Morgunblaðið - 25.09.1953, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.09.1953, Blaðsíða 9
Föstudagur 25. rrept. 1953 MORGUNBLAÐ19 9 Árni G. Eylamls: DJiJPT SKAL PLÆGJA TEIG TIL TÖÐIJ44 11 1 BLAÐINU Suðurland, sem dagsett er 11. júlí í sumar, las ég merkilega tillögu, er samþykkt hafði verið á fundi formanna ræktuunarsambandanna á Suður- Jandsundirlendinu 18. júní í ár. Tillagan er svohljóðandi: „Fundur formanna ræktunar- sambanda á Suðurlandi, haldinn að Selfossi 18. júní 1953, vill beina þeim tillögum til tilrauna- ráðs jarðræktar, að það hlutist til um, að gerðar verði víðtækar tilraunir á framræzlu mýra og vinnslu þeirra, sérstaklega mis- munandi plægingardýpt, og geri þetta án tafar“. ORÐ í TÍMA TÖLUÐ Þetta er sannarlega gagnmerk tillaga og orð í tíma töluð. Árum saman hefi ég klifað á því í ræðu og riti, að gera þyrfti jarðvinnslutilraunir, til þess að leiða í ljós, með hvaða vélakosti er ódýrast og bezt að vinna mis- tnunandi land til nýræktar. Mest gildir þetta þó um torunnið land, eins og seigar mýrar, sem svo víða þarf að vinna. í bókinni Búvélar Og ræktun komst ég svo að orði um þetta 1949: „Hcr er nú unnið svo mikið að ný- rækt og endurræktun með alldýrri ræktunarútgerð, að eigi er hóf á, að ekki skuli neitt vera að því gert að sannreyna ný vinnu- þrögð og stórvirk jarðvinnslu- tæki. Á traktornámskeiðum þeim, sem haldin eru, læra þátttakend- ur ekki jarðvinnsluna að neinu liði. Á bændaskólunum er sú fitennsla einnig af allt of skornum skammti, og langt of lítil eða jafnvel nær engin, að því er varð- ar stóru tökin við frumvinnslu I. H. C. brotplógur nr. 459 En það liggur víst ekki við að þetta verði gert, hér þarf ekki að spara, því hér á við það sem Ibsen lætur Pétur Gaut segja: „Þótt allt fari í eyðslu, er auðnum varla hætt. Jón ríki hann veitir veizlu. Vel sé þér gautska ætt“.“ Margt hefi ég sagt þess á milli í svipuðum tón, um þetta mikils- verða mál. Enn ber nýtt við, sem eykur nauðsyn þess að gerðar séu þær tilraunir, er hér um ræðir. — Hið nýjasta er Skærpeplóg- urinn. — Það má ekki leng- ur svo til ganga að rækt- unarsamböndin fálmi hvert í sinu lagi og hvert fyrir sig, og þreifi sig áfram leiðbeiningalítið, til þess að komast að raun um hvernig bezt hentar að brjóta og vinna land til nýræktar. VÉLAKOSTUR RÆKTUNAR- SAMBANDANNA Að megin uppistöðunni — belta traktorum með jarðýtum — frá- talinni, er verkfærakostur rækt- unarsambandanna harla sundur- leitur. Slíkt er ekki að undrast. Mörg þeirra keyptu verkfæri þegar erfitt var að fá þau og «11 nýræktar. Það er því að von- fim, að allt of margt þeirra manna, er vinna með belta- traktorum á vegum ræktunar- sambandanna, kunna lítt til sjálfra ræktunarverkanna, jarð- vinnslan verður í böndum þeirra Siálgert fálm. Hver vinnur eftir sínu höfði, og árangurinn vill verða eftir því stórlega misjafn, 'éæði að gæðum og kostnaði, þótt um góða traktormenn sé að ræða, sem kunna tökin á sjálfum traktornum, svo að vel megi við «na“. í Morgunblaðinu 31. janúar 1953 segi ég um sama efni: „-----Ég hef áður vakið máls á því, og það oftar cn einu sinni, ■og bent á, að það kostar bændur ítundruð þúsunda árlega, að eigi ■skuli með vinnuathugunum vera gerður glöggur samanburður á l»ví, hvernig bezt og ódýrast er að brjóta land til ræktunar með þeim válakosti, sem völ er á hjá ræktunarsamböndum, og með því «f til vill, að endurbæta véla- Síostinn, að fengnum samanburði. Ég hefi bent á og endurtek það, að slíkar jarðvinnslutilraun- ir væri tiltölulega auðvelt að Sramkvæma, í sambandi við hið xnikla landnám ríkisins, ef til- raunaráð jarðræktar, verkfæra- íiefnd ríkisins, nýbýlastjórn og Svo verkfæraráðunautur Búnaðar íélags íslands hefðu