Morgunblaðið - 21.03.1956, Page 14

Morgunblaðið - 21.03.1956, Page 14
14 MORGVNBLAÐIÐ Miðvlkudagur 21. marz 195S SYSTURNAR ÞRJÁR EPTIR IRA LEVIN - Annar hluti: ELLEN Framhaldssagan 49 Örfá'r gulir Ijósgeiisar úr upp lýsturr. ?>luggum, lágu eins og ljós strik þvert yfir hina ferhyrntu tregt portsins og eitt einstakt Ijós, allra lengst niðri, lýsti upp botn.hins gráa, steypta ferhyrn- ings, þar sem steinveggirnir komu saman í einum miðpunkti. „Ég hélt að þig sundlaði við að horfa niður' úr svona mikilli Ha3ð“. I Hann snerist hvatlega á hæl. ■Stórir svitadropar voru á enninu og eftir vörinní og fátkennt bros flökti um varir hans: ,,Já, það er líka alveg rétt hjá þér“, sagði feann — ,en ég get bara ekki stillt mig um að gera það. Sjálfspynt- ing . . Brosið hvari . „Ég er eérfræð'ngur í því“. Hann dró djúpt að sér andann: „Ertu nú tilbúin að koma niður“? spurði hann. „Nei, við erum bara alveg ný- komin hingað upp“, maldaði Ell- en í móinn. Hún sneri sér við og gekk á milli kantaðra loftræstingarrör- anna yfir austurhlið oaksins. Poweil gekk með tregðu á eftir henni. Þegar Ellen kom út á brúnina, sneri hún bakinu í múrvegginn og horfði upp á útvarpsstöngina, sem gnæfði upp í lofcið, skammt frá þeim, sveipuð rauðum bjarma toppljóssins. „Það er eitthvað svo viðkunnanlegt hérna uppi“, sagði hún. Powell, sem stóð með hendurn- ar spenntar á brjóstvörninni og horfði út yfir borgina, sagði ekki neitt. „Hefurðu nokkurn tima kom- ið hingað áður, að kvöldi dags?", spurði Ellen. „Nei“ sagði hann. — „Ég hefi meira' að segja aldrei Komið hing- að áður, hvorki að degi til né um kvöld“. Hún sneri sér að brjóstvörinni, laut fram yfir brúnina og horfi niður á stallinn, tveimur hæðum neðar Hún hnykklaði hugsandi brún- irnar: „Mig minnir að ég læsi ein- hvern tíma um það í blöðunum, að ung stúlka hefði orðið fyrir því slysi, að hrapa hér niður . . .“ sagði hún hægt og hugsandi. „Já“, sagði hann og röddin var alvöruþrungin ... „En það var ekki slys. Það var sjálfsmorð‘“. \ Skammt frá þeim marrari lágt og ömurlega í loftloku. I „En“. — Ellen hélt áfram að horfa niður á hinn breiða stall. „Ég get bara ekki skilið það, að stúlka skyldi bíða bana. ■— Þetta er þó ekki svo hátt fall, aðeins tvær hæðir". Hann lyfti hendinni og benti með þumalfingrinum yfir öxlina á sér. „Þarna yfir frá . . . Port- opið“. „Æ, ja Það var satt'. Hún rétti sig upp. „Nú man ég það. Blöðin í Des Moines gerðu sér mikinn mat úr þessum atburði". Hún lagði veskið frá sér, upp á múr- brúnina og greip um hana með báðum höndum, eins og til þess að reyna styrkleika nennar. — „Þetta var stúlka úr Stoddard- háskólarum, var þaó ekki?“ „Jú“, sagði hann. Hann benti með annarri hendinni: „Sérðu hringmvnduðu bygginguna þarna, með Ijósunum. Það er rannsóknarstofa og stjörnuturn Stoddardháskólans. Einu sinni kem é« baneað, til nokkurra eðl- ; isfræðitilrauna. Það er .. “ „Þekktirðu hana?“ Rauða ljósið brá glampa á and- lit hans. — „Hvers vegna spyrðu , að því?“ sagði hann „Mér datt það bara svona í hug, að þú hefðir e. t. v. þekkt hana. Það er heldur ekki svo ósenni- legt, þar sem þið stunduðuð nám við sama skólann....“ ,,Já“, sagði hann hastur. — „Ég þekkti hana vel og hún var bæði falleg og góð stúlka.“ „Eina ástæðan fyrir því, að sagan festist í minni mér, var þetta með hattinn“, sagði hún. Powell andvarpaði gremjulega. — „Hvaða hatt?“ sagði hann svo þreytulega. „Hún hafði rauðan hatt með slaufu og ég var einmitt nýbú- inn að kaupa mér rauðan hatt, daginn sem þetta skeði.“ „Hver sagði, að hún hefði haft rauðan hatt?“ spurði Powell. „Hafði hún það kannske ekki? Dagblöðin í Des Moines sögðu .. Segðu að þau hafi haft rangt fyrir sér“, bað hún. — „Segðu að hann hafi verið grænn.“ Það varð stundarþögn. — „Clarion minntist aldrei á rauð- an hatt“ sagði Powell. — „Ég las allt, sem um þetta var skrifað, mjög nákvæmlega, af því að ég þekkti hana..“ „Hún getur nú vel hafa haft hattinn, þó að blaðið í Blue River nefndi það ekki“, sagði Ellen. Fowell leit á armbandsúrið sitt: — „Heyrðu nú“, sagði hann önugur. — „Klukkuna vantar nú tuttugu og fimm mínútur í níu og ég er búinn að skemmta mér nógu lengi við þetta dásamlega útsýni." Hann snéri sér við og gekk í áttina til stigagangsins. Ellen flýtti sér á eftir honum: — „Við getum ekki farið alveg strax“, sagði hún óánægð og greip í hand legginn á honum. „Hvers vegna ekki?