Morgunblaðið - 21.03.1956, Page 7
Miðvikudagur 21. marz 1956
MORCUNBLAÐIÐ
7
Kristján Þorleiísson áttræður
H
'ANN er fæddur á Bjarnarhöfn
Snæfellsnesi 21. marz
1876. Foreldrar hans voru Þor-
leifur hreppstjóri Þorleifsson á
Bjamarhöfn og kona hans,
Amalía Pálsdóttir, Hjaltalíns,
sem voru mikilsmetnin heiðurs-
hjón, og hjá þeim ólst Kristján
wpp, við góð efni og mikla rausn
— Þorelifur faðir Kristjáns vai
mikill framfara- og framkvæmda
maður, en dó miðaldra. Hann
sýndi m. a. þann manndóm að
bregða sér á lítilli seglskútu ti)
Noregs og sækja þangað vaminp
handa bygðalaginu, eitt harð
indaárið um 1880. Föðurafi
Kristjáns var Þorleifur, læknir-
inn mikli, í Bjarnarhöfn, sem
var svo skyggn að hann sá í
gegnum fjöllin og út yfir hafið
og svo forspár að hann gat sagi
fyrir óorðna atburði, en kona
Þorleifs læknis var Kristín Sig-
urðardóttir, annáluð ljósmóðir og
gæðakona, sem tók börnin heim
með sér og fóstraði fyrsta mán-
uðinn, sem þau lifðu, heima í
Bjarnarhöfn. — Amalia móðir
Kristjáns var dóttir hins víð-
fræga heiðursmanns, Páls Hjalta-
líns, sem var verzlunarstjóri
Clausensverzlunar í Stykkis-
hólmi í 40 ár, og Matthías Joch-
umsson kvað eftir hin fögru eft-
irmæli, en þar segir skáldið um
Pál:
Svikalaus og sálarhreinn
gekkstu fram að bana, beinn.
Það er engum blöðum um það
að fletta, að Kristján hefur tekið
mikið af „hinum fornu dyggðum“
að erfðum eftir göfuga forfeður
sína, en hitt er líka jafnvíst að
honum hefur tekizt að ávaxta
þann arf svo vel, að okkur sam-
ferðamönnum hans er það til fyr-
irmyndar.
— ★ —
Kristján giftist ungur góðri
konu, Ragnheiði Benediktsdóttur,
ættaðri af Skógarströnd. Var
hjónaband þeirra hið ástríkasta
og voru þau hjónin samrýmd og
samhent um greiðvikni og góð-
vild, en Ragnheiði missti Kristj-
án fyrir rúmum 20 árum. Þau
eignuðust 4 syni, sem allir kom-
ust upp, og eru nú búsettir hér
í bæ — allt hinir nýtustu þjóð-
félagsþegnar. Oddur, starfsinað-
ur hjá SÍS er þeirra elztur, næst-
ur er Benedikt húsgagnameistari,
þá Karl starfsmaður hjá Reykja-
víkurbæ. og yngstur Gunnar
hljómleikamaður.
Skömmu eftir að Kristján gift-
ist fór hann að búa á Hjarðar-
bóli við Kolgrafafjörð, en síðar
fluttist hann að Grund í Grund-
arfirði og bjó þar all lengi, en
hætti búskap þegar hann missti
konu sína. Brátt hlóðust á
Kristján fjöldi opinberra starfa.
Hann var hreppstjóri, en sagði
þeirri hefði af sér 1934. Sýslu-
nefndarmaður hefur hann nú
verið óslitið í hálfa öld og er
það enn. Þar hefur hann ávallt
reynzt hinn friðsami, tillögugóði
sáttasemjari, sem öll mál vill
leysa sýslubúum til farsældar.
Hann hefur verið endurskoðandi
sýslu- og hreppareikninga um
áratugi. Einnig hefur hann verið
í jarðamati sýslunnar, um all-
mörg ár.
Af framanritaðri upptalningu
opinberra starfa Kristjáns má j
ráða hversu mikils trausts hann j
hefur notið hjá samsýslungum
sínum, enda hafa stjórnarvöld
landsins veitt honum verðuga |
viðurkenningu fyrir þau. Honum
var veittur fálkakross fyrir
nokkrum árum.
— ★ —
Eg, ættmenn mínir og forfeður
í báðar ættir hafa nú í rúma öld
notið vináttu hinna góðu og göf-
ugu feðra Kristjáns og hans
sjálfs, svo að þar hefur aldrei
borið skugga á. Eg ætti því að
geta lýst þessum manni svo að
ókunnugir mættu trúa. Eg segi
það óhikað, að Kristján er einn
gáfaðasti og göfugasti maðurinn,
sem eg hefi kynnzt á lífsleið-
inni, og gæti eg sagt margar
sögur um góðvild hans til náung-
ans og mannkosti hans, ef eg
mætti skrifa langt mál. — Þor-
leifur gamli afi Kristjáns var
skyggn eins og fyrr getur, en
Kristján hefur ekki erft þann
hæfileika föður síns, en samt er
hann skyggn, en það er á öðru
sviði. Hann er ótrúlega skyggn
og næmur fyrir þvi, að sjá og
skilja erfiðleika annara manna
og það sem amar að þeim, og
þá vantar hann heldur ekki
viljann til þess að bæta úr á
einhvem hátt. Hann hefur líka
ávallt verið nærfærinn um sjúk-
dóma dýranna, og oft farið
mjúkum læknishöndum um þau.
