“ Hann
hneigði sig og rétti mér arm sinn
og við gengum í áttina að dyr-
unum.
Ég sneri mér við og sá að tár-
in streymdu niður eftir kinnum
Mitty, og ég sleit mig lausa frá
Poteat, hljóp til hennar og skeytti
ekkert um blómin mín, heldur
faðmaði Mitty að mér og sagði:
„Mitty mín. Eftir einn mánuð
kem ég aftur til baka. Láttu þér
ekki leiðast. — Þetta verður ekki
svo langt“. „Það gengur allt ein-
hvernveginn“, svaraði hún.
Og ég fór aftur til Poteat og
fylgdi brúðarmeyjunum eftir
niður stigann og ég reyndi að
ganga í takt við þær. Eins og í
draumi gekk ég inn ganginn að
hinu tilbúna altari sem þar var
allt skreytt með silkiböndum og
blómum og pálmagreinum og
þarna stóð presturinn og beið
eftir mér.
Og þá kom ég auga á Wes.
Hann stóð þarna hár og spengi-
legur, og þegar augu okkar mætt
ust voru þau ekki kát og stríðnis-
leg heldur alvarleg, og næstum
áhyggjufull, að mér fannst.
Poteat setti hendi mína varlega
í hendi Wes, og við snerum okk-
ur að prestinum og þá fannst mér
allt í einu ég fá eins konar vitr-
un. Wes hafði líka verið áhyggju-
fullur og ekki trúað að þetta væri
veruleiki. — Og ástin fyllti mig,
og ég fann að allur efi hvarf úr
huga mínum eins og dögg fyrir
sólu.
„Og með þessum hring gifti
ég....“
Hinir heitu sólbrenndu' fingur
hans héldu um mína köldu, og
hann hafði orðin eftir prestinum.
En jafnvel þó mér virtist rödd
hans vera stöðug, titruðu fingur
hans um leið og hann dró skín-
andi gullhringinn á fingur mér.
Þetta fær eins á hann og mig,
hugsaði ég með sjálfri mér.
„Þið eruð nú hjón
Ég horfði á Wes um leið og orð
in voru að gifta okkur, og með
leifturhraða fór sú hugsun í gegn
um huga minn að nú ætti mig ein
hver, og nú væri mín þarfnast.
Þá faðmaði hann mig að sér og
um leið og hann þrýsti eldheit-
um kossi á varir mínar, heyrði
ég að hann hvíslaði, „halló, Doc“,
og nú vissi ég að ég tilheyrði hon
um, — tilheyrði Wes um aldur
og ævi og ekkert gat framar skil-
ið okkur að. ^
En hvað það var dásamlegt að
vera giftur, og í staðinn fyrir
orðið ég, var það núna alltaf við.
— í hvert skipti sem Wes notaði
þetta dásamlega orð, fannst mér
sem hjarta mitt stöðvaðist af
hamingju.
heim á hótelið, þar sem við dvöld
um, Astor hótelið, og nóttin hafði j
ekki enn sigrað kvöldið, sem var
dásamlegt. Wes var þolinmóður á
meðan ég kíkti í búðarglugga, og
er ég stoppaði fyrir framan
blómabúðarglugga spurði ég: j
„Heyrðu Wes. Hvað heita þessi
fallegu bláleitu blóm?“
„Það eru Parma fjólur“, svar-
aði hann.
„Aldrei hef ég séð svona fall-
egar fjólur“, sagði ég hrifin.
Hann tók undir handlegg minn
og leiddi mig varlega inn í búð-
ina og lítiU skrítinn karl kom á
móti okkur og bauð þjónustu
sína.
„Ég vil mjög gjarnan kaupa all
ar Parma fjólurnar, sem þér eig-
ið til“, sagði Wes.
Skrítni karlinn lyfti augabrún-
um og sagði nokkuð hikandi, „já
en herra minn, við eigum mjög
mikið til af þeim fjólum?“
Wes tók fram peningaveski sitt
og sagði ákveðinn, „ég sagðist
ætla að kaupa þær allar“, og
litli maðurinn læddist skelfdur
á svip inn í hliðarherbergi.
„En Wes, hvers vegna ætlarðu
að kaupa svona margar?“ spurði
ég aumleg á svipinn.
Hann svaraði mér ekki, heldur
stakk höndunum í vasann og
flautaði lagstúf um leið og hann
gekk inn í hliðarherbergið, þar
sem skrítni karlinn var í óða önn
að telja fjólurnar og koma þeim
fyrir í kössum.
Kvöld eitt, er við vorum á leið
Apófek
óskar eftir aðstoðarstúlku.
Upplýsingar um menntun, aldur og fyrri störf, sendist
Morgunblaðinu, merkt: Apótek —1953—38.
CROSLEY SHELVADOR
Yfirburðir CROSLEY kæliskápsins eru
viðurkenndir af öllum sem til þekkja,
og verðið lægra, en á mörgum tegund-
um sem ekki eru sambærilegar að gæð-
um. — CROSLEY kæliskápurinn fæst
eingöngu hjá okkur. — Komið á með-
an úr nógu er að velja.
O.JoL náon (LS? ^JJaaLer L.p.
Hafnarstræti 3
SIEMENS
vélar
SIEMENS
strauvélin hefur 68
cm. tangan vals.
SIEMENS
strauvélinni er
stjórnað með
fætinum
Ný sending tekin upp í dag.
tœ Lia uerziunm
eia- ocj raflceniaverzl
Bankastræti 10 — Sími 2852
íbúð til sölu og önnur til leigu
Fremur lítil íbúð á hitaveitusvæðinu er til sölu. Ibúðin
er í steinhúsi og hvorki í risi eða kjallara. Er íbúðin 3
herbergi, eldhús og bað, og verður laus til íbúðar 14.
maí n. k. Útborgun 140 þús. kr. og aðeins reglusöm fá-
menn fjölskylda kemur til greina, þar sem seljandi á
fleiri íbúðir í húsinu. Get leigt kaupanda 2ja herbergja
íbúð í steinhúsi á hitaveitusvæði frá 1. okt. til 14. maí
fyrir lága leigu og enga fyrirframgreiðslu. — Tilboð
merkt: „Hitaveita — 52“, sendist blaðinu fyrir n. k.
sunnudag.
IMY VERZLUN
1
■
Lítil vefnaðarvöruverzlun [|
verður opnuð í dag, að j!
■I
Freyjugötu 26, undirnafninu E
■
■
■
HúfuHnn
mimm
ENSKAR
KvEN
KAPuR
GÓÐAR - ÓDÝRAR