“ Hún leitaði í huganum eftir einhverri frambærilegri ástæðu. „Ég vildi .... Ég vildi gjarnan fá mér einn vindling hérna fyrst.“ Hann færði hendina til vasans, en kippti henni svo að sér á miðri leið: — „Ég á enga vindl- inga til. Komdu nú. Við getum bætt úr þeirri vöntun, þegar nið- ur kemur.“ J „Ég held að ég eigi sjálf ein- hverja í töskunni minni“, flýtti hún sér að segja um leið og hún gekk aftur á bak í áttina til portopsins, sem hún sá greini- lega fyrir sér í huganum Hún beygði örlítið til hliðar, leit bros- andi til Powells og mælti til þess að segja eitthvað: — „Það væri gaman að reykja einn vindling i ró og næði hérna uppi á þak- inu.“ Hún rótaði til í veskinu sínu: „Viltu ekki einn líka?“ Hann kom gangandi hægum skrefum á eftir henni, með samanbitnar varirnar af reiði. Hún rétti fram velktan pakkann um leið og hún hugsaði með sér: — Það verður að ske í kvöld, því að hann býður tæp- lega Evelyn Kittredge oftar út með sér. „Gerðu svo vel“, sagði hún. Hann hrifsaði einn vindlinginn reiðilega. Hún fálmaði með fingrunum eftir öðrum og á meðan hún gerði það, leit hún í kringum sig og virtist nú fyrst koma auga á portopið og snéri sér að því: „Er það hérna..?“ Hún snéri sér aftur að honum. Hann kipraði saman augun og varirnar herptust saman: — „Heyrðu nú Evelyn. Ég bað þig um að tala ekki meira um þetta“, sagði hann. — „Viltu nú vera svo góð og gera þá einu bón mína? Heyrirðu það“. Hún hafði ekki augun af hon- um, stakk vindling á milli vara sinna og lét pakkann niður í veskið aftur. „Fyrirgefðu", sagði hún kulda- lega. — „En ég skil ekki hvers vegna þú ert svona viðkvæmur fyrir þessu.“ „Geturðu ekki skilið það. Ég þekkti stúlkuna“. Hún kveikti á einni eldspýt- unni og hélt henni að vindlingn- um hans. Rauðleitur bjarminn lýsti upp andlit hans og birti henni tvö, blá augu, sem skutu neistum af æsingu, sem var á takmörkunum að brjótast fram 'JV ELDFÆRIIM Danskt ævintýri 4. En þegar hann hafði virt hann fyrir sér, þá hugsaði hann að nóg væri komið af svo góðu, setti hann niður af kist- unni á gólíið og lauk upp kistunni. Drottinn minn dýri! Hvílík ósköp voru í henni af gullinu! Fyrir það hefði hann getað keypt alla höfuðborgina, alla þá sykurgrísi, sem kryddbrauðssölukonurnar höfðu á boð- stólum, alla þá tindáta, keyri og rugghesta, sem til voru í heiminum. Já, þetta voru peningar. Og nú fleygði dátinn öllum þeim silfurpeningum, sem hann hafði íyllt með vasa sína og hertöskuna, og tók nú í þeirra stað gullið og troðfyllti með því alla vasa sína, hertöskuna, húfuna og stígvélin, svo að hann gat varla gengið. Nú hafði hann nóga peninga. Hundinn setti hann upp á kistuna, skellti á eftir sér hurðinni og hrópaði upp í gegn- um tréð: „Dragðu mig upp, gamla kerlingarnorn!“ „Ertu með eldfærin?“ sagði kerling. „Æ, það er satt,“ sagði dátinn. „Því var ég alveg búinn að gleyma.“ Fór hann þá aftur og náði þeim. Kerlingin dró hann upp og nú stóð hann áftur þarna á þjóðveginum með vasana, stígvélin, hertöskuna og húfuna, allt troðfullt af peningum. „Hvað ætlarðu að gera við þessi eldfæri?“ mælti dátinn. „Það varðar þig ekkert um,“ anzaði kerling. „Þú ert búinn að fá peningana. Fáðu mér nú eldfærin orðalaust.“ „Slúður!“ sagði dátinn. „Segðu rnér undir eins, til hvers þú ætlar að hafa eldfærin, eða ég dreg út korðann og hegg af þér höfuðið. 1' Kæliskápar 8 cbf. FALLEGIR RÚMGÓÐIR Gjörið svo vel að líta inn HEKLÁ Austurstræti SÍMI 1687 Mý sendlng Jersey kjólar GULLFOSS AÐALSTRÆTI Eldhúsfafnaður M orgunkjólar mjög fallegt úrval Svuntur nýjasta tízka MARKAÐURINN Hafnarstræti 5 Skrifstofustúlka Ábyggileg og reglusöm stúlka óskast nú þegar til skrif- stofustarfa. Vxðkomandi þarf að vera góð í íslenzku og geta vélritað. Upplýsingar á skrifstofunni, Laugavegi 15. (ekki 1 síma). LUDVIG STORR & CO. Unglingur óskast til að bera Morgunblaðið til kaupenda víðsvegar um bæinn í veikindaforföll- um. — Talið við afgreiðsluna sem fyrst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.