Morgunblaðið - 31.12.1953, Síða 6

Morgunblaðið - 31.12.1953, Síða 6
6 MORGIJTSBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. des. 1953 DAVÍÐ ÓLAFSSON F9SKIMÁLASTJÓRI: 8JAVARÚT AFKOMA sjávarútvegsins er há'ð margskonar aðstæðum, sem sum- ar eru viðráðanlegar en aðrar háðar náttúrlegum skilyrðum, sem ekki verður við ráðið. — Þrennt kemur hér aðallega til, sem megin þýðingu hefur í þessu sambandi. Er það þróun verðlags og kaupgjalds í landinu, sem hef- ur bein áhrif á framleiðslukostn- að sjávarafurðanna, sala afurð- anna á erlendum mörkuðum, en verðlag þar ræður öllum um það verðmæti, sem fæst fyrir afurð- irnar og loks aflabrögðin, en á þeim byggist að sjálfsögðu hversu mikil að magni fram- leiðslan getur orðið. Að því er varðar fyrsta atriðið, sem hér var nefnt, er það að verulegu leyti á valdi okkar hver þróun verður á verðlagi og kaupgjaldi í landinu. Allt frá því snemma á styrj- aldarárunum hefur þessi þróun verið óstöðug og stundum mjög svo. Stöðugt hefur raunverulega verið um hækkanir að ræða frá ári til árs þó misjafnlega hafi þær verið stórstígar. Fyrstu árin virtist þetta ekki koma svo mjög að sök vegna þess, að verðlag fór þá einnig hækkandi á útflutnings afurðunum og gat vegið á móti kaupgjalds- og verðlagshækkun- unum innanlands og stundum meira en það. Var svo raunar allt fram á fyrstu árin eftir styrj- öldina. Síðan komst hér nokkur röskun á þannig, að verðlags- og kaupgjaldshækkanir innanlands fóru fram úr verðhækkun á út- flutningsafurðunum, sem raunar áttu til að falla í verði, þegar framboðið óx eftir því, sem fram- leiðslutæki styrjaldarþjóðanna, aðallega veiðiskipin, voru meir og meir tekin í þjónustu fram- leiðslunnar sjálfrar. Skal hér ekki rakin sú saga, enda öllum, sem fylgzt hafa með þróuninni, mætavel kunn. Með gengislækkuninni 1950 var hér brotið blað og þess freistað að spyrna við fæti. — Stefna fyrrveranai og núverandi ríkisstjórnar hefur byggzt á því, að lífsnauðsyn væri fyrir út- flutningsframleiðsluna, að verð- lag og kaupgjald í landinu væri sem stöðugast og miðaðist við þá greiðslugetu, sem verðlag út- ílutningsafurðanna skapaði þeirri framleiðslu. Eftir að þær breytingar, sem gengislækkunin hlaut að leiða af sér, voru um garð gengnar má segja, að þetta hafi tekist allvel, en breytingar til hækkunar hafa á árunum 1951—1953 ekki orðið stórvægilegar. Þó hafa þær orð- ið nægar til að skapa útflutnings- framleiðslunni erfiðleika, sem að nokkru leyti hefur verið reynt að bæta upp með sérstökum ráð-1 stöfunum að því er snertir hluta af útflutningsframleiðslunni, þ.e. vissar afurðir bátaútvegsins. Var svo enn á árinu 1953, að bátaút- vegurinn naut vissra réttinda í sambandi við innflutning ákveð- inna vörutegunda, en réttindi þessi gáfu þessari grein útflutn- ingsframleiðslunnar auknar tekj- SALA AFURÐANNA I Um sölu afurðanna á erlend- um mörkuðúm er það að segja, að verðlagsþróunin og sölumögu- leikarnir hafa að sjálfsögðu ver- ið nokkuð breytilegir eftir því um hvaða afurðir hefur verið að ræða og verður nánar komið að því síðar í yfirliti þessu. Segja má, að við fáum ekki við það i áðið hve~su verðlag útflutnings- afurðanna þróast á erlendum mörkuðum, en framsýni þeirra, sem framleiða og selja afurð- irnar getur þó ávállt haft mikið að segja um það, hver heildar- útkoman verður. .Möguleikarnir. til hagnýtingar fiskaflans eru breytilegar og veltur á miklu, að framleiðendur geri sér það ljóst í upphafi framleiðslutímabilsins hvernig útlitið er á hinum ýmsu mörkuðum og hagi eftir því, að svo miiilu leyti, sem því verður við komið, hagnýtingu fiskaflans. Má segja, að nú sé svo