Morgunblaðið - 11.01.1956, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.01.1956, Blaðsíða 9
Miðvjfcudagux II. jan. 1956 MORGUNBLAÐIÐ 9 ARIÐ eem leið var mikið reynsluár fyrir íslenzka bænd ur. Það eru raunar öll ár, svo margbreytilegt er veðurfarið og búsaðstaða á landi hér, en árið 1955 var óvanalegt áur. Ber þar mest til tíðarfarið, hin miklu og þrálátu votviðri um Suðurland og Buð-Vesturland, á þeim tíma er verst gegnir, það er um sláttinn, og hið mikla sólríki og blíða um Austurland, hvort tveggja með fádæmuaa. HEYSKAPFRINN Hann gekk illa að vonum um allt Suðurland og víða um Vest- urland, allt norður undir fsaf jarð- ardjúp. Eigi skorti sprettu, en þrálátar rigningar ollu að hey- Bkapurinn sóttist seint, varð erf- iður og nýting víða hörmulega léleg. Um Norðurland verður að telja að allt væri vandræðalaust um heyskap og nýtingu. Á Austur- landi lék heyskapurinn í höndum manna, nýting svo ágaet sem bezt getur orðið, en heyfengur víða nokkuð minni að vöxtum en í grasárum. Sums staðar á óþurrkasvæði- inu varð heyskapur að lokum engu minni að magni en árið 1954. Má sem dæmi nefna Stokks- eyrarhrepp og Eyrarbakkahrepp, og hið sama mun koma í ljós síðar töluvert víða, en verkun og fóð- urgildi er að sjálfsögðu langt fyrir neðan meðallag, að því er varðar venjulegt þurrhey og jafnvel einnig súgþurrkað hey. Samkvæmt athugunum Búnað- arfélags íslands, sem að lögum hefir yfirumsjón með allri fóður- forðagáezlu í landinu, er útkoman síðastliðið á þessa leið: Þegar borið er saman annars vegar hvað heyaðist í hverri svslu 1954 og hins vegar hvað talið er að sé til af heyjum nú í haust verður útkoman þessi: í Mýrdalshreppunum -4-4% i— Rangársvallasýslu -4-29% •— Árnessýslu -4-15% — Gullbringu og Kjósarsýslu -4- 9% — Borgarf j arðarsýsto 4-11% — Mýrasýslu 0% — Snæfellsness og Hnappad alssýslu 4-13% — Dalasýslu 4- 4% — Barðastrandasýslu. 4-7% í V. ísafjarðarsýslu er heyforði heldur meiri en sem nam heyskap BUmarið 1954. Við athugun á tölum þessum verður auk þess sem gera má ráð fyrir að þær séu dálítið áætlunar- kenndar, að athuga það vel, að heyfymingar frá vorinu 1955 eru meðtaldar í tölum um heymagn það sem fyrir hendi er nú í haust til ásetnings. En ef trúa má töl- unum er það ekki alvarlegt mein hvað lítið er til af heyjum í haust, heldur hitt hve léleg þau munu vera víða. Þó virðist Rangárvalla sýsla hafa orðið svo hart úti með heyskapinn, að um alvarlegt áfall sé að ræða. Sem dæmi um heyskap o. fl. á nokkrum stöðum sumarið 1955 má nefna (svigatölur allar eru tölur ársins 1954): Sámsstaðir: Taða 800 hestar <1400), kom 80 tunnur (125) og kartöflur 40 tunnur (130). Gunnarsholt: Taða í vothey 2500 hestar. þurrhey 3800 (hey- skapur 1954 6000 hestar. Fénað- ur á fóðrum: 240 (250) nautgrip- ir, 100 kindur, 5 hestar. Holt í Stokkseyrarhreppi: Taða 1500 hestar (1800), úthey 200 (2C0), 34 mjólkurkýr, 16 geld- íieyti, 90 (70) fjár og 12 hross. Laugardælir: Taða 4000 hestar (5000), úthey 1000 (350), 140 nautgripir, 20 hross, 65 svín og 450 hænsn. Bessastaðir: Taða 2500 hestar (2500), nautgripir 60 CRO), 1 hest- ur, 55 (45) kindur og 500 hænsni. Vífilsstaðir: Taða 2200 hestar (2500). 