Morgunblaðið - 06.08.1955, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.08.1955, Blaðsíða 1
16 ssður 10 ár frá Hiroshima HIROSHIMA, 5. ágúst. 1» A N N 6. ágúst árið 1945 — fyrir réttum tíu árum — kom amerísk sprengjuflugvél af gerð- inni B-29 áf hafi inn yfir borg- ina Hiroshima í Japan. Loftvarnamerki höfðu verið gefin í borginni, en þar eð íbú- arnir heyrðu ekkert í loftvarna- byssum, létu þeir sér fátt um finnast og heldu áfram störfum sínum. Stuttu síðar féll fyrsta atom- sprengjan sem um getur í sög- unni. 70 þúsund íbúðir í Hiroshima voru gjörsamlega þurrkaðar út. Tala fallinna í þessari árás hefir verið áætluð 100 þúsundir manna. Hiroshima hefir verið reist að nýju sem „borg friðarins." í dag fara fram minningarathafnir í borginni. Einnig verður sett þar 1 alþjóðaráðstefna um áhrif atom- og vetnissprengja. í ágúst 1945 voru 400 þús. íbú- j ar í Hiroshima. Af þessum 400 þúsund mönnum og konum búa enn 90 þúsundir í borginni. En borgin hefir vaxið að nýju og íbúarnir þar eru nú samtals 380 þúsundir. Enn þjást sex þúsundir borg- • arbúa af sárum, sem þeir hlutu er fyrsta kjarnasprengjan féll. 99 Allt fer að Tito „bei Mpuno o bóðum öslum“ | New York 5. ágúst. I TITO marskálkur er önnum kaf j inn við að varða sína eigin | sjálfstæðu leið í heimsstjórnmál- unum. Fyrir nokkrum dögum flutti Tito ræðu þar sem hann bað Bandaríkjamenn sigla sinn sjó, ef þeir ætluðu að halda til streitu kröfu sinni um að fá að hnýsast í hvernig 502. milljóna dollara hernaðarhjálp þeirra til Jugoslafa hefði verið varið. Bandaríkjamenn geta hætt að Senda okkur hergögn ef þeir vilja, sagði Tito. Tilefnið til þess að Bandaríkja menn hafa síðustu mánuðina sótt fastar en áður að fá að fylgjast með því hvað gert er við her- gagnadollara þeirra, er orðrómur sem gengið hefir um að Kruts- chev hafi lofað, er hann var í Belgrad á dögunum, að senda Tito MIG orustuflugvélar. Mælt er að það sé langþráður draumur Titos að fá því komið til leiðar að Jugoslafar framleiði sjálfir orustuflugvélar sínar og að Krutschev hafi fallist á að Veita Jugoslöfum leyfi til þess að framleiða sumar gerðir MIG flug- vélanna heima í Jugoslafiu. Tito hefir á undanförnum árum fengið mikinn fjölda amerískra SABRE orustuflugvéla af ýmsum gerðum. Tito bað á sínum tíma um leyfi til þess að mega fram- leiða Sabre flugvélar heima í Jugoslafiu, en Bandaríkjamenn neituðu og báru því við að efna- hagur Jugoslafa stæði ekki svo traustum fótum að hann gæti bor ið uppi framleiðslu dýrra flug- véla. Og Bandaríkjamenn sögðu að ekki kæmi til mála að þeir borguðu flugvélar, sem fram- leiddar væru í Jugoslafiu. Nú hefir sendiherra Bandaríkj- anna í Belgrad gengið á fund jugoslafneska utanríkisráðherr- ans og skýrt honum frá því af- Framh. á bls. 7 lokum vel“ segir -- Bulganin Gerbreytir afstöðu sinni til tillagna Eisenhowers Tilmæli til Reykvíkinga um að rétta hjólparhönd við heyþurrkinn í nærsveitnm T GÆR var þurrkur hér á Suðurlandi og norðanátt hafði náð sér upp um allt land, aldrei þessu vant. Er það fyrsti verulegi þurrkurinn, sem komið hefir hér sunnanlands síðan í júní. Af blaða og útvarpsfréttum hafat Reykvíkingar fylgzt af athygli með vandræðun- um, sem hafa stafað af óþurrkunum undanfarnar vik- ur. Má gera ráð fyrir, að þegar þurrkurinn loksins kemur verði mikið að gera í sveitinni, einkum á fólksfáum heimilum. Þessvegna gerðu menn vel í því að nota hverja stund, sem þurr verður næstu daga til að skreppa í sveitina, eftir því sem þeir fr&mast koma því við og rétta sveitafólkinu hjálparhönd við heyþurrkinn. Einkum kemur öll aðfengin hjálp sér vel, ef svo fer sem Veðurstofan gerði í gær hálft í hvoru ráð fyrir, að þurrkurinn verði skammvinnur að þessu sinni. Það eru eindregin tilmæli blaðsins, að allir sem eiga heimangengt næstu daga hafi einhver ráð með að fara í sveit og leggja hönd að verki við heyverkunina, eftir því sem þeir framast geta. í gær kom loks hinn langþráði þurrkur yfir Suðurland, þar sem ekki