Morgunblaðið - 27.08.1954, Síða 12

Morgunblaðið - 27.08.1954, Síða 12
12 MORGVNBLAÐIÐ 1 Föstudagur 27. ágúst 1954 — Mlnning Héltn- iríðar Þorláksd. Frh. af bls. 7. í HÚSINU Bergstaðastræti 3 hér í bæ, er húsfreyjan, Hólm- fríður Þorláksdóttir, áttræð í dag. Hún hefir búið í þessu húsi í hálfa öld með mönnum sínum, Ásgrími Magnússyni, skólastjóra og ísleifi Jónssyni, skólastjóra og sjúkrasamlagsgjaldkera, en þeir eru nú báðir látnir. Fyrri mann sinn missti hún 1912 og hinn síð- ari fyrir nokkrum árum. í húsi frú Hólmfríðar hefur V.erið unnið merkt brautryðj- endastarf á sviði menningar og félagsmála og tók hún þátt í því afj lífi og sál með mönnum sín- um. Það er engin tilviljun að hún giftist ung kennara og nokkrum árum eftir lát hans öðrum kennara, og það er heldur engin tilviljun að hún hélt einka- skóla með mönnum sínum hátt á þriðja tug ára. Því að hugur hennar hefur frá blautu barns- beini staðið til lærdóms og and- legs þroska og hún heldur dauðahaldi í þá trú á lífið, að því betur sem menn viti því bet- ur vilji þeir og vinni, eða ættu a.m.k. að gera. Að hennar dómi eiga þeir mikla skuld að gjalda við lífið, sem eru svo lánsamir að fá tækifæri til menntunar. Þeg- ar hún var ung stúlka að Snart- arstöðum í Núpasveit stóð hugur hennar allur til mennta og henni auðnaðist að afla sér góðrar menntunar og fræðast um margt. En það var henni eigi nóg, það urðu fleiri, helzt allir, að njóta hins góða hlutskiptis. Og þess vegna var skólinn að Bergstaða- stræti 3 stofnaður og haldinn. í þá daga átti fátækt og fróðleiks- þyrst æskufólk þess lítinn kost §ð afla sér framhaldsmenntunar og greip því feginshendi tæki- færið er þau Ásgrímur og Hólm- fríður stofnuðu skóla sinn, enda vönduðu þau til kennslu og kenn- araliðs. Úr skóla þeirra braut- skráðust margir með þakklátum huga til þeirra, sem fórnuðu krÖftum sínum og fjármunum til þess að fræða þá undir þaki sínu. Mér er kunnugt um að frú Hólm- fríður minnist samstarfsins við báða eiginmenn sína að skóla- málunum með einlægri gleði, sem aldrei verður frá henni tek- in. Margir nemendur úr þessum skðla eru fyrir löngu orðnir þióðkunnir menntamenn og á- hrifamenn í þjóðfélaginu og þeim er sumum fullljóst að Lýð- skólinn að Bergstaðastræti 3 opnaði þeim leið til mennta, sem án hans hefði verið lokuð á þeirri tíð. Er ekki að efa að þeir hugsi með hlýju og þakklæti til frú Hólmfríðar Þorláksdóttur í dag, og til látinna eiginmanna hennar, sem báðir voru mætir og merkir menn. Auk brautryðjendastarfs í skólamálum var brautin rudd í húsi frú Hólmfríðar í mannúðar- máli, sem einnig hefur nú verið borið fram til sigurs eins og skólamálin, og á ég þar við, að Sjúkrasamlag Reykjavíkur starf- aði þar lengi áður en ríkið tók Sjúkratryg: ingar í sínar hendur. Hólmfríður Þorláksdóttir er minnisstæð kona, skarpleg og skörp, ræðin og reynd. Hún er trygglynd og hjálpsöm að eðlis- fari og gerir aldrei neiít til hálfs. Gestrisin er hún með afbrigðum og hefur ekki aðeins boðið vini sína velkomna í hús sitt heldur og skotið skjólshúsi yfir þau mál- efni, sem henni hafa, verið hjart- fólgin. Þess mættu nú margir minnast, sem hafa notið góðs áf hennar hálfu. Ég er einn beirra og margir með mér. Og ég þakka henni fyrir samstarf að sameig- inlegum áhugamálum, þakka hverja stund í húsi hennar og óhvikula vináttu frá því að fund- um okkar bar fyrst