Morgunblaðið - 24.09.1953, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.09.1953, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIB Fimmtudagur 24. sept. 1953 SUÐDRRÍkJAFÓLKIÐ SKÁLDSAGA EFTIR EDNU LEE Framhaldssagan 40 að spara hvern eyrir. Við Wes vorum þögul, þangað til við vorum komin út fyrir borg ina, en þá sagði hann allt í einu, l»urrlega. „Nú halda þau auðvit- að að ég hafi vitað þetta þegar ■ég kvæntist þér.“ „Vitað hvað, elskan?" Hann brosti til min, „rankaðu nú við þér Doc, því ég held að l>ú sért enn í nokkurs konar draumi. Ég meina auðvitað að J»ú yrðir svona vellauðug". Bros hans varð að grettu. „En þá vil ég aðeins leyfa mér að minna á að ég reyndi eftir bezta megni að komast hjá því að kvænast l»ér, þegar mamma var sífellt áð hvetja mig til þess. Manstu ■ekki að ég sagði þér frá því Doc?“ ' Ég sagðist muna eftir því og rugluð í ríminu spurði ég. „Já en Wes, mamma þín vissi ekkert Wn þetta. Það vissi enginn um ba&“. Hann brosti aftur, „hve miklu af hinum nýju auðæfum viltu veðja?“ , „En hvernig gat hún vitað það?“ „Hann Poteat er einnig hennar lögfræðingur, gleymdu því ekki.“ Hann virti mig fyrir sér. „Datt ^ér aldrei í hug, hvaða ástæður lægju fyrir því að mamma hefði iekið þig undir sinn verndar- væng?“ „Ég hef alltaf haldið að hún hefði gert það vegna þess að hún er svo góðhjörtuð kona, og svo er hún líka kunningi hr. Poteat. Var það e. t. v. einhver önnur ástæða?“ Hann hló. „Mamma getur lagt allt í sölurnar ef peningar eru -annars vegar.“ „Nei, heyrðu nú Wes“, andvarp aði ég. „Þú ert svo óréttlátur gagnvart henni. Hún ungfrú Camiila, sem er svo góð og hún er langt frá því að vera áfjáð í að næla sér sjálfri í eitthvað. Hún sem alltaf er að gera einhverjum eitthvað gott.“ ; Hann þagði augnablik og hélt jvo áfram. „Allt í lagi Doc. Þú skalt bara halda áfram í þinni góðu trú. En þú skalt gæta þess vandlega að hún reyni ekki að aaæla sér í eitthvað af peningun- imi þínum.“ Ég man ekki hve mörgum vik- vin eða mánuðum síðar ungfrú Camilla kom í heimsókn. Hún ók sjálf í eineikisvagninum sínum, og var mjög vingjarnleg. Ég var glöð yfir því að Wes hafði farið til Atlanta. Eins og alltaf kom hin hrein- skilningslega framkoma hennar mér á óvart og ég var ekki undir það búin að svara nærgöngulum spurningum. Um leið og hún kom inn spurði liún. „Hvernig hefur Wes það núna, elskan?“ Ég sagði henni rólega að Wes liði prýðilega, þótt ég vissi vel að ég sagði ósatt. Augu okkar mættust. „Þú ert alveg einstök í l»inni röð, Jess. Svo trygg og traust eins og klettur úr hafinu". Ég hrissti höfuðið. „Nei, það er ég ekki“, sagði ég. „Ekki innst inni“. Hún stóð upp og gekk yfir til mín og settist við hlið mína í sófann. „Jes, ég blátt áfram verð að tala við þig. Ég er svo áhyggju full, — áhyggjufull út af Wes.“ „Wes?“ spurði ég og var sam- stundis eins og á verði, „hefurðu áhyggjur út af Wes?“ „Já, Jess, en ekki vegna þess, sem þú heldur, þó ég hafi einnig áhyggjur af því“. Hún hikaði, rétt eins og hún væri hálffeimin, en hélt svo áfram. „Það er út af verksmiðjunum, Jess. Það er mikil hætta á að ég missi t»ær.“- | „Missa verksmiðjurnar?“ spurði * ég og horfði skelkuð á hana. „Hvernig geturðu misst þær?“ Hún neri hendur sínar. „Jú, 1 Jess. Það er úti um allt“, sagði hún látleysislega. „Þ. e. a. s. ef mér tekst ekki að ná í eitthvað fé sem ég get haft handbært. Bankinn ásamt lánardrottnum minum, er á eftir mér. Ég þarf að fá nýtízkuvélar til þess að auka framleiðsluna. Ef það rætist ekki úr þessu vandamáli mínu, þá endar það með því að allt verður tekið frá mér og þá finnst mér eins og ég sé að selja alla framtíð Wes og Cissu líka“. Ég reyndi að gera mér í hug- arlund hvernig Wes væri ef hann hefði ekki verksmiðjurnar á bak við sig og ég sagði. „Ég er fegin að þú komst til mín. Ég skal tala við Andrés.