Morgunblaðið - 18.12.1954, Side 10

Morgunblaðið - 18.12.1954, Side 10
26 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 18. des. 1954 Kven og karla Nylonsokkar Ullarsokkar Bómullarsokkar Nyloncrepesokkar Heildsölubirgðir: íslcnzk-erlenda verzlunarfélagið Garðastræti 2 — Sími 5333 IMU ER HVER SIÐASTUR að kaupa jólagjöfina sígildu GOMUL BLOÐ mannamyndir eftir JOHANNES S. KJARVAL %./ ;V 'ý Vinsælasta gjafabftkin til jólanna í skrautlegu bandi — kor-iin aftur í bókabúðirnar. \TÖFRATRÉÐ lííil barnabók prentuð í 4 litum, aðeins á 10 krónur. Tryggið yðar gjafabækornar sem fyrst. ÚTGEFANDI ÍOPREIT WJALMAR R-OAPSÖN ,A.QM % ICELAND £ ICELAND ILLUSTRATED > ILLUSTRATED -..-........2............‘ • rxi&wir IgSr IMAGES mm, doslande IMAGES- DISLANBE ISLAND ISLAND IM BílD IM BILD i ö wmmmm feHI I ■* * VíSTAS DE ISLANDIA VISTAS DE ISLANDIA — ÍácjgaribiaðHl með morgunkaffinu Einn d f erð Ný bók Sigurðar Björnssonar frá Brún U' TVARPSFYRIRLESARAR keppast nú við að segja landslýðnum, í hvaða landi þeir hafi alið manninn í sumar er leið, Sumir hafa verið suður á hita- beltisslóðum, aðrir vestur í Yukon. Fjósakona hefur skrifað ferðabók frá Frakklandi, hag- fræðingur flakkað um Suður- Ameríkulönd. En Sigurður frá Brún hefur bara ferðast um ís- land. Hann hefur ekki gengið i þjónustu smáhestaeigendasam- bandsins, sem Gunnar á Hvapn- eyri stýrir ýmist hér eða suður á Þýzkalandi og segir ekkert frá reiðtúrum þar. En reiðgötur þessa lands þekkir hann flestum betur, og ekki hef ég séð betur lýst annars staðar útsýni af hest- baki en í þessari fyrstu bók Sig- urðar frá Brún. Það er .unun að sjá öll þau fallegu orð, sem hann kann um það sem við hinir köll- um landslag og veðráttu. Hann fer um giljadrúldur og mýra- hvörf í bleksvörtu hlákumyrkri, en verður þó starsýnna á Sólar- fjall og aVtnajökul, sem er „bjart ur eins og önnur útgáfa af sól- inni sjálfri.“ Hann hefur örnefni á hraðbergi, hvar sem hann fer, og ekki mun það tilviljun ein, að oftast eru þau hljómmikil og falleg. Það svíkur því engan, sem ann íslenzkri náttúru og tungu, að bregða sér á bak góðhesti og fara með Sigurði frá Brún um landið, hvort heldur menn kjósa að ríða Sprengisand í milli fjórðunga eða láta skokka um byggðir sunnan, norðan eða vestan lands. Álls staðar er Sigurður heima, þekk- ir landið og lýsir því, rifjar gjarnan upp sögu, sem-gerzt hef- ur. í Reykjadal minnist hann prestskapar Jóns Arasonar á Helgastöðum, í Víðimýrarseli Stephans G., sem „faldi sjálfan sig og sorg sína milli þúfna“, þeg- ar synir efnamanna riðu suður í skóla. Landið, sagan og hestarnir eru aðalefni þessarar bókar, fólkið fer með minniháttar hlutverk enda Sigurður ærið oft „einn á ferð“. Þó segir hann víða skemmtilega frá komu sinni til bæja, og bregður fyrir glettni í auga. Hann sér sjálfan sig sitj- andi á ísjaka burðast við að kom- ast í buxur og sokka, „hríðskjálf- andi upp úr ánni“, eða sitjandi á fótum sínum uppi í rúmi í báð- stofu daglangt, ófús að stíga til gólfs vegna lekavatns. Er þetta og fleira í þessum dúr krydd í frásögn, sem ekki berst mikið á, en er því drýgri til fróðleiks og skemmtunar sem lengur er lesið. Ekki er hvers manns færi að segja góða ferðasögu, jafnvel þótt efniviður sé fjölbréytileg ferðalög um framandi lönd. En hér hefur Sigurður frá Brún leyst vel af hendi erfiðara hlutverk. Hann fer um sveitir, sem flest- um íslenlingum eru meira og minna kunnar en gerir landið þó nýstárlegt eins og málari, er sér fleiri liti í hverju útsýni en’ aðrir. Still hans er myndauðugur, og gott mál leikur honum á tungu. Bókina prýða skemmtileg- ar pennateikningar eftir Haildór Pétursson. Norðri hefur gert bók- ina vel úr garði. H. S.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.