Morgunblaðið - 10.12.1953, Side 14
14
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 10. des. 1953
P.......................
I saca FORSYTHNNR
p: - RÍKI MAÐURINN -
j Eftir John Galsworthy — Magnús Magnússan íslenzkaði
i____________ _ _. _ _ _ _ —
löiundatinn kynntur
JOHN GALSWORTHY
(1867—1933)
JÓN GÍSLASON sejir meðal
aunars þetta um John Gals-
worthy og Sögu Forsytanna í
hinni greinagóðu ensku bók-
menntasögu sinni, sem ísafoldar-
lirentsmiðja gaf út 1948:
— Galsworthy hafði hlotið
klassiska menntun fyrst í Harrou,
fc'ðan í Oxford og enn síðar aflaði
hann sér víðtækrar þekkingar á
bókmenntum meginlandsins. —
Voru það einkum franskar og
vússneskar bókmenntir, sem hon-
um fannst mest til koma.
Mun hann jafnan hafa litið
upp til Turgenieffs sem fyrir-
rnynd, dáð raunsæi hans, í senn
hmitmiðað og gáfumannlegt.
Þótt Galsvvorthy ætti sér djúpar
rætur í ættjörðu sinni, auðnað-
ist honum með því að beita ýtr-
ustu orku vilja og greindar að
treysta svo hlutleysi sitt, að
konum varð unnt að athuga og
Öæma sitt eigið land, rétt eins
og hann væri utan þess . .. Hann
er í senn skyggn og óvenjulega
blutlaus, en undir gagnrýni hans
kvikar viðkvæmni, sem vottar
ekki fyrir hjá Wells og skynjað
lr.efur hann og skilið til fulls allt,
sem var hrífandi, fagurt og
traust í fari hinnar deyjandi
þjóðfélagsstéttar, er hann var að
gagnrýna.
Sérkennilegt er það fyrir Gals-
worthy, hve mikið og mikla
merkingu hann veitir ólmum
ástríðum og heitum tilfinning-
um. Er hér um að ræða einskon-
ar endurlífgun hins rómantíska
anda. Þau skapgerðareinkenni
samlanda sinna, sem Galsworthy
fordæmir hvað mest, eru fjand-
samleg tortryggni gagnvart ólg-
andi og eldheitum tilfinningum,
óheftum af siðvenjum þjóðfélags
ins, og í öðru lagi vantraust
þeirra á óheftri, andlegri starf-
semi og óttalausri leit að sann-
leikanum. — —
Bezt er talið, að Galsworthy
hafi tekizt í sagnaflokknum THE
FORSYT SAGA . . .Er hér um
að ræða e. K. náttúrusögu auð-
ugrar ættar í hinni efri milli-
stétt, höfuðvígi hins enska íhalds.
Tilgangur Galsworthys er að lýsa
kynslóðunum hverri á fætur
annarri, afstöðu þeirra innbyrðis
og viðhorfi þeirra til sögu síðast-
liðinna 50 ára. Koma þar til
greina ýmsir örlagaríkir atburð-
ir og stórviðburðir, t.d, heims-
styrjöldin fyrri, vöxtur og við-
gangur jafnaðarstefnunnar, at-
vinnuleysisvandamál og verkfall
kolanámumanna. Þótt Gals-
worthy sé hér alls staðar sjálfum
sér samkvæmur í gagnrýni sinni
á fornum hleypidómum, eigin-
girni og ágirnd, þá eru skoðanir
hans að öðru leyti enganveginn
óumbreytanlegar frá upphafi.
Aðdáun hans á tilkomumiklum
persónum Viktoríutímabilsins, —
t.d. Jolyon gamla, er auðsæ, og
smám saman vaknar samúð hans
með þeirri persónu, sem upphaf-
lega var aðalskotspónn gagnrýni
hans og háðs, Svames Forsyte,
„the man of prayerty“. Við kynn-
umst Svanmes fyrst sem sjálfs-
elskufullum og harðneskjulegum
eiginmanni, sem að öðru leyti
er gróðafíkinn og ágengur. Síðar
kemur hann fram sem ástríkur
faðir, fuilur sjálfsafneitunar og
reiðubúinn til að fórna sjálfum
sér, og hann deyr næstum því
eins og hetja. Verður þess hér
vart að Galsworthy nálgaðist
smám saman æ meir hin sér-
stöku, ensku sjónarmið og snýst
aftur inn á hinar arfgengu braut-
ir, þó að hann glatí samt alls
ekki þeim hita tilfinninganna,
sem einkenndi þegar í byrjun
gagnrýni hans á enskum þjóðfé-
lagsháttum.
í THE FORSYTE SAGA er svo
hátt til lof.ts og vítt til veggja að
hún minnir að víðfeðmi á hin
mestu þrekvirki í skáldsagnar-
gerð, t.d. á COMÉDIE HUM-
AINE eftir Balzac eða LES
ROUGON MACQUART eftir
Zola, en sakir þess nýja bragðs,
sem að atburðum sögunnar er
verður hún ef til vill hliðstæðust
þáttum þeim, sem Anatole
France spann úr lífi samtíðar-
innar utan um MONSIEUR
BERZERET. Allar eru sögurnar
frábærar að skarplegum athug-
unum, sönnum og fjölbreyttum
persónulýsingum, bæði karla og
kvenna, en fegurstur er ef til
vill stíllinn, í senn viðkvæmur,
sveigjanlegur og fyrirmannleg-
ur, alltaf fágaður list og smekk-
vísi, jafnvel þá, er höfundur
gengur lengst í því að stæla dag-
legt mál. —
—★—
Galsworthy hlaut Nobelsverð-
launin 1932.
