Morgunblaðið - 01.09.1954, Blaðsíða 4
p
MORGUNBLAÐID
Miðvikudagur 1. sept 1954
( 4
í dag er 244. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 8,27.
Síðdegisflæði kl. 20,37.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
anni, sími 5030.
Apótek: Næturvörður frá kl. 6
ier í Laugavegs Apóteki, sími 1618.
Ennfremur eru Holts Apótek og
Apótek Austurbæjar opin daglega
til kl. 8, nema laugardaga til kl. 4
RMR — Föstud. 3.9.20. — VS
— Fr. — Hvb.
D
ag
bók
I.O.O.F.7=137918i/2=
-□
• Veðrið .
I gær var austlæg átt um allt
land og sums staðar rigning.
1 Reykjavík var hiti 13 stig kl.
15,00, 12 stig á Akureyri, 8 stig á
■Galtarvita og 9 stig á Dalatanga.
Mestur hiti hér á landi í gær kl.
15,00 mældist í Reykjavík og á
Síðumúla, 13 stig, og minnstur 8
stig, á Galtarvita.
1 London var hiti 20 stig um
ihádegi, 17 stig í Höfn, 26 stig í
Paris, 19 stig í Berlín, 16 stig í
Osló, 16 stig í Stokkhólmi, 12 stig
í Þórshöfn og 17 stig í New York.
U----------------------□
• Afmæli •
Fimmtug er í dag Þuríður
Guðnadóttir Ijósmóðir, Kirkju-
braut 32, Akranesi.
Guðjón Hróbjartsson, Hafnar-
Rötu 66, Keflavík, verður 80 ára
•á morgun, 2. sept.
• Bruðkaup •
Síðast liðinn laugardag voru
-ígefin saman i hjónaband af séra
Árelíusi Níelssyni ungfrú Guðlaug
Jónsdóttir og Sigurbjörn Eiríksson
Jcennari, Drekavogi 8.
Sama dag voru einnig gefin
saman af séra Árelíusi Níelsyni
ungfrú Unnur Tetsnow og Bald-
vin Einar Skúlason járnsmiður,
Digranesvegi 24.
Gefin voru saman í hjónaband
jtriðjudaginn 31. þ. m. Sesselja H.
Eggertsdóttir, Súluvöllum, og Ósk-
ar'Long hreppstjóri, Ósum, Vatns-
nesi, V.-Hún.
Flugferðir
MILLILANDAFLUG:
LoftleiSir h.f.:
Edda, miililandaflugvél Loft-
leiða, er væntanleg til Reykjavík-
ur kl. 8,00 árdegis í dag frá New
York. Flugvélin fer kl. 10,00 til
Stafangurs, Oslóar, Kaupmanna-
hafnar og Hamborgar.
Pan American:
Flugvél frá Pan Ameriean er
væntanleg frá New York í fyrra-
málið kl. 9,30 til Keflavíkur og
heldur áfram eftir skamma við-
dvöl til Osló, Stokkhólms og Hel-
sinki.
Flugfélag fslands h.f.:
Millilandaflugvélin Gullfaxi er -
væntanleg til Rvíkur kl. 23,46
i kvöld frá Hamborg og Kaup-
mannahöfn. Flugvélin fer héðan .
aftur kl. 1,00 til Hamborgar og
Kaupmannahafnar. |
í
Innanlandtflug: 1 dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Hellu, Hornafjarðar, ísa-
fjarðar, Sands, Sigluf.jarðar, Vest-
mannaeyja (2 ferðir).
• Skipafiéttir •
SkipaútgerS ríkisins:
Hekla er í Bergen, Esja kom til
Reykjavíkur í nótt að vestan úr
hringferð. Herðubreið fór frá
Reykjavík í gærkvöldi austur um
land til Raufarhafnar. Skjaldbreið
var á Akureyri í gærkvöldi. Þyrill
var á Húsavík í gærkvöldi. Skaft-
fellingur fór frá Reykjavík í gær
til Vestmannaeyja.
Skipadcild S.Í.S.:
Hvassafell lestar í Rostock. Arn-
arfell lestar í Hamina. Jökulfell er
væntanlegt til Reykjavíkur á
morgun. Dísarfell er í Reykjavík.
