Morgunblaðið - 31.12.1953, Síða 12

Morgunblaðið - 31.12.1953, Síða 12
12 MORGUTSBLAÐIÐ Fimmtudagur 31. des. 1953 Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. KJleóilecfL mjar: Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. Höfðatúni 8, ^jieóUe^t mjar. Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Verzlunin Anna Gunnlaugsson, Laugavegi 37. LjieóLiecýt nyar: Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu, Verzlun Sigurðar Halldórssonar, Öldugötu 29. Amenna byggingafélagið. Óskum öllum viðskiptavinum vorum með þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. Hofsvallabúðin h.f. LjieóLiecýt mjar: Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu Stórholtsbúð. Stórholti 16. Ljieóiie^t mjar: Þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu, maróóoyi ora Vélsmiðjan Klettur h.f. Hafnarfirði, Elín Einnrsdóttir — minning í DAG er til moldar kvödd í dómkirkju Reykjavíkur frú Elín Einarsdóttir, frá Ægissíðu 84, hér í borg. Mun burtför hennar slá á marga viðkvæma strengi, svo ung og átakanlega. sem hún fór af pessum heimi. Frú Elín var fædd að Evri í Skötufirði við ísafjarðardjúp, 11. maí árið 1911. Foreldrar hennar voru þau: Einar Þorsteinsson, skipstjóri, og Sigrún Baldvins- dóttir kona hans. Voru þau hjón atorkumenn af góðu bergi^rotin. Liggur ætt þeirra í gegnum marga afreksmenn, bæði til lands og sjávar, langt í aldir aft- ur. Móðurbróðir Elínar var t. d. hinn þekkti verklýðsforingi og alþingismaður, Jón Baldvinsson. Einar, faðir Elínar, var og bræðr- ungur við Jón Auðunn, alþingis- mann og bankastjóra á ísafirði. Má af þessu ráða, hversu kyngöf- •ug Elin heitin var og það jafnt í báðar ættir. Bernsku sína og fyrstu æsku átti Elín heitin í föðurgarði þar vestra. Ólst hún upp í hóp 10 systkina og fjögurra uppeldis- bræðra. Mun hún því ung hafa lært margt að skoða og mörgu að sinna. En árið 1922 flutti hún, ásamt foreldrum sínum, til Hafn- arfjarðar. Stundaði hún næstu árin nám í barnaskóla Hafnar- fjarðar og síðar í gagnfræðaskól- anum að Flensborg. 16 ára gömul réðst hún svo sem verzlunarmær að Edinborgar verzlun hér í Reykjavík. Vann hún þar um tveggja ára skeið, eða unz hún giftist framkvæmda- stjóra verzlunarinnar, Tryggva Magnússyni, 27. marz árið 1929. Urðu samvistir þeirra hjóna bjartar en skammar. Eftir aðeins 14 ára sambúð varð hún að sjá á bak honum, sem hún svo ung hafði gefið hug og hönd. Stóð hún þá uppi með brostnar vonir, bjartar minningar og tvær ung- ar, elskulegar dætur. En þessar dætur eru: Guðrún og Sigrún Kristín, báðar við háskólanám í Reykjavík. Er það nú í annað sinn, að lífið réttir þessum ungu systrum beiskasta bikar skilnað- ar og saknaðar. Eftir lát eiginmannsins árið 1944, réðst Elín sem skrifstofu- mær til mágkonu sinnar, Ástu Magnúsdóttur ríkisféhirðis, sem mátti segja að væri hennar góði engill æ síðan. Vann hún þar margvísleg störf af mikilli trú- mennsku og kostgæfni og því fleiri og stærri, því lengur sem leið. Var hún um skeið aðalgjald- keri ríkisfjárhirzlunnar. En í árs- lok 1951 kenndi hún alvarlegs meins, sem knúði hana þá þegar til að hætta störfum. Urðu tvö síðustu árin henni þung baráttu- ár við hinn ósigrandi óvin, unz líf hennar varð að fullu að lúta í lægra haldi. Rúm 42 ár er skömm manns- ævi á okkar mælikvarða. Það er svo oft erfitt að skilja og að kveðja, þegar samferðamennirnir eru kallaðir frá okkur fyrir ald- ur fram. En, „þeir, sem guðirnir elska, deyja ungir“. Og „marg- oft tvítugur, meira hefur lifað, svefnugum segg, er sjötugur hjarði". Þetta tvennt er áreiðan- lega nokkur skýring á skammri ævi. Það er ekki allt komið undir því, hve lengi, heldur hvernig lifað er og starfað. Björt minn- ing réttlætir bezt skammvinnt líf. Og bjartar og hlýjar minning- ar vakti frú Elín Einarsdóttir vissulega hjá öllum þeim, sem nokkuð höfðu af henni að segja. Heimilið og störf hennar þar, báru henni órækt vitni sem eigin- konu og móður. Þar sameinuðust á áberandi hátt ást hennar og umhyggja, listfengi og smekkvísi. Hún var og kona grandvör og traust bæði í orði Og verki. Allur yfirborðsháttur var henni and- stæður og fjarlægur. Trygglyndi hennar og vinfestu varð lítt breytt eða um þokað. Hún var heilsteypt og sönn og þó um leið bæði hljóðlát og fáguð í allri framkomu. Og henni var ekki að eins gefið ytra útlit fegurra öðr- um konum. Það hvíldi yfir henni ; allri sérstök tign, ákveðinn virðu leiki. Hún var í rauninni drottn- ingarleg í útliti, yfirbragði, fasi og framkomu. Og drottningar- bragðið, sem hún bar, felldi þó engan skugga á systurlund henn- ar og nærgætni í annara garð. Hún var létt Og glöð í vinahóp, og henni var sýnt um að bæta úr og leggja lið, ~þar sem þörf var fyrir. Þannig er myndin, sem'ég hygg að við samstarfs- og samferða- mennirnir yfirleitt munum eiga af henni og geyma. Og sterkustu drættina í þessari mynd geymdi Elín heitiii ófölnaða fram á síð- ustu stund. Hún bar sinn þunga Framh. á bls. 14. í §* m m FRÁ FIIMNLANDI útvegum við ílestar teguindir af pappír Blaðapappír Bókapappír Umbúðapappír Smjörpappír Umsiög Reikningshefli Siílabækur Toiletpappír o. fl. pappírsvðrur Állskonar pappír til iðnaðar og umbúða Verð og sýnishorn fyrirliggjandi S. ARNASON & m. Einkaumboðsmenn fyrir The Finnish Papcr RliHs Ass. — Finnish Bcard Mills Ass. Finnish Paper and Board Converters* Association. ) i s s s s ') s s s s s ) s s s s s s s s ) I s s s s s s s ) s s ) s s s s s s s í' s s ) s ) s s s ) s s s s s ) s s I I f f ) s

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.