Morgunblaðið - 31.10.1954, Síða 16

Morgunblaðið - 31.10.1954, Síða 16
Veðurúflii í dag: A og NA-kaldi. — Hiti um frostmark. Reykiatfíisr&fél er á l»to. I Virðnleg minningarathöfn um Einar Jónsson myndhöggvara AÐ TILHLUTUN ríkisstjórnar íslands fór í gær fram minningar- athöfn um próf. Einar Jónsson myndhöggvara. Hófst hún í Dómkirkjunni kl. 2 e. h. Var kirkjan troðfull út úr dyrum. Dr. Páll ísólfsson lék forspil, fantasíu í C-moll eftir Bach. Þá söng dómkirkjukórinn sálminn „Vakna, Zions verði kalla“. Næst söng kórinn „Vertu guð faðir, faðir minn“. Þá flutti Asmundur Guðmundsson biskup, minningar- ræðu um Einar Jónsson. Kvað bann listamanninn hafa verið eitt mesta skáld þjóðar sinnar. En hann hefði ekki orkt rímað mál, heldur mótað ljóð sín í stein. Verk Einars Jónssonar myndu um allar aldir halda uppi minn- ingu hans meðal íslenzku þjóðar- innar. Þá lék Björn Ólafsson fiðlu- leikari, „Maríubæn", lag dr. Páls Isólfssonar við ljóð Davíðs fré Fagraskógi, en Páll ísólfsson lék „Pílagrímskórinn“ eftir Wagner. Þá var sunginn sálmurinn „Lofið vorn drottinn“ og loks þjóðsöng- urinn. Að síðustu var leikið sorgargöngulag eftir Handel. VIRÐULEG ATHÖFN Minningarathöfnin fór í öllu hið virðulegasta fram. Meðal við- staddra voru forsetahjónin, flest- ir ráðherrar með konum sínum, sendiherrar erlendra ríkja, for- setar Alþingis og margir alþingis- menn. isl. flugflotanum bætist ný Skymaster-flugvél Kaupves&ið er 5—6 miíljénir króna EINS OG skýrt var frá í fréttum á dögunum fékk Flugfélag ís- lands heimild ríkisstjórnarinnar til að festa kaup á nýrri Skymasterflugvél erlendis. í fyrradag undirritaði Örn Ó. Johnson, framkvæmdastjóri, kaupsamning í Kaupmannahöfn við Fred Olsen útgerðarmann í Noregi. Kaupverð vélarinnar mun vera 5—6 millj. króna. — ★ 60 FARÞEGA Þessi flugvél er Flugfélagið nú hefur keypt, hefur eingöngu ver- ið notuð til leiguflugferða. Flug- vélin er af sömu gerð og Gull- faxi, eða DC 4. Tún tekur 50 farþega. Flugvélin er komin til K|iup- mannahafnar og fer hún til skoð- unar og smávægilegra breytinga til SAS í Kastrup. Hingað mun flugvélin koma í næsta mánuði. Er ráðgert að hún muni eitthvað notuð til leiguflugferða, en um áramótin mun hún taka við af Gullfaxa, sem sendur verður í tveggja mánaða allsherjarskoðun til Kaupmannahafnar. 9 FLUGVÉLAR — 272 FARÞEGAR í s.l. viku fóru fjórir starfs- menn Flugfélagsins, þeir Jóhann- es Snorrason yfirflugstjóri, rBand ur Tómasson yfirvélamaður, Jón N. Pálsson flugvélaeftirlitsmaður og Jóhann Gíslason loftskeyta- maður til að skoða hina nýju flug vél. Þeir eru aftur heim komnir og fara lofsamlegum orðum um þessa nýju flugvél, sem íslenzka flugflotanum hefur bætzt. Flug- vélaeign Flugfélags íslands er nú 9 flugvélar, 2 skymastervélar, 4 Douglasvélar, 2 Katalinaflugbát- ar og 1 Grunmanflugbátur. Sam- tals geta þær flutt 272 farþega samtímis. Maður skersl MAÐUR nokkur stórskarst á enni í gærdag, er hann rak höf- uðið gegnum framrúðu á bíl, í árekstri vestur á Sólvallagötu — Bræðraborgarstígs-gatnamótum. Var maðurinn, sem er gestkom- andi hér í bænum, í sendiferðabíl en hinn bíllinn var leigubíll. — Maðurinn var fluttur í sjúkra- hús. — Nokkuð stór flipi hafði skorizt frá enninu og lá hann frammi á vélahúsi bílsins eftir áreksturinn. — Var flipinn tek- inn með, er maðurinn var flutt- ur til læknis. Saumaði hann stykkið, þaðan sem það hafði skorizt í þeirri von að takast muni að græða það í sárið. Þess skal getið að