Morgunblaðið - 05.05.1954, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 5. maí 1954.
MORGUNBLÁÐIÐ
7
itl
Nýja Bílsíöðin ásamt nokkrum bifreiðum stöðvarinnar
og bifreiðastjórum þeirra.
IMýja bílastöðin í Hafnar-
firði í nýjum húsakynnum
HAFNARFIRÐI — S.l. laugard. opnaði Nýja Bílstöðin h.f. í nýjurn
húsakynnum, sem hún hefir látið reisa að Vesturgötu 1 hér
i bæ. — Húsið sem er í alla staði hið glæsilegasta, er á hinum
ákjósanlegasta stað í bænum fyrir slíka starfsemi. Allt í kringum
það eru bílastæði, og einnig er komið þar fyrir benzíngeymum.
KNYJANDI ÞÓRF FYRIR
NÝXT HÚS
Það var árið 1946, sem 16 á-
hugasamir leigubifreiðastjórar
stofnuðu samvinnufélag til að
reka sjálfir bifreiðastöð vegna
fólksflutninga. Hlaut félagið nafn
ið Nýja Bílstöðin h.f. og fékk
J>að húsnæði að Vesturgötu 0,
þar sem það hefir verið æ síð-
an. — Þegar árin liðu og rekst-
tir félagsins færðist í fang, varð
fljótt ljóst, að aðstaða félagsins
vegna óhentugs og ófullnægjandi
húsnæðis, sem auk þess var ekki
sem ákjósanlegast staðsett, var
ekki sem bezt. — Þörfin fyrir
byggingu nýs stöðvarhúss fór
því að verða knýjandi.
BIFREIÐAKOSTUR
GÓÐUR
Teikningu að húsinu og skipu-
lagningu annaðist Sigurgeir Guð-
mundsson, en um byggingu húss-
ins sá Finnbogi Hallsson bygg-
ingameistari. Jón Guðmundsson
og Þorvaldur Sigurðsson önnuð-
ust hita- og raflagnir, og máln-
ingu þeir Þórður Sigurðsson og
Magnús Kristinsson. — Um lita-
val sá Eiríkur Smith listmálari.
Nafta h.f. sá um uppsatningu á
benzíngeymum og skjólþaki. —
Bifreiðakostur stöðvarinnar er
mjög góður, og eru þar að stað-
aldri 17 bifreiðir. — Stjórn fé-
lagsins skipa þeir Garðar Bene-
diktsson formaður, Hallgrímur
Björnsson ritari og Bergþór Al-
bertsson gjaldkeri, sem jafnframt
er framkvæmdastjóri stöðvar-
innar.
Meðstjórnendur eru þeir Ari
Benjamínsson og Óskar Björns-
son, sem einnig verður aðalaf-
greiðslumaður stöðvarinnar.
— G. E.
Fimmtíu fullnað-
arprófsbörn
við barnaskóli
Keflavíkur
KEFLAVIK, 30. apríl: — Barna-
skóla Keflavíkur var slitið í dag
í samkomusal skólans. Skólastjór
inn, Hermann Eiríksson, gat þess
í skýrslu sinni yfir síðastl. starfs-
ár, að tala nemenda hafi verið
370 og hafi 50 af þeim lokið fulln-
aðarprófi Hæstu einkunn yfir
skólann, 8,93, hlaut Unnur Péturs
dóttir 10 ára , 4 bekk A, Sóvalla-
götu 32, hér í bæ.
Fastir kennarar við skólann
eru 10, auk kennara. Ennfremur
hafa þrír kennaranna kennslu
við Gagnfræðaskólann.
Heiisufar skólabarnanna hefur
verið mjög gott í vetur og voru
veikindadagar að meðaltali 5 á
hvern nemenda. Kennsludagar
eldri barna voru 149 o.g voru 27
nemendur er engin forföil höfðu
alit skólaárið.
í sambandi við fólksf jölgun hér
má geta þess að áætluð tala nem-
enda næsta vetur er 400. Undan-
farna vetur hefur það verið venja
að Rotaryklúbbur Keflavíkur
hefur veitt þeim, sem eru með
hæsta einkunn í hverjum bekk,
bókaverðlaun. Ennfremur hefur
Kristinn Pétursson bóksali, veitt
þeim nemenda verðlaun er hæstu
einkunn hefur yfir skólann. Verð
laununum að þessu sinni úthlut-
uðu þeir Kristinn Pétursson for-
seti Rotary klúbbsins, Jóhann
Pétursson og séra Björn Jónsson.
