Morgunblaðið - 13.04.1954, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. apríl 1954
l 4
J
Hefi opnað
mái ar a vin nustof u
á Túnigötu 5
Tek að mér málun á:
Húsum, skipum, skiltum, húsgögnum og auglýsingum.
Uppl. í síma 82772 eða 81579.
Hafsteinn Hansson
málarameistari.
Góður einkabíU
óskast strax, má vera 2ja dyra.
Bílasalan
Klapparstíg 37 — Sími 82032
Húseignir og Eóð í Reykja-
vík, á hitaveitusvæðinu
eru til leigu eða sölu, ef um semst.
Lóðin er um 2900 fermetrar og húsin 2600 rúmmetrar.
Lysthafendur sendi nöfn sín í bréfi til afgreiðslu Morg-
unblaðsins merkt „Hitaveitusvæði“ —391, fyrir 21. þ.m.
Félög innan í. R. R.
er sækja vilja um æfingatíma á völlum vallarstjórnar,
sendi umsókn til vallarstjóra, Iþróttavellinum fyrir 17.
apríl
Stjórn íþróttasvæðanna.
Arney í Breiðafirði
er til sölu. — Laus til íbúðar í fardögum í vor. Ahöfn
getur fylgt. — Upplýsingar gefur
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON,
hæstaréttarlögmaður,
Austurstræti 1, sími 3400.
BEZT \
páska og sumargjöfin handa börnum er enskur :
ULLARPRJÓNAFATNAÐUR. — Margar gerðir
■
og fallegar. i
m
VERZLUNIN VARÐAN !
' . ■
■
Laugaveg 60 — Sími 82031 ;
E
jm
s
E
Framtíðaratvinna j
■
■
Skrifstofumaður, reglusamur duglegur, óskast. — l
m
Uppl. (ekki í síma), gefur Egill Vilhjálmsson, :
■
■
Laugaveg 116. ;
Húsvörður
‘m ■
i« Ungur, reglusamur og ábyggilegur maður, óskast frá •
’ M •
B 1. mai n. k. til husvarðarstarfa. Laun samkv. taxta Dags- :
, •
Ibrunar um fastraðna pakkhúsmenn. :
Tilboð (ásamt mynd), sem greinir frá aldri og fyrri ■
störfum, sendist afgr. Mbl. fyrir miðvikudagskvöld :
■
merkt: Húsvörður —394. :
— Dagbók —
„Skóli fyrir ungherja"
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ „Dagur“ á Akureyri skýrir svo frá, að
nýlega hafi verið settur þar á fót „skóli fyrir unghesta“, en
„hrossin, sem þar eru við nám, eru frá 4—8 vetra og um tuttugu
talsins“. Þá lætur blaðið þess einnig getið, að sökum þrengsla hafl
orðið að neita mörgum hestum um skólavist.
Sjá, menningin blómgast, og nú er því takmarki náð,
sem námfúsir hestar vors lands hafa jafnan þráð.
Því stofninn var góður, en stundum fannst hinsvegar bresta
á stjórnmálaskilning og menntun norðlenzkra hesta.
Því bjóðum vér velkomna strax í vorn Framsóknarflokk
þá fáka, sem nema hið göfuga samvinnubrokk.
Og skemmtilegt væri, ef skagfirzkar hestaættir
skipuðu Hermanns rúm, þegar foringinn hættir. B.
í dag er 103. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 2,24.
Síðdegisflæði kl. 15,02.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki, sími 1618.
St:. St:. 59544147 VII.
LO.O.F. Rb. St. I Bþ. =
1034138 V2 — 9. 0
RMR — Föstud. 16.4.20. —
HRS------Mt. — Htb.
□------------------------□
. Veðrið •
í gær var suðvestan kaldi og
éljaveður á Suður- og Vesturlandi,
en hægviðri og léttskýjað austan-
lands og austantil á Norðurlandi.
