Morgunblaðið - 20.03.1956, Side 1

Morgunblaðið - 20.03.1956, Side 1
16 síður 43. árgangur 67. tbl. — Þriðjudagur 20. marz 1956 Prentsmiðja Morgunblaðsins Dandahkin: Aukin allsto við erl. ríki KISENHOWER forseti hefur beðið Bandaríkjaþing um 4859 milljón dollara fjárveit- ingu til hernaðar- og efnahags aðstoðar við erlend ríki. Er það meira en nokkru sinni fyrr í sögu Bandaríkjanna. — Forsetinn sagði, að Bandaríkja menn mættu nú ekki slaka á tiiraunum sínum til að við- halda friði og þetta væri lítið gjald, ef það yrði til þess að tryggja friðinn. Forsetinn sagði, að áhrif að- stoðar Bandaríkjanna við er- lend ríki mætti sjá í hinni breyttu stjórnarstefnu Rússa. Þeir virtust nú, að minnsta kosti úm sinn, hafa sett til hliðar áætlanir sínar um að ná heimsyfirráðum með vald- beitingu. En takmark þeirra er ehn hið sama — það að ræna þjóðirnar frelsi sínu. Það er aðeins breytt um aðferð. Nú væri söðlað um og þeir byggjust nú til átaka á öðrum vettvángi en fyrr. Forsetinn gaf síðan þinginu skýringar á einstökum út- gjaldaliðum í áætlun sinni um aðstoðina við erl. ríki. Feluleikurinn með „kviksög?urnar ‘ ,ií Óeirðir \ Ceorgíu bœldar niður með valdi ,,/Eska kommúnistaríkja hefur verið alin upp í villutrú" — segja þeir nú Lundúnum 19. marz. ERLENDIR fréttamenn í Moskvu, fá nú sendar fréttir af atburð’- unum í Rússlandi vegna þeirra ummæla Krúsjeffs, að Stalin hefði verið ótíndur glæpamaður. Ströng ritskoðun er þó á skeyt- um þeirra, en með því að „hleypa þessum fréttum í gegn“, þá staðfesta rússnesk yfirvöld, hvað skeði á 20. flokksþinginu í Moskvu og afleiðingum þeirra atburða. Hinn 7. marz — tveim dögum eftir að 3 ár voru liðin frá dauða Stalins — hafi stúdentar gengið fylktu liði um göturnar í Tiflis og borið myndir af Stalin. Daginn eftir tóku þúsundir manna, stúdentar sem aðrir, þátt' í mótmælaaðgerðum. Fjölmennt herlið var kvatt til að „koma á ró“. Rússneskir valdamenn segja, að 1 ástandið í Tiflis sé nú rólegt, en ennþá er erlendum sendimönnum 1 í Rússlandi bannað að fara til borgarinnar. SAMA daginn og hin stranga skeytaskoðun Rússa á frétta- skeytum erl. fréttamanna í Moskvu, „hleypir í gegn“ skeytum varðandi ræðu Krúsjeffs á flokksþinginu, þar sem hann lýsti Stalin sem „vitskertum fjöldamorðingja, sem allir óttuðust", voru ritsmiðir Þjóðviijans að hnoða saman eftirfarandi frétt um ræðu Krusjeffs: „ „Kviksögur" nefnir brezka utanríkisráðuneytið „Stalin- fréttirnar". Utanríkisráðuneytinu hefur í nokkra daga verið kunnugt um kviksögur er gengið hafa í Moskva um ræðu, sem Krústjoff er talinn hafa flutt á lokuðum fundi á 20. flokksþinginu, sagði talsmaður brezka utanríkisráðuneytis- ins í gær. „Kviksögur" þær er brezka utanríkisráðuneytið nefnir svo eru ummæli um Stalin sem Krústjoff á að hafa haft, og hafa verið blaðamatur á Vesturlöndum síðustu daga, hafðar eftir bandarískum blaðamanni sem aftur hafi „frétt“ þær frá vestrænum diplómötum í Moskva. Einu rússnesku heimildirnar sem vitað er til í sambandi við „fregnir" þessar, eru þau ummæli rússneskra blaða að um allt land -sé nú unnið að því að skýra flokksdeildum frá umræðum og ákvörðunum flokksþingsins, m. a. varðandi það að virina beri gegn persónudýrkun í flokknum." Á þessari frétt, sem tók 28 línur, var fyrirsögnin „Kvik- sögur“. Fyrir þessa 28 línu frétt hafði ritstjórnin ekki rúm á forsíðu blaðsins. Hún byrjaði þar að vísu, en svo var fram- hald og það átti að fela. Sagt var