Morgunblaðið - 29.06.1954, Page 7
Þriðjuclagur 29. júní 1954’
MORGUNBLAÐIÐ
7
Félðtj ísl. leikdcmenda veitir
verifen fyrir bezta leik ársins
I»rír leikdómendur á hófinu í Þjóðlcikhússkjallaranum, Ásgeir
Hjartarson (t. v.), Sigurður Grímsson (í miðið) og Lárus Sigur-
björnsson (t. h.). — Ljósm.: H. Teitsson.
H arafdur Björnsson hlautþaufyrir
Kienow prófessor í „Sá slerkasti66
FÉLAG íslenzkra leikara hélt árs
hátíð sína í Þjóðleikhúskjallar-
anum á laugardagskvöidið var.
Var það fjölmennt samsæti og fór
hið virðulegasta fram, en for-
maður félagsins, Valur Gíslason
leikari, stýrði hófinu. Gestir á
árshátíðinni voru stjórnarmenn
úr Félagi íslenzkra leikdómenda
og var þess beðið með nokkurri
eftirvæntingu, að þeir lyki erind
sínu, en tilkynnt hafði verið, að
féiagið óskaði að afhenda verð-
laun fyrir bezta leik ársins að
undangenginni atkvæðagreiðslu í
Félagi íslenzkra leikdómenda,
'sem stofnað var hér í bæ nú í
vor.
Formaður Félags íslenzkra leik
dómenda, Sigurður Grímsson,
hafði orð fyrir stjórninni og flutti
gagnorða og virðulega greinar-
gerð fyrir tilgangi félagsins með
því að veita þessi verðiaun og
hvernig þau væru tilkomin. Sagði
hann að aðaltilgangur félagsins
væri að stuðla að heilbrigðri og
rökvísri gagnrýni, sem sett verði
fram af menningarlegri háttprýði
og vinna að aukinni leiklistar-
menningu. Hlutgengir félagar
væru fastir leikdómarar við dag-
blöð, vikublöð og tímarit, er birta
leikdóma að staðaldri. Einn liður
i starfi félagsins væri að gangast
fyrir veitingu verðlauna í viður-
kenningarskyni fyrir bezta leik
ársins að dómi félagsmanna, sem
greiddu atkvæði á þann hátt, að
hver hlutgengur félagsmaður
greiddi þremur leikendum at-
kvæði í stigúm, 100 stig, 75 stig
og 50 stig. Samanlögð hæzta stiga
taia réði svo því, hver verðlaunin
hlyti, sem er SILFURLAMPI af
fornri gerð, smíðaður af Leifi
Kaldal. Að þessu sinni fylgdu
verðlaununum að auki peninga-
upphæð, 2500,00 kr., sem tíma-
ritið HELGAFELL hafði gefið.
Formanni Félags íslenzkra leik
dómenda mæltist m. a. á þessa
leið: '
Sú skoðun virðist því miður
víða vera nokkuð almenn, að
milli leikara og leikgagnrýnenda
hljóti að eðli málsins að vera
staðfest djúp. Ég held að við get-
um öll verið sammála um það að
þetta sé hin skaðlegasta villu-
kenning. Ábyrgir leikdómendur
og leikarar vinna vissulega að
sameiginlegu marki, — þróun og
viðgangi leiklistarinnar, hver á
sínu sviði og á sinn hátt. Þessir
tveir aðilar ættu því, ef öfgalaust
og skynsamlega er á mál þessi
litið, að geta átt samleið og sam-
vinnu um margt er til heilla horf-
ir fyrir leikmenningu og leik-
listarmál þjóðarinnar. Félag ís-
lenzkra leikdómenda telur nauð-
synlegt að þessum skaðlega mis-
skilningi um afstöðu leikara og
leikdómenda hvers til annars,
verði eytt og vill stuðla að því
eftir mætti að það megi takast.
