Morgunblaðið - 29.06.1954, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.06.1954, Blaðsíða 16
V'eMllif í dag: SV stinningskaldi, risning eða súld. Bylfing dagfegf brauS Sjá bls. 9. 144. tbl. — Þriðjudagur 29. júní 1954. átur týndist með fimm manns á Breiðufirði á föstndaginn Var á t LAUGARDAGSKVÖLDIÐ spurðust þau hörmulegu tíðindi I*. hingað til Reykjavíkur, að lítill bátur hefði týnzt og mcð honum fimm manns, á Breiðafirði, á föstudaginn. — Var báturinn að flytja vörur og farþega frá Flátey að Svínanesi, er slysið varö. Tveggja manna áhöfn var á bátnum og hitt fólkið, þrennt, farþegar, >ar af mæðgur frá Seisskerjum. Báturinn mun ekki hafa átt lengri ..iglingu fyrir höndum að Svínanesi, en 30—45 mín., er hann fórst. ÞEIR SEM DRUKKNUÐU Þetta fólk drukknaði með hátnum: Gestur Gíslason formað - ur frá Flatey. — Hann var ekkju- maður, þriggja barna faðir og er clzta barnið 11 ára, hin tvö eru iiíu ára tvíburár. — Hann var maður um hálffimmtugt. Lárus Jakobsson sjómaður, til heimilis í Flatey, um þrítugt. — Hann átti aldraða móður á lífi. Guðrún Einarsdóttir húsfreyja á Selskerjum í Múlasveit. Hún var á sextugsaldri. Með henni var önnur tveggjaí dætra, Hrefna, 26 ára. Guðmundur bóndi Páis- son óndi að Selskerjum lifir konu sína og dóttur ásamt yngri dóttur pinni. Óskar Arinbjarnarson, hrepp- stjóri að Eyri í Gufudalssveit var þriðji farþeginn. Var hann liðlega sextugur maður og lætur eftir sig konu og uppkomin börn. SOMU FRÁ REYKJAVfK Farþegarnir frír á bátnum litla munu hafa komið til Flateyjar héðan frá Reykjavík á fimmtu- daginn með bátnum Baldri. —• Á föstudaginn mun þau svo hafa ætlað að halda förinni áfram heim. — Óskar Arinbjarnarson hreppstjóri var að fara heim til sln, eftir að hafa fengið heim- íararleyfi af Vífilsstaðahæli. DJÚPBÁTURINN UKKI TILTÆKUR Á föstudagsmorguninn mun djúpbáturinn ekki hafa verið í Flatey og var þá litli báturinn fenginn til þess að flytja farþeg- ina og varning. Var báturinn ný- byggður, fjögra tonna, traustur bátur og góður. — Gestur Gísla- son formaður á bátnum var ann- álaður sjómaður og hafði hann verið með bátinn um nokkurt vikeið. Báturinn, sem hét Oddur, lagði af stað frá Flatey um klukkan 11 árd., en í góðu veðri er um tveggja klst. sigling frá Flatey til Svínaness. — En þennan dag var strekkingur af norðaustri. SÁST SÍÐAST FRÁ HVALLÁTRUM Frá Hvallátrum í Látralöndum ,sást til bátsins og mun hann þá hafa átt eftir 30—45 mín. sigl- ingu til lands. — Eftir það spurð- ist ekki til ferða hans og ekki vissu menn örlög bátsins fyrr en <á laugardagskvöldið, að úr hon- um tók að reka í Skáleyjalöndura. Er það álit kunnugra að bát- wrinn muni hafa farizt skömmu eftir að til hans sást frá Hval- látrum, en skammt fyrir innan, þar sem Straumsker heitir, er mikil röst og kröpp bára. LEITAÐ ÚR LOFTI í gærdag hafði ekki meira rekxð úr bátnum. — Slæmt veður var, en ákveðið er að fá Björn Páls- son til þess að leita hans á þeim slóðum, sem talið er að hann hafi farizt, en þar er grunn- sævi, strax og flugveður er. Viðskipíajöfnuður- inn óhagsfæðtir FYRSTU fimm mánuði ársins hefur vöruskiptajöfnuðurinn ver- ið óhagstæður um 63,7 millj. kr. Inn hefur verið flutt fyrir 398,8 millj., en út fyrir 335,1 millj. — í maí-mánuði einum var jöfnuð- urinn óhagstæður um 43,6 millj. Þá nam innflutningurinn 110,8 millj., en útflutningurinn 67,2 millj. í fyrra var vöruskiptajöfnuður- inn