— ★ —
Einu sinni var eg um hávetur
staddur í Grundarfirði og hafði
hlaðið niður snjó í nokkra daga,
svo að engum var fært lim sveit-
ina, ekki einu sinni gangandi
manni, nema með sjónum fyrir
neðan háa bakkana. Þá bjó
Kristján á Grund. Hann frétti
að fátæk hjón höfðu misst
barn frammi í Eyrarplássi. Þá
var Kristján nærfærinn um að
þama væri sorgin og erfiðleik-
arnir á ferðinni. Þegar veðrinu
slotaði, birti og tunglið, sem var
cullt, naut sín. Þá lagði Kristjáft
á stað í rökkrinu, gangandi frara
i Eyrarpláss, og varð að fara
eftir klambraðri fjörunni þar
aem skuggann bar á undir bökk-
unum háu. Honum gekk ferðir
vel, en hann var lika í góðum
erindum. Hann bar smyrsl 1
sorgarsárin hjá fátæka fólkinu og
komst svo heilu og höldnu heim
um lágnættið. —
Kristján Þorleifsson er glæsi-
menni og höfðinglegur ásýndum,
beinn í baki þótt áttræður sé.
í framkomu er hann eins og
fágaður hirðmaður og myndi
sóma sér i hverjum veizlufagn-
aði hvar sem væri í heiminum.
Kátur er hann og hrókur alls
fagnaðar í vinahópi, en innst inni
leynist draumlyndm- alvörumað-
ur. Á þessum heiðursdegi verður
Kristján staddur á heimili Odda
sonar síns í Eskihlíð 8.
! Við þökkum guði fyrir það, að
i hann gaf okkur þennan góða
mann og biðjum hann að lofa
okkur að njóta hans lengi enn,
við góða heilsu.
I Oscar flausin.
Vélskofla leigð til vinnu
Sérstaklega útbúin til að moka grjóíi og brotajárni.
Skóflustærð vélarinnar %—Vb cubikyard.
Uppl. í síma 3450.
JÓN HJÁLMARSSON
UciUvenlui — Iðnfyrirtæki
Heildverzlun eða iðnfyrirtæki óskast til kaups. —
Tilboð sendist blaðinu fyrir 30. apríi merkt: „Heild-
verzlim—Iðnaður—1140“.
ATVIIMISIA
2—3 piltar, 16 ára og eldri, geta komizt að sem lær-
lingar við prentnám nú þegar.
Uppl. gefur Ráðningarstofa Reykjavíkurbæjar.
Laugarás-bíó
vantar vanan sýningarmann,
afgrciðslustúlkur,
Dyravörð og ræstingarkonn
Umsóknir sendist blaðinu merkt: „Lipurð —1126“
Gerið
páskainnkaupin
snemma
SÍS
AUSTURSTRÆTl
— Morgunblaðib með morgunkaffinu —
Viðskiptafrœðingur
óskar eftir atvinnu nú þegar eða í vor. -— Þeir, sem vildii
sinna þessu leggi nöfn sín inn á afgr. Mbl. fynr sunnu-
dagskvöld, merkt: „Reynsla — 1142“.
Hefi til sölu fokheldar
3 herbergja íbúðir
í fjölbýlishúsi i Vesturbænum. — Einnig eins herbergis
íbúð. — Uppl. í síma 3680 eftir kl. 7.
DIESEL-RAFSTOD1250 wöít
230 volt, 1-fasa fyrir riðstraum með mælaborði
og öllu tilheyrandi, til sölu nú þegar.
Raffækjasalan hf.
Vesturgötu 17 — sími 4526.
RAFGEYMAR
6 volta
Háspennukefli — Flautur — Afturljós — Brettaljós —
Kveikjur — Dynamóar — Startarar — Þurrkumótorar
— Speglar —Rofar — Straumlokur, 6 volta — Platínur
Kveikjulok •— Lugtarhringir fyrir samlokur og margt
fleira i rafkerfið.
Bitreiðavöruverzlun Friðriks Bertelsen
Hafnarhvoli — Sírni 2872
SHELL
-----------M E Ð-----------
* ’ti. \
if* 3*
KRAFTMESTA BEN2ÍN
SEM VÖL ER A
o
>
to
CJl
, 05