Morgunblaðið - 31.10.1953, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.10.1953, Blaðsíða 1
16 síður 40. árgangur 248. tbl. — Laugardagur 31. október 1953 Prentsmiðja Morgunblaðsins Brezkir topraeigendur ! ' memi ennba Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB GRIMSBY, 30. okt. Einn brezku togaraútgerðarmannanna, Jack Vincent, heíur borið fram tillögu um að aflétt skuli um mánaðarííma bann það, sem brezkir útgerðarmenn settu á löndun íslenzks fisks í Grimsby, meðan gerð væri tilraun til að Isysa „deilu“ Breta og íslendinga. Á sameiginlegum funcli í félagi íogaraútgerðarmanna í Grimsby og félagi fisk- kaupmanna í kvöld var þessi tillaga felld. í yfirlýsingu sem gefin var út að fundinum loknum segir „að togaraeigendur og fiskkaupmenn séu samhuga um það að berjast gegn því að íslenzkir togarar geti landað afla sínum í Grimsby, þar til deilan um útvíkkun íslenzku land- lielginnar hafi verið leyst.“ llðln hjá á fíóðasvæðunum í Italíu Þau tssla va!dið handniiun millj. tjóni Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB ROVIGO, 30. okt. — Sólin brauzt fram í gegnum regnþrungið skýjaþykknið yfir Pódalnum í dag og flutti óttaskelfdum íbúum dalsins nýja von um að flóðahættan væri liðin hjá í þetta skifti. Nóttina áður hafði gengið yfir Norður-Ítalíu eitt versta óveður, sem menn muna, með þrumum, eldingum og skýfalli. Sólin var því íbúunum sem frelsun. Vatnsborð Pófljctsins steig jafnt og l'étt meðan á óveðrinu stóð og klukkustund eftir að því slotaði og var þá yfirvofandi hætta á að flóðgarðarnir brystu. En aldrei kom til þess og vatnsborðið er nú hætt að hækka. — Hættan er að mestu liðin hjá. Schweitzer fékk friðarverikim Nobels 1952 - Morshall iyrir 1953 Hræddir við valdbeitingu PANMUNJOM, 30. okt. — Indversku fangagæzlumenn- irnir vona að á morgun (laugardag) losni þeir við 1000 N-Kórumenn úr fanga- búðunum, en þá hefjast á ný fortölufundir með föng- unum. Reyna fulltrúar kommúnista að telja þá á að hverfa heim til sín. Fangarnir hafa neitað að mæta á þessum fundum, en nú hefur indverski hershöfð- inginn sannfært þá um að þeir verði ekki fluttir heim með valdi voga þeir þá að mæta á fundinum. Millj. manna hafa notið góðs af verkum þeirra Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB OSLÓ, 30. okt. —- NobelsverSlaunanefnd norska Stórþingsins til- kynnti í dag að friðarverðlaun Nobels fyrir árið 1952 hefðu verið \eitt Albert Schweitzer og friðarverðlaunin fyrir árið 1953 hefðu \erið veitt Georg Marshall. — Verðlaunaupphæðin fyrir árið 1952 er 171,134,70 sænskar krónur og fyrir árið 1953 175.292.94 sænsk- ar krónur. NTB-Reuter. rr rr HÆTTUME3KIN I KAFI « Vatnsborð Pófljótsins og hlið- arfljótanna hylur þó ennþá ■ rauðu strikin á flóðgörðunum, en þegar vatnsborðið nær þeim er yfirvofandi hætta á ferðum. Pó- fljótið hefur flætt yfir bakka sína í mýrlendi Pódalsins er lægst liggur en flóðgarðarinr halda á öðrum stöðum, eins og fyrr segir. Mörg hundruð manna, sem fengið höfðu skipun um að flýja scm fætur toguðu, þegar hættu- merki væri gefið, hafa enn engin fyrirmæli fengið um það, að hættan sé liðin hjá. Verðirnir standa ennþá á sínum stöðum, til þcss að tilkynna fólki fljótt um hættuna ef einhver flóðgarð- anna kynni að bresta. TRAUSTART EN FYRR I mýrlendinu sem lægst liggur í dalnum og Pófljótið hefur flætt yfir, hafa 30 fjölskyldur orðið að flýja heimili sín. Hefur þetta fólk fengið inni í „flóðbröggunum" sém reistir voru í skyndi er flóð- ih miklu urðu þarna árið 1951, þegar 300 manns fórust og tæpl. 300 þús. manns misstu heimili sín. Verkfræðingarnir sem byggðu flóðgarðana á ný eftir miklu flóð in þá, segja að garðarnir muni þola meira flóð nú en gömlu garð arnir þoldu. Þeir telja og að góð- viðrið í dag og nokkrir dagar til viðbótar án úrkomu muni orsaka það mikla lækkun vatnsborðsins, að menn þurfi ekki að vera mjög uggandi þó regntímabilið, sem venjulega nær hámarki í nóvem- ber, fari i hönd. TJÓNIÐ í S-ÍTALÍU Innanríkisráðherra ftalíu telur að tjónið af völdum flóðanna í Calabríu-héraðinu í Suður-Italíu í s.l. viku nemi að minnsta kosti 370 milljón- um króna (ísl.). Fraratíð Saai PARÍS 30. okt.: — Á þriðjudag- inn hefjast í Bonn samningavið- ræður um framtíð Saarhéraðsins, að því er franska utanríkisráðu- neytið upplýsir. Framtíð Saar er eitt þeirra atriða sem stendur í vegi fyrir því að sáttmálinn um Evrópuher- inn fáist staðfestur í franska þinginu. vopn