Morgunblaðið - 10.12.1953, Qupperneq 1
16 síður
40. árgangm
283. tbl. — Fimmtudagur 10. desember 1953
PrentsmiSjm Mergunblaðsins
læðii Eisenhowers
iær prýðisviðtökur
?r Thors aSalíuiltríd íslaiids lijá
S.Þ/. ^Þctta var mikilfenglcg ræða44
. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
LI/NDÚNUM, 9. des. — Stjórnmálamenn í mörgum löndum hafa
íagnað ræðu Eisenhowers og tillögum lians um alþjóðastofnun á
vegum S. Þ., sem að því á að vinna að beizla kjarnorkuna í frið-
samlegum tilgangi. — Ileimsblöðin hafa og fagnað tillögum Eisen-
liowers feykilega.
• Howe, framleiðslumálaráðherra Kanada, sagði í dag, að land
hatis samþykkti að taka þátt í viðræðum um kjarnorkumálin, þar
sem reynt væri að draga úr kjarnorkuvopnakapphlaupinu. —
Ráðherrann kvað kanadisku stjórnina hafa og á því mikinn áhuga,
að alþjóðakjarnorkustofnunin, sem Eisenhower minntist á, yrði
sett á stofn hið fyrsta.
• Utanríkisráðherra Ástralíu, Casey, sagði að forsetinn hefði
sýnt á raunsæjan hátt, hvað biði mannkynsins, ef ekki væri komið
í veg fyrir notkun kjarnorkuvopna.
• Bidault, utanríkisráðherra Frakka, sagði, er hann kom heim
til Parísar af Bermudafundinum, að franska sendinefndin hefði
samþykkt ræðu Eisenhowers af öllu hjarta og væru Frakkar henni
algerlega sammála. — Kvað hann Churchill sömu skoðunar.
★
Margir fulltrúar á þingi S. Þ. sögðu að ræðunni lokinni, að í
henni hefði forsetinn bent á nýja leið til að leysa kjarnorkuvanda-
málið. — Vishinskí, fulltrúi Rússa á þinginu, neitaði að láta í ljósi
álit sitt á ræðunni. Kvaðst hann fyrst þurfa að rannsaka hana
nákvæmlcga.
• Frú Pahdit, forseti Allsherjarþingsins, sagði: „Ræða Eisen-
howers var prýðisgóð og gefur fyrirheit um farsæla framtíð alls
mannkyns.“
• Nasrollah Entezam, varaforseti Allshcrjarþingsins, sagði: „Ræð-
an var boðskapur mikilla vona öllu mannkyni til handa.“
• Saki frá Tyrklandi sagði: „Ræðan var stórkostleg“.
• Thor Thors, fulltrúi íslands, sagði m. a.: „Þetta var mikil-
fengleg ræða.“
• Muhameð Ashmi frá Egyptalandi sagði: „Ein mesta ræða
vorra tíma.“
• Gladwyn Jebb, fulltrúi Bretlands, sagði: „í ræðunni komu
fram nýstárleg og hrífandi sjónarmið“.
® Khristna Menon frá Indlandi sagði: „Ég var mjög snortinn. '
★
Menn hrjóta nú um það heilann á stjórnarskrifstofum víða
um hcim, hver verða viðbrögð Rússa. — Knowland öldungadeildar-
þingmaður, form. utanríkisnefndar Bandarikjaþings sagði, að svar
Ráðstjórnarinnar við tillögum Eisenliowers mundu sýna, hvort
þeir hefðu raunverulega áhuga á, að friður haldist í heiminum.
Chyrchill vill halda einkafundi
með leiðlogum slórveldanna
„Þar á ekhi að búa lii fyrirsagnir heimsblaðanna"
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
LUNDÚNUM, 9. des. — Sir Winston Churchill sagði í Bermuda í
dag, að hann væri þeirrar skoðunar, að ráðstefna þríveldanna hefði
mikið raunhæft gildi. Kvað hann ráðstefnuna hafa verið haldna
vegna ýmissa erfiðleika á lausn heimsvandamála, og sagði það
álit sitt, að forystumenn ríkjanna yrðu að hittast við og við og
ræða saman án fyrirfram ákveðinnar dagskrár. — Kvaðst hann
vita með vissu, að Eisenhower væri sömu skoðunar.
99
Þfóðvorn44 skríður úr hýðinu:
ENN Á BERMUDA
Churchill sagði þetta í sam-
kvæmi, sem forseti þingsins í
Bermuda hélt honum í Hamilton
í dag.
