Morgunblaðið - 21.03.1956, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.03.1956, Blaðsíða 1
16 síður Fmmvarp framlög um skipulugðgr rúðstufunir og uukin fjúr- til sköpunar juinvægis í byggð lundsins Krúsjeff og Bulganin til Bretlands Rœða í Breflandi um stjórn- málaástandið í heimimsm Jafnvægissjóður stofnaður, er veitir stuðning til framkvæmda og eflingar atvinnulifi í þeim Eandshlutum, sem við erfiðastar aðstæður búa IDAG hélt Eden fo-rsætisráðherra ræðu í brezka þinginu og skýrði frá tilhögun móttaka þeirra Krúsjeffs og Búlganins, sem koma í heimsókn til Bretlands í næsta mánuði. Koma þeir hinn 18. april til Portsmouth með rússneska beitiskipinu Sverdlovsk — og munu dveljast í Bretlandi til FJÖLMENNT 4 FÖRUNEYTI Aðalþáttur dvalarinnar í Bret- landi verða stjórnmálalegar við- ræður, sagði Eden — og munu þær fara fram í Downingstreet 10, sagði Eden. Einnig mun drottmngin taka á móti Rússunum í Windsor- kastala — þann 22. apríl. Föruneyti þeirra Moskvu- félaganna verður fjölmennt — og ekki minna en 50 manns. Fjölmennastur er lífvörðurinn, en þess hefur verið sérstak-1 lega getið, að Molotov verður ekki með í förinni. Fremsti staðgengill hans, Andreij Gromyko, verður í hans stað. Margt fleira verður þar ráða- manna, svo að ekki sé gleymt tveim matsveinum, sem munu fylgja þeim Moskvu-félögum fast eftir. NehFU tlS BandarsSijenna WASHINGTON 20. marz. — Til- kynnt var hér í dag, að Nehru, forsætisráðherra Indlands, hefði þegið boð Eisenhowers banda- ríkjaforseta — um að heimsækja Bandaríkin. Mun hann dveljast þar vestra fyrstu dagana í júlí. Þeir Eisenhower og Nehru munu ræða formlega um sameiginlega hagsmuni landanna. 27. april. » ..—---------------------- Túnls læi aukið sjúlistæði PARÍS, 20. marz. — Undirrit- aðir hafa verið í París samning- ar milli Frakklands og Túnis — þess efnis, að Túnis mun fram- vegis njóta meira sjálfstæðis, en hingað til. Munu þeir fá í eigin hendur stjórn utanríkismála landsins — svo og stjórn her- varna. Þó munu Frakkar hafa eftirlit með aðgerðum þeirra — ! a. m. k. fyrst í stað. Lynur þá algerum yfirráð- 1 um Frakka í Túnis, og fara fram almennar þingkosning- ar í iandinu innan nokkurra daga. 141 NEW YORK. 20. marz — Lýst hefur verið yfir neyðarástandi í mörgum fylkjum Bandaríkjanna, er liggja á strönd Atlantshafs- ins. Þar hefur undanfarið geisað mikill stormur með snjókomu, og er þetta eitt hið versta veður, sem komið hefur í mórg ár. Hef- ur veðrið valdið tilfinnanlegum skaða í 14 ríkjum Dg hafa að minnsta kosti 141 látið lífið. í New York einni hafa 46 látizt, og tjónið þar er metið á 200 millj. dollara. —NTB NÝJA • SAMKVÆMT fréttum frá Moskvu er nú þegar byrjað á því að endurrita kennslu- bækur í sögu, sem ná yfir stjórnartíð Stalins. Mun hér vera um allmikla breytingu að ræða, svo sem að líkum lætur — enda hafa kommún- istar aldrei hikað við að skýra frá liðnum atburðum á þann veg, sem hentar í þaö og það skiptið. í nýjuwségúnhi mun Stalin vera sakaðúf Um allar ófarir Rússa í síðari ’ heims- styrjöldinni. • Fátt hefur frétzt af viðbrögð- um kommúnista í ICÍna við nýju líntinni, en það vakti mikla athygli, að, Mao