óhagstæður um 151,4 millj. fyrstu fimm mánuðina. Innflutn- ingur 359,4 millj. og útflutningur 208 millj. kr. Verkfall á ísflrikum síldveiðiskipom ÍSAFIRÐI, 28. júni: — í gær, sunnudag, kl. 12 á hádegi hófst verkfall á skipum þeim, sem fara munu á síldveiðar héðan frá Isa- firði í sumar. Eru það þrír bátar Samvinnufélagsins og tveir bátar h.f. Njarðar, samtals fimm skip. Það er Sjómannafélag ísfirð- inga, sem lýst hefir verkfallinu yfir. Hefir það krafizt hærri kaup tryggingar fyrir sjómenn hér en samdist um, þegar heildarsamn- ingar voru gerðir fyrir skömmu um kaup og kjör á síldveiðiflot- anum utan Vestfjarða. — Ekki mun hafa komið tíl verkfalls ann- ars staðar á Vestfjörðum, enda þótt samningar hafa ekki verið undírritaðir. — Einn bátur, Smári er farinn til síldveíða frá Hnífs- dal. Fór hann norður fyrir rúmri viku. í forföllum sáttasemjara hér á staðnum, hefir Friðrik Sig- urbjörnsson lögreglustjóri í Bolungarvík verið skipaður sáttasemjari. Hefir hann verið á stöðugum fundum með deilu aðilum undanfarið. — Jón Páll Sigurður Grínrsson form. leikdómendafélagsins afhendir Haraldl Björssyni „Silfurlampann". Sjá grein á bls. 7. — Ljósm.: Vignu. Um 900 mann á bókasýninpnni BÓKASÝNING íslenzkra fræða, sem Háskóli íslands efndi til í Þjóðminjasafnsbyggingunni í til- efni af 10 ára afmæli lýðveldisins lauk á sunnudagskvöld. Alls sóttu sýninguna 900 manns. — Bækur þær er voru á sýningunni eru jafnan aðgengilegar í Landsbóka safninu og Háskólabókasafninu. ferð n. k. flmmludag Nýlí sameignarféfag slofnað HVÖT, Sjálfstæðiskvennafélagið, efnir til skemmtiferðar n.k. fimmtudag. Farið verður um Hvalf jörð að Hreðavatni með við- komu í Borgarnesi. Á heimleið- inni verður farið um Uxahryggi og Þingvöll. — Hvöt hefur farið í þannig skemmtiferð árlega, og hefur ferðin ætíð verið hin ánægjuiegasta. Upplýsingar um ferðina gefa: Ásta Guðjónsdóttir, Bergstaða- stræti 19 (sími 4252), Verzl. Egill Jakobsen, Lóa Lúthersdóttir, Sörlaskjóli 90 (sími 7648), Dýr- leif Jónsdóttir, Freyjugötu 44, Guðrún Ólafsdóttir, Veghúsastíg 1A (5092) og María Maack, Þingholtsstræti 21 (4015). Norska fornleifafr* Chrisfie von hingað í þessari vik T SÍÐAST liðinni viku fóru nokkrir menn austur að Skálholti í Biskupstungum, til þess að undirþúa þar fornleifarannsóknir þær, sem þar munu eiga sér stað í sumar, er Hákon Christie nörski fornleifafræðingurinn kemur hingað til landsins, en hans er nú von í miðri þessari viku. REISA SKALA Forystumaður þessa hóps er Runólfur Þórarinsson cand. mag. og munu þeir félagar m. a. vinna að því að koma upp skála þar eystra fyrir þá starfsmenn, sem Fyrsta vííiv eitingaumsóknin frá IL B. BÆJARSTJORN Reykjavíkur og áfengisvarnanefndin hafa fengið til umsagnar fyrstu vín- veitingaleyfisumsóknina og er hún frá Hótel Borg. Nefndin hafði áður gengig úr skugga um, að Hótel Borg upp- fyllti þau skilyrði sem sett eru íil þess að teljast 1. flokks veit- íngahús, og þar með geta öðlast j éítindi til vínveitinga. Lög mæla ivo fyrir, að fyrrnefndir aðilar, bæjarstjórn Reykjavíkur og áfengisvarnanefnd Reykjavíkur skuli fjalla um vínveitingaleyfis- umsóknir. Tvo veitingastaði aðra telur veitingaleyfisnefnd fyrsta flokks að uppfylltum vissum skilyrðum, sem þeir hafa ekki enn sem kom- ið er uppfyllt, en það eru Sjálf- stæðishúsið og Þjóðleikhúskjall- arinn. hafast þar við sumarlangt, eða meðan rannsóknirnar standa