Bláfell er í flutningum milli Þýzka
lands og Danmerkur. Litlafell er í
Reykjavík. Jan er í Reykjavík.
Nyco er í Keflavík. Tovelil er í
Keflavík. Bestum fór frá Stettin
27. þ. m. áleiðis til Islands.
Sameinuða:
Dronning Alexandrine kom til
Kaupmannahafnar kl. 6 í gær-
morgun. 1 september fer skipið
beint til Grænlands frá Kaup-
mannahöfn. Þann 9. okt. verður
næsta ferð Dronning Alexandrine
frá Kaupmannahöfn til Reykja-
víkur.
Tvær afgreiðslustúlkur
vantar í veiíingastofu í Keflavík.
Húsnæði fylgir. — Hátt kaup.
Upplýsingar í síma 1224.
STOHKUHIRJN
Tækifæriskjólar nýkomnir, — enn fremur glæsilegt
úrval af ungbarnafatnaði.
STORKURINN
Grettisgötu 3 — sími 80989.
2Ja—3|a ára
fyrirframgreiðsSa
Oska eftir 2—3 herbergjum og eldhúsi nú þegar.
2—J ára sanngjörn fyrirframgreiðsla.
Uppl. í síma 80277, eftir kl/ 2.
•onmjúúaúúú*
Richard Beck prófessor
og' frú
komu til Reykjavikur flugleiðis
frá Kaupmannahöfn á mánudags-
kvöldið og dveljast hér til næsta
mánudags (-6. sept.), er þau fljúga
heimleiðis, vestur um haf. Þau
búa á Hótel Garði.
Listasafn Einars Jónssonar
er nú opið aðeins á sunnudög-
um kl. 13,30—15,30.
Minnigarspjöld
Kvenfélags Neskirkju
fást á eftirtöldum stöðum: Búð-
inni minni, Víðimel, verzl. Hjart-
ar Nielsen, Templarasundi, verzl-
un Stefáns Árnasonar, Gríms-
staðaholti, og í Mýrarhúsaskóla.
• Blöð og tímarit •
Stefnir, tímarit Sjálfstæðis-
manna, er nýkomið út, fyrsta hefti
5. árgangs. Er tímaritið skemmti-
legt og fræðandi að vanda. Meðal
greinarhöfunda má nefna Magnús
Jónsson alþingismann, sem ritar
erlent stjórnmálayfirlit. Smásaga
er í tímarítinu eftir Braga Hann-
esson, Matthías Jóhannessen ritar
grein, sem hann nefnir Uglur í
mosanum. Ásbjörn Magnússon,
forstjóri Orlofs, skrifar athyglis-
verða grein um ferðamál. Auk
þessa eru í tímaritinu greinar um
stjórnmál o. fl.
TímaritiS Samtíðin, september-
heftið er komið út og flytur m. a.
þetta efni: Lyftir klæðnaðurinn
konunum til valda? (forustugtein).
Maður og kona (ástarjátningar).
Kvennaþættir (tízkunýjungar og
vandamál kvenþjóðarinnar) eftir
Freyju. Vísur eftir Hreiðar E.
Geirdal. Sagan af Möggu í hlöð-
unni (framhaldssaga). Florence
Nightingale (æviágrip). Reimleik-
ar (smásaga). Bruninn í Árna-
safni 1728 eftir Gils Guðmundsson.
Bridgeþáttur eftir Árna M. Jóns-
son. Vargur í véum (ritfregn).
Hvernig er það með sjálfstraust
þitt? Orsakar áfengi krabbamein?
Skopsögur. Þeir vitru sögðu. Gam-
an og alvara o. m. fl.
Sólheimadrenffurinn.
Afhent Morgunblaðinu: N. N.
50,00; Ingimar 100,00; D. 50,00.
Lamaði íþróttamaðurinn.
| Afhent Morgunblaðinu: í. S.
^ 100 krónur.
Til fólksins, sem hrann hjá
í Laugarnesi:
I Afhent Morgunblaðinu: Gömul
kona 50 krónur.
!
Drekkið síðdegiskaffið
í Sjálfstæðishúsinu!
Notið sjóinn og sólskinið!
Sjálfstæðishúsið er opið
í kvöld.
