Morgunblaðið - 31.12.1953, Side 16
(jieÍiIe^t nýár
!
303. tbl. — Fimmtudagur 31. desember 1953
Enginn verkamaður, sjómaður eða
iðnaðarmaður í f jórum efstu sætum
\
Oi.il
ftreinir línukommúnistar skipa þar öll sæli
EFTIR miklar raunir hefur nú kommúnistum tekizt að klúðra
Kjman framboðslista sínum við bæjarstjórnarkosningarnar í Reykja-
vík. Var hann birtur í „Þjóðviljanum“ í gær.
Það sem helzt vekur athygli í sambandi við þennan framboðs-
lista kommúnista er, að í fjórum efstu sætum hans fyrirfinnst
cnginn verkamaður, enginn sjómaður, og enginn iðnaðarmaður.
Btins vegar eru þar tveir af blaðamönnum Þjóðviljans, þeir Guð-
tnundur Vigfússon og Jónas Árnason, sem eru í fyrsta og fjórða
«æti. í öðru sæti er Petrína Jakobsson teiknari og í þriðja sæti
Ingi R. Helgason lögfræðingur, fararstjóri Búkarestfaranna.
EÍNDREGNIR
EÍNUKOMMÚNISTAR
Allt er þetta fólk eindregnir
línukommúnistar. Er auðsætt að
á járnaga Brynjólfs Bjarnasonar
hefur í engu slaknað innan
kommúnistaflokksins hér í Rvík.
Flestum mun finnast, sem lítið
verkalýðsbragð sé af þessum
íi'amboðslista kommúnista. Af
röðun hans er auðsætt að komm-
únistar búast við að tapa einu
eæti við bæjarstjórnarkosning-
irnar, En eins og kunnugt er eiga
þeir 'nú fjóra fulltrúa í bæjar-
.itjórn höfuðborgarinnar.
ICRISTINN REKUR LESTINA
Neðstur á framboðslista
kontmúnista er Kristinn And-
résson, sem kallaður hefur
verið „línuvörður“ númer 1.
‘ Um hann var einhverntíma
sagt í Moskvu, að hann væri
sá maður á íslandi, sem „fé-
■ lagarnir“ þar eystra gætu allt-
af reitt sig á.
Um framboðslista kommún-í
ista í heild er annars það að
segja, að hann er ósigurinn
uppmálaður.
SSðkkssvri
STOKKSEYRI, 30. des. Sjálfstæð
isflokkurinn hér í hreppnum hef-
ur ákveðið lista sinn við væntan-
legar hreppsnefndarkosningar og
eru þessir menn á listanum:
Magnús Sigurðsson, bústjóri,
Bjarnþór Bjarnason, bóndi, Jón
Magnússon, kaupmaður, Ásgeir
Eiríksson, kaupmaður, Símon
Sturlaugsson, verkamaður, Tóm-
as Karlsson, sjómaður og Stein-
grímur Jónsson, verkamaður.
í kjöri til sýslunefndar, sem
fram fer samtímis er í kjöri fyr-
ir S j álf stæðisf lokkinn Ásgeir
Eiríksson, kaupmaður og til vara
Þorgeir Bjarnasen, bóndi.
Áramótabrennur verða
á 12 stöðum í bænum
í KVÖLD verða hér í bænum alls 12 áramótabrennur. Eins og í
fyrra verða tvær höfuðbrennur. Verða þær við Hringbraut, sunnan
við Gamla Garð og á mótum Sigtúns og Lauganesvegar. Hinar
brennurnar 10 eru minni brennur, sem íbúar einstakra hverfa í
bænum hafa fengið leyfi til að koma upp.
ÍSÍ SÉR UM AÐAL-
BRENNURNAR
Það er sérstök nefnd skipuð af
trcxyj ti ui-v/ii **''•*-*'•" ***—r ■—
íþróttasambandi íslands, sem sér komulag og hvað hann það von
um höfuðbrennurnar tvær. Við
þær brennur verður flugeldum
skotið.
TÓNLIST Á ÁRAMÓTUM
Erlingur Pálsson, yfirlögreglu-
E.eikfélag Rfiykjiavtkur
Frumsýnir ,Mýs og menn‘
næstkomandi sunnudag
NÆSTKOMANDI sunnudag, 3. janúar, hefur Leikfélag Reykja-
víkur frumsýningu á leikriti Steinbecks, „Mýs og menn“ í þýð-
ingu Ólafs óhanns Sigurðssonar. Er Lárus Pálsson leikstjóri, en
í>orsteinn Ö. Stephensen fer með aðalhlutverkið. -— Formaður
Lúkfélagsins, Brynjólfur Jóhannesson og leikstjórinn Lárus Páls-
•son ræddu við fréttamenn í gær.
