Morgunblaðið - 10.12.1953, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.12.1953, Qupperneq 16
Yeðurúflif í dag: SV skúra- eða éljaveður. 14 dagar til jóla 283. tbl. — Fimmtudagur 10. desember 1953 I dag tekur Vetrarlijálpin til starfa kér í bænum Almenn fjársöfnun kvöldin 16.-18. des. í DAG tekur Vetrarhjálpin til starfa hér i Reykjavík. Starfsemi hennar verður með sama sniði og undanfarin ár. Til hennar hafa Reykvíkingar árlega gefið tugi þúsunda króna í varningi og pen- jtigum. Enn treystir Vetrarhjálpin á hjálpsemi og góðsemd þæjarbúa. — Um jólin í fyrra var alls út-< Jilutað til 845 fjölskyldna. — Út- plutað var matvælum fyrir kr. 241,195. — Mjólk fyrir 29,797 kr. og fatnaði fyrir 17,533 kr. — f>k sá Vetrarhjálpin um dreifingu á fatnaði sem gefinn var fyrir isamtals 35,000 krónur, svo og pokkrum tonnum af saltfiski. Bein fjárhagsleg aðstoð var og látin í té og komu til skiptanna kr. 115,287.00. Af þessu voru látnar ganga beint til fjölskyldu, sem missti aleigu sína í bruna á Þorláksmessu, kr. 12,450.00. Vetrarhjálpin hefir beðið Mbl. að færa bæjarbúum þakkir fyrir aðstoðina. Vetrarhjálpin stendur og í mikilli þakkarskuld við skát- ana, sem árlega hafa farið um Jbæinn til að safna peningum og gföfum á hennar vegum. — í fyrra söfnuðu þeir meira fé en nokkru sinni áður, hartnær 58,000 kr. — Skátarnir munu fara í söfnunarferðir um bæinn einnig í ár, kvöldin 16. des. til 18. Vetrarhjálpin hefur fengið hentugt skrifstofuhúsnæði í bæki stöð Rauða krossins í Thorvald- scnsstræti 6, en það leggur RKÍ ’til Vetrarhjálpinni að kostnaðar- iausu og hefur blaðið verið beðið að færa stjórn RKÍ þakkir Vetr- arhjálparinnar. í stjórn Vetrarhjálparinnar eru þeir séra Jón Thorarensen, Magn- ús V. Jóhannesson yfirfram- •færzlufulltrúi og Jón Sigurðsson borgarlælknir. Stefán A. Pálsson vcitir henni forstöðu. Tveir barnavinir með Cullfossi EFTIRFARANDI skeyti barst JVforgunblaðinu í gærdag frá ftaggskipi íslenzka verzlunarflot ans, Gullfossi: TVEIR BARNAVINIR KOMA MEÐ GULLFOSSI, SÉRA FRIÐRIK OG JÓLASVEINN- INN, ME® GOTT í POKA HANDA BÖRNUNUM. — MÆTIÐ ÖLL. Undirskriftin á skeytinu var: J ÓL AS VEINNINN -0- :)★} ct Að fengnum upplýsingum hjá JEimskipafélaginu lagði Gullfoss af stað hingað til Reykjavíkur frá Fæith á þriðjudaginn klukk- an fjögur. Er skipið væntanlegt jhingað á föstudaginn, en hvenær dagsins, fer eftir veðri á hafinu. Auk séra Friðriks Friðriksson- ar og Jólasveinsins, eru rúmlega }4ð farþegar með skipinu. Skipið er fulllestað. Stjórnarskipti í stúdentaráði ENN hefur dregið til tíðinda í stúdentaráði Háskólans, því að í gær varð stjórn ráðsins að fara frá. Ástæðan er sú, að gjaldkeri ráðsins, „Þjóðvarnarmaðurinn" Brynleifur Steingrímsson, sagði af sér og taldi sér ekki fært að bera ábyrgð á fjárhag ráðsins. Kvaðst hann ekki á neinn hátt geta starfað áfram undir for- ystu formannsins, Framsóknar- mannsins Björns Hermannssonar, og lýsti því yfir, að framhjá sér hefði verið gengið í ýmsum ákvörðunum meirihlutans. Deildi hann fast á formanninn og stjórn argerðir hans. „Þjóðvarnarmaðurinn“ hafði einnig lýst því yfir fyrir nokkru að formaðurinn hefði brotið lög stúdentaráðs við fundarboðanir o. þ. 1. Vegna úrsagnar gjaldkerans varð að kjósa nýja stjórn í ráð- inu. Bar þá svo til, að hvorki „Þjóðvarnarmaðurinn“ né krat- inn treystu sér til að taka sæti í