“ Dag nokkurn, mánuðum síðar skildi ég Mitty og Wes eftir heima en ók niður að verksmiðj- unum til þess að heilsa upp á Cade og Mady og til þess að sjá hverjar breytingar hefðu verið framkvæmdar fyrir lánið frá mér. Samt varð ég ekki vör við nein ar breytingar þegar ég ók í gegn- um verksmiðjuhliðið. Það virtist allt vera í sama horfinu, engay nýjar byggingar og fólkið sem ég mætti var jafn illa klætt og fyrr og virtist jafn soltið og það hafði verið fyrr. Mér fannst vera ein- hver óánægjutilfinning í loftinu. Heima hjá Luckett, frétti ég frá frú Hardy og dóttir hennar Clytie að engar breytingar hefðu átt sér stað, hvorki í sambandi við verkafólkið eða vinnuskilyrð- in. En Wangle var jafn grimmur og vöruverðið í verzluninni var jafn óréttlátt. Ekki var heldur að sjá að nýjar vélar hefðu verið keyptar, og ef nokkur breyting hafði átt sér stað, þá var það til hins verra. Daginn eftir fór ég niður eftir til þess að tala við Darty Land. Hann sagði að það hefði mikið verið rætt um þetta, en því minna framkvæmt. Félagið sem seldi vélarnar hafði sent mann til þess að mæla fyrir nýjum vélum og til þess að láta fylla út pöntunar- lista. En ungfrú Camilla hafði sagt, þegar maðurinn var farinn, að það mætti ekki panta neitt, fyrr en hún segði til. Hún hafði heldur ekki gefið fyrirskipanir um aðrar breytingar. Og Darty Land sagðist hafa verið of lengi við verksmiðjur til þess að hann veitti því ekki eftirtekt að fjár- hagurinn væri mjög bágborinn. Ég greip tækifærið til þess að hringja til Andrésar, þegar ég var ein á skrifstofunni. Hann samþykkti að við þyrftum nauð- synlega að grípa til einhverra ráða. Við ákváðum að ræða um málið við Wes og kveða' síðan ungfrú Camillu á okkar fund og fá einhvern botn í málið. Það var 'öng þögn í samtalinu og ég hélt rð hann væri farinn úr síman- um og sagði þess vegna. „Andrés, ertu þarna enn?“ „Já“, svaraði hann. „Ég var bara að hugsa.“ „Hugsa um hvað?“ „Hugsa um það hvernig þér VARALITUR Uppreisnin á Pintu '4WSE2SPW 'ZW-r***-r ~ Eftir Tojo 19. Því næst gekk Sir John út úr stýrishúsinu og skellti hurðinni allharkalega á eftir sér. | Þegar James hafði staðið sína vakt, gekk hann fram í lúkar. Pað var þá komið langt fram á kvöld. Þegar hann kom að stigagatinu barst honum til eyrna mikill hávaði. Hann heyrði strax, að hér var ekki allt með felldu. Háset- 1 arnir sátu allir í hnapp utan um borð, sem var í háseta-. idefanum og skröfuðu ákaft. „Hvað er hér um að vera?“ spurði James, þegar hanm kom niður í lúkarinn. „Við ætlum allir sem einn að mótmæla hinum lélega mat, sem við fáum,“ mælti einn þeirra. „Sömuleiðis ætlum við að mótmæla hinni illu meðferð, sem við erum beittir. Ef við fáum ekki leiðréttingu mála okkar, munum við gera ráðstafanir, sem duga,“ bætti hann við. James leit hörkulega á mennina, en sagði síðan í lág- um róm: „Gerið ykkur fulla grein fyrir því, sem þið eruð að gera? Vitið þið ekki, að það varðar við lög að setia sig upp á móti skipstjóranum?“ „Við höfum ákveðið að láta engan aftra okkur í að fram- kvæma áform okkar,“ sagði þá einn mannanna. „Við þolum þetta ástand ekki lengur. Ætlarðu ekki að standa með okkur?“ sagði maðurinn og leit á James. „Ég skerst ekki úr leik. En segið mér eitt. Hver ykkar stal matnum, sem skipstjóranum var ætlaður?“ Mennirnir þögðu allir góða stund. Loksins sagði einn skrifstofumannanna, að hann hefði gert það. „Ég var svo aðframkominn vegna hungurs, að ég féll fyrir freistingunni.“ „Það má ekki koma fyrir aftur, að þið stelið mat yfir- mannanna. Það getur orðið ykkur dýrt spaug,“ sagði James. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu 14 fallegir litir MARKAÐURINN Hafnarstræti 11, Kaupmeun Kaupfélög Ge-Halin sjálfvirkt þvottaefni, Tvær tegundir, væntanlegt. — Hagstætt verð. Gerið pantanir fljótt. Einkaumboð: J^ór&ur JJeitóóon Grettisgötu 3 — Sími 80360. «ran(K9 Til sölu húseignirnar, Laugavegur 18 og Vegamótastígur 3 og 5. í ■ Tilboð sendist undirrituðum, sem veitir allar nánari « upplýsingar, RAGNAIl ÓLAFSSON, hrl, Vonarstræti 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.