Morgunblaðið - 01.09.1954, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 1. sept. 1954
Nauðsynlegar öllum
vélaverkstæðum
BAHCO Minor.
Nr 1731 (mm).
Nr 1733 (tum)
bifreiða-lyklar
eins og öll BAHCO-verkfæri, eru gerðir úr bezta
stáli sem þekkist og af óskeikulli nákvæmni. Þeir
endast betur en aðrir lyklar.
Það er reynslan á íslandi, sem annarsstaðar.
BAHCO Scxtett
Nr 1771 (mm)
Nr 1773 (tum)
heimsfrægu verkfæri eru búin til af
A/B. B. A. HJORTH & CO. STOCKHOLM
Umboðsmenn á Islandi:
Þórður Sveinsson & Co. h-f.
Reykjavík.
BAHCO |
Nr 1721 (mm)
Nr 1723 (tum)
BAHCO ^
Nr 1711 (mm)
Nr 1713 (tum)
BAHCO UL
BAHCO PS
BAHCOL
BAHCO PK
ItfCO ^
BAHCO
Nr 1701 (mm)
Nr 1703 (tum)
BAHCO 31
, UAHCL- mmsmsmi (
BAHCO UV
Framtíðar-
atvinna
Duglegur maður getur fengið fasta at-
vinnu í gúmmíverksmiðju minni strax.
Uppl. hjá verkstjóranum.
Pétur Snæland h.f.
Vesturgötu 71.
Maður
milli fertugs og fimmtugs, óskast til hreinlegrar
innivinnu. — Framtíðaratvinna.
Harðfisksalan
Sími 3448.
ÖTSALA
Útsala hefst í dag til að rýma fyrir
nýjum vörum.
Komið og gerið góð kaup.
(Beint á mpti Austurbæjarbíói)
Kaupmenn
Kaupfélög
Höfum nú aftur hin margeftirspurðu ódýru
BARNATEPPI
í sex munstrum í bláum og bleikum lit
Stærð 70 cm x 90 cm.
Páll Jóh. Þorleifsson,
Umboðs- & heildverzlun
Hverfisgötu 37 — Sími 5416
UllllUII
juornouui
SKÁKSAMBANDINU berast enn
þá góðar gjafir. Nemur nú söfn-
unin um 75 þús. kr. Eftirtaldar
gjafir hafa sambandinu borizt að
undanförnu:
N. N. áheit 10,00, Bólstruð hús-
gögn h.f. í Reykjavík 100,00,
Nokkrir áhugamenn í Dalvík
500,00, Nokkrir Siglfirðingar
1400,00, Dagblaðinu Vísi í Reykja
vík bárust 350.00, Frá Reykja-
lundi (sent dagblaðinu Þjóðvilj-
inn) 330,00, Dagblaðinu Tíminn
hafði borizt 1.150,00, Bílstjórar á
Nýju Sendibílastöðinni gáfu
260,00 (safnað af Kristjáni Sylv-
eríussyni), Starfsmenn Lands-
smiðjunnar (viðbót) 465,00,
Starfsfólk á vinnustofum Hús-
gagnaverzlunar Reykjavíkur 120,
00, Bílstjórar á Vörubílastöðinni
Þróttur í Reykjavík 465,00, Starfs
menn Sameinaðra verktaka á
Kefiavíkurflugvelli 1630,00,
Starfsmenn Almenna bygginga-
félagsins í Reykjavík 100,00 og
frá ónefndu félagi 1000,00 (áður
hefur verið birt 1500,00 frá þess-
um gefendum), Safnað á Kefla-
víkurflugvelli af Ólafi Hallgríms
syni, Jóhanni Lárusi Jónassyni
og Braga Hanssyni 1000,00, Finn-
bogi Kristjánsson, Hvammi 50,00,
Starfsfólk Sundhallar Reykjavík-
ur og Bæj arþvottahússins (við-
bót) 175,00.
Stormar og blíða —
eldur og ís —
ástir og hryggð.
Nokkur orð um
söngskemmtun
Söru Leander
TIL ÞESS að bregða vana mín-
um, labbaði ég mig inn í Aust-
urbæjarbíó í gærkv.ld (fimmtu
dag 27. ág.) að hlusta á sjálfa
Söru Leander koma fram í eigin
persónu. Það rifjaðist upp fyrir
mér, að fyrir nokkrum árum
sá ég, kvikmynd sem hét
ÁSTIR TÓNSKÁLDSINS,
en þar lék umrædd kona og söng
aðalhlutverk. Þá rifjaðist það
upp fyrir mér, að um þær mund-
ir og lengi eftir á nefndu menn
almennt nafn Tsaskovsky’s Og
Söru Leander með sérstakri
lotningu. Þau saman snertu lífs-
púisinn — okkar íshafsþjóðarinn-
ar, eins og sólarinnar, þegar hún
skín norðlægum jarðarbúum
fyrst eftir langa skammdegisnótt.
Ég viðurkenni það fúslega að
ég sárkveið því að Sara Leander
brygðist von minni í Austurbæj-
arbíói frá því sem var. (Maður
er alltaf tortryggingg á töframátt
filmunnar) En hún koni, við sá-
um og hún sigraði. Ekki aðeins
einu sinni: heldur mörgum
sinnum.
Það er engin góðgerðarstarf-
semi að fara á konserta — ekki
einu sinni þótt S.Í.B.S. eigi í hlut
— en ég er í góðri trú um það,
að öllum sé greiði gerður með
því að hvetja þá til þess að
hlýða á söng þessarar konu og fé-
laga hennar — strax í dag. List
hennar verður eigi skilgreind hér
frekar — því hvers virði eru fá-
nýt orð —
Það er aðeins hægt að hlusta,
njóta og vera til. — Hún býr yfir
þeim mætti sem engin orð fá lýst.
Hlustandi.