Einn þáttur í þeirri viðleitni fé-
lagsins er sá, að félagið hefur
ákveðið að veita árlega verðlaun
fyrir beztan leik á hverju leik-
ári, samkvæmt niðurstöðu, er
fengist hefur með leynilegri at-
kvæðagreiðslu félagsmanna eftir
nánari reglum. — — — Verða
verðlaun þessi veitt nú í þessu
hófi í fyrsta sinn. Verðlaunagrip-
urinn verður lampi úr silfri í
stíl gömlu lýsislampanna er not-
aðir voru hér á landi áður fyrr,
og nefnast verðlaunin: „Silfur-
lampinn, — verðlaun Félags ís-
lenzkra leikdómenda.“ — Þá gat
formaðurinn þess að þennan sama
dag hefði F. í. L. borist banka-
ávísun að upphæð kr. 2500,00 frá
tímaritinu Helgafelli ásamt bréfi
frá ritstjórunum, Ragnari Jóns-
syni og Tómasi Guðmundssyni
skáldi, þar sem óskað var að
upphæð þessi væri látin fylgja
verðlaunum félagsins, sem viður-
kenning frá Helgafelli til ís-
lenzkra leikara fyrir ágætt menn
ingarstarf þeirra. Að lokum lýsti
formaður yfir því, að Haraldur
Björnsson hefði hlotið verðlaun
félagsins að þessu sinni fyrir
bezta leik ársins í hlutverki próf.
Itlenows i ,,Sá sterkasti“. Afhenti
hann síðan Haraldi verðlauna-
skjal félagsins og fjárupphæð
Helgafells og ennfremur fagran
blómvönd og þakkaði honum frá-
bært starf hans í þágu íslenzkrar
leiklistar fyrr og síðar. — Kvað
þá við dynjandi lófatak veizlu-
gesta, er fögnuðu þessum úrslit-
um ákaft og innilega. —
Formaður Félags íslenzkra leik
ara þakkaði meg nokkrum orð-
um stjórn leikdómendafélagsins
komuna og bað viðstadda leikara
að minnast hins nýstofnaða félags
með ferföldu húrrahrópi, en Har-
aldur Björnsson flutti fram per-
sónulegar þakkir sínar og tók
undir þá ósk, að gott samstarf
mætti takast með leikdómendum
og þeim listamönnum, sem helg-
að hafa leiklistinni krafta sína.
Var þar með lokið þessari fyrstu
athöfn í sambandi við hin mjög
athyglisverðu verðlaun Félags ís-
lenzkra leikdómenda.
□—★—□
Atkvæðagreiðslan um verðlaun
in er leynileg. Að þessu sinnivoru
7 atkvæðisbærir félagsmenn, þar
sem einn leikdómandi, ritstjóri
Vísis, hafði verið fjarverandi úr
bænum hluta úr vetri. Hinir dóm
endur voru: Sigurður Grímsson
(Morgunblaðið), Ásgeir Hjartar-
son (Þjóðviljinn), Lárus Sigur-
björnsson (Helgafell), Loftur
Guðmundsson (Alþýðublaðið),
Jónas Þorbergsson (Tíminn),
Ólafur Gunnarsson (Suðurland)
og Agnar Bogason (Mánudags-
blaðið).
Flest atkvæði fékk Haraldur
Björnsson, 475 stig, næstur hon-
um kom Þorsteinn Ö. Stephensen
með 275 stig fyrir Lenna í „Mýs
og menn" og þriðji Brynjólfur
Jóhannesson 175 stig fyrir Georg
í „Mýs og menn" og Brassett í
„Frænku Charles".