framrúða sendiferðabílsins var ekki úr öryggisgleri, svo sem vera ber. Allsnarpur jarð- skjálffakippur KLUKKAN laust fyrir þrjú í gær varð allsnarpur jarðskjálftakipp- ur hér í Reykjavík. Kipour þessi mun einnig hafa fundizt fyrir austan Fjall og blaðinu er kunn- ugt um að hans varð einnig vart á Akranesi. Kippur þessi og jarðhræringar þær sem urðu í gær í Hveragerði og hér, en þær voru mjög vægar, eiga upptök sín, að því er Veð- urstofan telur, um 5—10 km til norðvesturs frá Hveragerði. Stúdentaráðskosningar ÚRSLITIN urðu kunn kl. 11 í gærkvöldi. Þátttakan varð minni nú en í fyrra, 623 greiddu atkv. | af 835 á kjörskrá og féllu færri atkvæði á alla lista. A-listi, Alþýðuflokksmanna og' Framsóknar fékk 119 atkv. og 2 fulltrúa kjörna. B-listi Þjóðvarnar hlaut 80 atkv. og 1 fulltrúa. C-Iisti kommúnista hlaut 125 atkv. og 2 fulltrúa. D-Iisti vöku hlaut 283 atkv. og 4 fulltrúa. í fyrra urðu úrslitin sem hér segir: Alþýðuflokksmenn og Fram- sókn fengu 138 atkv. á tveimur listum og 2 fulltrúa. Þjóðvarnarmenn 86 atkv. og 1 íulltrúa. Kommúnistar 130 og 2 fulltrúa. Vaka 301 og 4 fulltrúa. [jrellir veslur í Rifshöfn DÝPKUNARSKIPIÐ Grettir, mun strax og veður leyfir, verða dregið vestur í Rifshöfn. — Þar hefur framkvæmdum miðað svo í sumar og haust, að Grettir fer þangað til þess að dýpka rennuna, sem skip og bátar eiga að sigla eftir, upp að bryggjunni. Þá eru tilbúin nokkur ljósdufl til þess að merkja innsiglinguna í þessa nýjustu höfn landsins. Við aðaldyr Landsbankans. að klukkan slái þrjú. Skólabörnin bíða óþreyjufull eftir (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Um 1500 skólaböm dsm uðnst bankabók í gærdag Sparifjársöfnun skólabarna í framkvæmd UM 1500 SKÓLABÖRN af þeim 6700, sem fengið höfðu ávísanir á sparisjóðsbók, opnuðu í gær bankareikning sinn í sparisjóðs- deildum banka og sparisjóða í Rvík. Flest börnin komu í Lands- bankann og var þar þvílík þröng barna, að 20 bankastarfsmenn unnu langt fram eftir kvöldi í gær við að skrásetja þessa nýju viðskiptamenn sína. — Einnig komu mörg börn í Útvegsbankann, Búnaðarbankann, Iðnaðarbankann og Sparisjóð Reykjavíkur og nágrcnnis. AFGREIÐSLUSALURINN FULLUR Börnin þyrptust í Landsbank- ann. Um hálftíma áður voru þau farin að hópast við dyr bank- ans og lítilli stundu eftir að opnað var, fylltist hinn stóri af- greiðslusalur fyrir framan sþari- sjóðsdeild bankans, en fjöldi bankaritara vann við afgreiðslu- störfin. ÞRÖNG Á ÞINGI Við öll borð var þröng skóla barna, sem voru að útfylla evðublcð. —.Sum þeirra voru fljót að skrifa eins og æfðustu verzlunarmenn, en önnur voru kafrjóð og heit orðin, er þau höfðu útfvllt eyðublað sitt. — Það er stórt spor sem stigið er, að eignast bankabók. — ÉG KEYPTI ENGA KARAMELLU verður framvegis veitt viðtöku í bönkunum og sparisjóðunum á venjulegum afgreiðslutíma þeirra. Þar verða einnig til sölu sparimerki, en bráðlega mun al- menningur geta féngið þar ókeyp is sparimerkjabækur gegn því að kaupa sparimerki fyrir 5 krónur. 