&RUGÐIÐ ÚT AF FASTRI
VENJU
Gat Brynjólfur þess, að eins
og kunnugt væri hefði Leikfélag-
ið haft frumsýningar á jólaleik-
xiti sínu á annan dag jóla, en
það hefði nú brugðið út af þeirri
venju sinni, m. a. með hag frum-
fcýningargesta fyrir augum. Sagði
hann að þeir væru flestir þeir
fiömu og í Þjóðleikhúsinu og
hefði Leikfélagið því ákveðið að
hafa frumsýninguna á sunnudag-
inn.
COÐUP
FAMSTARFSMAÐUR
Þá gat Brynjólfur þess hve
ánægjulegt það væri að félagið
skyldi hafa komizt að samkomu-
lagi við Þjóðleikhússtjóra um að
Lárus Pálsson setti „Mýs og
menn“ á svið. — Samstarfið við
Lárus væri mjög ánægjulegt og
um þessi jól væru liðin 20 ár
ffá því að Lárus kom fyrst fram
á leiksvið hjá Leikfélaginu. Var
það í jólaleikritinu 1933, Manni
og konu, og hafði hann hlutverk
Fmns.
Var Lárus þá nýkominn heim
fiá leiknámi í Danmörku, en þar
Tiafði hann rétt nýlokið við að
leika í „Mýs og menn“ og hafði
hann hlutverk negrans.
HLUTVERKASKIPUNIN
Hlutverkaskipunin að þessu
sinni í Mýs og menn er þessi:
Lenni, Þorsteinn Ö. Stéphensen,
Georg, Brynjólfur Jóhannesson,
Candy Steindór Hjörleifsson, bú-
stjórinn Einar Þ. Einarsson, Slim
Gísli Halldórsson, Curley Einar
Ingi Sigurðsson, kona Curleys
Erna Sigurleifsdóttir, Whitt Karl
Guðmundsson, negrinn Crooks
Alfreð Andrésson og Karlson,
Valdemar Lárusson.
Leiktjöld eru máluð af Lothar
Grundht.
ÞEKKTUR HÖFUNDUR
Höfundurinn, John Steinbeck
er löngu þekktur hér á landi og
þetta leikrit hans, „Mýs og
menn“ hefur tvívegis 'verið leikið
í ríkisútvarpinu, í fyrra skiptið
13. febrúar 1943 og í síðara skipt-
ið 8. maí, s.á.
Er leikritið sjálfstætt verk, en
ekki samið upp úr samnefndu
sögunni. Leikurinn er í þrem
þáttum og sex sýningum. Tekur
sýningin rúma 3 klt.
Auk „Mýs og menn“ hafa
þessi verk Steinbecks komið út í
íslenzkri þýðingu: Kátir voru
karlar, Þrúgur reiðinnar, Duttl-
ungar örlaganna, Máninn líður,
en auk þess hafa fjölmargar smá-
sögur komið út eftir hann.
þjónn, skýrði blaðinu svo frá í
gær, að skipulagt hefði verið eft-
irlit með brennpnum og fyrir-
lögreglumanna að fólk sýni
kurteisi og góða hegðun við
brennurnar sem og annars stað-
ar. Erlingur sagði að kveikt yrði
á brennunum um kl. 11,30 og við
höfuðbrennurnar verða lögreglu-
bílar með hátalara og verður út-
varpað tónlist til skemmtunar
þeim er á brennurnar horfa þeg-
ar árið 1953 kveður og 1954 geng-
ur í garð.
Sparifjárínnlög í
11,5 millj. kr,
í GREIN, sem Páll S. Pálsson,
framkvæmdarstjóri Félags ísl.
iðnrekenda skrifar um iðnað-
inn á árinu 1953 hér í blaðið í
dag, skýrir hann m. a. frá því,
að þegar á f.vrstu starl'sdög-
um Iðnaðarbankans hafi hon-
um borizt all mikið fé til
ávöxtunar. Sparifjárinnstæður
í bankanum nú um áramótin
nemi um 11,5 millj. kr.
Hlutafé bankans og ógreidd
hlutafjárloforð nema alls 6,5
millj. kr. Þá er Iðnlánasjóður
nú einnig í vörzlu hins nýja
Iðnaðarbanka og nemur hann
rúmlega 3 millj. kr.
Eins og kunnugt er var Iðn-
aðarbankinn h.f. stofnaður
með lögum frá síðasta Alþingi.
Hóf hann starfsemi sína 25.
júní s.l.
Templei* tekur \ið
herafla Atlants-
Akraues sigraði í skákeiiivíginu
í GÆRKVÖLDI ákváðu Keflvík-
ingar að gefa Akurnesingum
skákina, í skákeinvígi því sem
staðið hefur yfir milli þeirra hér
í Morgunblaðinu í vetur. Kefl-
víkingar kváðust viJja senda Ak-
urnesingum þakkir fyrir drengi-
lega keppni og vonast til þess að
eiga eftir að keppa við þá áftur
hér í Morgunblaðinu. Keflvíking-
ar senda Akurnesingum beztu
nýársóskir. — Þessb mynd ér af
sigurvegurunum, en þeir eru tal-
ið frá vinstri: Gunnlaugur Sigur-
björnsson,. vélstjóri, skákmeistari -
Akraness 1952 og ’53, Vigfús Run-
ólfsson, járnsmíðameistari, Árni
Ingimundarson, klæðskeri, skák-
meistari Akraness 1951 og núver-
andi Akranesmeistari í hraðskák,
Guðmundur Bjarnason, netagerS
armaður, skákmeistari Akraness
1938. — Taflfélag Akraness var5
20 ára í haust. Núverandi íorm.
er Karl HeJgason, leikfimiskenn-
ari. — Morgunblaðið færir skák-
sveitunum báðum þakkir fyrir.