að það væri á bls. 5, en eftir langa leit tókst mönnum að finna það á þriðju síðu blaðsins. Þau voru ekki falin Moskvutíðindin í Þjóðviljan- um 1938, þegar verið var að fremja hryllingsverk þau, sem Krúsjeff sakar Stalin nú um að vera valdan að!! Þjóðvilja- menn virðast vera seinni að skilja hina nýju línu en Austur- Þjóðverjar. Hví veitist ykkur svo „tregt tungu að hræra“, Einar Olgeirsson, Brynjólfur Bjarnason og Kristinn Andrés- son. — Eða er Lúðvík Jósefsson að semja aðra lang- loku um það, að á Stalin hafi ekki verið deilt á 20. flokksþinginu nýafstaðna? Heimsékn dönsku konungshjónanna: Konuncfur og drotlning aka Irá Hugvellinum um Miðbæinn Sagt trá dagskrá konungskomunnar FLUGVÉL sú, er flytur dönsku konungshjónin hingað í heimsókn þeirra til íslands, er væntanlega til Reykjavíkur laust eftir hádegi á þriðjudaginn 10. apríl næstkomandi. — Nefnd sú, er haft hefur með höndum að undirbúa og skipuleggja móttöku konungs- hjónanna, skýrði blöðunum frá því, hvernig hún hefði skipulagt hina konunglegu heimsókn, en nefndin boðaði blaðamenn á fund sinn síðdegis í gær. f FÖRUNEYTI Það hefur verið skýrt frá því að norræna flugsamsteypan SAS rpuni leggja konungshjónunum og föruneyti þeirra til sérstaka flugvél. Mun aðalflugstjóri SAS, Dam, verða hinn konunglegi flug stjóri í þessari ferð, sem verður hin fyrsta opinbera heimsókn er Friðrik og Ingrid fara í flug- leiðis. Sem fyrr segir verður H.C. Hansen, forsætis- og utanríkis- ráðherra Dana, x fylgd með kon- ungshjónunum, en einnig verður í föruneyti þeirra Johan Vest, • kammerherra, stallari konungs, Karjn Birgitte Schack, komtessa og S. Gladborg, höfuðsmaður. FYRSTI DAGURINN I REYKJAVÍK Konungsflugvélin mun lenda á Reykjavíkurflugvelli ura kl. 1.30 á þriðjudaginn 10. apríl. — Þar munu konungshjónin og fylgdarlið enga viðdvöl hafa. — Munu þau aka suður í Ráðherra- b'ústað, þar sem konungshjónin | munu búa meðan þau gista Reykjavík. Mun bíll þeirra aka um Miklatorg, Hringbrautina, ! Sóleyjargötu, Fríkirkjuveginn,. ' Lækjargötu, Austurstræti, Póst- hússtræti, Kirkjustræti, Templ- arasund og Vonarstræti, síðan suður Tjarnargötu að Ráðherra- bústaðnum. Konungshjónin munu fara til tedrykkju til forsetahjónanna að 1 Bessastöðum kl. 4 þennan dag. Um kvöldið kl. 7.10 hefst svo móttaka í Ráðherrabústaðnum er sendimenn erlendra ríkja hér í Reykjavík ganga fyrir konungs- hjónin. — Um kvöldið verða konungshjónin og fylgdarlið þeirra gestir forsetahjónanna í 150 manna kvöldverðarboði að Hótel Bo?g. Þar flytja konungur og forseti ræður. ANNAR DAGUR Næsta dag kl. 10.20 árdegis heimsækja konungshjónin lista- safn. Einars Jónssonar I Hnit- . björgum. Þaðan fara þau til guðsþjónustu í Dómkirkjunni og mun biskup landsins, dr. Ás- mundur Guðmundsson, prédika. Hádegisverður verður snæddur að Bessastöðum. Kl. 3 e.h. munu konungshjónin taka á móti gest- um í danska sendiráðinu, en um kvöldið fer fram hátíðasýning í Þjóðleikhúsinu. Þar mun Sin- fóníuhljómsveit Reykjavíkur, undir stjórn dr. Páls ísólfssonar, flytja íslenzk tónverk, m.a. nýtt . tónverk eftir hið unga tónskáld Jón Nordal, Síðan flytur hljóm- sveitin og islenzkir söngvarar óperuna Cavalería Rustikana. HÁSKÓLINN — REYKJA- LUNDUR OG GESTIR REYKJAVÍKUR Fimmtudagurinn 12. apríl, sem verður hinn síðasti, sem dönsku konungshjónin dveljast hér á landi, munu þau heimsækja Há- skólann og vinnuheimilið að Reykjalundi, árdegis, en há- degisverðarboð