Morgunblaðið - 25.09.1953, Blaðsíða 1
16 síður
Taumldus óstjórn „vinstri stjórn
arinnur“ í Vestmannaeyjum
Sfarfsmenn bæjarins Seifa á ný
aðsfaðar BSRB vepa
vanioidinna launa sinna
Verkalýðsfélagið hefur
eiimisf borið fram kvartanir
O
yfir óreiðunni
HIN botnlausa óreiða og óstjórn „vinstri stjórnarinnar“ í
Vestmannaeyjum hefur nú keyrt inn þverbak. Er nú svo
komið að bæði verkamenn og aðrir starfsmenn bæjarfélags-
ins hafa ekki um margra mánaða skeið fengið greidd laun
sín. Eru bæjarstarfsmenn jafnvel neyddir til þess að taka
við hluta af launum sínum með úttekt í verzlunum til þess
að heimili þeirra hafi eitthvað fyrir sig að leggja. Hefur
verkalýðsfélagið einnig fyrir nokkru skrifað bæjarstjórn
Vestmannaeyja bréf og kvartað undan þessari furðulegu
meðferð og einstæða sleifarlagi.
Hinn 13. þ. m. hélt Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar
fund og samþykkti'að leita á ný aðstoðar Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja til þess að ná rétti félagsmanna sinna,
sem lent hafa í stórfelldum vandræðum vegna óskila bæjar-
iélagsins við þá.
Þetta gerist á sama tíma, sem allt athafnalíf í kaup-
staðnum stendur með blóma, fyrirtæki einstaklinga
og félagssamtaka þeirra standa í fyllstu skilum við
starfsfólk sitt. Ríhir almenn gremja í Eyjum með sukk
og ráðleysi „vinstri stjórnarinnar“, sem farið hefur
með stjórn bæjarmálefna undanfarin ár.
BREF STARFSMANNA-
FÉLAGSINS
Á fundi 13. þ. m. í Starfs-
mannafélagi Vestmannaeyja-
bæjar var samþykkt að ítreka |
fyrri beiðni félagsins til stjórnar
BSRB um aðstoð til þess að ná
rétti félagsmanna gagnvart bæn-
um.
Mbl. hefur snúið sér til stjórn-
ar starfsmannafélagsins í Eyjum
og fengið afrit af bréfi því, sem
hún hefur ritað Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja í samræmi
við fundarsamþykkt þessa. Fer
það hér á eftir:
Vestmannaeyjum, 16. sept. 1953.
„Á fundi Starfsmannafélags
Vestmannaeyjabæjar, sem hald-
inn var hinn 13. september 1953,
vár rætt um ástand það, sem enn
ríkir um launagreiðslur til starfs
manna bæjarsjóðs Vestmanna-
eyja og fyrirtækja hans.
Ummæli starfsmanna voru öll
á sama veg. Starfsmenn fengu
engir laun sín greidd í pening-
um, nema að mjög litlu leyti og
þá með því móti að koma dag-
lega á skrifstofu bæjargjald-
kera. Þeir væru neyddir til að
taka út vörur í verzlunum til að
heimilin hefðu eitthvað til að
lifa á og væri þarafleiðandi
meinað að verzla í sínu eigin
pöntunarfélagi eða eftir eigin geð
þótta. Skattar þeirra og gjöld til
ríkis og sjúkrasamlags væru ó-
greiddir og vofði nú yfir þeim
lögtök fyrir þeim gjöldum.
Töldu starfsmenn þetta svo ó-
þolandi, að við slíkt væri ekki að
una lengur, og báðu stjórn fé-
Framh á bls. 12.
Þesr eiga í vök csð
verjaSt heima fyrir
Einkaskeyti til Mbl.
PARÍS 24. sept. — Aðstoðarfor-
sætisráðherra Júgóslafíu Edvard
Kardelj hefur látið þá skoðun
sína í ljós í viðtali við franska
tímaritið Express að „framfara-
öfl sem vilja koma á sósíalisku
lýðræði í Sovétríkjunum verði
stöðugt áhrifameiri innan Sovét-
ríkjanna". Hann tekur þó fram
að menn megi ekki vænta
snöggra breytinga, sem gefi þetta
til kynna.