Söfnun hafín ti! stvrktar
fólkinu á Heiði
I GÆRDAG komu allmargir Reykvíkingar á skrifstofu Morgun-
blaðsins og afhentu peningagjafir til hins bágstadda fólks á Heiði
í Gönguskörðum í Skagafirði. Meðal annars kom lítil telpa með
rúmar 50 kr., sem hún sagði að hún og systkini hennar tvö hefðu
safnað. — Skagfirðingafélagið hefur nú beitt sér fyrir fjársöfnun
handa hinni bágstöddú fjölskyldu og bað stjórn félagsins Morgun-
blaðið fyrir eftirfarandi bón til Reykvíkinga:
„Enginn þarf að ætla sér að bæta hjónunum á Iieiði í
Gönguskörðum að fullu sorg þeirra og skaða, er þau stóðu
fáklædd með börnin sex við brennandi bæ sinn og vissu hið
sjöunda þar inni verða eldinum að bráð, án þess að fá að
gert. En við getum létt þeim gönguna á árinu sem í hönd.
fer með því að hjálpa þeim til að eignast nauðsynlegustu
föt og fæði fjölskyldunni til framfæris.
Reykvíkingar hafa margoft brugðizt vel við nauðsyn
þeirra er að þrengdi. Svo mun enn reynast. — Morgunblaðið
veitir móttöku peningagjöfum til f jölskyldunnar á Heiði. —
Safnast þegar saman kemur.
AÐRIR ER SAFNA
í viðtali við Morgunblaðið
skýrði Sigurður Sigurðsson,
! sýslumaður, á Sauðárkróki, svo
I frá að Rauða kross deildirnar á
. Akureyri og Siglufirði myndu
I taka þátt í hjálpinni við Heiða-
I fólkið. Ennfremur standa vonir
til að hjálp berist einnig frá
Húnvetningum.
I gær barst blaðinu ennfremur
tilkynning frá Rauða krossi ís-
lands svohljóðandi:
Rauða kross deildin á Sauðár-
króki hefur ákveðið að beita sér
ríkjanna
LUNDUNUM, 30. desó — Brezka
stjórnin tilkynnti í kvöld, að Sir
Gerald Templer hershöfðingi,
yfirmaður breska hersins í
Malaya og landstjóri þar verði
skipaður yfirmaður Mið-Evrópu-
herafla Atlantshafsríkjanna og
brezka Rínarhersins. — Templer
hefur getið sér mikinn orðstír
fyrir herstjórn sína í Malaya.
fyrir fjársöfnun til hjálpar heim-
ilisfólkinu að Heiði í Gönguskörð
um, sem missti aleigu sína í elds-
voða hinn 29. þ. m.
Veitir Rauða kross deildin á
Sauðárkróki móttöku fjárfram-
lögum í þessu skyni. Formaður
deildarinnar er Torfi Bjarnason,
héraðslæknir.
Rauði kross íslands hefur enn-
fremur ákveðið að aðstoða við
fjársöfnun þessa og verður tekið
á móti fjárframlögum á skrif-
stofunni Thorvaldssensstræíi 6.
LÍKUB ERU TIL AÐ
SAMNINGAR TAKIST
SAMNINGAR standa enn yfir milli samtaka útvegsmanna og sjó-
mannafélaga víðs vegar um land um kaup og kjör á vélbátaflot-
anum á komandi vetrarvertíð. En sjómenn hafa eins og kunnugt
er farið fram á hækkun kauptryggingar, hækkun fiskverðs og
ýmsar breytingar á gildandi samningum.
OLHCLEGT AÐ TIL STOÐV-
UNAR KOMI
Vonir standa til þess að ekki
komi til stöðvunar vélbátaflot-
ans af þessum orsökum. Hins-
vegar hefur verkfall verið boð-
að af hálfu margra sjómanna-
félaga, ef samningar hafa ekki
tekizt frá 1. til 5. janúar.
N. k. laugardag mun verða
íundur hér í Reykjavík með full-
trúum Landssambands ísl. út-
vegsmanna og sjómannasamtak-
anna. Þá hefur stjórn L. í. Ú.
staðið í samningum undanfarið
við ríkisstjórnina um áframhald
þeirra gjaldeyrisfríðinda, sem
bátaútvegurinn hefur notið. Er
þeim samningum ekki að fuli'J
lokið. i