yfir. DÓMKIRKJU GRUNNURINN Eins og fyrr er sagt kemur Hákon Christie hingað eftir nokkra daga. Er búizt við að forn- leifarannsóknirnar byrji fyrir al- vöru nú um mánaðamótin og standi yfir til hausts. Það sem aðallega verður rannsakað er hinn forni dómkirkjugrunnur í Skálholti og mun það eitt ærið verk. VINNUFLOKKUR AUSTUR Strax og Christie er hingað kominn mun hann halda austur að Skálholti. Þá verður einnig sendur héðan vinnuflokkur aust- ur, svo verkið geti hafizt sem fyrst, og mun hann starfa undir stjórn Christie. AÐALVERKTAKI, sameignarfélag’, heita samtök, sem fyrir nokkrum dögum hafa vsrið stofnuð í sambandi við framkvæmd- ir á vegum varnarliðsins hér á landi. Aðiljar að því eru þrir, Sameinaðir verktakar, sem eiga 50% stofnfjárins, Regin h.f. með 25% og íslenzka ríkið með 25%. — í stjórn félagsins eiga sæti fjórir menn, þeir Helgi Bergs verkfræðingur, Árni Snævarr veik- fræðingur, Halldór Jónsson arkitekt og Vilhjáímur Árnason lög- fræðingur. VERKEFN FÉLAG5INS t í gærkvöldi fór nefnd manna Formaður félagsstjórnarinnar fró félaginu áleiðis til New York er Hclgi Bergs. Spurði Mbl. hann tíl þess að semja um næstu fram- í gær, hvert væri aðalverkefni kvæmdir fyrir varnarliðið. félagsins. í------------------------- — Fyrst og fremst að taka við ‘r-i,-» | r 1 af Metcalfe Hamilton, sem aðal- iailaaniot brennur verktaki fyrir varnarliðið, segir j Helgi Bergs. En eins og kunnugt t er hefur ver íslenzkir verktakar skuli annast v ainaitxuiu, S.’m.-Síuiu borð í skipi irlrtalrar olrnlí onnoct . _ þessar framkvæmdir. Mun hið nýja félag semja um framkvæmd- irnar en síðan láta þær í ákvæð- isvinnu til annarra verktaka og. þá fyrst og fremst Sameinaðra verktaka. Félagið hefur hlotið viðurkenn- ingu íslenzku ríkisstjórnarinnar, sem einnig er aðili að því. III Ákureyrar AKUREYRI 28. júní. — Forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, og forsetafrú Dóra Þórhallsdót:- ir, komu í gær til Akureyrai í opinbera heimsókn. Kl. 2 síð- degis óku forsetahjónin gegnum bæinn, sem var fánum skreyttur. Síðan gengu þau til kirkju, ásamt bæjarstjórn og bæjarfógeta, en kl. 4 fór fram móttökuathöfn í lystigarði Akureyrar. Þar ávarp- aði Þorsteinn M. Jónsson forseli bæjarstjórnar, forseta og frú hans, en foi'seti flutti síðan ávarp. — Mikill mannfjöldi var saman kominn í lystigarðinum til þess að fagna forsetahjónunum, en veður var hi§ ákjósanlegasta. I gærkvöldi sátu forsstahjónin kvöldboð bæjarstjórnar Akur- eyrar að Hótel KEA. — H. Vald. SANDGEHÐI, 28. júní: — Lokið var að setjá síldarnótina út í véi- bátinn Mumma, er eldur kom upp í nótinni Síidarnótin eyðilagðist að mestu. Þá urðu lítilsháttar skemmdir á stýrishúsinu og borð- stokk bátsins bakborðsmeginn. —■ Mun þetta hafa í för með sér, a3 Mummi kemst ekki af stað norður á síldarvertið, fyrr en eftir tvo daga. Héðan fara á síld Hrönn og Mummi II og leggja báðir bát- arnir af stað norður í kvöld. Mikill afii er nú á trillubáta og aðra smábáta, sem eru á hand- færaveiðum og fiska ufsa. Er afl- inn fluttur héðan til Keflavíkur og Garðs, og er stykkið af ufsan- um keypt á sjö krónur. Kappdrætti Sjclfstæðisíldkksins 1892 DREGÍÐ var í gær í happ- drætti Sjálfstæðisflokksins. — Upp kom nr. 1892, en vinning- urinn er De Soto bifreið. —• Handhafi miðans framvisi honum í skrifstofu flokksins í Sjálfstæðishúsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.