EKKI FRÉTTAMATUR
Þetta yrðu blaðamenn að láta
sér lynda. — Á slíkum ráð-
stefnum væri verkefnið ekki
það að búa til stórar fyrir-
sagnir í hcimsblöðunum, held-
ur að varða brautina til al-
heimsfriðar og öryggis.
Forsætisráðherrann sagði
það ennfremur álit sitt, að WASHINGTON, 8. des. — Talið
þegar slíkar óíormlegar við- er að baðmullarframleiðsla
ræður færu fram í framtíð- Bandaríkjanna í ár verði 16,4
inni ætti ekki að gefa neinar milljón ballar. Uppskeran hefur
opinberar yfirlýsingar um um-' aldrei verið svo mikii frá því
ræðueínin eða niðurstöðurnar.1 1937. —
Kaus kommúnista í menntamúla-
rúi og útvarpsrúð •
VEGNA fyrirsjáanlegra þrengsla
í blaðinu á morgun (föstudag) er
öruggara að koma handritum að
auglýsingum, sem birtast eiga í
því blaði fyrir hgdegi í dag.
□-
-□
4. janúar
A LUNDUNUM, 9. desember.
T Til viðbótar því, sem sagt
hefur verið í fréttum um innihald
orðsendingar Vesturveldanna til
Rússa, má geta þess, að Vcstur-
veldin komu með þá uppástungu,
að fjórveldafundurinn verði
haldinn í Vestur-Berlin hinn 4.
janúar n. k.
f orðsendingunni segjast leið-
togar Vesturveldanna vonast til,
að fjórveldafundurinn muni leiða
til þess, að frjálst Sameinað
Þýzkaland sé ekki langt undan
og vopnahlé verði samið við Aust
urríkismenn hið fyrsta.
NTB-Reuter.
Lýðræðisflokkamir höfðu samvinnu,
en Gyifi og Hannibal skiiuðu auðu!!
ÞAU TÍÐINDI gerðust á Alþingi í gær er kosið var í ýmsar nefnd-
ir og trúnaðarstöður, að þingmenn „Þjóðvarnarflokksins“ kusu
með kommúnistum og hjálpuðu þeim þar með til þess að fá komm-
únista kjörna í menntamálaráð og útvarpsráð. Hafa „Þjóðvarnar-
menn“ þar með skriðið úr híðinu og sýnt sitt rétta andlit. í þessu
sambandi er það sérstaklega athyglisvert, að þetta bandalag komm-
únista og „Þjóðvarnarmanna“ var gert til þess að fella tvo Al-
þýðuflokksmenn frá kosningu, þá Guðmund G. Hagalín rithöfund,
sem stillt var í menntamálaráð og Stefán Pétursson fyrrverandi
ritstjóra, sem var í kjöri við kosningu í útvarpsráð. En „Þjóð-
varnarmenn“ hafa eins og kunnugt er talið sig fylgja „sósíal-
demókratiskri" stefnu í þjóðmálum!!!
□-
-□
Visliinski
fær Leninorðuna
JERÚSALEM, 9. des. — Útvarp-
ið í Jerúsalem skýrði frá því í
kvöld, að Vishinskí, aðalfulltrúi
Sovétríkjanna hjá S. Þ., hafi ver-
ið sæmdur æðsta heiðursmerki
Ráðstjórnarríkjanna, Leninorð-
unni, í 5. skipti.
Geta má þess, að Lavrenti
Pavlovitch Beria, fyrrv. örygg-
ismálaráðherra Sovétríkjanna
(og núverandi tukthúslimur
Malenkovs) er einn af hand-
höfum Leninsorðunnar. —
Jólaskipin á leið
lil landsins
JÓLASKIPIN eru nú á leið til
landsins. — Gullfoss kemur á
föstudaginn frá Höfn og Edin-
borg. — Á miðvikudaginn kemur,
er Goðafoss væntanlegur frá
Hamborg, Rotterdam og Ant-
werpen. — Tröllafoss kemur
þinn 17. des. frá New York. —
Þá koma 19. og 20. des. Lagar-
foss frá New York og Selfoss frá
Gautaborg, Hamborg og Hull. I
næstu viku kemur einnig beint
frá Hamborg Drangajökull. Brú-
arfoss kemur að utan 26. eða 27.
des. frá Rotterdam og Antwerp-
en.