80 190) nautgripir, 2hest- ar og 300 hænsni. Blikastaðir: Taða 2100 hestar AiamótoliQgleiðmgar eílir flrna G. Eyiands (2500). Á fóðrum: 50 mjólkurkýr, r 25 geldneyti, 6 hestar. Hvanneyri: Taða og hey af flæðiengjum 3800 hestar (4600). Á fóðrum í vetur: 69 (88) mjólk- urkýr, 55 (37) geldneyti, 203 (215) kindur, 17 (18) hross og 50 (70 hænsni). Garðávextir: 60 tunnur kartöflur og 60 tunnur gulrófur. Hólar í Hjaltadal: Taða um 5000 hestar (5000). Á fóðrum 60 (62) nautgripir, sauðfé 550 (540), hross 60 (60). Garðávextir: 150 tunnur kartöflur og 50 tunnur gulrófur. Egilsstaðir á Völlum: Taða 3200 hestar (2650), 30 (32) mjólk- urkýr, 60 (55) geldneyti og ung- viði, 200 (150) fjár, 5 (6) hestar og 40 (35) svín. Skriðuklaustur: Taða 1300 hest- ar, úthey 200. Fénaður á fóðram: Sauðfé 596, nautgripir 7 og hross 5. Kartöfluuppskera 32 tunnur og gulrófur 12 tunnur. RIGNINGARNAR OG RÍKTÐ Þegar sýnt var hverju fram fór um heyskapinn, í mestu fram- leiðslusveitum landsins og víðar, samþykkti aðalfundur Stéttar- sambands bænda, sem haldinn var í Bifröst í Borgarfirði 5. sept. mjög víðtæka áskorun til ríkis- : stjórnarinnar um aðstoð við bændur. Búnaðarfélag fslands fór einnig á stúfana, og margháttað- ar kröfur og bænir komu fram að öðrum leiðum. Þegar Búnað- arfélag íslands hafði aðhafzt all- mikið að athuga ástandið með heyskapinn, fól rkisstjómin þeim Páli Zophóníassyni og Áma G. Eylands laust fyrir mánaðamótin september—október að athuga hvað hægt væri að gera og nauð synlegt, til hjálpar þeim bænd- um, sem verst væri ástatt hjá, til þess að afstýra því að búskapur og framleiðsla drægist svo alvar- lega saman að til vandræða stefndi. Var þá orðið svo áliðið að engin tök voru á öðru en byggja tillögur til úrbóta að veru legu levti á athugunum Búnaðar- félags íslands. Voru gerðar ráð- stafanir til að tryggja innflutn- ing fóðurbætis umfram venju þegar í haust, einnig að ekki væri fluttur út innlendur fóðurbætir, sem þörf er á til notkunar innan- lands. Ennfremur var fljótt og vel ákveðið frá hendi ríkisstjórnar- innar að veita þeim bændum er hey keyptu og flyttu að sér um langleiði allríflegt framlag til flutninganna. Þeir Árni og Páll komust að þeirri niðurstöðu að líklega þyrftu bændur á óþurrkasvæðinu að nota svo mikinn fóðurbæti í vetur, um fram venju, að verð hans næmi allt að 25 milljónum króna. Ég taldi umsvifalaust og bezt að greiða niður verð á fóturbæti. Árni G. Eylands ákveðið magn á grip, til bænda' á óþurrkasvæðinu, en í ljós kom að hvorki búnaðarmálastjóri né | ríkisstjórn taldi slíkt heppilegt og unnum við Páll því áfram að málinu á þann hátt er vænlegast! þótti til framgangs. Varð að ráði j að ríkisstjórnin ákvað að verja ) um 12 milljónum króna til lána 1 til bænda, er verst hafa orðið úti vegna óþurrkanna. Var tillögum I um lánin lokið fyrir jólin. Verða lánveitingar sem hér segir í sýsl- ur þær er hlut eiga að máli: inganna er nemur um kr. 340.000, 00. Enn má búast við nokkrum heyflutningum ef tíð og færð leyfir. AÐSTAÐA BÆNDA í sambandi við þetta óþurrka- mál hefir margt komið fram, sem umræðu er vert, en sem ofviða er að víkja að neitt að ráði í hug- leiðingum þessum. Áberandi er hve þeir bændur standa réttastir, þó slík óvenju ótíð gangi yfir, eins og átti sér Vestur-Skaftafellssýsla ....... Bændur, sem sótt hafa um lán ....... 49 Veitt verða lán kr.: 331.000,00 Rangárvallasýsla 2.905.000.00 Arnessýsla 4.274.500.00 Gullbringu- og Kjósarsýsla . 136 1.122.500.00 Hafnarfjörður 3 9.000.00 Reykjavík ....... 6 18.000.00 Borgarfjarðarsýsla 783.000.00 Akranes 5.000.00 Mýrasýsla 989.000.00 Snæfellsnessýsla ....... 178 806.000.00 Dalasýsla 152.000.00 Barðastrandarsýsla 350.500.00 Vestur-ísafjarðarsýsla ....... 87 150.000.00 Vestmannaeyjar ? 