Morgunblaðið - 27.08.1954, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.08.1954, Blaðsíða 1
41. árgangur. 194. tbl. — Föstudagur 27. ágúst 1954 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 103 dæmdir til dauða LONBON 26. ágúst. Moskva- útvarpið tilkynnti að 193 gagnbyltingarmenn héíðu verið dæmdir til dauð'a í Shensi-fylkinu í Kína. Menn þessir eru sakaðir um að hafa ætlað að fremja landráð og steypa stjóm Mao-Tse-tungs! Þeir voru og sekir um að breiða út falska orðróma. — Reuíer-NTB. EVANSTONE 27. ágúst. — For- maður í altieimssamtökum KFUM manna John S. Payton lézt í dag af hjartaslagi. Hann er skozkur maður og var 71 árs að aldri. — Reuter-NTB. Um leið og norsku Iistamennirnir stigu hér á land, hófust þeir handa við undirbúning norsku list- sýningarinnar. Hafa þeir verið önnum kafnir við að koma sýningunni fyrir í húsakynnum Listasafns ríkisins, en þar verður sýningin cpnuð á sunnudaginn kemur. Hér að ofan eru nokkrar myndir, teknar í gær, er listamennirnir voru við vinnu sína. — Á efstu myndinni eru þeir myndhöggvararnir, Stin- ius Frederiksen og Odd Hilt, þar sem þeir eru að ganga frá einni höggmyndlnni, en hún er eftir myndhöggvarann Kjeld Rasmussen. Miðmyndin er af málaranum Sigurd Winge, þar sem hann er að koma fyrir einni af svartlistarmyndum sínum. Á neðstu myndinni sjást þeir málararnir, Harald Dal og Reidar Aulie, vera að velja stað fyrir eina af myndnm þess fyrrnefnda. — Ljósm. Mbl.: Ól.K.M. Noíska listsýningin seif upp Stendur Evrópuherinn eíla fellur hann? Ti! tfðinda dregur í franska þinginu ^ Flakkadrættir og hótanir Paris 26. águst. — Fra NTB-Reuter. UTANRÍKiSRÁÐHERRA Belgíu Paal Henri Spaak gerði í dag síðustu tilraunina til að hindra að franska þingið vísaði á bug áætluninni um Evrópuherinn, en allt útlit er fyrir að sú tilraun hans verði árangurslaus. Spaak sendi Mendez-France bréf og atriði bréfsins voru til umræðu á ríkisstjórnarfundi í París í dag. ★ SAFNAÐ LIÐI I (íhaldsmaður), Raymond (hæg- Sérfræðin.gum ber saman um það, að áætlunin um Evrópuherinn verði felld í franska þinginu. Mikill áróð- ur er hafður í frammi innan þingveggjanna og utan. Með- mælendur og mótmælendur Evrópuhers reyna að vinna þá sem "reikulir eru á mein- ingunni, á sitt band. ★ 5 LÖND SAMMÁLA Góðir vinir forsætisráð- herrans hafa látið hafa eftir sér að hinar nýju miðlunar- tillögur Spaaks hafi ekki haft nein áhrif í samkomulagsátt. j Mikil leynd er um efni miðl- unartillögu Spaaks, en sagt er að öll löndin 5, er saman standa um Evrópuherssáttmál ann hafi samþykkt hana. Umræðan ' um sáttmálann hefst á laugardaginn. — Pinay f&ra hægri maður), Rene Meyer (radikali) og Bidault (kaþólski flokkurinn), hafa myndað eins- konar félag með sér til að reyna að koma því til leiðar að sátt- málinn verði samþykktur. Munu þeir mæla með samþykkt sátt- málans til reynslu — þannig að hægt sé að segja honum upp eftir vissan tíma og æskja breytinga. ★ HÓTANIR Alþýðuflokksmenn eru skipt ir hvað skoðun snertir. Flokks- stjórnin hefur sent ákveðin boð til þingmanna sinna um að greiða atkvæði með samningn- um, og er þeim ýmsu hótað, ef þeir ekki gera svo. Er hótun þess ari einkum þeint til þeirra 59 þingmanna — af 104 þingmönn- um flokksins — sem tilkynnt hafa að þeir séu mótfallnir Evrópuher. Viet-minh kommúnistum hugnast illa að skyndi- legri innrás Kínverja Saigon 26. ágúst. Einkaskeyti frá NTB. BARDAGAR hafa brotizt út á nokkrum stöðum á Rauðárslétt- unni milli indó-kínverskra kommúnista og imirásarsveita kín- verskra kommúnista, sem nú hafa sótt suður á bóginn í fyrstu með samþykki Ho Chi Minhs, en nú er talið að vera þessara kín- versku hersveita vekji upp mikla mótspyrnu landsmanna. BARDAGAR SJÁST ÚR LOFTI Flóttamenn frá svæðunum um- hverfis Hanoi hafa borið fregnir af þessari úlfúð milli innfæddra sveita Viet-Minh manna og inn- rásarsveita Kínverja. Fregnir' þessar eru einnig staðfestar af flugmönnum, er flogið hafa yfir svæðið. Segja þeir að augljóst sé að bardagar standi yfir við borgirnar Phu Ly og Nam Dinh. j Hafa þeir séð að liðssveitir hafa1 tekið sér stöðu og grafið skot- grafir og lítil varnarvirki á þessu svæði. ÓHUGUR VEGNA ÍHLUTUNAR KÍNVERJA Það er talið að Ho Chi-minh og stjórn kommúnísku uppreisn- Viet-minh menn einkum að Kín- verjar ætli að verða fyrri til að taka höfuðbccgina Hanoi, þegar Frakkar yfirgefa hana. Friðsamleg nofkun kjarnorku © WASHINGTON, 26. ágúst — Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins lýsti því yfir í dag, að Bandaríkin væru'nú að ræða við bandamenn sína, um hvernig nota mætti kjarnorkuna á friðar- tímum. # Talsmaðurinn sagði ennfrem- ur að aldrei hefði borizt svar frá armannanna séu mjög áhyggju- j Rússum við tillögum Eisenhow- fullir yfir þessari skyndilegu ers forseta, um alþjóðanotkun íhlutun Kínverja. Kínverskt lið, kjarnorku í þágu friðarins, en mun hafa verið á Rauðárslétt- j þessi uppástunga var fyrst kunn- unni áður, en eftir að vopnahlé gerð er hún var tekin fyrir á var samið hafa margir kínversk-, þingi Sameinuðu þjóðanna í ir herflokkar bætzt við. Óttast 1 fyrra. — Reuter-NTB. > ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.