Reykjafoss verður í hafi um
jólin á leið til landsins frá Rúss-
landi og Finnlandi. — Eins verð-
ur Tungufoss, sem um jólin mun
verða á leið til Finnlands. —
Skömmu fyrir jólin mun Detti-
foss sigla til Hull og hafna á
meginlandinu.
U-
Bi eíar og Ðanir haf a komizt að sam-
komnlagi mn víkkmi landhelginnar
við Færeyjar
Einkaskyti til Mbl. frá Reuter
LUNDÚNUM, 9. des. — Síðastl.
laugardag fór dönsk sendinefnd
til Lundúna til þess að ræða við
Breta um vikkun fiskveiðiland-
helginnar við Færeyjar. For-
maður sendinefndarinnar var
Fredrik Schoen, starfsmaður í
danska utanríkisráðuneytinu.
ÓTTAST EINHLIÐA
AÐGERÐIR
Tveir flokkar í Færeyjum —
Sjálfstýrisflokkurinn og jafnað-
armenn — styðja ákveðið víkkun
landhelginnar við Færeyjar i sam
ræmi við landhelgisvíkkun Norð-
manna og íslendinga. — Færey-
ingar vildu samt ekki taka ein-
hliða ákvarðanir, að því er frétíir
hafa hermt, af ótta við að sllikt
kynni að hafa óhagstæð áhrif á
verzlunina við Bretland.
SAMKOMULAGI
NAÐ
I dag sendi fréttastofa
Reuters út þá fregn og var
hún eftir opinberum heim-
ildum, að Bretar og Danir
hafi í dag komizt að sam-
komulagi um víkkun land-
helginnar við Færeyjar. —
Þó hefur samkomulagið ekki
verið birt opinberlega ennþá,
en Danir höfðu krafizt fjög-
urra mílna landhelgi við Fær-
eyjar og vildu að grunnlínan
yrði dregjn á sama hátt og
við norsku ströndina.
FORMAÐUR OG RITARI
ALÞÝDUFLOKKSINS
SKILUÐU AUÐU
Við þessar kosningar í Samein-
uðu Alþingi í gær höfðu lýðræð-
isflokkarnir þrír, Sjálfstæðis-
flokkurinn, Framsóknarflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn sam-
vinnu sín í milli. Buðu þessir
flokkar fram sameiginlegan lista
við allar kosningarnar, sem fram
fóru. En sá furðulegi atburður
gerðist í sambandi við þessa
samvinnu, að tveir þingmenn Al-
þýðuflokksins, þeir Hannibal og
Gylfi, skiluðu auðu við kosning-
arnar. Voru þó Alþýðuflokks-
menn í baráttusætinu á öllum
framboðslistum lýðræðisflokk-
anna.
Úrslit þeirra kosninga, sem
fram fóru voru á þessa leið:
MENNTAMÁLARÁÐ
í Menntamálaráð hlutu kosn-
ingu:
Af A-lista, lýðræðisflokkanna
þriggja:
Valtýr Stefánsson, ritstjóri
Vilhjálmur þ. Gíslason, útvarps-
stjóri
Pálmi Hannesson, rektor,
Haukur Snorrason, ritstjóri.
Af B-lista kommúnista:
Einar K. Laxness.
Listinn hlaut 9 atkv. kommún-
ista og „Þjóðvarnar“. Auðir seðl-
ar voru 2 (Gylfi og Hannibal)
YFIRSKOÐUNARMENN
RÍKISREIKNINGA
Til þeirra starfa voru kjörnir
allir mennirnir af A-lista, lista
lýðræðisflokkanna. Þeir eru:
Jón Pálmason, alþm.,
Jörundur Brynjólfsson alþm.,
Sigurj. A. Ólafsson fyrv. alþm.
Listi kommúnista hlaut 7 atkv.
Auðir seðlar voru 4 (Gylfi,
Hannibal og ,,Þjóðvarnarmenn“)
ÞINGVALLANEFND
í Þingvallanefnd hlutu kosn-
ingu þeir þrír menn er voru á
A-lista, lista lýðræðisflokkanna,
þeir:
Gísli Jónsson, alþm.,
Hermann Jónasson, alþm.,
Haraldur Guðmundsson, alþm.
Listi kommúnista hlaut 7 atkv.
Auðir seðlar voru 4 (Gylfi, Hanni
bal og „Þjóðvarnarmenn").
LANDSKJÖRSTJÓRN
í landskjörstjórn voru kjörnir
Framh. á bls 2.