ríkisstjórnarinn- ar verður haldið í Sjálfstæðishús- inu. Um nónbil skoða konungs- hjónin dönsku myndlistarsýning- una, sem efnt verður til í sam- bandi við heimsókn hinna tignu gesta. Kl. 4 síðdegis mun borgar- stjóri Reykjavíkur, Gunnar Thor- oddsen, í nafni Reykjavíkurbæj- ar hafa móttöku fyrir konungs- hjónin og fylgdarlið þeirra í Melaskólanum. Framh. á bls. 12 Blöð kommúnista í Vesturlönd- um (að Þjóðviljanum undan- skildum) eru nú tekin að segja frá baráttunni gegn Stalin, sem Krúsjeff hóf á 20. flokksþinginu í Moskvu á dögunum. Brezka kommúnistablaðið „Daily Work- er“ segir að yfir 30 milljónir Lenín hninoði Stnlin Ekkja Lenins Svo sem skýrt hefur verið frá í blaðinu, sagði Krúsjeff í ræðu sinni á kommúnista- þinginu, að Stalin hefði hót- að Krupskayu, ekkju Lenins, að lýsa því yfir, að hún hefði aldrei verið kona Lenins held- iu* hjákona hans, ef hún hætti ekki andróðri gegn sér. Sam- kvæmt nánari fregnum, sem blaðið hefur haft af ræðu Krúsjeffs, mun hann hafa sagt, að innan skamms yrði erfðaskrá Lenins birt almenn- ingi. Er sagt eftir Krúsjeff, að í henni hefði Lenin varað Rússa við því að gera Stalin að eftirmanni sínum. I ræðu sinni veittist Krú- sjeff aðallega að síðari hluta stjórnartíðar Stalins, en auð- séð er nú, að Krúsjeff heldur því fram, að það hafi aldrei verið ósk Lenins, að Stalin tæki við ríkjum. Þess skal getið, að birting erfðaskrár- innar hefur aldrei verið leyfð. manna í Rússlandi verði nú kvaddar á fundi, þar sem „hin nýja Iína“ verður skýrð. Stjórnin hefur sent tugþúsund- ir af „tryggum" mönnum sínum út um landið til að skýra „lín- una“ sem mörkuð var í ræðu Krúsjeffs. * ULBRICHT Á laugardagskvöldið flutti Ul- brigcht, leiðtogi a-þýzkra komm- únista, ræðu — þar sem hann vítti harðlega Stalin og starfs- aðferðir hans. Voru ummæli hans um hinn látna foringja mjög keimlík þeim, sem Krúsjeff er sagður hafa haft um Stalin á kommúnistaþinginu í Moskvu. Kvað hann Stalin hafa verið of- stækisfullan einræðissegg, sem hafi nær tortímt hinu kommún- iska skipulagi. Ulbricht áminnti a-þýzka kommúnista að taka þessum tíð- indum með skynsemi — og læra, „því að a-þýzkur æskulýður hefði verið alinn upp í villutrú.“ — Fylgdi þessum orðum hans runa af „játningum“ um ástandið í Rússlandi — og dýrslega stjórn Stalins. Fylgdi það fréttunum, að mikil ólga væri í A-Þýzkalandi vegna orða Ulbrichts — og al- mennt er hún álitin hrein stað- festing á þeim glæpum, sem Krú- sjeff er sagður hafa borið upp á Stalin — á kommúnistaþinginu. flllar myndii ni Stalín eru horfnar FIMMTA marz siðastl. voru þrjú ár liðin frá því að tveir nafn- \ kunnir Rússar létust, tónskáldið Prokofieff og maður að nafni Stalin. Grafhvelfingin, þar sem lík Stalíns er geymt var lokuð þenna dag, eins og alltaf á mánu- dögum, og enginn minntist þessa látna einvaldsherra þenna dag. En grein birtist í listtímariti um Prokofieff og er greinin skrifuð af nafnkunnustu ballettdansmær Rússa. Niu prestar frá Bandaríkjunum eru á ferð í Rússlandi um þessar mundir. Á þriðjudaginn skoðuðu þeir eitt frægasta' málverkasafn Rússa, Tretyakov-safnið í Moskvu, og veittu því athygli að þar var enga mynd af Stalin að sjá. Gamall leiðsögumaður prest- anna skýrði frá því að nokkrar myndir af Stalin hefðu verið þarna áður, „en það er búið að taka þær í burtu“ bætti hann við. 25 málverk af Stalín voru í sölum safnsins áður, segir UP.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.