Tse Tung sendi flokksþinginu skeyti — þar sem hann fór viðurkenningarorðum um Stalin. Ljóst er af því, að ekki hefur honum verið kunnugt um fyrirhugaða fordæmingu Stalins. í dag gekk aðalfulltrúi kommúnista-Kína í Moskvu á fund Bulganins. Álitið er að LINAN þeir Bulganin hafi rætt um boðskap Krúsjeffs á flokks- þinginu, þar sem hann nefndi Stalin vitskertan fjöldamorð- ingja. Beðið er eftir því með mikilli eftirvæntingu, hvernig Mao Tse Tung tekur nýju lín- j unni, og eru fréttamenn ekki ! á einu máli um viðbrögð hans, ! þar eð hann var mikill vinur Stalins. .. ® Ekki er um neitt meira rætt meðal frjálsra þjóða en yfir- lýsingu Krúsjeffs. Atburður þessi hefur verið aðalumræðu- efni blaða og útvarpsstöðva báðum megin hafsins, og sagði stjórnmálafréttastjóri Colum- bia-útvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum m. a., að það væri hryllileg sönnun þrælk- unar, að milljónaþjóð væri nú allt í einu sagt, að maðurinn, sem henni hefur verið skipað að tilbiðja sem guð, — hefði verið samvizkulaus stórglæpa- maður. Bæða Ólafs Thors forsætisrúð- herra í Efri deild Alþingls í gær /\LAFUR THORS forsætisráðherra Iagði í gær fram á Al- ^ þingi frumvarp til laga um ráðstafanir til að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. En í frumvarpi þessu er kveðið svo á, að stofna skuli jafnvægissjóð sem rílössjóður leggi árlega til 5 milljón krónur. Um frumvarp þetta komst Ólafur Thors svo að orði í framsöguræðu, er hann hélt fyrir því í Efri deild Alþingis: — Ég álít, að hér sé um mjög merkilegt mál að ræða. Til þess ber brýna nauðsyn, að haldið sé uppi starfi og fram- leiðslu hvarvetna á landinu, þar sem skilyrði eru góð. Þess vegna er eðlilegt, að hið opinbera hlutist til um stuðning við þau byggðarlög, sem skortir atvinnutæki til þess að tryggja íbúum sínum lífvænlega afkomu og atvinnuöryggi. Olafur Thors, forsætisráðherra. EKKI HORFIR VEL í FINN LANDI HELSINGFORS, 20. marz — Tæpum sólarhring eftir að þriggja vikna allsherjarverk- fallinu í Finnlandi var lokið — dró enn til alvarlegra tíð- inda. Tilkynntu atvinnurek- endur þá allt í einu, að þeir gætu ekki fallizt á launahækk anir þær. sem í samningunium fólust — fyrr en verkfalli prentara væri lokið. Samn- ingaviðræður með prenturum og atvínnurekentíum hafa stöðvazt, vegna þess að at- vinnurekendurnir gengu ekki að kröfum um hækkuð laun. Verkfall járnbrautarstarfs- manna heldur einnig áfram, vegna þess að nokkrir starfs- mannanna vonu kallaðir til yfirheyrzlu vegna ýmissa að- gerða þeirra í verkfallinu. Stjórnin hefur lagt fram mála- miðlunartillögu í verkfallinu, og sagði Fagerholm forsætis- ráðherra', að stjórnin- mundi segja af sér, ef tiltagán hlytl ekki samþykki. —NTB. Styðja danska verkfallsmenn STOKKHÓLMI, 20. marz — Fél. sænskra flutningaverkamanna hefur samþykkt, að aígreiða ekki dönsk skip, sem bíða afgreiðslu í sænskim höfnum. Er þetta gert til þess að styðja verkfall það, sem nú stendur yfir í Danmörku. TILGANGUR fRUMVARPSINS í framsöguræðu sagði Ólafur Thors forsætisi'áðherra m. a.: Fyrsta grein frum\ arps þess, sem ég hef leyft mér að bera hér fram hljóðar þannig: „Tilgangur þessara laga er að stuðla að jafnvægi í byggð lands- ins með rannsóknarstörfum, áætl anagerð og fjárhagslegum stuðn- ingi til framkvæmda og eflingar atvinnulífi í þeim landshlutum, sem við erfiðasta aðstöðu búa, í því skyni að auka skilyrði til fólksfjölgunar eða draga úr fólks- fækkun í þeim landshlutum“. Hér er í fáum orðum lýst til- gangi þessa frumvarps, sagði for- sætisráðherra. FORUSTA DEILDARFORSETA Kvaðsc hann vilja láta nægja að fylgja frumvarpi þessu úr hlaði með nokkrum orðum í Efri deild, vegna þess m. a. að sjálfur forseti Efri deildar, Gísli Jóns- son þingmaður BarSstrendinga, væri einn aðalhöfundur frum- varpsins ásamt með Gísla Guð- mundssyni þingmanm Norður- Þingeyiaga. Síðan skýrði Ólafur Thors ýtar lega frá forsögu þessamáls Sagði hann m. a.: TILLAGAN FRÁ 1953 Á Alþmgi 1953 báru alþingis- menniriiir Sigurður Bjarnason, Gísli Jónsson, Gísli Guðmunds- son, Magnús Jónsson, Eiríkur Þorsteinsson, Halldór Ásgrímsson og • Jón Sigurðsson, fram í sam- hinuðu þingi tillögu til þings- Úlvktunar um undirbúning heild- aráætlunar í þeim tilgangi að skapa og viðhalda jafnvægi í byggð landsins. Tillagan var svohljoðandi: „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja nú þegar undirbúning að heild- aráætlun um framkvæmdir í þeim landshlutum, sem við erfiðasta aðstöðu búa sökum erfiðra samgangna og skorts á raforku og atvinnutækjum. Að slíkum undirbúningi lokmum skal ríkisstjórnin leggja fyrir Alþingl tillögur sínar um nauðsynlegar fram- kvæmdir. Skulu bær stefna að því að skapa og viðhalda jafn- vægi í byggð landsins og tryggja sem mest framleiðslu- afköst þjóðarinnar. Fiskifélag íslands, Búnaðar- félag íslands og Landssam- band iðnaðarmanna skulu vera n'kisstjórninni til aðstoð- ar við starf þett ú . Alþingi samþykkti tillögu þessa óbreytta þann 4. febrúar 1953. Ríkisstjórnin ákvað að fela alþingismönnunum Gísla Jóns- syni og Gísla Guðmundssyni að vinna að undirbúmngi þessa máls og þann 29. júní 1954 ritaði atvinnumálaráðuneytið þeim bréf þar sem þeim er falið að vinna að undirbúningi og semja heildaraætlun um framkvæmdir í þeim landshlutum, sem við erfið asta aðstöðu búa sökum erfiðra samganena og skorts á raforku og atvinnutækjum, samkvæmt því sem lagt var til í þingsálykt- uninni. TILLAGA FRÁ 195- í lok Alþingis 1954—1955 bar allsherjarnefnd samemaðs þings fram tillögu um ráðstáfanir til atvinnuaukningar og var þings- ályktunartillaga þessu samþykkt á Alþingi 11. maí 1965. Var sú tillaga í rfun og veru breytingartillaga við tillögu, sem þeir Sig-urður Bjamason, Gísli Jónsson og Kjartan J. Jóhanns- son höfðu borið frs n um ráð- stafanir vegna vaxardi rányrkju á fiskimiðum fyrir Vestfjörðum. Tillaga allsherjair.efndar var svohljóðandi: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina . að láta fara fram rannsókn á því fyrir næsta þing, hverjar ráðstaf- anir séu tiltækilegar til þess að bæta úr atvinnuerfiðleik- um þeirra landshluta, sem harðast hafa orðið úti vegna vaxandi rányrkju fiskimið- anna eða skorts á atvinnu- tækj>um“. Þar sem þessi siðari þings- Framhald á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.