í Reykjavík var hiti 1 stig kl.
15„00, 5 stig á Akureyri, 1 stig á
Galtarvita og 2 stig á Dalatanga.
Mestur hiti hér í gær kl. 15,00
naældist á Akureyri, 5 stig, og
minnstur hiti 0 stig í Stykkishólmi
og á Helissandi.
1 London var hiti 5 stig; um há-
degi, 2 stig í Kaupmannahöfn, —2
stig í París, 0 stig í Osló, .1 stig
í Stokkhólmi, 0' stig í Berlín og 4
stig í Þórshöfn.
□------------------------□
• Bruðkaup «
Gefin voru saman í hjónaband
síðast liðinn sunnudag (11. apríl)
Jórunn Hadda Egilsdóttir, Víði-
mel 19, og Ingiberg Þórarinn
Halldórsson, Snorrabraut 36.
S. 1. laugardag voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni ungfrú Ásdís Björns-
dóttir, Hringbraut 115, og Hróð-
mar Margeirson, s. st. — Heimili
þeirra er á Hringbraut 115.
. Hjónaefni .
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Guðrún Guðmunds-
dóttir frá Bermóðsstöðum og Val-
ter H. Jónsson, Hverfisgötu 82.
S. 1. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú María Júlía
Helgadóttir, Grenimel 17, og Reyn-
ir Guðsteinsson, Bjarkarlundi,
Vetmannaeyjum.
. Flugferðir .
Loftleiðir h.f.:
Edda, millilandaflugvél Loft-
leiða, er yæntanleg þingað til
Reykjavíkur kl. 11,00 í fyrramálið
frá New York. Gert er ráð fyrir
að flugvélin fari á hádegi áleiðis
til Stafangurs, Oslóar, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar.
Flugfélag íslands h.f.:
Innanlahdsflug: í dag er ráðgert
að fljúga til Akureyrar, Bíldudals,
Blönduóss, Egilsstaða, Flateyrar,
Isafjarðar, Sauðárkróks, Vest-
mannaeyja og Þingeyrar. Á morg-
un eru áætlaðar flugferðir til Ak-
ureyrar, Hólmavikur, ísafjarðar,
Sands, Vestmannaeyja, Fagurhóls-
mýrar, Hornafjarðar, Kirkjubæj-
arklausturs og Austfjarða.
Miliandaflug: Gullfaxi fór í
morgun til Prestvíkur og Kaup-
mannahafnar. Flugvélin er vænt-
anleg aftur til Reykjavíkur kl.
19,15 á morgun.
Prestar!
Þeir prestar, sem ætla að aug-
lýsa páskamessurnar í skírdags-
blaðinu, sem er seinasta blað fyrir
páska, eru vinsaml. beðnir að
hafa samband við Dagbókina
í dag
Félag austfirzkra kvenna
heldur spilafund í Aðalstræti 12
í kvöld kl. 8,30 stundvíslega.
Hraunprýðiskonur
halda síðasta fund vetrarins í
kvöld.
Sólvangur, Hafnarfirði.
Heimsóknartími á virkum dög-
um er frá kl. 3—4 og frá kl. 7,30
til 8 síðdegis. Á helgum dögum frá
kl. 3—4,30 og frá kl. 7,30—8 síðd.
— Börn mega ekki koma í heim-
sókn nema í fylgd með fullorðnum.
Þakkarávarp.
í vetur hafa ýmsir listamenn og
kristileg félög komið hingað og
veitt okkur marga ánægjustund
og auðgað okkur með list sinni og
öðru uppbyggilegu efni. Fyrir það
viljum vér þakka af heilum hug
og sendum ykkur öllum kærar
kveðjur. — Vistfólk á Kópavogs-
hælinu.
. Blöð og tímarit •
Eining, 3. tbl. er nýkomið út.