50.000.00 Em þó enn ókomnar lánbeiðnir stað 1835 11.945.000.00 í sumar, sem hafa komið sér úr nokkrum hreppum svo að bezt fyrir með votheysgerð og heildarupphæðir þessar breytast súgþurrkun. Hins vegar er eigi nokkuð áður en líkur. Um áramót var búið að flytja nema hálf björg að súgþurrkun einni, þar eð vikum saman var um 8.360 hesta af heyi inn á~ ókleift að fá hey svo þurrt, að óþurrkasvæðið og búið að greiða tækt væri í hlöðu til súgþurrk- framlag úr ríkissjóði til flutn- unar. Tölur frá Sámsstöðum géfa nokkuð góða hugmynd um tíðar- farið á Suðurlandi. Rigningarnar hófust 17. júnl, Á tímabilinu 17. júní til septem- berloka, sem er 104 dagar, rigndi meira eða minna í 94 daga. En jafnframt er þess að gæta að hinir þurru dagar voru auðvitað ekki allir þurrkdagar, og þurrkur svo næmi meira en einum degi I senn kom eiginlega ekki fyrr en um og eftir miðjan september, Árið 1954 voru rigningardagar ekki nema 46 á sama tíinabili, þá var úrkomumagnið 225J mm, en 574,6 mm í ár. Samkvæmt upplýsingum veð- urstofunnar hefir sólskin 1 Reykjavík aldrei mælzt jafn litið í júní, júl, ágúst og september, allt sðan að sólskinsmælingar hófust 1923. Sólskin þessa 4 mán- uði var 423,2 stundir, en meðal- tala sólskinsstunda á sama tím» er 664,5 stundir. Sólskinsleysið í sumar kemur þó ennþá berlegar fram ef athug- að er veðurfarið yfir hásumarið júlí, ágúst, meðalsólskin þá tvo mánuði er 352,7 stundir, en I sumar var sólskin í júlí og ágúst ekki nema 154,4 stundir. Til samanburðar er þess að geta að á Hallormsstað var sól- skin í júlí og ágúst 374,77 stundir Haustveðrátta um Suðurland og Suðvesturlánd var svo góð að það var bæði mönnum og dýrum nokkur uppbót á hið erfiða sum- ar, jafnvel svo að kýr voru hafð- ar úti 2 vikum lengur en í meðal- ári. Við slíkt tíðarfar sem var um Suðurland og Suðvesturland síð astliðið sumar eru þeir bændur hóflaust illa settir, sem ekki hafa komið sér fyrir með votheysgerð, jafnvel þó þeir hafi súgþurrkun, Það er ekki nægilegt að hafa annað, báðum þessum ráðum verður að beita. Sennilegar tölur benda til þesa að í ár hafi verið verkað tvöfallt magn af votheyi á óþurrkasvæð- inu á móti því sem hefir verið á undanförnum árum. En gallinn er hve þetta gengur feikna mis- jafnt yfir, allt frá því að bændur leggja hiklítið í að verka nær all an heyfeng sinn sem vothey og niður til þess að góðar votheys- tóttir stóðu tómar s.l. sumar, aí því að hlutaðeigandi bændur „lögðu ekki í það“ að verka vot- hey. Slíkt er ótrúlegt en þó satt, Hins vegar er ekki góðs von um þessa hluti jafn linlega og skipu- lagslaust eins og unnið hefir ver- ið að því undanfarið að kenna bændum að verka vothey, og leið- beina þeim um allt þar að lút- andi. Á þessu þarf að verða gagn- gérð breyting. Reynir nú á, að Búnaðardeildin og Búnaðarfélag íslands noti reynslu sumarsins og geri hana að vakningarefni, á þessu sviði, bæði inn á við og út á við, það er innan stofnananna sjálfra og út um land allt meðal bændanna. „Heim í garð til Sæmundar". — Fyrstu vélvögurnar, sem til landsins komu (1953) notaðar við að flytja hey í hlöðu á tilraunabúinu á S^ms^tÖðum, MESTI LÆRDÓMURINN, sem kemur í hlut bændanna, og raunar þjóðarinnar allrar, við slíkan árgalla eins og varð í sum- ar, ér að sjá og skilja réttilega hvers bændur' eru sjálfir n gn- ugir að sigra erfiðleikan; g hvers þjóðin er megnug bæ£ n, vilja og getu til að hlaupa i bagga þegar harðnar á dai hjá einhverjum hópi la; - - manna, jafnvel þótt sá hópu; á fjölmennur. Það er stórmerkilegt hvað 1 >y- skapur varð mikill í sumar. Fyi '.e 25 árum hefðu bændur beöi3 langtum meira nfhroð og hey- kapur orðið mgtum minni 1 s na tíí r'ari. Sú er f: nförii Eigi eru ninni umskipti. á ein- um mannsaldri hvað nú er gert samanborið viu það sem áður var frá hendi ríkisins til að rétfa hjélparhönd .þogar útaf ber. E.-» þégar þe.s a voru tveggja er Uírim;&t 'ber eins aklingunum. sem ! Franih. á bis. 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.