— Ingvar.
uf igangsfé neð Iðmtam 16
á afrélfl við Sólhe
Féð gengið þar úti tvo vctur
Kanföfukór Akureyrar
söng ffyrir ffuEIu
AKUREYRI, 3. maí.
KANTÖTUKÓR Akureyrar hélt samsöng í Nýja Bíói á Akur-
eyri í gærkveldi. Söngstjóri var Björgvin Guðmundsson tón-
skáld, svo sem verið hefur frá því að kórinn var stofnaður fyrir
22 árum síðan.
Vík í Mýrdal, 3. maí.
SÍÐAST LIÐINN föstudag fóru
fimm menn frá Sólheimabæj-
um í Mýrdal inn á Hvítmögu,
sem er afréttarland frá þessum
bæjum inn í Jökli, umlukt af
Sólheimajökli að sunnan og aust-
an, en Jökulsá að vesían. Urðu
þeir þar varir kinda, en þar átti
sauðlaust að vera vegna fjárskipt
anna haustið 1952.
Fréttaritari Mbl. átti tal við
einn fimm-menninganna, Erling
Sigurðsson að Sólheimakoti.
Þeir fóru að Hvítmögu til að
athuga leiðina þangað, áður en
féð væri rekið þangað í vor. Það
er þriggja klukkustunda gangur,
þar af um hálftíma ferð eftir
jökli. Einnig fóru þeir í eggja-
leit pg tóku veiðibjölluegg.
KINDUR OG LÖMB
Er þeir komu inn á Hvítmögu
urðu þeir varir kinda, og voru
þrjár fullorðnar og var ein ný-
borin tveim lömbum. Lömbunum
náðu þeir en slepptu aftur. Kind-
unum reyndu þeir ekki að ná.
LÓGA SKAL ÖLLUM
HÓPNUM
Er sauðfjárveikivarnanefnd
varð kunnugt um þetta, lagði hún
svo fyrir að kindum þessum
skyldi lógað þar á afréttinum, og
mætti ekki flytja þær til byggða.
— Sjö menn fóru á sunnudags-
morgun af stað um klukkan 10
Færri gislirúm i Reykjavík
nú en fyrir 10 ái
Núverandi formaður kórsins
er Jón Bjarman. Við hljóðfærið
Árni Ingimundarson. Einsöngvar-
ar voru þær Helga Sigvaldadótt-
ir og Hallfríður Árnadóttir.
i
14 LÖG Á DAGSKRÁ
Á söngskránni voru alls 14 lög,
þar af 4 eftir söngstjórann, þeg-
ar með er talið eitt lag eftir Kuhl-
an, en Björgvin Guðmundsson
hefur raddsett. Þá voru á söng-
skránni ,2 lög eftir Jóhann Ó.
Haraldsson, eitt eftir Sv. Svein-
björnsson og annað eftir Jónas
Pálsson. Ennfremur lög éftir F.
Möhring, H. Wetterling og A.
M'arscherer.
UNGT FÓLK OG
ÁHUGASAMT
Aðsókn var góð og tóku á-
heyrendur sörjgnum prýðisveh
Voru mörg viðfangsefnanna end-
urtekin. Skal þess getið að
kantötukórinn sem telur um 50
manns, karla og konur, er nú
að meiri hluta skipaður ungu og
áhugasömu fólki, sem söngstjór-
inn hefur að undanförnu æft af
kappi á tæpum fjófum mánuð-
um. — H. Vald.
Á SÍÐAST LIÐNUM 10 árum hefur gistihúsakosti í Reykjavík
T* hrakað svo mjög, miðað við fólksfjölda, að samkvæmt upp-
lýsingum frá Ferðaskrifstofu ríkisins var gistirúmafjöldi hér þá
267, en íbúatala 40.320, en nú er Reykjavík telur 62 þús. íbúa eru
aðeins 188 gistirúm í borginni. Átti formaður Ferðamálafélagsins,
Agnar Kofoed Hansen ásamt Gísla Sigurbjörnssyni, viðtal við
blaðamenn í gær um þetta efni.