Sólmyrkvinn er mikilfengíeg sión —
Ilættnlegt að horfa með bernm augum
IKVÖLDDAGSKRÁ útvarpsins
á sunnudaginn flutti prófessor
Trausti Einarsson skemmtilegt og
mjög fróðlegt erindi um sól-
myrkvann, sem hefst hér um há-
degisbilið á morgun, miðvikudag-
| inn. — Próf. Trausti hefur léð
' Morgunblaðinu fyrirlesturinn til
I birtingar, og fer hann hér á eftir:
ALMYRKVI á sólu verður hér á
landi næsta miðvikudag, 30. júni,
um hádegisbilið. Upplýsingar um
I myrkvann er að sjálfsögðu að
finna í almanakinu og auk þess
hafa blöð og útvarp getið hans
að undanförnu. Ætti allur al-
menningur því að hafa heyrt um
hinn væntanlega atburð. Útvarp-
ið hefur hinsvegar óskað þess,
að ég rifjaði hér upp það helzta,
sem ástæða væri til að benda á
vegna myrkvans, enda er nauð-
synlegt að sumt sé í fersku minni
er myrkvinn verður, ekki sízt
varúðarreglur gegn augn-
skemmdum.
SÍÐAST FYRIR 121 ÁRI
Almyrkvi á sólu er í sjálfu sér
ekki sjaldgæfur atburður, hann
verður yfirleitt árlega. En
myrkvabrautirnar dreifast um
alla jörð og á hverjum stað, í
einu litlu landi er almyrkvi mjög
sjaldséður. Frá því er ísland
byggðist hafa aðeins orðið 11
almyrkvar á sólu hér, en það
varð þessi ár: 878, 1077, 1131,
1312, 1330, 1339, 1424, 1433, 1469,
1733 og 1833. Myrkvarnir haía
gengið mjög misþétt yfir, en að
meðaltali orðið um einu sinni á
öld. Frá síðasta almyrkva er liðið
121 ár.
Fyrr á öldum er orsök myrkv-
anna var ókunnug almenningi og
ekki var kleift að segja þá fyrir
með nægilegri nákvæmni, þóttu
þeir mikil og váleg tíðindi. Nú
á tímum eru það fyrst og fremst
vísindin sem láta sig sólmyrkv-
ana miklu skifta, en fyrir flesta
menn er það þó alveg einstakur
atburður að sjá almyrkva á sólu
og vissulega ástæða fyrir þá,
sem því geta komið við, að fylgj-
ast sem bezt með myrkvanum.
Þeir sem séð hafa almyrkva tetja
hann mjög tilkomumikil sjón.
Eg mun nú segja nokkuð ger
frá myrkranum og er þá fyrst
að taka fram, að þeir tímar, sem
tilgreindir eru í íslenzka alman-
akinu, eru miðaðir við íslenzK-
an miðtíma en ekki sumartíma.
Við allar tímatölur, sem standa
í almanakinu verður að bæra
1 klst. svo að þær verði réttar
miðað við þá klukku, sem við
notum nú. í almanakinu segir
t. d. að myrkvinn hefjist í Rvík
kl. 9.54. Þetta verður þá 10.54
miðað við sumartima, rétt fyrir
kl. 11.
SÓLMYRKVI
Sólmyrkvi verður eins og al-
kunna er, þegar tunglið gengur
fyrir sólina. Tunglið kastar keilu-
laga skugga, þar eð það er miklu
minna en sólin, oddur keilunnar
nær vel til jarðar yfirborðs og
því myndast þar almyrkvabíett,-
ur. Sé maður staddur innan þessa
bletts eða skugga, er sólin alger-
lega í hvarfi bakvið tunglið, hún
er almyrkvuð. Sé maður utan
við blettinn gægist sólin út imd-
an tunglröndinni, þar er deildar-
myrkvi. Því fjær sem dregur
frá almyrkvablettinum því minni
I verður deildarmyrkvinn. Nú
! breytist afstaða hinna þriggja
hnatta, sólar, jarðar og tungls,
í sifellu, og því færist almyrkv-
inn hratt eftir yfirborði jarðar.
1 mínútu yfir kl. 10 eftir ís-
lenzkum sumartíma hefst deildar-
myrkvinn í nánd við Flóriaa-
skaga. Almyrkvi verður fyrst kl.
um 11, í miðjum Bandaríkjunum.
Og nú geysast almyrkvablettur-
inn áfram með feiknahraða til
norðausturs og er kominn eftir
klukkutíma til íslands.
Fréðlegl útvarpserindi próf. Trausfa
Einarssonar um sólmyrkvann sem fer
með 2500 km hraða á kfsl.