Ráðherrann bætti því við að
þessum framfaraöflum yrði að
berast stuðningur utan frá. Það
má gera, sagði RSft-delj, með
stjórnmálastefnu, sem miðar að
því að draga úr spenningi heims-
málanna, því að valdapólitík
gegn Sovétríkjunum leiðir til
þess að aðferðum Stalíns verður
beitt á ný. Það mega allir sjá að
einræðisherrana í Moskvu, sem
beita ómannlegum aðferðum til
þess að halda völdum, má neyða
til að breyta um stjórnarhætti,
ef sterk öfl innan landsins vinna
ötullega að slíku. Og það er ein-
mitt það sem við erum vitni að
í dag, segir í viðtalinu við Kar-
i delj.
Vildi steypa
KAIRO, 24. sept. — Fyrrverandi
forsætisráðherra Egyptalands,
Ibrahim Hady, verður dreginn
fyrir rétt á laugardag ákærður
fyrir landráð, upplýsti talsmaður
Byltingarráðsins í dag.
í ákærunni segir að Idady hafi
fyrr á þessu ári verið í vitorði
með erlendum aðiljum sem
stefndu að því að gera samsæri 'g.“Vað‘beygja“sig"undír
gegn stjórn Nagíbs. — Hady sem
var forsætisráðherra frá 1948—
1949 var handtekinn fyrir fáum
dögum síðan. —Reuter-NTB.
Flóðbylgjæ
í Englandi
LUNDÚNUM, 24. -sept. —
Þrettán metra há flóðbylgja
olli í dag tjóni í bænum Lyn-
mouth í Suður-Englandi. Á
aðalgötum bæjarins er nú um
hálf meters djúpur sjór.
Ýmsar ár í Suður-Englandi
hafa flætt yfir bakka sína, en
tjón hafa ekki orðið alvarleg
af þessum sökum. Flóð er þó
í ýmsum bæjum. í óveðrinu
sem geisað hefur á þessum
slóðum hafa margir fiskibátar
lent í hrakningum og óttast er
um suma þeirra.
Sovétríkin viðurkenna ekki
dómsvald alþjöSadómstóla
— og beygja sig ekki
fyrir úrskurði þeirra
Einkaskeyti til Mbl. frá NTB-Reuter.
NEW YORK, 24. sept. — Utanríkisráðherra Svía, Östen Unden,
hélt því fram í ræðu er hann flutti á Allsherjarþingi S. Þ. í dag
að það myndi verða árangursríkt og heillavænlegt ef stórveldin
fimm, sem fulltrúa eiga i, Öryggisráðinu afsöluðu sér rétti sínum
um beitingu neitunarvalds, þegar rætt væri um upptöku þjóða í
samtök Sameinuðu þjóðanna og í þeim málum er varða friðsam-
lega lausn í milliríkjadeilum.
Unden ræddi fleiri atriði. Hann' dómsvald alþjóðadómstóla í milli
kvað það skyldu allra aðildar-' ríkjadeilum. Hann kvað það
miður farið að slíkt væri ekki
UNDEN: — Hvar er
viljinn?
samnmgs-
— Úr víðri verold —
100 þús. dollarar
SEOUL. — „Ég hef haft í huga að flýja land mitt allt frá árinu
1945“, sagði Norður-Kóreumaðurinn sem lenti MIG-15 flugu á
flugvelli S. Þ. í nánd við Seoul. Hann fær greiddar 100 þúsundir
dollara sem heitið var hverjum þeim flugmanni, sem lenti heilli
MIG-15 flugu á flugvelli Sameinuðu þjóðanna. „Það var ekki vegna
þessara verðlauna, sem ég flúði. Ég vildi ekki vera lengur þar
nyrðra“, sagði flugmaðurinn.
Clark yfirhershöfðingi hefur tilkynnt að flugvélin verði afhent
þeim sem sannað getur eignarrétt sinn á henni.