GISTIHÚSMÁL í MOLUM útlendinga að leggja þarf kapp
HÉR Á LANDI | á að úr þessum málum rætist,
Eins og kunnugt er, hefur ekki heldur einnig vegna íslendinga
eitt einasta gistihús verið byggt gjálfra. Þess eru dæmi að fólk
hér í Reykjavik í áratugi fynrj utan af landi hefur orðið að
utan studentagarðana, sem aðeins^ halda á leigu herbergjum og jafn
em n°taðir sem gistihús að vel íbúðum a]It árið til þess að
S.rn"Lf hata húsaskjól, Þega, baó er sat,
í bænum. Að sumrinu er þvi nær
ógerningur fyrir bæði innlenda
Voru þeir í leiðangri þessum þai*
til klukkan eitt síðastl. nótt. Úi"
Eyjafjöllum komu til móts vi<S
þá fjórir menn.
LEIÐANGURINN
Það er af leiðangrinum að»
segja, að mönnunum tókst að ná.
þrem kindum auk lambanna. —
Tvær kindur runnu upp á kletta-
sillu, þar scm ógjörningur var aíf
saakja þær og voru þær skotnar
þar á sillunum. — Tvær kindur
voru markaðar og báru mark frá
Hrútafelli undir Eyjafjöllum.
GENGIÐ ÚTI 2 VETUR
Kindur þessar hafa gengið úti
tvo vetur. Þær litu vei út, enda
tíð einmuna góð siðastl. ár og-
vetur mildur. Kindunum sem ná»?
ust var lógað á staðnum og iung-
un tekin úr þeim. í dag verða
þau send til Reykjavíkur til rann-
sóknar.
SAUÐLAUS í 6—7 ÁR
Þegar mæðiveikin kom upp i
Mýrdal, var fljótlega lógað öHu
fé sem gekk í Hvítmögu, þvi það
hafði nokkurn samgang við fé
Eyfellinga vestur yfir Jökulsá, en
það var þá sýkt. — Hefur Hvit-
maga þvi verið sauðlaus í 6—1
ár. Fyrstu árin á eftir var leita<?
þar, en engin kind fannst og var
leit þá hætt. — En á hverju ári
hafa margir menn farið þangað á
vorin til eggjatöku og á haustin
til berja, því berjaland er þar
allgott. Hefur aldrei orðið vart
þar við kindur fyr en nú.
NÝR STOFN
Fyrir tveimur árum var skorið
niður aHt fé hér í Mýrdal. Vai'
nýr stofn fenginn austan af Síðu
í fyrrahaust og á nú í fyrsta
sinn að reka fé á afrétt. — Sól-
heimabændur voru búnir að fá
leyfi til fjárreksturs inn á Hvít-
mögu, en óvíst er hvort það leyfi
standi fyrr en búið er að rann-
saka lungun úr þessum kindum.
Hins vegar telja menn það
mjög ósennilegt að um sýkt fé
hafi verið að ræða. — J.
Sðmsöng kirkjukórs Akureyrar
var mjög ve! Sekið
AKUREYRI, 3. maí.
KIRKJUKÓR Akureyrar efndi til samsöngs í Nýja-Bíói s. I.
sunnudag til ágóða fyrir orgelsjóð kirkjunnar. Söngstjóri var
Jakob Tryggvason, skólastjóri Tónlistaskólans. Einsöngvarar voru
frú Matthildur Sveinsdóttir, Guðmundur Karl Óskarsson og
Kristinn Þorsteinsson.
EFNISSKRÁIN
Kórinn flutti lög eftir Karl Ó.
Runólfsson, Hallgrím Helgason,
Sigurð Þórðarson, Mozart,
Piccalomini, Beethoven, Brahms
og Schumann. Kórnum var frá-
bærilega vel tekið og varð hann
að endurtaka mörg laganna.
EINSONGVARARNIR FENGU
GÓÐAR MÓTTÖKUR
Einsöngvararnir fengu og góð-
ar móttökur. Guðmundur er ung-
ur og óreyndur söngvari, en lof-
ar góðu. Frú Matthildur leysti
þarna erfitt verk af hendi, þar
sem hún söng lítt æfð hlutverk |
í veikindaforföHum frú Bjargar
Baldvinsdóttur, í „Árstíðunum“ |
eftir Maydn, ennfremur söng hún
einsöng í ,,Hirðingjar“ eftir Schu- |
mann. Sérstaka hrifningu vakti ,
söngur Kristins Þorsteinssonar í
hinum dramatiska helgisöng!
„Ora Pro Nobis“ eftir Piccalo-
mini.