Drykkjarblaðran NEW YORK, 30. okt. — Lög- regla New York borgar vonast nú til að geta beitt sér enn bet- ur gegn því að bifreiðastjórar aki bifreiðum sínum undir áhrif- um áfengis. Hefur lögreglan ver- ið „vopnuð“ „drykkjarbelgjum“ — eða blöðrum, sem hún lætur grunaða blása upp og síðan er innihald þeirra rannsakað á rann sóknarstofum. Félag bifreiðaeigenda í New York hefur þegar mótmælt. Seg- ir félagsstjórnin, að notkun „drykkjarblöðrunnar" sé brot á stjórnarskránni, þar sem í henni standi, að engan megi þvinga til þess að gefa vitnisburð, sem skaði hann sjálfan. HELSINGFORS — Finnskisendi herrann í Moskvu hefur jafn- framt verið skipaður sendiherra Finnlands í Búkarest og Soffíu. Júgóslaiar iallast ekki á úkvörðan Vestur- vetdanna nm Trieste — segir júgóslavneska úfvarpið WASHINGTON, 30. okt. — Bandaríska utanríkisráðuneytið athug- ar nú að bjóða ítölum og Júgóslöfum til fimmveldaráðstefnu um Trieste-vandamálið, upplýsti talsmaður ráðuneytisins í dag. Hann bætti því við að ráðuneytið vildi ræða þetta mál eins fljótt og unnt væri að koma því við. FJÖLFRÓÐUR MAÐUR Albert Schweitzer, sem fædd- ur er í Kaiserberg í Elsass 1875 er bæði guðfræðingur, heim- spekingur, læknir og tónlistar- maður (einhver fremsti orgel- leikari heims). Árið 1913 kom hann upp sjúkrahúsi í Lambar- ene, franskri nýlendu í Afríku, og þar hefur hann um langt ára- bil unnið óeigingjarnt starf til þess að bæta kjör hinna inn- fæddu. Einnig á vettvangi heim- speki og guðfræði liggja eftir hann mikil og vel unnin verk. HL J ÓMLEIK AFERDIR —- MANNÚÐARSTARF Schweitzer hóf starf sitt í Afríku fullviss þess að hvíti kyn- stofninn hefði brotið gegn lögum kristindómsins í samskiptum sín- um við blökkumennina og í öll þau ár, sem hann hefur starfað í Afríku hefur hann unnið þrot- laust að því að bæta samskipti hvítra manna og svartra Hann rekur þar fullkomið sjúkrahús, þar sem vel lærðir læknar og hjúkrunarkonur starfa. Pening- anna til þessa reksturs hefur hann aflað með því að fara í fyrirlestra- og hljómleikaferðir um lönd Evrópu og Ameríku. BÆTTI HAG MILLJÓNA MANNA Geoi’g Marshall, faðir Mars- halláætlunarinnar, er fæddur í Bandaríkjunum 1880. í fyrri heimsstyrjöldinni var hann liðs- foringi í 8. her Bandaríkjanna Framh. á bls. 2. Georg Marshali !! VEL TEKIÐ Þessari yfirlýsingu hefur hvar vetna verið vel tekið. Júgó- slafneska stjórnin var bjartsýn um það í dag að möguleikar væru til lausnar Triestedeilunni, og sagði að fagna bæri fimmvelda- ráðstefnu um málið. DAUBADÆMD FYRIRFRAM Fyrirlesari í júgóslafneska út- varpinu lýsti einnig ánægju yfir því, að Bretar og Bandaríkja menn hyggðust ekki flytja her sinn af A-svæðinu í Irieste fyrr en ráðstefnan hefði komið sam- an. — En fyrirlesari útvarpsins kvað ráðstefnuna þegar dauða- dæmda ef Vesturveldin hyggðust gera tilraun til að fá Júgóslava til að fallast á að A-svæðið yrði afhent ítölum. BROSTNAR VONIR Útvarpið gat þess, að erlendir blaðamenn væru nú farnir að týnast frá Balgrad. Vonir þeirra, um að þar myndi gefin út til- kynningin um að stríð væri hafið um Trieste, liafa brugðist, sagði útvarpið. iiggur rúmfastur WASIIINGTON 30. okt. — Georg Marshall lá rúmfastur vegna of- kælingar, er honum barst frétt- in um að hann hefði hlotið frið- arverðiaun Nobels. — Einn af vinum hans sagði, að Marshall myndi enga yfirlýsingu eða skýr ingu gefa fvrr en hann hefði fengið i hendur tilkynningu Nobelsverðiaunanefndar norska Stórþingsins um úthlutunina. — NTB-Reuter. 762.000 I.UNDUNUM 30. okt.: — 762000 ferðamenn komu til Bretlands frá meginlandi Evrópu á fyrstu 6 mánuðum þessa árs. Er það nokkru meiri fjöldi ,en á sama tíma í fyrra. — NTB-Reuter. Farák skuldar Hsstaðar PARÍS, 30. okt.: — Hinn þekkti tízkuteiknari, Jean Desses í Par- ís hefur ákveðið að höfða mál gegn Farúk fyrrverandi Egypta- konungi. Krefst hann greiðslu að upphæð um 80 þús. kr. (ísl.) fyrir nokkra kjóla, sem sendir voru Farúk samkvæmt beiðni hans í júlímánuði s. 1. ár. Annar tízkuteiknari, Christian Dior, hóf í dag undirbúning að samskonar málsókn á hendur Farúk. NTB-Reuter. Norðmenn afla yel ylð Grænland BERGEN 30. okt. — 54 línubátar norskir hafa stundað veiðar við Vestur-Grænland á þessu ári, auk fimm norskra togara. Alls hefur þessi norski floti aflað 12— 14000 tonn. Er sá afli sá bezti sem norskir bátar hafa aflað, síðan þeir hófu fiskveiðar undan ströndum Grænlands. — NTB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.