Það er slegizt um titil
NEW YORK, 24. sept. — Kl. 2
aðfaranótt fösthdags (ísl. tími),
eiga þeir að berjast um heims-
meistaratitilinn Rocky Marci-
ano (83,9 kg) og Roland La
Starza (83,8 kg). Búizt var við
að um 30 þús. manns myndu
vera viðstaddir kappleikinn, en
hann fer fram á útivelli einum,
Polo Grounds. Spáð er hlýviðri,
en menn óttast rigningu og þá
mun leiknum frestað til laugar-
dags.
j Veðmálin eru Marciano í vil,
5 á móti 1. — Leiknum verður
sjónvarpað í 45 kvikmyndahús-
um — en ekki í heimahúsum. —
Hnefaleikamennirnir hvílast í
dag. La Starza kemur beint frá
æfingastað sínum, en Marciano
tók lífinu með ró, — fékk sér
góðan morgunverð, 2 kodelettur,
12 egg, ávaxtasalat og te.
Unnu ekki í 24 kist.
RÓMABORG 24. sept. — í dag lögðu 4 milljónir iðnverkafólks
niður vinnu í Rómaborg. Verkfallið var ákveðið í 24 stundir og
gert til þess að leggja áherzlu á kaupkröfur, svo og að mótmæla
því að um 20 þús. iðnverkafólks hefur verið eða verður sagt upp
vinnu.
Þetta sólarhrings mótmælaverkfall gekk rólega fyrir sig. Það
var vel skipulagt af þremur verklýðssamböndunum —1 kristilegum
demokrötum, jafnaðarmönnum og kommúnistum. Öll nauðsynlegri
þjónustustörf voru unnin. Mjólkur- og brauðabúðir voru opnar og
járnbrautarmenn lögðu ekki niður vinnu.
hægt að segja um öll aðildar-
ríkin.
Ekkert ríkjanna austan
járntjalds befur viðurkennt
rétt alþjóðadómstóla til að
dæma í milliríkjadeilum.
En með endurskoðun sáttmála
Sam. þjóðanna getum við ekki
breytt afstöðu þessara ríkja til
þessa máls, hélt Unden áfram.
Sáttmálinn er að flestu leyti
fullnægjandi, ef aðildarríkin hafa
á annað borð vilja til að semja
friðsamlega um málin, sagði
unden.
Smyslov gerði
jafntefli
Á STÓRMEISTARAMÓTINU
í skák í Zurich, hefur 13. um-
ferð verið tefld, en aðeins fá-
um skákum lokið, hinar fóru
í bið. Smyslow, sem var efst-
ur eftir 12. umferð, gerði jafn-
tefli við Taimanov. Einnig
varð jafntefli hjá þeim Kotov
og Petrosian, Keres og Glig-
oric. — Sem fyrr segir fóru
aðrar skákir í bið. Reshevsky
tefldi við Bronstein og var
staðan Bronstein í vil. Najdorf
tefldi við Geller og var stað-
an hjá Najdorf öllu verri. í
þessari umferð átti Euwe frí.
1400 fanga
vanfar
0 TOKÍÓ, 24. sept. — Her-
stjórn S. Þ. telur að það vanti
’ hvorki meira né minna en
3400 menn sem kommúnista-
herirnir í Kóreu tóku til
fanga. Hefur herstjórn Norð-
anhersins verið skrifað og
beðið um skýringu á örlögum
þessara manna.
0 Herstjórn Norðanmanna hef-
ur svarað og sagt þetta upp-
spuna einn. Listi S. Þ. yfir
menn þessa væri falsaður með
öllu. Mennirnir hefðu aldrei
verið teknir höndum af Norð-
anhernum.
0 Clark yfirhershöfðingi hefur
aftur svarað þessari fullyrð-
ingu Norðanmanna. — Segir
hann herstjórn S. Þ. hafa
sannanir fyrir því að menn
þessir væru handteknir af
Norðanhernum. Sumir þeirra
voru látnir tala í útvarp frá
Pyongyang, aðrir sáust í fanga
búðunum og allflestir þeirra
hafa skrifað til ættingja sinna
— bréfin voru skrifuð í fanga
búðum. — NTB-Reuter.