Morgunblaðið - 24.10.1953, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.10.1953, Qupperneq 11
Laugardagur 24. okt. 1953 MORGVISBLAÐIÐ 11 Hjúkrunarheimili vígt i Hafnarfirði á morgun HAFNARFIRÐI. — f gær var fréttamönnum blaða og útvarps boðið að skoða nýja Elliheimilið hér í bæ, sem fengið hefur nafnið I Hjúkrunarheimilið Sólvangur. — Það verður vígt á morgun ki. | 16.00, og gefst þá almenningi kostur á að skoða húsið. SAGA BYGGINGARINNAR Guðmundur Gissurarson bæj- arfulltrúi rakti í stórum dráttum sögu byggingarinnar. — Það var á fundi bæjarstjórnar Hafnar- fjarðar 4. júlí árið 1944, að sam- þykkt var tillaga frá bæjarráði um að hafizt yrði handa um bygg ingu „elliheimilis, sjúkrahúss og fæðingardeildar.“ — Á þessum fundi var kosin þriggja manna nefnd til að annast undirbúning og framkvæmdir á slíkri bygg- ingu. í nefndina voru kosnir þe’«r Ásgeir G. Stefánsson, Stefán Jóns son og Guðmundur Gissurarson, og hafa þeir verið í nefndinni Síðan. Guðm. Gissurarson, sem var formaður nefndarinnar hafði á hendi umsjón með byggingar- framkvæmdum. BYGGINGARFRAMKVÆMDIR HÓFUST 1947 Var hafizt þegar handa um undirbúning að byggingunni. Var valinn staður í hrauninu norð- austur af Hörðuvöllum. — Á ár- inu 1946 var gengið frá grunni, lagðar vatns- og skolplagnir. — Byggingarframkvæmdir hófust hins vegar vorið 1947. Húsið er 4 hæðir með kjallara, sem er undir um 1/6 hluta húss- ins. Það er um 720 fermetrar að flatarmáli og um 7500 rúmmetr- ar. FJÓRAR HÆÐIR OG KJALLARI í kjallara er miðstöð og geymsla. Á neðstu hæð er eldhús, geymslur og annað matreiðslunni tilheyrandi. Þá eru á neðstu hæð- inni borðstofa fyrir starfsfóik og heilsuverndarstöð í suðurenda byggingarinnar með sérinngangi. Á annarri hæð er sjúkradeild fyrir 25 vistmenn og fæðingar- deild fyrir allt að 20 sængurkon- ur. Þar er einnig gert ráð fyrir skurðstofu. — Á þriðju hæð er pláss fyrir 45—50 vistmenn, þar er einnig stór borðsalur og sam- komusalur. — Á fjórðu hæð er pláss fyrir 12—15 vistmenn í norð urenda, en í suðurenda eru vist- arverur fyrir starfsfólkið. — Á þeirri hæð er einnig borðsalur. Á öllum hæðum eru bítibúr og hreinlætisherbergi. — í húsinu eru 2 lyftur. MARGIR LAGT HÖND Á VERKIÐ Skrifstofa húsameistara ríkis- ins hafði yfirumsjón með bygg- ingarframkvæmdum. — En bygg- ingameistarar hafa verið bræð- urnir Tryggvi og Ingólfur Stef- ánssynir og Guðjón Arngríms- son. — Teikningar af hita-, skolp- og vatnskerfi gerði Sigurður Flygenring verkfræðingur. — Vélsmiðjan Klettur annaðist all- ar lagnir. — Rafmagnsteikning- ar gerði Valgarð Thoroddsen rafveitustjóri, en raflagnir ann- aðist Guðmundur Sveinsson raf- virkjameistari og Rafveita Hafn- arfjarðar. — Fullkomið útvarps- kerfi er í húsinu og einnig kall- kerfi, og er það uppsett af Frið- rik Jónssyni viðtækjameistara. — Málningavinnu önnuðust hafn- firzkir málarar. — Terrassólagnir annaðist Ársæll Magnússon. — Lyftuuppsetningu: Óskar Sæ- mundsson rafvirkjameistari. — Handrið á stiga smíðaði Vél- smiðja Hafnarfjarðar, og gúmmí- dúka á stiga lagði Victor Guð- mundsson. — Öll rafmagnstæki, vaska o. fl. smíðaði og útvegaði Rafha. — Borðbúnað, sjúkratæki o. fl. útvegaði Benedikt Berg- mann, heildsali, Reykjavík. — Húsgögn hafa smíðað Dvergur, húsgagnavinnustofa Stefáns og Jónasar, Dröfn, Hannes Sigur- jónsson o. fl. — Rúmstæðin voru smíðuð að Reykjalundi. Vt MILLJÓN ÚR RÍKISSJÓÐI ■ Byggt hefur verið fyrir fram- • lag úr bæjarsjóði, og úr ríkis- ; sjóði hafa verið greiddar kr. 300 ! þúsund, en þaðan er væntanlegt ■ í allt hátt á aðra milljón króna. I — Þá hefur Bæjarbíó lagt til ‘ byggingarinnar 800—900 þús. ; krónur. ' \ Kvenfélagið Hringurinn hefur ; gefið til fæðingardeildarinnar \ kr. 120 þúsund. Þá hafa verið ■ fengin lán, sem greiðast eiga með l væntanlegu framlagi úr ríkis- • sjóði. Byggingin kostar nú um 5 ; millj. króna. > Matráðskona hefur verið ráðin • á hjúkrunarheimilið, og er það ; frú Sína Arndal, en yfirhjúkrun- • arlona verður frú Þorbjörg Ein- ; arsdóttir. i 5 Hjúkrunarheimilið Sólvangur ; mun væntanlega taka til starfa \ um næstu mánaðamót. — G. Þyngsfi hrúfurinn VI pund Hitínn nær 16 stig — Gangnamenn tefjast Ekið inn að Snæfeili Fram- og afturfjaðrir fyrir Austin 8 hp., 10 hp., 12/16 hp., A 40, A 70 og Austin 10 hp. 1937 og’39 Hengsli, stýri, stimplar, ventlar, legur, viftureimarr bremsuhlutir o. m. fl. Framljósalugtir. Parklugtir, margar gerðir. Afturlugtir, margar gerðir. Ljósasamlokur 6 og 12 voit. Kuplingskol í alla enska bíla. Hosuklemmur af öllum stærðum. Garðar Gíslason h.f. Bifreiðaverzlun SKRIÐUKLAUSTRI, 18. okt.: — I dag hefir verið suðvestan hvass- ivðri öðru hvoru og mikil hlýindi og komst hiti hér í 15,5 st. Má nú heita að allur snjór sé horfinn hér af heiðum, nema í lægðum þar sem talsvert skefli var kom- ið. Um síðustu helgi gerði hér norðan og norðvestan garð og snjóaði nokkuð á heiðum og hvítn aði hér í dalnum. Var veðrið verst á mánudag, 12. október. Bjart var og gott um morguninn en brast snögglega á með norð- vestan og norðan þreifandi byl. (Var snjókoma að vísu lítil, en ofsaveður og nokkurt frost. Dag- inn eftir var batnandi veður og | hlánaði svo upp úr þvi. , GANGNAMENN TEFJAST | Gangnamenn úr Fljótsdal voru í síðari smölun um þessa helgi I og voru í afréttarkofum á mánu- dagsnóttina. Lögðu snempia af stað í leit á mánudagsmorgun, en litlu síðar brast veðrið á. Vestur- öræfamenn náðu heim í Aðalból og Vaðbrekku, en Ranamenn í Vaðbrekku og Brú, en þangað var nú hægt að komast með hesta, þar sem Jökulsá var brúuð í sumar. Þeir, sem voru „undir Fellum“ gistu í Laugarkofa mánudagsnóttina og snéru þang- að aftur og voru þar aðra nótt. | Allir gangnamenn voru degi leng ur af þessum sökum í göngunum. á Skriðuklaustri og voru sýnd undan honum 99 afkvæmi, þar af 45 lömb. Hann hlaut II. verðlaun fyrir afkvæmi. Halldór Pálsson sauðfjárræktarráðunautur mætti á sýningunni. í dómnefnd með honum voru Jörgen á Víðivöllum og Sigfús á Bessastöðum. EKIÐ INN AÐ SNÆFELLI Um 20. ágúst í sumar fór Þor- björn Arnoadsson bílstjóri af Seyðisfirði, ásamt nokkrum fleiri akandi með 2 herbíla inn að Snæ- felli. Fóru þeir upp Jökuldal og yfir á hinni nýju brú hjá bænum Brú, og inn Hrafnkelsdal að Aðal bóli, en þangað var ruddur veg- ur í sumar. Þaðan óku þeir á vegleysum eftir leiðsögn Páls bónda á Aðalbóli og Hallgríms Benjamínssonar inn á öræfi og suðvestur á móts við miðju Snæ- fells. Snéru þar við vegna óhag- stæðs veðurs og aftur út í Hrafn- kelsdal. Þurfti hvergi að laga til fyrir bílana, en nokkuð var þó ógreiðfært á köflum. Enginn bíll hefir áður farið þessa leið, enda Hrafnkelsdalur útilokaður frá slíkum ökutækjum þar til í sum- ar. Má ætla að í framtíðinni ger- ist fleiri til að heimsækja Snæ- fellið, þenna austurlenzka fjalla- konung, þegar fært reynist að fótum hans á traustum bílum. — J. P. mOMIB Danskir lampar: Skrifborðslampar Gólflampar Borðlampar Sl ermabú Éi Laugaveg 15. Sími 82635. HRUTASYNING ] Hrútasýning var hér í hreppi , 16. október. Sýndir voru rúmlega ' 90 hrútar og hlutu 25 þeirra Norskum herföngum sleppt fyrstu verðlaun. Þyngsti hrútur- i MOSKVA: — Rússar slepptu ný- inn var Spakur, Benedikts Péturs ' leSa úr haldi fimm Norðmönnum j sonar á Hóli og vóg 116 kíló. ! Beztur var dæmdur Hrani Þór- : halls á Langhúsum, frá Hóli. Þá var og afkvæmasýning fyrir Spak sem þjónuðu í þýzka hernum stríðsárunum og hafa verið fangabúðum æ síðan. v/s ÁSPÓR JVS. off y/sBRSMNES BR. 267 ■ ■ i | eru til sölu. — Nánari upplýsingar veita full- > ■ trúar vorir, þeir Þorgils Ingvarsson og Björn ; Ólafs. > Landshanki Islands B Reykjavík Pk «IX # Miög ódýr UMBUDA- PAPPÍR til sölu. /fYlorffunlía&i& Hjúkrunarkvennaheimilið Sólvangur í Hafnarfirði ! : Fyrsta kynnikvöld * Guðspekifélags Islands verður í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22, sunnudag- inn 25. þ. m. og hefst kl. 9 síðd. Flutt verður erindi eftir Gunnar Dal um endur- holdgunarkenninguna. Frú Anna Magnúsdóttir leikur á slaghörpu. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. >■■■■■■■• ■■■•■■■■ ■■■■■■■■■ - AUGLYS7NG ER GULLS IGILDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.