hafði stytt upp í 40 daga og 40 nætur. Nú varð mikið að gera á búi bóndans. Allir voru önnum kafnir við að breiða úr og þurrka heyið. Efri myndina tók H. Teitsson, Ijósm. Mbl., af fólki við hey- vinnu í Mosfellsdalnum. Hina tók hann á Kjalarnesinu, þar sem hjól snúningsvélarinnar voru í fullum gangi. Það var mikill léttir fyrir sveitafólkið að fá þennan þerri og töldu engir eftir sér að vinna langt fram á nótt v.ið heyþurrkun og hirðingu. En menn óttuðust að þessi þerrir myndi ekki endast fram á næsta dag. MOSKVA, 5. ágúst — Austr- ið andar nú vindum þýðum til vestursins. Bulganin mar- skálkur á eins og aðrir ráða- menn í Sovétríkjunum, glæsi- legt sveitasetur á fljótsbakka um 100 km frá Moskvu. —■f Þangað leitar hann á frið- sælum kvöldum og um helgar. En í dag brá svo við að marskálkurinn lét þau boð út ganga til erlendra sendiherra í Moskvu, þ.á.m. Bohlens sendihera Bandaríkjamanna, sendiherra Frakka og sendi- fulltrúa Breta, að þeir kæmu á sunnudaginn með konur sínar og dveldu daglangt með sér á hinu glæsilega sveita- setri. Slíkt boð frá sovétskum ráðherra er einsdæmi í sög- unni. Sendiherrunum var bent á að hafa með sér sundföt. MOSKVA, 5. ágúst. BULGANIN marskálkur sneri við blaðinu á þingi æðsta ráðs Sovétríkjanna í dag og sagði að Rússar myndu kynna sér rækilega tillögur Eisenhowers forseta um gagn- kvæmt eftirlit Rússa og Bandaríkjamanna með hergagna- framleiðslu hvors annara. í ræðu sinni á þinginu í gær hafði Bulganin sagt að tillögur Eisenhowers forseta væru ekki raunhæfar. Bulganin tók aftur til máls í dag og sagði að blöð vestur- veldanna hefðu misskilið ummæli sín í gær. Meðal stjórnmálamanna í Bandaríkjunum er talið að breytingin á afstöðu Bulganins hafi gerzt eftir að Eisenhower forseti lét svo um mælt á blaðamannafundi í Washington í gær að hann tryði því ekki að Bulganin hefði lokað dyrunum til frekara samkomu- lags um afvopnunarmálin. Eisenhower sagði þetta eftir að hann hafði lesið ræðu Bulganins, sem hann flutti á þingi æðsta ráðs- ins í gær. Ummæli Bulganins í gær voru skilin á þá leið vestanhafs, að Sovétríkin hefðu alger'ega vísað á bug tillögum Bandaríkjafor- seta. Ummæli Bulganins á þinginu i dag hafa vakið ánægju vestan- hafs og eru skilin á þá leið að Bulganin vilji halda áfram hinni vinsamlegu sambúð, sem hófst með Genfarfundinum í dag var talið í Washington, að svo gæti farið, að eitthvað myndi miða áfram á fundi utan- ríkisráðherranna í október. Allir 347 þingmenn æðsta ráðs- ins hafa samþykkt skýrslu Bul- ganins um Genfarfundinn. Bul- ganin lauk ræðu sinni í dag, með þessum orðum: „Allt mun að lok- um fara vel“, og þingmenn lustu upp fagnaðarhrópum. Nánora samstarf Norðurlandaráðs og rlkisstjórnanna Forsetafundinum lauk í gær FORSETAFUNDI Norðurlandaráðsins lauk í gærdag. Hafði hann þá staðið í tvo daga. Að fundinum loknum var gefin út um hann svohljóðandi fréttatilkynning. „Forsetar Norðurlandaráðs áttu fund með sér 3.-—5 ágúst í Reykjavík, í fyrsta sinn á ís- landi. Fundinum stjórnaði forseti ráðsins, Nils Herlitz prófessor, frá Svíþjóð. Auk hans sátu fundin Erik Eriksen fyrrv. forsætisráð- herra, frá Danmörku, Sigurður Bjarnason forseti neðri deildar Alþingis, frá Ísíandi, og Nils Hönsvald stórþingsmaður, frá Noregi, og enn fremur ritarar ráðsins. Rætt var ýtarlega um að gera norræna samvinnu raunhæfa að því er tekur til starfsemi ríkis- stjórnanna og ráðsins. Að öðru leyti var það einkum verkefni fundarins að undirbúa fjórða þing ráðsins, sem halda á í Kaup- mannahöfn og hefst 27. janúar 1956. í tilefni af þingi því, er næst verður háð, var ákveðið að flytja nú aðalskrifstofu ráðsins frá Sví- þjóð til Danmerkur." Forsetar ráðsins og ritarar þeirra sátu í gær hádegisverðar- boð forseta íslands að Bessastöð- um og kvöldverðarboð hjá for- sætisráðherra. Dönsku og norsku fulltrúarnir fara heimleiðis í dag. Sænsku fulltrúarnir dveljast hér hinsveg- ar nokkra daga ennþá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.