MEÐ 2800 KM HRAÐA
Þetta sýnir meðal annars, að
hraðinn er miklu meiri en svo
að nokkurt farartæki gæti fylgt
myrkvanum eftir. Hér við ísland
er hraði myrkvans um 2800 km.
á klst. í farþegaflugvél, sem
flýgur til austurs má lengja
myrkvann um eitthvað 1/10 eða
þá almyrkvann um ca 15. sek.
ef flogið er eftir miðlínu hans
fyrir sunnan land.
Kl. 13 er almyrkvinn komir.n
til baltnesku landanna. — Kl. 14
til Indlands og þar lýkur myrkv-
anum að fullu kl. 15.03. Hann
stendur því alls yfir i 5 klst. og
2 mín.
í Reykjavík hefst deildar-
myrkvinn 6 mínútur fyrir 11 og
fáum mínútum fyrr eða síðar
annarsstaðar á landinu. Á Reykja
nesi um 2 mín. fyrr og á Norð-
austurlandi um 7 míri. síðar en í
Reykjavík.
Tunglið mjakast nú, að sjá,
fyrir sólina og eftir rúman
klukkutíma hefur myrkvinn náð
hámarki, eða kl. 1204 í Reykjavík,
1—2 min. fyrr vestast í landinu,
og 6—7 min. síðar austast á þvi.
Af Sólinni sést nú í Reykjavík
aðeins 1/72 partar þvermáis,
meira er norðar dregur og mest
í Grímsey, en þó ekki nema 1/13
þvermáls.
Árið 1945 varð talsvert mikíll
myrkvi hér á landi og má haía
hann til samanburðar, enda mun
hann mörgum í fersku minui
Þá voru 6/7 þvermáls myrkvaðir
í Reykjavík en 9/10 á Akureyn.
Að þessu sinni verður myrkv-
inn svipaður í Grimsey og 1945
en annars verður myrkvinn á
miðvikudaginn mún meiri norð-
an til á landinu en 1945 og miklu
meiri er sunnar dregur og verður
þar æðiskuggsýnt.
Almyrkvi er svo allra syðst,
sunnan við markalínu, sem ligg-
ur þannig: Rétt sunnan við Kross
í Landeyjum, rétt norðan við
Hrólfsskála undir Eyjafjöllum og
rétt sunnan við Langholt í Með-
allandi.
Á sjálfri markalínunni stendur
almyrkvinn aðeins augnablik, en
þeim mun lengur, sem sunnar
dregur í landinu og lengst um
IV2 mínútu, í Dyrhólaey og í Vest
mannaeyjum. Almyrkvinn hefst
kl. 1204 til 1206 eftir þvi hvar
á svæðinu er. Meðan á almyrkv-
anum stendur verður svo dimmt
að stjörnur verða sýnilegar í heið
skíru, en verulega skuggsýr.t
verður hvergi lengur en 15—20
mínútur.
Myrkvinn þverr svo aftur á
rúmum klukkutíma og honum
lýkur í Reykjavík kl. 13.15 og
á tilsvarandi tímum annars stað-
ar á landinu.
GÆTIÐ AUGNANNA
Ef heiðskírt verður þegar
myrkvinn gengur yfir munu
menn vafalaust skotra augum til
sólar, en þó er áríðandi að gæta
augnanna. Hér er um að ræða
meira alvörumál en margan
mundi gruna, því að varanleg
og ólæknandi augnskemmd getur
hlotizt af ef óvarlega er hont
í sólina. Augnlæknar hér í bæ
hafa tjáð mér, að við sólmyrk v-
ann 1945 hafi talsvert margir
orðið fyrir varanlegum augn-
skemmdum, þannig að ólæknandi
brunablettir komu á viðkvæm-
asta hluta sjónhimnu.
Þessvegna verður ekki nóg-
samlega brýnt fyrir fólki að horfa
alls ekki með berum augurn
sólina og er ekki sízt ástæða til
að hafa gát á börnum í þessu til-
liti.