um það hag- nýta samvinnu. Þetta gæti verið undirstöðu- atriði og fyrsti liður í víðtækum filraunum með ræktonaraðferðir. urðu því að sæta því er bauðst. nær öll og oftast nutu þau lítill- ar forsjár um leiðbeiningar við kaupin, og svo braut sem sagt nauðsyn lög, að kaupa það sem baúðst hverju sinni. f árslok 1952 höfðu ræktunar- samböndin notið framlags frá ríkinu til að eignast eftirtalin verkfæri: 10 skurðgröfur, 106 beltatraktora með ýtu, 2 beltatraktora án ýtu, 32 hjólatraktora, 21 kilplóg, 55 brotplóga, 40 akurplóga, 4 diskaplóga, 127 diskaherfi, 10 rótherfi, 14 fjaðraherfi, 11 flaghefla, 2 traktorferjur og allmikið af öðrum flutn- ingjatækjum. Auk þess eiga þau nokkuð af eldri jarðvinnsluverkfærum, sem ekki hefir verið greitt framlag til. Ef þetta er athugað, sést, að það eru um 2,5 traktorar um hvern brotplóg, og að það eru'ekki nema 100 plógar með 140 traktorum, þó að allt sé talið sem plógnafni nefnist. Diskaherfi, af einhverri gerð eru hinsvegar hátt í það jafnmörg eins og traktorarnir. Framan af var það svo, að með hverjum traktor var venjulega keyptur einn brotplógur, éinskera og eitt diskaherfi. Síðar ágerðist eftirsókn eftir þrískeraplógum, sem þó allir eru akurplógar, að gerð og lögun. Mörgum þótti vinnan ekki ganga nógu fljótt með einskera-brotplógunum, og traktoraaflið ekki nýtast að fullu. Þó að það skipti litlu um gang Fyrri greini þessara mála, vil ég geta þess, að ég hefi á undanförnum ár- um látið mér fátt um finnast not þrískeraplóganna og talið þá fjarri því að leysa plægingar- vandann á viðunandi hátt. En svo er komið, að víða standa brot- plógarnir, sem keyptir voru á fyrslu árum ræktunarsamband- anna, lítt eður eigi notaðir. Þó er fjarri því, að menn séu al- mennt ánægðir með vinnubrögð þrískera plóganna. Þeir velta illa og erfitt er að herfa og saxa sund- ur grasrótarstrengina eftir þá. Diskaherfin eru töluvert mis- munandi, en yfirleitt hefir þokast í áttina að fá stöðugt betri og viðameiri diskaherfi. Nokkuð hefir verið að því gert, að vinna land með diskaherfun- um einum án þess að plægja það. Yfirleitt hafa það reynst léleg vinnubrögð, alls staðar þar sem um vall- eða mýrgróið land er að ræða. Öðru máli gegnir um sandjörð, flagmóa og annað því líkt. Nokkur ræktunarsambönd eiga fjaðraherfi og rótherfi, en notkun þeirra setur þó eigi svip á jarð- vinnsluna yfirleitt. Svo koma plógherfin 1951. — Nokkur ræktunarsambönd hafa eignast þau. Loks er svo fyrsti Skærpeplógurinn í ágúst í sumar. Nú spyrja forráðamenn þeirra land skal vinna Og við hverjar] kringumstæður. Það sem hér þarf að gera og' hægt er að gera, er ofur einfalt, j og að því stefnir tillaga ræktun- arsambandanna á Suðurlands-1 undirlendinu sem tilgreind var hér að framan. ÞAÐ, SEM MEST LIGGUR Á Mest liggur á að fá greina- góða vitneskju um hvernig vinna skal seigar mýrar og miða ég því tillögur mínar við það fyrst og fremst. Tekið er fyrir samfelt svæði nægilega stórt, í einhverri fram- ræstri mýri, eins og t. d. undir Ingólfsfjalli. Landinu er skipt legt að vinna þær eigi meira en svo, að til þess sé ætlað að full- vinna landið til sáningar með heimilistækjum, litlum hjóla- traktor og herfum. . Spila nr. 5 yrði auðvitað full* unnin til sáningar, eða því sera næst, við tætinguna. Vel mætti bæta við spildu nr. 6. SpildanVæriplægðmeðFord- son Major dísiltraktor eða öðrum hjólatraktor hliðstæðum. Viði plæginguna væri notaður Kvernelands-brotplógur af gerð>- inni Hydrobant 16”. Á eftir væri herfað með sama traktor og einnar raðar diska- herfi gerðu til nýbrotsvinnu, t. d. Diskaherfi, Kíllefer nr. 184 A í eins hektara spildur — minni mega þær ekki vera — og teig- lengd spildanna eigi höfð minni en 200 