saman. Og síðast allra orða bið ég henni blessunar í dag og alla daga. Emil Björnsson. Fræpr maður látinn WASHINGTON 26. ágúst. — Hinn frægi bandaríski orustu- flugmaður kapteinn McCannel, er skaut niður 16 MIG—15 vélar í Kóreustríðinu beið bana í dag, er hann var í tilraunaflugi með nýja gerð af Sapre-þrýstilofts- flugvélum. — Reuter. un l!l ágéla fyrir fátæka berkla- sjúklinga FÉLAGIÐ Berklavörn í Reykja- vík heldur útiskemmtanir í Tívolí næstkomandi laugardag og sunnu dag ef veður leyfir. Til skemmt- ananna verður mjög vel vandað og koma fram fjölmargir lista- menn m. a. Emilía Jónasdóttir, Áróra Ilalldórsdóttir, Nína Sveinsdóttir, Sigfús Halldórsson, Gestur Þorgrímsson, Anný Ól- afsdóttir, Svavar Benediktsson, Baldur og Konni, Alfreð Clausen og Ólafur Magnússon. Dansað verður á upplýstum palli bæði kvöldin og leikur Tríó Jenna Jónssonar fyrir dans- inum. j Fyrirhugað er að hafa sér- staka barnaskemmtun á sunnu- dag. Öllum ágóða af skemmtun- um þessum verður varið til styrktar fátækum berklasjúk- lingum og fjölskyldum þeirra. Framh. af bls. 8 sambandsins, dr. Bauwens, dr. Xandry, framkvæmdárstjóra DFB, dr. Erbach, Geilenberg, Gustav Schönfeldt og öðrum vin- um mínum í Þýzkalandi, sem á- .vallt eru reiðubúnir til þess að styðja og efla þessa samvinnu á sviði knattspyrnunnar. — Hefur okkur ávallt verið tekið af mik- illi vinsemd og höfðingsskap — en gestrisni Þjóðverja er óvið- jafnanleg. — Á þessum nærri tuttugu árum hefur margt breytzt í Þýzkalandi — en gest- risni þeirra, trygglyndi og vin- átta í okkar garð, er ávallt hin sama. — Naufgrfparækfin Framh. af bls. 9 íslenzk kýr er nú skepna, sem gefur tiltölulega mikið af sér, og að miklu leyti er þessi breyt- ing Búnaðarfélagi íslands að þakka. Ávallt síðan 1925 hefir það beitt sér fyrir kappsamlegri viðleitni bændanna til þess að efla mjólkurframleiðsluna og að gera hverja kú sem nythæsta. Þessi áróður hefir borið góðan árangur, að því er mjólkurmagn- ið varðar, en kynbæturnar stefndu að því einu, að nythæðin yrði sem mest, og nú er ekki hikað við að viðurkenna það, að bændur lögðu of litla áherzlu á hitt að kúakynið yrði sem fegurst sem bezt að sköpulagi og sem hraustast. Nú má sjá hér afleið- ingarnar. Hér eru kýr, sem til þess eru gerðar að mjólka vel, en hafa of veikbyggða beinagrind og skrokk, til þess að þola þá áreynslu, sem þetta hefir í för með sér. Framh. af bls. 9 lagðir, hægri fótur yfir þann vinstri. Þannig er það ekki margt merkra muna, sem upp hefur komið. Biskupar húmanista-ald- arinnar hafa ekki talið nauðsyn- legt að taka gullbauga og virð- ingartákn með sér í gröfina. ★ GRÖF BRYNJÓLFS BISKUPS EKKI ROFIN AÐ SINNI Hér hefur eingöngu verið um að ræða uppgröft á leifum síð- ustu þriggja alda. Hinsvegar varð allt annað uppi strax og tekið var til að grafa utan við grunn dómkirkju Brynjólfs, í grunni miðaldakirkjunnar. Þar komu menn niður á hina merku steinkistu Páls biskups, sem enn býr yfir leyndum dómum með- an hún hefur ekki verið opnuð. Og að þessu sinni fæst ekki held- ur vitneskja um það hvort bib- líuþýðing Jóns biskups Arasonar hvilir á brjósti Brynjólfs bisk- ups Sveinssonar. Hann liggur utan kirkjugrunnsins og verður legstað hans ekki raskað að þessu sinni. En þar er jarðvegur hvað þurrastur í kirkjugarðinum og mætti því vænta að þær leifar hefðu geymst betur en þessar, sem nú hafa