Morgunblaðið - 07.11.1953, Side 5
r Laugardagur 7. rióv. 1953
MORGVTSBLAÐIÐ
0
Mtjaðmahelli
(Hvít, svört, bleik).
Vanfar íkúð
til leigu, 1 tii 2 herbergi og
eldhús. Get látið í té hús-
hjálp. Tilboð óskast send
afgr. blaðsins, merkt: „Þ.
Þ. — 947“. —
HAftlSA-
GLUGGA-KAPPINíN
Með innhyggðu rennibraut
inni er framleiddur úi
mahogny, hnotu, birki og
eyk. — Prýðið heimili yðar
fyrir jólin. — Pantið tím-
anlega. — Verðið er ótrú-
lega lágt.
H A N S A h.f.
I^augaveg 105. Sími 8-1525.
DUMLOP
nýkomnir
hjólbairðar
500x16
550x16
600x16
700x16
700x15
700x20
Bðfreiðavöruverzlun
Friðriks Bertelsen
Hafnarhvoli. Sími 2872.
Amcrískir
prjónakjéiar
Garðastr. 2. Sími 4s78.
Nýkomnir
liaust- og vetrar-hattar. —
Verð við alira hæfi. Einnig
hinar margeftirspurðu
Kuldahúfur. —
Verzlunin JENNY
Frakkastíg 7.
Vil lána 25—35 þús
þeim, sem getur leigt
kr.,
2ja—3ja herb. íbúð
helzt í Austurbænum, frá
næstu mánaðamótum. Tilboð
sendist Mbl. fyrir mánudags
kvöid, merkt: „Lán — 946“.
Sölustarf
Getum tekið duglegan og á-
byggilegan sölumann strax.
Uppl. kl. 5—7 í dag, í Lækj-
argötu 10B, II. hæð. Fyrir-
spurnum ekki svarað í
sima. —
Guðin. H. Þórðarson.
4ra manna bíll
(Lanchester), til sölu, mjög
vel útlítandi og í góðu iagi.
Verð 32 þús. Söluverð þarf
ekki að greiðast allt í einu.
Lysthafendur sendi nöfn og
símanúmer á afgr. Mbl. fyr
ir 10. þ.m., merkt: „Góð
kaup — 940“.
Fjölbreytt úrval af mjög
smekklegum, amerískum
BorðlörsipunTs
fyrirliggjandi.
HEKLA h.f.
Austurstræti 14. Sími 1687.
silkimjúk. 0.06 m.m.
Morgunblaðið
er lielmingi útbreiddara en
nokkurt annað íslenzkt blað.
BF.ZT AÐ AUGLYSA
í MORGUTSBLAÐUSU
— Bátagjsideyrir
Framh. aí bls 2.
vandamál, sem er til orðið vegna
þess að allir þeir, sem einhverja
þjónustu láta í té, við þessa und-
irstöðu atvinnugrein, taka meira
en hún er fær um að láta í té,
miðað við mai'kaðsverð á erlend-
um vettvangi, sem hún er háð.
Þessvegna verða útflutningsfram
leiðendur að endurheimta hluta •
af því, sem af þeim hefur verið
tekið.
Hitt er svo annað mál, að fyr-
irkomulag þetta er seinvirkt, og
þeir peningar, sem koma inn aft-
ur til framleiðendanna, koma
ekki fyrr en eftir langan tíma.
Það væri þess vert fyrir hinn
„sannleiksleitandi“ hagfræði pró-
fessor, að kynna sér eitthvað um
þessi afgerandi atriði, áður en
hann fer næst fram á ritvöllinn.
Hvað myndi prófessorinn segja
við því, að síðasta A-skírteini,
sem gefið hefur verið út, vegna
framleiðslu ársins 1951 var gefið
út 31. október 1953?
Hvað myndi prófessorinn segja
við þvi, að ennþá 1. nóv. 1953 er
eftir að gefa út A-skírteini fyrir
nokkrar milljónir vegna fram-
leiðslu órsins 1952?
Það er engum undrunarefni,
þótt menn eins og prófessorinn,
er fær sín laun greidd reiðilega
1. hvers mán., eigi erfitt með að
skilja, að stétt eins og útvegsmenn
skuli sætta sig við að bíða svo
lengi, sem raun ber vitni um,
eftir talsverðum hluta tekna
sinna.
En það sem almenningur átti
að geta krafist af próíessor í hag-
fræði við Háskóla íslands, sem
jafnframt er alþingismaður, að
hann reyndi að leiða hugann að
þeim efnahagsvandamálum, sem
uppi eru á hverjum tíma, og
reyndi að finna lausn á þeim.