FYRSTI ÞÁTTUR.
Fyrsti kafli.
HEIMA HJÁ JOLYON GAMLA.
ÞEIR, sem hlotið hafa þau
hlunnindi að sitja veizlu hjá
Forsytunum hafa notið þess að
sjá tilkomumikla sjón — eina
fjölskyldu betri borgaranna í
fullum skrúða. En ef einhver
þessara heiðursgesta hefði verið
mannþekkjari — gáfa, sem ekki
verður virt til peninga, og því
Framhaldssagan 1
lítils metin af Forsytunum — þá
hefði ekki aðeins ánægjuleg sýn
borizt honum fyrir augu heldur
hefði hún líka varpað ljósi á tor-
ráðið viðfangsefni. í stuttu máli:
Hann hefði öðlazt skilning á, er
hann leit yfir þessa ætt, þar sem
engin grein var annari lík og
engin samúðartengzl sjáanleg,
hinni dularfullu og seigu sam-
loðun, sem gerir ættina að svo
voldugri einingu í þjóðfélaginu,
gerir hana að einskonar þjóðfé-
lagi í smáum stíl. Honum hefur
verið leyft að skyggnast um hina
dimmu stigu þjóðfélagsþróunar-
innar, hann hefur getað gert sér
grein fyrir sumu í lífi forfeðr-
anna, og því, sem hóf upp þjóðir
og leiddi þær tilhnygnunar og
tortímingar. Hann stendur í spor-
um þess sem hefur fylgzt með
vexti og þroska trésins, séð
fyrsta teinunginn teygja sig upp
úr svartri moldinni, séð hann
vaxa og dafna og verða stóran
og þroskamikinn, en umhverfis
hann lágu hundruð annarra tein-
unga, sem höfðu visnað og dáið
vegna þess að þá brast viðnáms-
þróttinn. Og svo einn góðan veð-
urdag er hann orðinn að háum
og miklum baðmi — hilmi
marka.
Hinn fimmtánda júní 1886 um
fjögur leytið hefði athugull á-
horfandi, sem af tilviljun hefði
verið staddur á heimili Jolyons
gamla í Stanhope Gate getað séð
Forsytana, þegar vegur þeirra
var mestur. En þenna dag hélt
Jalyon gamli festurgildi June,
sonardóttur sinnar og Philips
Basenneys.
Sefjalið Forsytanna var þarna
mætt í hátíðabúningi, hvítir glóf-
ar, mislit silkivesti, skrautfjaðrir
og skartgripir blöstu hvarvetna
við uagum. Jafnvel Anna gamla
frænka, sem sjaldan yfirgaf
hornið sitt í dagstofunni hjá
Timothy bróður sínum, þar sem
hún sat og prjónaði öllum stund-
um, var mætt þarna. Hið beina
bak hennar og hið rólega, virðu-
Danskt ævintýri
7
Lagði hún svo ókvíðin af stað, en komst ekki lengra en að
sáluhliðinu. Þá sá hún rauðu skóna dansa á undan sér og
sneri aftur óttaslegin og iðraðist synda sinna af öllu hjarta.
Nú fór hún á prestsetrið og beiddist þar vistar, sagðist
skyldu verða iðin og vinna öll verk, sem hún gæti. Hún
væri ekki að hugsa um kaupið, heldur aðeins um það að
geta fengið húsaskjól og mega vera hjá góðu fólki.
Og prestkonan kenndi í brjósti um hana og vistaði hana.
Og Katrín var iðjusöm og hugsandi. Hún sat kyrrlát og
eftirtektarsöm, þegar presturinn las hátt í biblíunni. Öllum
börnunum þótti einstaklega vænt um hana, en þegar þau
töluðu um prjál og prýði og um það að vera fríð eins og
drottning, þá hristi hún höfuðið.
Næsta sunnudag fóru allir til kirkju og var hún þá spurð,
hvort hún ætlaði ekki líka, en hún leit sorgbitin og með(
tárin í augunum á hækjur sínar. Fór svo hitt fólkið að heyra !
guðsorð, en hún fór alein inn í kytru sína, sem var ekki (
stærri en svo, að þar komst fyrir rúmið hennar og einn(
stóll. j
Þar settist hún niður með sálmabókina sína og fór að
lesa í henni með guðræknu hjarta. Og meðan hún las, bar,
vindurinn orgelhljóminn frá kirkjunni yfir til hennar, og
hóf hún þá upp andlitið grátandi og sagði:
„Guð minn góður hjálpi mér!“
Þá skein sólin svo skært, og frammi fyrir henni stóð engill
drottins í hvítum klæðum, sá hinn sami, sem hún hafði séð
um nóttina fyrrum í kirkjudyrunum, en nú hélt hann ekki,
eins og þá, á hvasseggjuðu sverði. 1
'*i
Kæliskápar fyrirliggjandi
7 cubicfet kr. 6350.00
7 cubicfet kr. 7190.00
Hagkvæmir greiðsluskilmálar j
Athugið að KELVINATOR kæliskápar hafa -|
verið í notkun hér á landi í f jölda mörg ár og :
hafa reynst mjög vel. •
,5
KELVINATOR eru elstu framleiðendur
heimiliskæliskápa í heiminum.
Fimm ára ábyrgð á frystikerfi.
Austurstræti 14 — Sími 1687
Strauvélar
Margar gerðir fyrirliggjandi.
Verð frá kr. 1885,00
Hagkvæmir greiðsluskilmálar
JUL hf.
Austurstræti 14 — Sími 1687