m. Hver spilda gæti verið 200x50 metrar. Þesar spildur eru svo unnar á mismunandi hátt, en allar með sama traktor, eða jafnstórum beltatraktorum. Er sanngjarnast að miða við um 40 hestafla vélar eins og t. International TD-9 og Caterpillar D-4 sem eru einna al- gengastar. Mismunandi vinnslu spildanna vil ég svo hugsa mér á þennan hátt: 1. Spildan er plægð með brot- plóg, einskera, I.H.C. nr. 459. Þessir brotplógar eru töluvert al- gengir, en nú víða lítið notaðir. Á eftir er herfað með diskaherfi,1 af einhverri þeirri gerð, sem bezt og mikilvirkust hefir verið talin. T. d. Killefer 184 A, með 24” diskum og 9” bili á milli diska. Þessi herfi eru allvíða til. 2. Spildan er plægð með venju- legum þrískeraplóg. Herfað á eft- með Killefer herfi eins og spilda nr. 1 og 2, eða ef til vill með ein- hverja léttara herfi. 3. Spildan er plægð með Rome plógherfi. Herfað á ef.tir með Killeferherfi, eins' og spilda nr. 1 og 2, eða ef til vill með ein- hverju léttara herfi. i I.H.C. 19-B.F. 8 feta, með 1« skertum diskum 22” og 9” bili á milli diska. Með þessu móti yrði reynt hvort til mála kemur að vinna erfiða mýrajörð með hjóla- traktorum, samanborið að vinna með beltatraktorum.____ Fishing News elur á hatri í garð Islendinga BREZKA blaðið The Fishing' News birtir grein eina, 19. sepL, sem það nefnir: „Hvernig brezk- um skipstjórum er ógnað á ís>- landi“. Er greinin þrungin íll- kvitni og uppfull af rógi og mis- sögnum. Þar er hreinlega alið á hatri í garð íslendinga. I þessari grein eru skipverjar á togurum látnir segja frá við- skiptum sínum við íslendinga og eru það ófagrar lýsingar. Oft hafa birzt í blaði þessu Lúrðuleg skrif um löndunarbann ið og deilu Islendinga og Breta út af fiskveiðitakmörkununum. Tilgangur með þessari grein er sýnilega ekki sá að leggja eitt- hvað gagnlegt til málanna, heldL ur til þess að gera íslendinga sem tortryggilegasta í augum al- mennings. Bersýnilegt er, að þeir sem standa að blaði þessu, eru algjörlega handbendi hinnar fá- mennu klíku, sem fyrir löndun- arbanninu stendur. Þeir óttast ekkert meir en fisksölusamning togaraeigenda hér við George Dawson. Blaðið allt ber þennaa óttta með sér, og grípur nú til þess ráðs að skrifa greinar sem brezkur almenningur mun áu efa fordæma, því að tilgangur þeirra er augljós. Skærpeplógur festur á beltatraktor International TD-9. — Athugið stærð plógsins samanborið við jeppann og mennina, sem hjá plógnum standa. ræktunarsambanda, sem þurfa að 1 auka og bæta vélakost sinn. Hvaða verkfæri eigum við að kaupa? Það stendur á svörum. Og jafnvel þó að ekki komi til þess að endurnýja og bæta verk- færakostinn, væru mörgum rækt- unarsamböndum mikil nauðsyn að fá , um það leiðbeiningar, hvernig bezt sé að ganga að verki og beita þeim verkfærum, sem þau eiga, allt eftir því, hvaða 4. Spildan er plægð með Skærpe plóg. — Herfað á eftir með diska- herfi af sömu gerð eins og spilda nr. 3. 5. Spildan er plægð með þrískera plóg, eins og spilda nr. 2. Herfað nokkuð með diskaherfi og loks tætt með tætara. Rotary Hoe, tengdum við hjólatraktor, t. d. Fordson Major eða David Brown. Um fjórar fyrst töldu spildurn- ar ætti það að vera sameigin- V aniarmálanef nd leyst frá störfmn HINN 23. september voru þeir Hans G. Andersen, deildarstjóri, Guðmundur í. Guðmundsson, sýslumaður, og Agnar Kofoed- Hansen, flugvallastjóri, leystir frá störfum í varnarmálanefnd, samkvæmt eigin ósk.___ TÓPAZ GAMANLEIKURINN Tópaz, sem sýndur hefur verið samtals 73 sinnum á vegum Þjóðleikhússins víða um land, verður enn sýndur tvisver eða þrisvar hér í bænum. Annað kvöld verður þetta óvenju vinsæla leikrit flutt í Þjóðleik- húsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.