komið, að framleiðslutækin leyfi hér að verulegu leyti þá tilbreytingu, sem nauðsynleg er þó það sé hins vegar Ijóst, að mikil fjárfesting hafi verið nauðsynleg til þess, að svo mætti verða og enn sé ýmis- legt ógert á því sviði. Glöggt tíæmi um stórfelldar breytingar á hagnýtingu aflans vegna breyttrar markaðshorfa má einmitt finna á árinu 1953, að því er snertir skreiðarfram- leiðsluna, sem hefur nær fimm- faldazt frá því, sem var á fyrra ári. RÝMKUN FISKVEIÐI- LANDHELGINNAR Vaxandi áhyggjuefni hefur það verið öllum, sem fylgzt hafa með fiskveiðum okkar undanfarin ár, hversu aflabrögð hafa farið rýrn- andi ár frá ári. Þessi þróun varð eitt sterkasta vopnið í þeirri bar- áttu, sem háð hefur verið fyrir rýmkun fiskveiðilandhelginnar, þar sem glöggt mátti sjá, að hér var um a ðræða ofveiði, sem staf- aði af of miklum ágangi á fiski- stofnana. Sönnunin fyrir rétt- mæti þeirra raka virðist ætla að koma fram jafnvel fyrr en hina bjartsýnustu gat dreymt um. — Þegar á fyrstu vertíðinni, sem hinnar auknu friðuriar fiskimið- anna tók að gæta, snérist þróun- in við a.m.k. á sumum þýðingar- mestu íiskimiðunum. Davíð Ólafsson. ^•r Því er þó ekki að leyna, að friðunarinnar gætir misjafnlega mikið á hinum ýmsu fiskimið- um og þó má einkum gera ráð fyrir, að lengri tími geti liðið þar til áhrif friðunarinnar koma fram á sumum fiskimiðum. Eðli- legt er, að áhrifa hennar gæti fyrst þar, sem þau svæði eru stærst, sem friðuð hafa verið, enda þar aðallega um að ræða hrygninga- og uppeldisstöðvar þýðingarmikilla fiskistofna. Hins vegar er þess að vænta, að aúkn- ing sú, sem verður á fiskistofn- unum á þessum svæðum, muni síðar koma fram í aukinni fiski- gengd víðsvegar umhverfis land- ið, bæði á djúp- og grunnmiðum. Skal hér nú gerð grein fyrir hinum einstöku þáttum fiskveið- anna. Þorskveiðarnar Aflamagn það, sem fékkst á- þorskveiðunum á þessu ári mun hafa numið sem næst 290 þús. smál. og er þá áætlað aflamagn tveggja síðustu mánaða ársins, þar sem ekki liggja fyrir skýrsl- ur um aflann í þeim mánuðum. Er hér um að ræða lítið eitt minna aflamagn en var á fyrra ári en þá var heildaraflamagnið 305 þús. smál. Þessi lækkun á aflamagninu kemur nær eingöngu niður á togurunum svo sem skýrt mun verða hér á eftir. TOGARARNIR Eins og undanfarin ár stund- uðu togararnir einnig á þessu ári nær eingöngu þorksveiðar eða skyldar veiðar, en aðeins fáir þeirra fóru stuttan tíma til síld- veiða um sumarið. Rekstur togaranna hefur að mörgu leyti verið erfiður á und- anförnum árum m.a. sökum þess hversu breytingar hafa orðið miklar á markaðsmöguleikum fyrir togarafiskinn og þarafleið- ar.di á hagnýtingu hans. Sam- dráttur ísfiskmarkaðanna og al- ger lokun þeirra í Bretlandi frá því á miðju ári 1952 og fram á haustið 1953 leiddi til þess að taka varð upp aðrar verkunarað- ferðir, sem togaraútgerðin var að ýmsu leyti ekki undirbúin. Einnig leiddi rýrnandi aflafeng- ur á heimamiðum til þess, að togararnir urðu að leita á fjar- læg fiskimið til fanga og urðu þá Grænlandsmið aðallega fyrir vaiinu. Á vetrarvertíðinni stunduðu flestir togararnir veiðar til fram- leiðslu skreiðar og saltfiskverk- unar. Mun óhætt að fullyrða, að þeir auknu mögulekiar, sem sköp uðust til framleiðslu skreiðar á þessu ári hafi orðið til þess að bjarga rekstri togaranna frá stórkostlegum vandræðum, því aðrir möguleikar til hagnýtingar aflans voru mjög takmarkaðir framan af árinu. Að lokinni vetr- arvertíðinni sögðu þessir erfið- leikar til sín, þegar veðurfarið hindraði það, að unnt væri að hengja upp fisk til herzlu. Var r.ekstur margra togaranna því mjög stopull fram yfir mitt sum- ar. Á