Efni er m. a. grein um hinn ný-
kjörna biskup eftir séra Kristin
Stefánsson, minningai'orð um Run
ólf Sveinsson, sandgræðslustjóia,
grein um Jóhann Ögm. Oddsson,
75 ára. grein um bækur Menning-
arsjóðs og Þjóðvinafélagsins, út-
varpsræða séra Jóns Auðuns dóm-
prófasts, er hann flutti á föstu-
daginn langa 1953, grein um á-
J fengismálin erlendis, og margt
fleira er í ritinu.
Ljósbcrinn, 3. tbl. er nýkomið
út. Efni er m. a. sagan: Drengur-
inn, sem ekki gat skrökvað, frá-
sögn af nútíma kraftaverki, Kom
af himni, grein um drengjaborg-
ina í Nebraska, framhaldssagan,
Sekur eða saklaus, — þá er og
margt fleira í heftinu.
Bjarmi, 3.—4. tbl. er nýkomið
út. Efni er m. a. grein eftir Gunn-
ar Jóhannesson er nefnist Á föstu,
— greinin: Hann getur umbreytt,
ræða eftir N. J. Grötem, haldin
í K.F.U.M. í Reykjavík, — Þeir,
sem bíða, Þá er grein um kristni-
boð og margt fleira.
Kvöldbænir í Hallgríms-
kirkju
verða á hverju virku kvöldi kl.
8 e. h. framvegis. (Á miðvikudags-
kvöldum eru föstumessur kl. 8,15) (
Hafið Passíusálmana með.
Heimdellingar!
Skrifstofa Heimdallar er í Von-
arstræti 4, sími 7103. Félagsmenn!
Hafið samband við skrifstofuna.
Sækið félagsskírteinin.
Sólheimadrengurinn.
Afhent Morgunblaðinu: V. H.
50 krónur. Skagfirzk kona 200 ki’.
G. A. 20 kr. Tveir bræður 50 kr.
N. N. 25 kr.
t-
• tJtvarp •
19,30 Þjóðlög frá ýmsum lönd-
um (plötur). 20,30 Erindi: Áfang-
ar í réttindamálum kvenna; síðara
erindi (Rannveig Þorsteinsdóttir
lögfræðingur). 20,55 Tónleikar:
Kling-klang kvintettinn syngur
(plötur). 21,15 Náttúrlegir hlutir:
Spurningar og svör um náttúru-
fræði (Guðmundur Þorláksson
cand. mag.). 21,30 Undir Ijúfum
lögum: Carl Billich leikur píanó-
lög eftir Chopin. 22,20 Úr heimi
myndlistai'innar. Björn Th. Björns
son listfræðingur sér um þáttinn.
22,40 Kammertónleikar (plötur):
Píanókvintett í flmoll op. 34 eftir
Brahms (Rudolf Serkin og Busch-
kvartettinn leika). 23,20 Dag-
skrárlok.
Erlendar stöðvar.
(Allir tímar — íslenzk klukka.)’
Danmörk:
Á 49,50 metrum daglega á tím-
anum kl. 17,40—21,15. Fastir lið-
ir: 17,45 Fréttir. 18,00 Aktuelt
kvarter. 20,00 Fréttir.
18,15 Giro 413 — óskalagaþátt-
ur. 19,15 Útvarpsleikrit: „Djevel-
ens Stridsmand" eftir Bernard
Shaw, Edwin Tiemroth er leik-
stjóri.
Svíþjóð:
Útvarpar t. d. á 25 og 31 m,
Fastir liðir: 11,00 Klukknahring-
ing og kvæði dagsins. 11,30, 18,00
og 21,15 Fréttir. Á þriðjudögum
og föstudögum kl. 14,00 Fram-
haldssagan.
16„45 Upplestur á ljóðum eftir
Olof von Dalin. 20,00 Þáttur frá
útlöndum.
Amerískur bill
nýr, 6 manna, óskast,' eða leyfi.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir laugardag merkt: 377.