Eftirtaldar hlífar kom íil
greina.
1. Mjög dökkt litað gler en fá«*
munu eiga völ á slíku.
2. Tvöföld eða þreföld Ijósagler-
augu, einföld duga alls ekki.
3. Logsuðu gleraugu.
4. Sótuð glerplata eða sótuði
gleraugu. Einfaldasta og lik-
lega bezta hlifin er glerplala.
og má auðveldlega sóta hana.
yfir kertaloga. En það verður
að gera svo vendilega, að þeg-
ar horft er í gegnum hana
sýnist sólin dauf. En yfirloilk
skyldu menn ekki treysta um.
of á hlífarnar og því ekki,
horfa lengi í einu í sólina.
Um deildarmyrkvann verð
að láta þetta nægja, en viðvíkj-
andi almyrkvanum er ástæða aÁ
bæta við nokkrum orðum.
ÞEGAR SÓLIN ER
ALMYRKVUÐ
Strax og sól er almyrkvuð, cr
ekki þörf á augnhlífum. Þá getiu-
að líta, ef heiðskírt er, dimm.-ui
og stirndan himin fjær sólu, en.
bjart hvítt skin nær henni. Allra.
næst tunglröndinni má sjá elct-
rauðan baug og oft er eins og:
eldtungur rísi upp úr honurrv.
Þessi rauði hringur, litlagið svo-
kallaða, er aðallega glóandi vetrvi
og eldtungurnar eru gosstrókar-
úr sama efni. Hvíta skinið er hin.
svokallaða kóróna. Oft sjást L
henni geislastafir er líkjast kraft-
línum kringum segul, enda mi
vafalaust telja að stafirnir stamU
í nánu sambandi við segulsvið
sólar. Skin kórónunnar stafar að
mestu af því að öreindir, elek-
trónur, sem streyma í sífellu út
frá sólinni, endurkasta sólarljós-
inu. Ernnig eru þarna á sveimi
ýmsar tegundir atóma, en vegna
sfelldrar atómskothríðar frá sól-
inni eru þau meira og minna tæit
í sundur. Svo er t. d. um járn-
atómið. Ástand atómanna svarar
til þess að hitinn væri um 1 millj.
gráða, enda þótt hitinn á sjálfvv
yfirborði sólar sé aðeins unv.
6000° C.
Skin kórónu og litlagsins éir
það dauft, að þess gætir ekki i
fullu dagsljósi. Eina tækifærið l.»L
að sjá þessi yztu lög sólar er viif
almyrkva.
LJÓSMYNDATÖKUR
Sennilega reyna einhverjir aí>
taka Ijósmyndir af almyrkvan-
um. Þeim vil ég benda á eftir-
farandi: Stærð sólar á filmunnv
verður 1/100 af brennivídd tæk-
isins. Með 10 cm brennivídd, sem.
er algeng, verður sólin 1 mm £
þvermál. Sjálfsagt er því að nota.
teleobjektif ef menn eiga þessv
kost. Viðvikjandi lýsingu er þaft
að segja, að birta kórónunnar er
sambærileg við birtu á skýjunv
í fremur björtu veðri. En reynrf-
ar dvínar birta kórónu ört með
fjarlægð frá sólrönd. Við of stutta.
lýsingu fengist því aðeins innsti
hlutinn, en við of mikla lýsingu.
fengjust ytri lög jafnframt pvv
sem innri hluta væru yfirlýstir.
Sjálfsagt er að reyna margar lýs-
ingar og i því sambandi er gott
að hafa það í huga hve lítil myricC
in. verður og því er hægt,
með færslu vélarinnar, að marg-
lýsa sömu filmuna.
Ég vil svo ljúka þessum orð-
um með því að endurtaka aðvör-
un augnlækna: Munið að ólækn-
andi skemmdir geta hlotizt af,
ef óvarlega er horft í sólina.
★★★★★★★★★★★★★
★ ★r
★ BEZT AB AUGLÝSA t ★
★ MORGUNBLAÐINC ★-
★ ★
★★★★★★★★★★★★★