Morgunblaðið - 21.03.1956, Page 16

Morgunblaðið - 21.03.1956, Page 16
j9ggntiMðfri& 68. tbl. — Miðvikudagur 21. marz 1956 HLJÓMLE3KUM í D9MKIRKJUNNI ÆSKULÝÐSNEFND Reykjavíkurbæjar efnir næstkomandi föstu- dagskvöld kl. 8,30 til geskulýðstónleika í Dómkirkjunni í i Reykjavík, og er það fyrsta æskulýðsskemmtunin, sem nefndin efnir til í bænum. þessi er af fulltrúum þeim, er setið hafa aðalfund Mjóikursamsölunnar, sem lauk í gærkvöldi. Ai-tnar jerður sagt frá störfum fundarins siðar. Fulltrúarnir eru, talið frá vinstri, fremri röð: Þor- fiteinn Sí§jJrðsson, Sigurgrimur Jónsson. Sverrir Gíslason, Egill Thorarensen, Stefán Björnsson, ftv -inbjörn JUignason, Ólafur Bjarnason, Einar Ólafsson og Gísli Jónsson. Aftari röð: Bjarni Bjarna- ■'■O i, Jónas Magnjisson, Dagur Brynjólfsson, Sveinn Einarsson, Hafliði Guðmundsson, Guðjón Jónsson Eíiikur Jónsson, Daníel Kristjánsson, Guðmundur fónsson og Sigurður Guðbrandsson. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) ! Á hljómleikunum spilar á orgel kirkjunnar þýzki orgelsnillingur- inn Martin Gunther Förstemann, verk eftir Bach, Hándel og ef til vill fleiri klassíska meistara, og auk þess ýmis orgelverk sérstak- lega valin fyrir ungt fólk. Jón Auðuns, dómprófastur, en hann er meðlimur æskulýðsnefndar- innar, kynnir lisíamanninn á undan tónleikunum. — Prófessor Förstemann mun sjálfur skýra hvert einstakt verk fyrir áheyr- endum, og mun dr. Heinz Edel- steih þýða. Prófessor Förstemann er eins og kunnugt er einn víðkunnasti orgelleikari í Evrópu, nemandi Ramíns, og hefur hann leikið hér fyrir meðlimi Tónlistarfélagsins og var aðsóknin svo mikil, að fólkið stöð alla leið ofan í stiga.- Þóttu tónleikar Förstemanns stór fenglegir. Prófessor Förstemann er fyrsti prófessor við tónlistar- háskólann í Hamborg í orgel- leik. Listamaðurinn hefur verið blindur frá fæðingu og er kona hans með honum hér. Förste- mann mun leika í Hafnarfjarðar- kirkju á fimmtudagskvöld og verða þessir æskulýðstónleikar síðustu tónleikar hans hér, enda fer hann héðan á iaugardags- morgun. í gærkvöldi var Dómkirkjan þéttskipuð hrifnum áheyrendum á kirkjutónleikum á vegum Tón- listarfélagsins. Munu áheyrendur hafa verið á milli 800—900. Sfukku í fallhlífum í 16000 fefa hæð H ernaðarleyndarmál kommúnista upplýsf Hægar að komast / r'ikisstjórn að kosningum loknum. Frá íur.di fulltrúaráðs verkalýðsfélag- anna i Reykjavík FULLTRÚARÁÐ verkalýðsfélaganna í Reykjavík hélt fund í fyrrakvöld og lögðu kommúnistar þar fram tillögu þess efnis að fulltrúaráðið lýsti stuðningi sínum við það gerræði meirihluta stjórnar A.S.I. að stofna til pólitískra samtaka í þágu kommúnista- flokksins, og þar með að draga heildarsamtök verkalýðsins inn í flokkspólitíska baráttu eins ákveðins stjórnmálaflokks án heimild- a:r samtakanna og gegn lögum þeirra. Bentu andstæðingar kommún-^__________________________________ ista á, að með þessu væru komm- únistar og meðreiðarsveinn þeirra, Hannibal Valdemarsson, vásvitandi að stefna að því að kljúfa samtökin, og væru þessi verk þeirra lítið í samræmi við það „einingartal", sem komm- únistar hefðu haldið uppi í verkalýðsfélögunum. „Eining“ kommúnista þýddi einfaldlega *í framkvæmd flokkseinræði þeirra. Kommúnistar fóru undan í flæmingi, en að lokum lýsti svo einn fulltrúi kommúnista þvi yf- ■ir, að það sem kommúnistar raun verulega meintu með þessu bandalagi væri að skapa komm- únisiaflokknum betri aðstöðu til að komast í ríkisstjórn að kosn- ingum loknum, ef þeir kæmu þannig dulbúnir fram í kosning- iuii. Nafn flokks þeirra hræddi suma líklega bandamenn frá sam vinnu við kommúnista, en öðru máli gegndi, ef hinum sömu væntanlegu samsíarfsmönnum yrði boðið upp á að semja við kommúnistaflokk undir öðru tiafni. Var ekki laust við að mörgum fulltrúarma þætti þetta kátbros- leg skýring, en kommúnistarnir á fundinum settu upp fýlusvip ©g mátti á þeim sjá, að þeim þótti óvarlega farið með hernaðar- Jfeyndarmál flokksins. Þrátt fyrir allmikinn meiri- Muta kommúnista í fulltrúaráð- inu, voru þeir hræddir um að tíllaga þeirra yrði ekkí samþykkt ©g sendu því menn út af fund- inum til að smala liði sinu. And- ítæiðingar kommúnista höfðu borið fram frávásunartillögu við tillögu kommúnista og var hún felld með 62 atkv. gegn 44 atkv. Einnig felldu kommúnistar til- lögu þess efnis, að kaliað yrði «aman aukaþing A.S.Í. tij að ræða þessi mál. Töldu þeir ástæðulaust að bera slíkt smá- inál undir verkalýðssamtökin í heild. Jón Þórarinssan framkvcemdasfjóri Sinfónísveitarinnar HIN nýskipaða stjórn Sinfóníu- hljómsveitarinnar hefur nú ráðið framkvæmdastjóra, Jón Þórarins son, fulltrúa í Tónlistardeild út- varpsins. Jón var áður en Sinfóníuhljóm- sveitin var lögð undir útvarpið, formaður stjórnar hennar. Sýndi hann þá góða hæfileika til þess að fjalla um slík mál og víst er að fáir menn hér á landi munu vera betur menntaðir í tónlist en einmitt Jón, sem að auki er tón- skáld. Er óhætt að fullyrða að hæfari mann til þess vandasama starfs, að veita jafn miklu menn- ingarfyrirtæki forstöðu sem Sin- fóníuhljómsveitinni, var ekki hægt að fá. lugvél hrapar vll íteffavík il ir Tve v< elli, urðu að stökkva út úr þrýstiloftsofrustuflugvél í 16000 feta hæð, út af Keflavík í gærdag. Um það bil klukkustund síðar fann danskur katalínaflugbátur mennina og vélbáturinn Tjaldur frá Keflavík bjargaði síðan mönnunum. Voru þeir báðir meðvit- undarlausir og virtist mönnum, sem á bryggjunni stóðu, lítið sem ekkert lífsmark með þeim. Orrustuflugvél þessi var af svonefndri Scorpion-gerð og var hún á æfingaflugi er henni hlekktist á uppi í háloftunum. — Flugvélar þessar eru þannig út- búnar, að með því að þrýsta á hnapp, opnast þakið yfir stjórn- klefanum, sem flugmennirnir sitja í, og um leið er þeim „skot- ið“ út úr klefanum í sæti sínu og fallhlífin opnast. Þetta slys var um fimm mílur út af Keflavík. inugvélar og bát- ar fóru strax á vettvang og fregn- in barst út um hina týndu flug- vél. — Um klukkan 5 var danskur katalínaflugbátur frá danska . flughernum á leið til Reykjavík- ! ur frá Narsasuak-flugvelli á Grænlandi. Flugstjórinn á flug- bátnum, Keid Bendix höfuðsmað- ur, fór þegar á vettvang, en flug- ; báturinn átti skammt eftir ófarið hingað til Reykjavíkur. í samtali við tíðindamann Mbl. í gærkvöldi, á Hótel