þessú varð breyting, þegar samið hafði verið um sölu á ail- miklu magni af karfaflökum til Rússlands og togararnir gátu haf- ið karfaveiðar fyrir frystihúsin. Um svipað leyti hófust einnig ís- fiskveiðar fyrir Þýzkalandsmark að og nokkru síðar tókst að opna ísfiskmarkáðinn í Bretlandi á ný. En þrátt fyrir, að svo rættist úr er leið á árið mun þó óhætt að fullyrða, að afkoma togaranna hefur orðið mjög erfið á þessu ári og verri en árið áður. Kemur þar að sjálfsögðu nokkuð til að aflabrögð hafa ekki orðið svo sem menn höfðu gert sér vonir um og hefur umhleypingasöm tíð undanfarna mánuði valdið þar nokkru um. Til loka októbermánaðar höfðu togararnii aflað alls 126.000 smál. en á sama tíma árið 1952 nam heildarafli þeirra 136.000 smál. og er síld ekki hér ekki með- talin. Á fyrri helmingi ársins, á vetr- arvertíðinni, var heildarafli tog- aranna einnig lítið eitt minni en á sama tíma árið áður og nam þá 87.000 smál. en 89.000 smál. árið 1952. Munurinn hefur þó orðið meiri eftir því, sem liðið hefur á árið og liggja til þess tvær meginorsakir. I fyrsta lagi var útgerð togaranna eins og áð- ur segir stopulli um hásumarið og í öðru lagi var meira stundað á heimamiðum nú og aflabrögð ekki eins góð og þau höfðu verið við Grænland árið áður, þegar verulegur hluti fiotans stundaði þar saltfiskveiðar. BÁTAFLOTINN - Svo sem áður getur urðu breyt- ingar til batnaðar á aflabrögðum bátaflotans á sumum stöðum á vetrarvertíðinni. Átti þetta aðal- lega við um báta, sem stunduðu línuveiðar frá veiðistöðvunum við Faxaflóa og kom vafalaust af þeirri auknu friðun, sem hin nýju fiskveiðitakmörk orsökuðu. Meðalafli línubátanna á þessu svæði mun hafa orðið um 16% meiri miðað við sjóferð, en hann var næstu vertíð á undan, en meðalaflinn hafði farið lækkandi frá ári til árs allt frá 1947. I Vestmannaeyjum voru all- miklar ógæftir fyrri hluta ver- tíðarinnar, ef frá er talinn janú- ar, en sjór er þá að jafnaði ekki mikið stundaður þar um slóðir. Drógu ógæftirnar mjög úr afla- möguieikum línubátanna og má vafalaust kenna því mikið um hversu vertíð línubátanna varð Jéleg að þessu sinni. Hinsvegar aflaðist mikið* í þorskanetin á báta frá Vestmannaeyjum þó ekki gengi það jafnt yfir. Fiski- göngur við Vestmannaeyjar ein- kenndust helzt af því, að þær virt i ust mestar á heimamiðum og austan við Vestmannaeyjar en þar hefur lítið orðið fiskivart um aldarfjórðungsskeið. Er talið, að friðunarinnar hafi gætt hér. Afli í þorskanet brást hinsveg- ar mjög í Faxaflóa, en sú veiði- aðferð var nú viðhöfð þar af ó- venju mörgum bátum. ■ Mátti heita, að um algert aflaleysi væri að ræða. Við Suð-Austurlandið þ.e. Hornafjörð var afli einnig ó- venju lélegur á vetrarvertíðinni, og hefur svo raunar verið nú um nokkurt árabil. Á Vestfjörðum hefur aflabrest- ur mjög gert vart við sig á und- anförnum árum og eríiðleikar út- gerðarinnar af þeim sökum verið miklir þar um slóðir. Á síðustu vetrarvertíð bætti það nokkuð úr, að steinbítsafli var mikill um tíma, en aðstaða báta í hinum ýmsu veiðistöðvum til að stunda steinbítsveiðina er þó æði mis- jöfn. Sumarútgerð á þorskveiðum var eins og venjar er stunduð víða við lándið, en með misjöfn- um árangri. Eru þær veiðar aðal- lega stundaðar á litlum þiljuðum bátum eða opnum vélbátum. — Aflahlaup komu þó af og til á nokkrum stöðum, en annars stað- ar eins og t.d. við Austfirði var tilfinnanlegt aflaleysi á þessum veiðum. Eru bátar þessir að sjálf- sögðu mjög staðbundnir og geta ekki leitað langt frá .bækistöðv- um sínum. Komi því ekki fiskur á heimamið þeirra, sem eru grunnmiðin, bregst afli þeirra. Það er þó, eins og áður