Eins og t. d. þeim vanda sem bíð-
ur Alþingis og ríkisstjórnar um
hver áramót, að leysa vandkvæði
bátaútvegsins, vegna þess ósam-
ræmis, sem er á milli tilkostnað-
ar og afraksturs bátaútvegsins.
En ekki standa fyrir þeim blekk-
ingarskrifum í flokksblaði sínu,
hvort sem það birtist í leiðara,
undir nafninu „Útvegsmaður“
eða á annan hátt, sem hallar svo
réttu máli, að ekki er hægt að
margfalda þekkta tölu, án þess
að útkoman verði nær fimmtungi
hærri hjá blaðinu, en hún raun-
verulega er.
Því verður áreiðanlega fagnað,
nú eftir að hagfræðingurinn er
kominn í útgerðarmannastétt, ef
hann finnur nú lausn á öllum
vandamálum bátaútvegsins. og
afsalar sér öllum tekjum af inn-
flutningsréttindum bátaútvegs-
ins, samanber grein undirritaða
„útvegsmaður" í Alþýðublaðinu
30. okt. sl.
En ef til vill myndi hann geta
upplýst okkur um, nú þegar, hve
uppbótin á saltfiskframleiðslu
hans frá 1951, sem sölunefndin
greiddi út 29. apríl í ár, nam hárri
upphæð.
Það hefur verið sagt, að eitt
af því versta sem maður gerði,
væri að ljúga að sjálfum sér. Þá
hefur einnig verið sagt, að svo
oft mætti endurtaka lýgina, að
aðrir færu að trúa og jafnvel,
eftir margar endurtekningar,
færi maður sjálfur að trúa.
En sálarástand þeirra manna,
sem trúa sinni eigin lýgi, eftir að
hafa séð hana einu sinni á prenti,
er ,ekki á marga fiska.
En þar sem prófessorinn virð-
ist vera orðinn útgerðarmaður,
ætti honum að vera auðvelt. sem
öðrum útgerðarmönnum, að fá
allar upplýsingar um starfsemi
sölunefndarinnar, og mun hann
þá komast að raun um, að sú
þjónusta, sem sölunefndin ann-
ast, er í þágu útgerðarmanna, og
kostnaður við þá starfsemi þolir
fyllilega samanburð við hvaða
stofnun sem er, svo ekki sé meira
sagt.
En hvort það verður rétt túlk-
að í Alþýðublaðinu, á eftir, frek-
ar en áður, skal engu spáð um.
Útgerðarmaður.
Dansæíing.
Bansæfing.
rnm
Jiehlur dansæfingu í kvöld kl. 9 í Edduhúsinu.
Góð hljómsveit.
Netndin.
VÖRUR
frá AIHEBIKU
teknar upp daglega í mjög fjölbreyttu og
skrauílegu úrvali
Sportskyrtur
Sportblússur, mjög fallegar
Nylonskyrtur
Barnasamfestingar
Stafa hálsbindi
Kuldahúfur á börn og fullorðna
Skíðapeysur, mjög skrauílegar
Gaberdineskyrtur
Drengjapeysur, með myndum
Náttföt, þrjár tegundir
Nærföt
Plastbelti
Sundskýlur
Leikfimisbuxur
Drengja sportskyrtur
Drengja stafabindi
Plastveski
Ej'rnahlífar
Lyklakeðjur
Plastpokar til að geyma í föt
Plast skópokar
Plast svuntur og margt margt fleira
1
í
Gjörið svo vel og skoðið í gluggana, og þér §
munuð vissulega sjá eitthvað sem hentar yður 3
Geysir h.f. I
Fatadeildin 1
Aðafundur
Söitisamkaná
ísl. 'fiskframíeiðenda
verður lialdinn að Hafnarhvoli þriðjudaginn 24. nóv. og
hefst fundurinn kl. 11 árdegis.
DAGSKRA:
1. Formaður stjórnarinnar setur fundinn.
2. Kosningar fundarstjóra, ritara og kjör-
bréfanefndar.
3. Skýrsla félagsstjórnarinnar fyrir árið 1952
4. Reikningar sambandsins.
5. Önnur mál.
6. Kosning stjórnar og endurskoðenda.
Stjórn
Sölusambands íslenzkra fiskframleiðenda
llMsiimiiisOLSBMtC
AKJÁRN
Flestar lengdir væntanlegar um næstu mánaðamót.
Sími 1—2—3—4