Tíminn - 12.05.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.05.1965, Blaðsíða 1
* HANDBÓK VERZLUNARMANNA ÁSKRIFTARSÍMI 16688 16688 16688 HANDBOK VER ZLUNARMAMttA ÁSKRIFTARSÍMI 16688 16688 18888 Olafur Jóhannesson, varaformaður Framsóknarflokksins, í útvarpsumræðunum í gærkveldn Ríkisstjornin hefur glatað tiltrú þjóðarinnar TK-Reykjavík, þriðjudag. — Ólafur Jóhannesson, varaformaður Framsókn- arflokksins, lauk eldhúsumræðunum í kvöld með þeim orðum, að vanda- málin, sem við væri að glíma og leysa þarf, ef við ætlum að lifa við mann- sæmandi lífskjör, sem fullvalda þjóð í þessu landi, væru meiri og stærri en svo, að líklegt væri, að við þau verði ráðið af ríkisstjórn, sem bærist fyrir straumi ráðalaus og hefði ekki almennari tiltrú en núverandi ríkisstjórn. Ólafur Jðhannesson, sem var síðasti ræðumaður í þessum eld- húsdagsumræðum, sem útvarpað var á mánudags- og þriðjudags- kvöld, gerði stuttlega grein fyrir ferli núverandi rikisstjórnar, sem f gær hófust landspróf um land allt, og var fyrsta prófið í stsrðfræði. Alls munu mllll 800 og 900 ungllngar taka prófið að þessu sinni og standa þau fram um mánaðamótin maí — júní. Ljós- myndari blaðsins KJ brá sér £ Hagaskólann í gærmorgun, þar sem hann tók þessar tvsr myndir, sem hann tók þessar tvær myndir, sem hér blrtast. Eins og sjá má, þreyta jafnvei bítlar landspróf, eins og vera ber. Prófið er langt og strangt, og þesst kunningl okkar hefur haft með sér epii og kók til þess að hressa sig á milli þess að hann leysir hinar stærðfræðilegu þrautir. hefði verið við völd, er óvenjulegt góðæri hefði ríkt, metafli dreginn á land og stórhækkandi verðlag á útflutningsvörum. Stjórnin hefði lofað fögru, en eíndirnar orðið áðrar. í stað verðbólgustöðvunar, sem heitið hefði verið, hefði verið stórstígari verðþensla og risavaxn- ari dýrtlð en nokkru sinni fyrr í sögu landsins .í stað skattalækkun ar hefðu álögur á þjóðina verið margfaldaðar. f stað sparnaðar hefði komið óhófseyðsla. í stað bættra lífskjara væri nú Ijóst ,að margar stéttir bæru nú lakari hlut frá borði en áður, þrátt fyrir gífur lega aukningu þjóðartekna. Hvemig væri þá ástandið, ef aflaleysi hefði verið, í stað hinna miklu aflaupgripa? Menn óaði við að hugsa til þess. Þrátt fyrir hin miklu afláuppgrip hefðu sumir landshlutar þó orðið illa úti og átt við erfiðleika að etja. Lítið eða ekkert hefði verið gert til að bæta þar úr, heldur hefði í staðinn verið framkvæmdur 20% niðurskurður á opinberum fram- kvæmdum, — einnig í þessum byggðarlögum. Stjómin hefur orðið að kyngja flestum stóru orðunum og tekið upp sumt af því, sem hún for- dæmdi áður harðast. Ríkisstjórn- in hefði átt að segja af sér fyrir Jómfrúrmál híns nýja fjármálaráðherra: AFTURBA TAFRESTUR SKA 77- SVIKARA TIL I. MARl 1966 TK-Reykjavík, þriðjudag. í dag lagði Magnús Jónsson, I hiinn nýi fjármálaráðherra, fram1 jómfrúrmál sitt á Alþingi. Voru það breytingatillögur við ákvæði frumvarpsins um tekjuskatt og eignarskatt um viðurlög við brot- um þeirra, er upvísir verða um skattsvik, þess efnis, að heimilt skuli að fella skattsektir niður, hafi Viðkomandi af sjálfsdáðum ■gefið réttar skýrslur um þau atr- iði, er máli skipta um tekjuskatt hans og eignarskatt eða talið fram tii skatts það, sem hann hefur svikið undan fyirir 1. marz 1966. Emnfremur, að heimilt skuli vera að hlífa þeim, sem stolið hafa und- an innlieimtum söluskatti, við sektum , ef þeir hafa skilað skatt- inum öllum til ríkissjóðs fyrir 1. júlí næstkomandi. Magnús Jónsson, fjármálaráð- herra, sagði í framsögu fyrir til- lögunum, að uppræta yrði hina al- Framhald a 14. síðu Þinglausnir í dag TK—Reykjavik, þriðjudag. Þinglausnir munu fara fram á morgun, miðvikudag, ef ekk- ert óvænt kemur upp á. Verður þeim útvarpað svo sem skylt er skv. þingsköpum, og verður það að öllum líkindum um kl. 4 miðdegis. Verða fundir í báð um deildum á morgun, því að enn eru óafgreidd stórmál, eins og t.d. tekjuskattsfrumvarp í efri deild. Að ioknum deildar- fundum hefst fundur í samein- uðu þingi, og fara þá fram kosningar til Landsvirkjunar- og Rannsóknarráðs, báðar skv. nýjum lögum. Ólafur Jóhannesson löngu. Hún streitist samt við að sitja, þótt hún hafi gefizt upp við að hafa nokkra heillega stefnu og lætur reka á reiðanum og aðgerð- ir hennar bera svip af handahófi, ráðleysi og ringulreið, — og það er svo kallað frelsi. Ólafur Jóhanesson lauk máli sínu með þessum orðum: „Framundan er ný og geigvæn- leg verðbólgualda. Núverandi stjórn hefur tvisvar gripið til geng isfellingar, í fyrra skiptið var hún Óþarflega mikil, í síðara skiptið algerlega óþörf. Nú óttast margir, og ekki að ástæðulausu, að ríkis- stjórnin muni grípa til þriðju geng isfellingarinnar á komandi hausti. Yfirlýsingar hæstv. forsætisráð- herra í gærkveldi duga því miður ekki til að eyða þeim grunsemdum. En verði þriðja gengisfellingin framkvæmd, ætti mælirinn að vera fullur. En hvað sem er um það, þá er hitt víst, að gengi rikisstjómar innar er sílækkandi. Eg fæ ekki betur séð en núver- andi ríkisstjóm sé eins og á flótta —á flótta frá upphaflegri stefnu — á flótta *rá aðkallandi vanda- málum — á flótta frá stjórnarand- stöðunni, sem þrátt fyrir allt og sem betur fer, hefur getað sveigt ríkisstjórnina til fylgis við sín sjónarmið í ýmsum málum — á flótta frá hinni eilífu sjálfstæðis- baráttu lítillar þjóðar í náðarfaðm erlendra auðhringa. E.t.v. hafa hæstvirtir ráðherrar það í huga, er einn orðhagasti íslendingur á þessari öld, sem á efri árum og að fenginni reynslu sneri baki við Sjálfstæðisflokknum, sagði: „Marg ur maðurinn hefur nú bjargað sér á flótta." Það má vera, að undir flóttans merki geti ríkisstjórnin framlengt Framhald á 14. síðu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.