stjórninni. Hvorki þeir né Fram sóknarmenn vildu þó ganga til stjórnarsamvinnu við Vöku og völdu þann kostinn að kjósa kommúnista í stjórn í stað „Þjóð- varnarmannsins" samt Birni Hermannssyni, sem tók aftur við formannssætinu. — Af lista Vöku var endurkjörinn í stjórn Jón H. Aðalsteinsson og er hann ritari ráðsins sem áður. Mikil ólga hefur undanfarið ríkt innan „rauða bræðingsins" vegna mikilla vonbrigða yfir því, að meirihlutanum skyldi ekki hafa tekizt að gera 1 des- ember að einlitum áróðursdegi kommúnista. Jólaskreyting í Austurstræti Heimdallur j F. U. S. HEIMDALLUR efnir 1 til almenns félagsfundar í V. ; R. í kvöld kl. 8,30. Umræðu- (_ efni: Fjárhagsáætlun Reykja- } víkurbæjar. Frsm. Guðmund- i ur Vignir Jósefsson, skrifstofu !, stjóri. — Fjölmennið! FYRIR forgöngu Fegrunarféiags Reykjavíkur verður Austurstræti fært í jólaskrúða og mun verða byrjað á að jkoma þessari skreyt- ingu fyrir í dag. Það, sem að gert verður, er stangir verða settar upp með fram öllu Austurstræti, en milii þeirra grenivafningar, sem skraut lýstir verða með marglitum Ijósa pcrum. Þá verða grenivafningar einnig strengdir þvert yfir göt- una, milli húsanna. Verzlanir og fyrirtæki í Aust urstræti standast kostnaðinn af þessu, en Rafmagnsveita Reykja víkur mun sjá um skrautlýsing una. Jón Björnsson skrúðgarða arkitekt annast uppsetningu þess arar skreytingar. Heimdellingar t ÞIÐ, sem hafið með höndum i innheimtu félagsgjaida, skilið , af ykkur strax. Umræður hafnar LUNDÚNUM 7. des.: — f dag hófust í brezka þinginu umræður um Guinia-mál. Höfðu jafnaðar- menn krafizt þess, að umræður færu fram um mál þetta. — Reuter, x\ki Jakobsson fyrrverandi Fonyfanna ráðherra segir sig úr kommúnistaflokkiiiMn ÞAÐ ER nú kunnugt orðið, að Áki Jakobsson, fyrrver- andi þingmaður og ráð- herra kommúnista hefur sagt sig úr kommúnista- flokknum. Er hann sá fyrsti af aðalleiðtogum kommún- ista hér á landi, sem yfir- gefur hinn fjarstýrða flokk. Áki Jakobsson var kjör- inn þingmaður fyrir kommúnista á Siglufirði haustið 1942 er Siglufjörð- ur var gerður að sjálf- stæðu kjördæmi. En hann var fyrst kjörinn á þing í sumarkosningunum það ár og þá sem landkjörinn þingmaður. Einnig þá bauð ^ hann sig fram á Siglufirði, þar sem hann hafði þá verið bæjarstjóri í nokkur ár. Hann var atvinnumálaráðherra í nýsköpunarstjórninni árin 1944—1947. Sat hann á þingi fram til s. 1. vors en þá gaf hann ekki lengur kost á sér til framboðs fyrir kommúnista. — Úrsögn Áka Jakobssonar úr kommúnistaflokknum er tví- mælalaust mesta áfallið, sem kommúnistar hafa orðið fyrir hér á landi. Hún sýnir greinilega, hvert stefnir fyrir kommúnistaflokknum á íslandi. - ný íramhaldssaga - hefsl í dag i Velrarhjálpin i Hafn- arfirði fekln til slarfa HAFNARFIRÐI, 9. des.: — Vetr- arhjálpin hér í bæ er nú að hefja starfsemi sína. Eins og undan- farin ár verður leitað til bæjar- búa um fjárframlög, og ef að líkum lætur, láta þeir eitthvað af sendi rakna til þeirra, sem úr minnstu hafa að spila nú fyrir jólin. — Um næstu helgi fara skátar um bæinn með gjafalista. Þá er einnig hægt að koma gjöf- um til stjórnar vetrarhjálparinn- ar, en hana skipa þeir séra Garð- ar Þorsteinsson, séra Kristinn Stefánsson, Ólafur H. Jónsson, kaupm., Guðjón Magnússon skó- smiður og Guðjón Guðjónsson, framfæslufulltrúi. í fyrra söfnuðust 25 þús. kr. meðal bæjarbúa, en framlag