Skjaldbreið, ! sagðist flugstjórinn, Bendix höf- uðsmaður, aðeins hafa verið ný- kominn á þær slóðir er orrustu- flugvélin týndist, er flugbáts- menn hans komu auga á gúmmí- fleka á floti á sjórium. Lækkaði hann flugið að bátnum, en þá sáu þeir að enginn maður var á hon- um. Um líkt leyti sáu þeir menn- ina tvo fljóta í sjónum, um það bil 100 metra frá bátnum. Flugstjórinn hafði samband við flugturninn í Reykjavík og síðan var nærstaddur bátur beðinn að fara á vettvang, mb. Tjaldur. Úr flugbátnum var skotið svifblys- um á stað þann er mennirnir voru á floti. i Sem fyrr segir voru mennirnir ■ meðvitundarlausir er Tjaldur j kom með þá að bryggju í Kefla- j vík. —- Þeir voru færðir þaðan beint í sjúkrahúsið. Mun annar hafa verið látinn, en hinn rétt með lífsmarki. Mun hann hafa látizt skömmu eftir að komið var með hann í sjúkrahúsið. Höfðu mennirnir verið á floti í sjónum í rúma klukkustund áður en þeim var bjargað. Á þessu svæði höfðu bæði flugvélar og bátar leitað áður. Það er af orrustuflugvélinni að segja að hún féll í sjóinn. Frímerkin eru smekklega sett upp á spjaldið. Þeir standa við það, Jónas Hallgrímsson t. v. og Karl Hjálmarsson. — Ljósm. Ól. K. M. Islenzk írímerki send á i mikla sýniiigi? i Ameríku ÞÁ er lokið við að undirbúa þátttöku íslands í hinni stórfenglegu alþjóðlegu frímerkjasýningu, sem haldin verður í New York í vor. — Hefur frímerkjunum verið komið fyrir á stóru spjaldi, sem síðan verður innrammað í sérstakan ramma í sýningarhöll- inni. Þar sem hér er um mjög mikil verðmæti að ræða ,hefur spjaldið með frímerkjunum verið vátryggt fyrir nokkra tugi þús- unda króna. Þeir Jónas Hallgrimsson, sem er fulltrúi sýningarinnar hér á landi og Karl Hjálmarsson póst- fulltrúi, hafa undanfarið unnið að því að ganga frá sýningar- spjöldunum frá íslandi og er myndin hér að ofan tekin af þeim í gær, þar sem þeir standa hjá spjaldinu. Fyrir ofan frí- merkin er mynd af forseta ís- lands, ásamt ávarpi og árnaðar- óskum póst- og símamálaráð- herra Ingólfs Jónssonar, til sýn- ingarinnar og þá er mynd af póst- og símamálastjóra, Guð- mundi Hlíðdal og efst fyrir miðju er skjaldarmerki íslands. Á spjaldinu eru flestar útgáf- ur íslenzkra frímerkja allt frá því árið 1873, er fyrst voru gefin út íslenzk frímerki, en það eru skildingamerkin, sem nú orðið eru talin mjög verðmæt og illfá- anleg og sjást nú ekki víða í frí- merkjasöfnum. En það vakti at- hygli blaðamannsins, að Alþing- ishátíðarfrímerkin eru ekki sýnd. Vörðust þeir Jónas og Karl frétta, er þeir voru inntir um þetta. En eins og marga rekur minni til, varð útgáfa þessara hátíðarmerkja með allsögulegum hætti. — Þessi frímerki eru að allra dómi athyglisverð vegna þeirra merku tímamóta í sögu landsins, sem þau eiga að minna á. Frímerkjasýning þessi mun áiu efa verða góð landkynning fyrir ísland, því vitað er að tugþús- undir manna sækja sýningu þessa. Frímerkjasýningin verður væntanlega send héðan flugleiðis til Bandaríkjanna einhvem næstu daga. ORGELTQNLEIKKR Á ÆSKULÝÐS- VeSurúllif í dag: A-kaldi. Skýjað. Ræða Bjarna Beneðiktssonar. Sjá blaðsiðu 9.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.