Morgunblaðið - 13.05.1956, Blaðsíða 6
6
*t O H ii Vm BL4BI&
Sunnudagur 13. maí 1956
Heintsókn íslenzku ráðlierranna til Þýzkolands
einkenndist af alúð og vindttn
LO KI Ð er þriggja daga
opinberri heimsókn Ólafs
Thors forsætisráðherra og dr.
Kristins Guðmundssonar utan-
ríkisráðherra til vestur-þýzka
Sambandslýðveldisins. Þetta
var fyrsta opinbera heimsókn
íslenzks forsætisráðherra til
Evrópu éftir að ísland öðlað-
ist fullt sjálfstæði. Ekki er nóg
að segja að yfir heimsókninni
allri hafi hvílt blær sóma og
virðuleika, heldur einkenndist
hún ekki síður af alúð og vin-
áttu. Það er óhætt að fullyrða
að samkomur hinna íslenzku
gesta og gestgjafa þeirra urðu
hvarvetna góðra vina fundir.
-£• Hvarvetna þar sem ís-
lenzku gestirnir fóru, safnað-
ist mannfjöldi saman til þess
að fagna og hylla þessa ágætu
fulltrúa frá hinni norrænu
Sögu- og Edí iieyju. Það kom
einnig oftsinais glöggt fram
að Þjóðverjar meta íslendinga
mikils sem samstarfsþjóð í að
vemda sameiginleg menning-
arverðmæti.
-£• Heimsókn íslenzku ráð- '
herranna varð íslandi til
sóma. Og hún hefur vissulega
haft mikil og góð áhrif tíl að%
kynna nútima ísland hinni
þýzku þjóð. Þetta sést glöggt
af þeim mörgu umsögnum úr
þýzkum blöðum, sem þegar,
eru farnar að berast, er lýsa j
heimsókninni til Þýzkalands
sem íslenzkri sigurför.
-u
Segja má, að heimsóknin hafi
þó náð hámarki á s'ðasta degi,
þ. e. á miðvikue >«, þe?ar íslend-
ingarnir ferðuðust um fegurstu
héruð Þýzkalands og sigldu með
lystisnekkjunni „Stadt Köln“
niður frjósaman og sögufrægan
Rínardalinn. Og um kvöldið stóð
hinn bezti fagnaður, kveðjuhófið
í Petersberg gistihúsinu, sem
mun verða öllum er það sátu
ógleymanleg stund.
VEIZLAN Á PETERSBERG
Það var forsætisráðherra Ólaf-
ur Thors og frú hans, er héldu
kveðjuveizluna á gistihúsinu, er
þau höfðu dvalizt á. Var mjög
vel til veizlunnar vandað og
fjöldi gesta þar saman kominn.
Þar var Adenauer íorsætisráð-
herra Vestur-Þýzkalands, aðrir
ráðherrar, ráðuneytisstjórar,
stjórnmálaleiðtogar, þar á með-
al leiðtogar stjcrnarandstöðunn-
ar, svo sem Okenhauer foringi
Jafnaðarmannaflokksins. Ríkti
glaðværð yfir samkomunni og
voru þar haldnsr í'æður.
Kveðjiræða
Ókls Thors
Þar tók til mals Olafur Thors
forsætisráðherra og mælti á þessa
leið:
Herra kanzlari
og aðrir göfugu gestir!
ÞAf) var söguleg stund í lífi
þjóðar minnar þegar þýzkur
þjóðarleiðtogi kom í fyrsta sinn
í opinbera heimsókn til íslands.
Sú heimsókn vai’ þjóð minni því
fremur merkur og kærkominn
viðburður, að bað voruð þér,
herra kanzlari, sem komuð. Yðar
nafn mun æfinlega verða tengt
við endurreisn Þýzkalands eftir
hina mestu eyðiieggingarstyrjöld
sem yfir land yðar hefur gengið.
Þjóð mín geymir í hjartfólginni
minning myndina af yður á hinu
forna Lögbergi íslendinga á Þing-
völlum, sem e- henni helgur stað-
ur. Koma yðar þangað varð í
okkar augum meira en aðeins
augnablik í opinberri heimsókn.
Við fundum að með komu yðar
á Lögberg heiðraði hin mikla
þýzka þjóð sögu okkar og menn-
ingu, ein þeirra þjóða, sem jafnan
hafa viljað gera sóma íslenzkrar
menningar og sögu sem mestan.
Forsætisráðherrar íslands og Vestur-Þýzkalands ganga út úr
stjórnarráðinu í Bonn.
þjóðar. Við þökkum innilega fyr-
ir alla þá miklu alúð og vinsemd,
sem okkur hefur verið auðsýnd
þessa daga, og fyrir alla þá gleði
og það gagn, sem við höfum haft
af heimsókninni. Við höfum
fundið að viðtökur og samfundir
hafa mótazt af þeirri hlýju, sem
er eðlileg milli þjóða, er hafa
sérstök skilyrði til að skilja hvor
aðra og vilja af heilum hug að
vináttubönd þeirra varðveitist og
eflist.
GLADIR OG REIFIR
Norrænt stórskáld hefur kom-
izt svo að orði um Þjóðverja, að
þeir væru „heilbrigð og glaðvær
þjóð“. Ég hef oft hlotið að minn-
ast þessara orða hina síðustu
daga. Heimsókn mín hefur auðg-
að mig að minningum um lífs-
kraft og lífsgleði hinnar þýzku
þjóðar, eins og maður sér hann
í önnum dagsins og við hátíðleg
tækifæri. Frá fornu fari hefur
norrænu kyni fundizt lífsgleðin
vera eitt höfuðeinkenni heil-
brigði og manndóms, og gert vilj-
ann til að láta ekki hugfallast,
hversu hart sem að þrengdi, að
eínu af sínum æðstu boðorðum.