verið upp grafnar. Þ. Th. — Minning Framh. af bls. 7 af munni fram svO að segja. Hann var fyndinn og gamansam- ur og hnyttinn í svörum, hafði gaman af öllu skoplegu. Mun og stundum hafa komið fyrir að undan sviði vísum hans og til- svörum, og að hann væri grun- aður um græsku. En oftast held ég að gleðin og gamanið hafi orð- ið ofan á, fljótlega komist sættir á, og allt endað í spaugi og hlátri. Þorsteinn fékkst talsvert við leililist, einkum á yngri árum og hafði góða leikarahæfileika. Hefði hann vafalaust getað kom- ist langt í þeirri grein og orðið leikari góður, ef hann hefði átt þess kost að nema og stunda leik- list. Hann stjórnaði oft leiksýn- ingum bæði innan félaga og skóla, er voru hin bezta skemmt- un og þóttu takast vel. Þorsteinn var mjög greiðvik- inn maður og bóngóður og vin- ur vina sinna, er hann tók á annað borð tryggð við. Hann var vel lagtækur og stundaði oft á sumrum ýms iðnaðarstörf svo sem húsamálningu og fleira og var gott til hans að leita Og á heimili sínu lagfærði hann, gerði við og dyttaði að öllu sjálfur, hjálpaði til við heimilisstörf og barnagæzlu, ef svo bar undir, t. d. í veikindum og var góður eig- inmaður og mjög umhyggjusam- ur faðir. Ég vil að lokum þakka þér, Þorsteinn, fyrir löng og góð kynni og samstörf, þakka þér fyrir margan greiða, hjálpsemi og vinsemd við mig og móður mína, þakka fyrir marga glaða stund og smellna vísu og sam- eiginlegar kvæðaglettur. Bið ég guð að gleðja sál þína á hinu nýja, óþekkta landi, sem þú nú ert fluttur til. Ástvinum þínum, sem nú syrgja góðan maka og ástríkan föður og afa, votta ég innilega samúð og bið þeim allr- ar blessunar. Margíét Jónsdóttir. Átthagafélag Sandara I ■ ■ . Lagt verður af stað í fyrirhugaða berjaferð á sunnu- ; ■ dagsmorgun n. k. kl. 9 frá Varðarhúsinu. i m Tilkynnið þátttöku yðar ekki síðar en fyrir kl. 10 í « kvöld í símurn 7194, 5213 og 80932. ■ ■ Fjölmennið. i UU" Stjórnin. ■ ■ ■■■ ■ ■ ■■■■■ ■ ■'■■■'■■ ■ ■'m Söngstjóri Jón Þórarinsson. amsöngur í Austurbæjarbíó mánudaginn 30. ágúst klukkan 7,15 Einsöngvari: Kristinn Hallsson Undirkikari: Carl Billich. Aðgöngumiðar seldir hjá Eymundsson og Lárusi Blöndal. Gömlu dansarnir REIflflRÐINGAMá í kvöld klukkan 9. Hijómsveit Svavars Gests. Dansstjóri Baldur Gunnarsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. Félagsgarður í Kjós Bögglauppboð og dans laugardaginn 28. ágúst. — Ferð frá Ferðaskrifstof- unni klukkan 9. Kvenfélag Kjósarhrepps. Notið KIWI -skóáburð KIWI og gljáinn á skónum verður bjartari, og dýpri Kíwiáburðurinn er framleiddur úr úrvals vaxefnum og ósvikn- um Sútaralitum. Þetta er megin orsök þess, hversu djúpur og lang- varandi Kiwigljáinn er og enn fremur skýrir þetta hin óvenjulegu gæði Kiwi, þegar um er að ræða að verja skóna og viðhalda þeim.Reynið eina Kiwi dós í dag. Skórnir munu verða snyrti- legri og þeir munu endast betur. Gæðin ern á heimsmæli- kvarða. — Fæst í 10 Iitum. Aðalnmboðsmenn á íslandi: O. JOHNSON & KAABER hj. Hafnarf jörður Hafnarf jörður | Berjaferð | ... I Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði efna til berjaferðat n. k. ;3 sunnudag. — Allar nánari uppl. verða veittar í skrif- stofu flokksins í Sjálfstæðishúsinu. Sími 9228. Þátttaka verður að tilkynnast í dag kl. 2—10. Sjálfstæðisfélögin. - AUGLYSING ER GULLS ÍGUDI -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.