bæj arins var 15 þús. Þess skal getið, að þetta er í 17 skiptið, sem kirkjusöfnuðurn- ir gangast fyrir gjöfum til bág- staddra fyrir jólin. — G. Mikið manntjón NÆRÓBI, 9. des.: — Tæplega 3000 Mau-Mau menn hafa fallið á tímabilinu frá 1. jan. til 25. nóv. 1953. — Um 1000 hafa verið handteknir. — Reuter. Skákeinvígi MbL: Akranes-Keflavík KEFLAVÍK 24. leikur Akurnesinga: Df3—g3 Vogar. blað Sjálf- stæðismanna í Kópavogi BLAÐIÐ Vogar, sem Sjálfstæðis- menn í Kópavogshreppi gefa út, er komið út. Blaðið segir þar frá starfsemi Sjálfstæðisfélagsins. Rædd eru ýmis hreppsmál sem ofarlega eru á baugi svo sem skólamál hrepps ins og bornar fram tillögur skóla nefndar. — Sögð er saga vatns- veitu Kópavogshrepps, en grein- in heitir: Hvenær rætist úr vatns leysinu við Álfhólsveg? Þá skrif- ar Jón Gauti greinina Sparsemi og sparisjóðir. Ymsar smágrein- ar eru í blaðinu. Ábyrgðarmaður Voga er Guð- mundur Egilsson. Blað þetta mun án efa verða Sjálfstæðisfé- lagi Kópavogs hin styrkasta stoð í hönd farandi hreppsnefndar- kosningum. Blaðið deilir fast á, og með sterkum rökum sem hreppsbúar sjálfir þekkja nokk- uð til, ér það ræðir ýmis hrepps- mál, sem hreppsnefndin og odd- vitinn hafa sýnt furðulegt tóm- læti. John Galsworthy. NÝ FRAMHALDSSAGA hefst í blaðinu í dag. Er það hið kunna skáldverk „Saga Forsytanna“ eftir John Galsworthy, en hann hlaut bókmenntaverðlaun Nobels 1932. Er höfundurinn og sagan kynnt á 14. síðu blaðsins (sögusíðunni) í dag. Lesendum er eindregið ráðlagt að fylgjast með „Sögu Forsyt- anna frá byrjun. Davíð Óiafsson end- urkjörinn fiski- málasfjéri FISKIÞINGI lauk s.l. þriðjudag og hafði það þá setið há;fan mánuð að störfum og afgreitt 50 mál. Davíð Ólafsson var endur- kjörinn fiskimálastjóri og Haf- kjörinn fiskimálastjóri með at- kvæðum allra fulltrúa á þinginu og Hafsteinn Bergþórsson vara- fiskimálastjóri. Aðalmenn í stjórn Fiskifélags- ins til næstu fjögurra ára voru kosnir: Pétur Otttesen, Ingvar Vilhjálmsson, Emil Jónsson og Margeir Jónsson. Varamenn: Einar Guðfinnsson, Jón Axel Pétursson, Karvel Ögmundsson og Þorvaldur Björnsson. Guttormur Erlendsson var kosinn aðalendurskoðandi og Ólafur B. Björnsson til vara. Páll Þorbjörnsson og Karvel Ögmundsson voru kosnir í skipu- lagsnefnd fræðslumála ásamt fiskimálastjóra. Kominn til Osló OSLO, 9. des.: — Marshall hers- höfðingi, friðarverðlaunahafí Nóbels fyrir þetta ár, kom til Oslóar í dag til að veita verð- laununum móttöku. — NTB. JÓLAGLUGGINN 1953 UM SÍÐUSTU helgi skýrði Morgunblaðið frá því, að það hefði ákveðið að efna til skoð- anakönnunar meðal bæjar- búa um það, hvaða glugga- sýning þeim þætti smekkleg- ust og eftirtcktarverðust núna fyrir jólin. Verzlunargluggi sá, sem flest atkvæði fær, hiýtur sæmdarheitið: „Jólaglugginn 1953“. Skoðanakönnun þessari lýk- ur ekki fyrr en klukkan 6 að kvöldi mánudaginn 21. des- cmber, en þá verða atkvæða- seðlarnir að hafa borizt af- greiðslu blaðsins. W ^ W Verziunin, sem flest at- kvæði hlýtur við skoðanakönn un þessa, mun Morgunblaðið verðlauna með ókeypis hálf- síðu auglýsingu, í blaðinu, er kemur út á Þorláksmessu. En jafnframt fær einn þeirra les- enda blaðsins, sem greiddu hinum sigursæla „Jólaglugga“ atkvæði, sérstakan jólaglaðn- ing, 500 krónur í peningum. Um glaðninginn verður að sjálfsögðu drcgið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.