Málfundafélagið Óðinn.
Skrifstofa félagsins í Sjálfstæð
ishusinu er opin á föstudagskvöld-
um frá kl. 8—10. Sími 7104. —
Gjaldkeri tekur þar við ársgjöM
um félagsmanna, og stjóm félags
ins er þar til viðtals við félags
menn.
Þjóðminjasafnið
er opið sunnudaga ki. 1—4 og
þriðjudaga, fimmtudaga og laug-
»rdaga kl. 1—3.
Frá Bæjarbókasafni
Reykjavíkur.
Útlán virka daga er frá kl. 2—
10 e. h. Laugardaga kl. 1—4. Les-
stofan er opin virka daga kl. 10—
12 og 1—10. Laugardaga kl. 10
-12 og 1—4. Lokað á sunnudög-
um yfir sumarmánuðina.
• Gengisskráning •
(Sölugengi):
1 sterlingspund ..... kr. 45,70
1 bándarískur dollar .. — 16,32
1 Kanada-dollar .......— 16,90
100 danskar krónur .. — 236,30
100 r.orskar krónur .. — 228,50
100 sænskar krónur .. — 315,50
100 finnsk mörk ...... — 7.09
1000 franskir frankar . — 46,63
100 belgiskir frankar . — 32,67
100 svissn. frankar .. — 374,50
100 gyllini ...........— 430,35
100 tékkneskar kr....— 226,67
100 vestur-þýzk mörk . — 390,65
1000 lírur............ — 26,12
GuIIverS íslenzkrar krónu:
100 gullkrónur jafngilda 738,9l
pappírskrónum.
• Söfnin •
Listasafn ríkisins
er lokað um óákveðinn tíma.
Hvað kostar undir bréfin?
Einföld flugpóstbréf (20 gr.);
Danmörk, Noregur, Svíþjóð kr
2,05; Finnland kr. 2,60; Englanc
og N.-lrland kr. 2,45; Austurríki,
Þýzkaland, Frakkland og Sviss kr,
3,00; Rússland, Italía, Spánn og
Júgóslavía kr. 3,25. — Bandaríkin
(10 gr.) kr.í 3,15; Canada (10 gr.)]
kr. 3,35. — Sjópóstur til Norður-
landa (20 gr.) kr. 1,25 og til amn
arra landa kr. 1,75.
• Útvarp •
19,00 Tómstundaþáttur barna'
og unglinga (Jón Pálsson). 19,30
Tónleikar: Óperulög (plötur).
20,20 Útvarpssagan: Þættir úr
„Ofurefli" eftir Einar H. Kvaran;
IV. (Helgi Hjörvar). 20,50 Léttir
tónar. — Jónas Jónasson sér um
þáttinn. 21,35 Erindi: Sumardag-
ar í æsku minni, — hugleiðingar
eftir Sigurd Madslund (Karl ls-
feld rithöfundur flytur). 22,10
„Hún og hann“, saga eftir Jean
Duché; VIII. (Gestur Þorgrímsson
les). 22,25 Kammertónleikar
(plötur): a) Kvartett í G-dúr op.
76 nr. 1 eftir Haydn (Búdapest-
kvartettinn leikur). b) Tríó í c-
moll op. 9 nr. 3 eftir Beethoven
(Briisseltríóið leikur). 23,05 Dag-
skrárlok.
Bílskiér
Bílskúr óskast til leigu á
góðum stað nálægt miðhæn-
um. Tilboð sendist Mbl. fyr--
ir laugardag, merkt: „Raf
lýstur — 188“.
BEZT AÐ AUGLfSA
/ MOHGUNBLAÐim
II. vélstjóra og háseta
vantar á reknetjabát frá Reykiavík
nú þegar.
Uppl. í Fiskiðjuveri ríkisins.
I
■
■■«
Takið eftir
8 tonna vélbátur
með 40 ha. nýrri dieselvél er til sölu.
Veiðarfæri fylgja. — Uppl. í síma 82054 eða 6372. Í
i. ■ >f.
HEBCEDES - BENZ
DIESEL
Betri ending — Minni eyðsla
5 tonna bifreið
Verð aðeins kr.: 75 þúsund.
BÆSMB H.F.
B.UKMY