24 ær flæða STYKKISHÓLMI, 28. október. — Maður hér í Stykkishólmi, Ásgeir Jónsson, hefur í haust geymt í svonefndum Akureyjum, 24 ær, sem hann átti. Fyrir nokkru gerði hér mikið óveður. Skömmu eftir að því slotaði, fór Ásgeir út í Akureyjar. Fann hann þá allar ærnar með tölu dauðar í grjót- urð í fjörunni. Geta menn sér þess til að ærnar hafi hrakið undan veðrinu niður i grjóturð- ina í fjörunni. Þar hafi þær flætt. Byijað að taka olínna úr Hatliða ' SIGLUFIRÐI, 30. okt. — Vonif standa til að togarinn Hafliði muni nást á flot í dag. — í kvöld var byrjað á því að létta skipið. Til þessa hafa tilraunir til þesa að draga Hafliða á flot mistekizt, en er hann strandaði var háflóð. í dag voru fengnir þrír snurpu- nótabátar. Hefur olíu verið dælt í þá úr geymum skipsins, en hér í höfninni er svo dælt úr þeim í olíugeyma Síldarverksmiðjanna. -— Bátarnir geta borið allmikið af olíu, enda er veður sæmilegt og óhætt að hlaða þá vel. Ekki er vitað hve mikið þarl að létta togarann. En á flóði seint í kvöld mun varðskipið Ægir gera enn eina björgunartilraun. — Eí hún heppnast ekki, verður að sjálfsögðu haldið áfram að flytja olíuna úr togaranum í land, una tekizt hefur að létta hann eina og með þarf. ★ Sjóréttur mun ekki taka mál þetta fyrir til rannsóknar fym en togarinn er kominn á flot. Botn hans mun nú vera orðinn mjög dældaður, þó ekki hafi fregnir borizt fregnir um frekari leka, en þann sem gerði vart við sig í netalestinni í gær. — Stefán. Fyrsla lending í myrkri EGILSSTÖÐUM, 29. okt. — Flug- vél frá Flugfélagi íslands lentl hér í fyrsta skipti í myrkri á upplýstum flugvellinum á Egils- stöðum kl. 17 í gær. Flugstjórl var Aðalbjörn Kristbjarnarson. Fólk hér fylgdist með þess- ari nýjung, er flugvélin flaug hér yfir í myrkrinu áður en hún tók völlinn. — A. B. Engin sýki í Breiðabólsstaða- i fénu AÐ fyrirlagi sauðfjársjúkdóma- nefndar hefur öllu fé að Breiða- bólsstað á Fellsströnd, hátt á ann- að hundrað fjár, verið slátrað f varúðarskyni, vegna hins sýkta hrúts frá Valþúfu. Ekki fannst ein einasta sýkt kind í Breiðabóls- staðarfénu. Isfiskur fyrir 9,6 millj. kr. til Þýzkalands í haust tj IMýtt söSumet Jóns forseta Meðan börnin biðu eftir af- grciðslu röbbuðu þau saman um sparimerkjabækurnar sín- ar, því sala merkjanna fer nú almennt að hefjast. — Sum sögðu frá því, að þau hefðu haft svo og svo margar krónur undir höndum. — Og veiztu hvað. — Ég keypti merki fyrir túkallinn en en-a karamellu, sagði 10 ára hnáta, sem sat í leðurbekknum í afgreiðslu- salnum, við stöllu sína, er hjá henni sat. Við eina stoðina í banka- húsinu stóðu nokkrir strákar í hnapp. Einn beirra, rauð- hærður. stríbærður, sagði: Ég ætla að verða ilega ríkur. eins og bessi gríski sem á öll olíuskipin! Þegar afgreiðslunni var lokað kl. 5 höfðu 850 bækur verið af- greiddar í Landsbankanum. — í hinum bönkunum var ekki eins mikið að gera enda komu þangað ekki nema milli 100—250 börn. — En sem kunnugt er af fregnum um sparifjársöfnun þessa, er hún ekki bundin viðskiptum við Landsbankann frekar en hina bankana og sparisjóðina. SPARIMERKI SELD Ávísununum á b^nkabækurnar IGÆRMORGUN seldi togarinn Jón forseti í Bremerhaven, 232 tonn af ísvörðum fiski fyrir 134,230 mörk. Er þetta hæsta afla- salan í Þýzkalandi á þessu ári. Var þetta þriðja söluferð Jóns forseta til Þýzkalands og hefur hann selt í þeim fyrir rúmlega 342,000 þýzk mörk. NÚ OG í FYRRA íslenzkir togarar hafa farið 26 söluferðir til Þýzkalands. — Alls nemur fisksala þeirra þar 2.472, 000 mörk, en það jafngildir 9,657 millj. kr. Á sama tima í fyrra höfðu togararnir farið 15 sölu- ferðir og selt fyrir nær 5,9 millj. kr. Næstu landanir í Þýzkalandi verða: Skúli Magnússon, á mánu- daginn, Ingólfur Arnarson, þriðju dag og Egill Skallagrímsson á miðvikudaginn. AKURFYRI ABCD EFGHJ ABCD EFGH REYKJAVlK 12. leikar Akureyringa: 1 Bf8—d6 J I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.