segir, von til þess, að aukin friðun muni i auka fiskigengd á grunnmiðum víðsvegar umhverfis landið, þó síðar verði. Afli bátaflotans til loka októ- bermánaðar nam um 127.000 smál. og var það nær því hið sama og á sama tíma á fyrra ári. Fyrri helming ársins, eða þann tima, sem vetrarvertíðin stendur yfir var aflafengur bátaflotans heldur meiri en á sama tíma fyrra ár eða 116.00 smál. á móti 109.00 smál., en síðari hluti árs- ins hefur orðið aflarýrari en þá var m.a. fyrir ógæftir. Hagnýting aflans Eftirfarandi yfirlit gefur hug- mynd um hvernig sá afli, sem fengist hefur á þorskveiðunum hefur verið hagnýttur. Smál. miðað við slægðan fisk með haus 1953 1952 jan/okt jan/okt ísvarinn fiskur 3.440 25.600 Fiskur til fryst. 82.000 112.000 Fiskur til herzl. 76.000 14.500 Fiskur til sölt. 87.000 103.000 Annað 3.700 8.600 Samtals 252.140 263.700 Megin breytingin, sem orðið hefur á hagnýtingu aflans er sú, að allar verkunaraðferðir nema skreiðarverkunin hafa dregist saman, en þar hefur orðið um stórkostlega aukningu að ræða eða meira en fimmfalda. ísvarði fiskurinn á árinu 1952 var nær allur fluttur út á vetrar- vertíðinni það ár, en þá var lönd- unarbann brezku togaraeigend- anna að sjálfsögðu enn ekki haf- ið, þar sem hinar nýju reglur um fiskveiðitakmörkun voru þá ekki enn komnar í gildi, en þær voru notaðar sem yfirvarp til að skelia á löndunarbanninu og útiloka þar með óþægilegan keppinaut frá ferskfiskmarkaðinum. Framan af árinu 1953 var því enginn útflutningur ísvarins fisks, en það sem flutt var út síðari hluta ársins til loka októ- bermánaðar var nær allt til Þýzkalands, en landanir ís- lenzkra togara þar hófust að vanda í september. I október hóf- ust svo aftur landanir íslenzkra togara í Bretlandi. Voru þær framkvæmdar á grundvelli samn ings, er íslenzkir togaraeigendur höfðu gert við brezka kaupsýslu- manninn . Dawson. Var þar með rofið löndunarbann brezku. tog- araeigendanna, þrátt fyrir endur teknar tilraunir þeirra til að hindra framkvæmd samningsins og mátti heita, að þeir beittu í baráttu sinni öllum hugsanlegum aðferðum en létu þó ekki hendur skipta, enda vafasamt, að þeir hefðu haft bolmagn til þess. A grundvelli samningsins voru farnar 7 söluferðir til Bret- lands, en miklir annmarkar komu þó í ljós við framkvæmd hans, sem að lokum leiddu til þess, að hlé hefur orðið á löndunum á meðan athugun fer fram á bví hvaða leiðir séu færar til frekari framkvæmda. Um 27% minna af fiski fór til frystingar nú en á sama tíma á fyrra ári. Leit þannig út framan af árinu, að þrengjast mundi nokkuð um sölu á frystum fiski og einnig voru í ársbyrjun all- miklar birgðir óútfluttar af freð- fiski. Samningurinn við Rússa breytti hér allmikið viðhorfinu og einnig hefur rýmkast um á öðrum mörkuðum. Þriðja verkunaraðferðin, sem minna var um, var saltfiskverk- unin. Var svipað um það að segja og freðfiskinn, að þar voru mikl- ar birgðir, að vísu ekki í landinu heldur í markaðslöndunum og því tregari sala en áður. Til þess að unnt væri að hag- nýta aflann varð því að breyta til með verkun á honum. — Hér kom skreiðarverkunin og hafði mikla þýðingu. Eins og áður seg- ir fimmfaldaðist það magn af fiski, sem fór í skreiðarverkun og tók því sú verkunaraðferð við nær því öllu því magni, sem hin- ar verkunaraðferðirnar gátu ekki tekið við Á árinu 1952 og fram- an af þessu ári var flutt til lands- ins mjög mikið efni í fisktrönur, sem að sjálfsögðu kostaði mikið fé en einmitt þessi innflutningur trönuefnisins gerði mögulegt að nýta þetta miklá magn af fiski, sem annars hefð skapað mikla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.