Við hljóðfærið var hinn ágæti
píanóleikari frú Margrét Eiríks-
dóttir. Allur lýsti samsöngur
þessi smekkvísi og vandvirkni
söngstjórans. — Vignir.
son. Það hefur auðvitað bætt
mikið úr, en langt frá þvi nægi-
lega. Yfirleitt eru gistihúsamál
hér á landi i svo miklum molum,
fyrir utan einstaka undantekn-
ingar, að ekki er viðunandi. En
eins og kunnugt er hefur al!t
fram að þessu staðið á fjárfest-
ingarleyfi til þess að byggja
gistihús hér i Reykjavik, og það
er ekki fyr en nú að bærinn
hefur ákveðið að veita lóð undir
byggingu gistihúss ,en því mun
vera ætlaður staður við Garða-
stræti.
EKKI VANZALAUST AÐ
BJÓDA ÚTLENDINGUM
HINGAÐ
Vegna þess að ísland er fallegt
land og útlendingum sem hingað
koma fer fjölgandi, og við höfum
gert okkur far um að auka ferða-
mannastraum hingað, ætti okkur
að vera það kappsmál að geta
tekið sómasamlega á móti þeim.
Það er ekki einkamál nokkurra
manna, heldur á öll þjóðin rétt
á því að svo vel sé búið að því
fólki sem hingað kemur á gisR-
stöðum að það sé ekki landi og
þjóð til vanvirðu. En þess munu
fjölmörg dæmi að erlendir gestir
hafi kvartað undan lélegri gisti-
húsamenningu hér á landi.
NÆR ÓGERLEGT AÐ FÁ
GISTIRÚM
Það er ekki eingöngu vegna
og útlenda menn að koma hing-
að vegna þess að öll gistiherbergi
eru upp pöntuuð í lengri tíma.
Mörg gistihúsanna hafa að vísu
tekið upp þá aðferð að leigja
herbergi út í bæ fj'rir gesti sina
og slikt er strax spor i rétta átt.
ÞAU GISTIHERBERGI, SEM
FYRIR HENDI ERU
Það versta er að þau gistiher-
bergi, sem hótel víða hér á landi
hafa upp á að bjóða, eru síður
en svo viðunandi og sums staðar
þannig að varla er hægt að bjóða
gestum upp á að búa þar.
Salerni eru og víða hér í svo
mikilli óhirðu að það er lítt mögu
legt að koma inn á þau.
Það þarf ekki að fara lengra
en til Færeyja, til þess að komast
að raun um að gistihúsmenning
okkar stendur mjög lágt og er
ekki sambærileg við aðrar menn-
ingarþjóðir Evrópu.
Það er vitað mál, að víða hér
á landi eru erfiðar aðstæður til
gistihúsahalds, en með smekk-
vísi og hreinlæti mætti einnig
bæta mikið þær aðstæður sem
eru ef góður vilji er iyrir hendi.
Vingjarnlegt viðmót við gesti og
góður matur er ekki nóg, heldur
verður aðbúnaður allur að vera
viðunandi.
Fullkomín bllasmur-
stöð í Keilavík
KEFLAVÍK, 30. apríl: — Nýlega
var opnuð hér ný bílasmurstöð,
við Hafnarafleggjarann, skammt
frá aðalhliði Keflvíkurflugvallar.
Þessi nýja smurstöð hefur hlotið
nafnið: Smurstöð Suðurnesja.
Eru eigendurnir tveir ungir og
dugmiklir Keflvíkingar. Kristján
Pétursson og Guðmundur Sig-
urðsson. Stöðin er búin öllum
fullkomnustu tækjum til bíla-
smurnings. Öll tæki svo og oliur
eru frá Shell h.f. — Hannes
Davíðsson arkitekt, Reykjavík
gerði teikningar, en stöðvarhúsið
er 170 ferm. að stærð. Verkstæði
Magnúsar Björnssonar, Keflavík,
sá um alla smíði, en raflögn ar.n-
aðist Segull h.f. í Reykjavík.
Það sem vekur sérstaka athygli
manna í þessari nýju smurstöð
eru hitunartæki hússins. Er það
oliuofn, sem blæs þægilegum hita
um allt húsið, en eldsneytið er
hin brenda olía er kemur frá bil-
unum, sem smurðir hafa verið.
Tækið er fyrst hitað upp með hrá
olíu en síðan er brendu olíunni
hleypt á. -— Er mikill sparnaður
af þessu tæki, þar sem brendu
olíunni hefir annars verið fleygt.
Stöðin er opin daglega frá kl.
8 á morgnanna til 11 á kvöldin og
er benzínsala við hana. Er smur-
stöðin öll hin smekklegasta og
rúmgóð. — Ingvar.