Hávamál Eddu orða þetta svo:
Glaðr og reifr
skyli gumna hverr
uns sinn bíður bana.
Þennan anda, borinn uppi af
glaðværð og krafti, á þýzka þjóð-
in í ríkum mæli og hann hefur
verið orsök hinnar skjótu og stór-
felldu þýzku endurreisnar, sem
heimurinn hefur litið með að-
dáun.
Góður rómur var gerður að
ræðu Ólafs Thors og honum
fagnað mjög. — Því næst kvaddi
Adenauer sér hljóðs og flutti
kveðjuræðu til Ólafs Thors og
annarra hinna íslenzku gesta. —
Hann komst svo að orði:
&
ÞJÓBIR, ER SKILJA HVOR
AÐRA
Ég hef nú notið þess heiðurs,
sem fulltrúi þjóðar minnar, að
vera gestur yðar og hinnar þýzku
OSKIR UM GIFTUSAMA
FRAMTÍÐ
Þjóð yðar, herra lýðveldis-
kanzlari, hefur sýnt yður meira
traust og lengur, en flestum þjóð-
arleiðtogum í öðrum lýðfrjálsum
löndum fellur í skaut. Vona ég að
hún megi sem lengst njóta starfs-
krafta yðar, og beini til yðar
óskum mínum um mikla og giftu-
samlega framtíð þjóðár yðar.
Herra lýðveldiskanzlari og aðr-
ír göfugu gestir! Ég lyfti glasi
mínu og skála fyrir heill og gerigi
hinnar þýzku þjóðar.
EG ÞAKKA YEUR, herra for-
sætisráðherra, einlæglega fyr-
ir hin vingjarnlegu og hjartan-
j legu o-ð, sem þér beinduð til
mín áðan. ' Ég var sérstaklega
snortinn, — og það vil ég einnig
! taka fram fyrir hönd allra landa
j minna, sem- hér eru í kvöld, —
af því, sem þér sögðuð um þýzku
j þjóðina í önnum dagsins og á
hátíðastundúm. Vér metum þessi
orð yðar enn meir fyrir það, að
þau hefur sagt fulltrúi þjóðar, er
í margra alda sögu sinni hefur
svo oft sýnt fastan, karlmannleg-
an vilja að láta ekki hugfallast.
ORDSINS LIST
íslendingar hafa ávallt unnað
orðsins list og varðveitt góðlát-
lega gamansemi, og um það eruð
þér, kæri herra Thors, framúr-
skarandi dæmi. Allir höfum vér
dáðst að því, hversu vel yður
lætur að létta hátíðleika og al-
vöru með kryddi hugþekkrar
gamansemi. Ég vona kæri herra
Thors, að fundum okkar beri
bráðum saman aftur.
Ég þakka yður innilega fyrir
þau orð, sem þér rituðuð til mín
á Skarðsbók. Sú gjöf verður mér
sérstaklega dýrmæt vegna þeirr-
ar áritunar.
GAGNKVÆM SAMÚÐ
OG VINÁTTA
Vér lítum ekki aðeins á heim-
sókn yðar hér sem sýnilegt tákn
stefnu að sömu stjórnmálalegu
markmiðum. Ég er þess fuilviss,.
að þér munið allir sammála mér
um það, að á þessum fundi vór-
um hefur að auki og enn fremur
ríkt hinn góði andi gagnkvæmrar
samúðar og vináttu er teng”- svo
nákomnar þjóðir sem vorar eðli-
legum og frjálsum böndum.
Ég vil ekki láta þetta tækifæri
síðustu samfunda vorra nú ónot- j
að til að tjá fulltrúa íslands í j
Sambandslýðveldinu, ambassa-!
dor Briem og hinni ástúðlegu
konu hans, þakkir mínar. Þau
hafa stuðlað mjög að því að þessi
heimsókn tókst svo vel.
ÓSKAD FARARHEILLA
Oss væri það mjög kærkomið,
að þér öll, sem hafið verið gestir
vorir undanfarna daga, hefðuð
heim með yður glögga og fjöl-
breytta mynd af þjóðiífi Þýzka-
lands. Af hálfu vor allra óska ég
yður góðrar ferðar heim.
Herra forsætisráðherra, herra
utanríkisráðherra, aðrir virðuleg-
ir gestir. Ég lyfti glasi mínu og
árna íslenzku þjóðinni allra
heilla.
★
(Aritun sú á Skarðsbók, er;
kanzlarinn þakkaði forsætisráð- j
herra sérstaklega, er úr þeirri j
bók og hljóðar svo:
„Hér hefur kristindómsbálk.;
Hér segir um helga trú. Það
er upphaf laga várra íslend- j
inga, sem upphaf er allra I
góðra hluta, at vér skulum
hafa og halda kristilega trú.
Vér skulum trúa á guð föður.
allsvaldandi skapara himins
og jarðar.“)
Á JÁRNBRAUTARSTÖÐINNI
Fagnaður þessi stóð til kl. 11
um nóttina, en þá var komið að
skilnaðarstund, því að íslenzku
gestirnir þurftu þá að leggja af
stað á járnbrautarstöðina. Fylgdi
dr. Adenauer gestum sínum
þangað svo og ýmsir aðrir þýzkir
ráðherrar og ráðamenn. Var
mannfjöldi enn saman kominn
kringum járnbrautarstöðina til
að kveðja hina íslenzku gesti. Að
skilnaði sendi dr. Adenauer ráð-
herrahjónunum og föruneyti
þeirra góðar gjafir.
Um nóttina var farið til H?m-
borgar í sömu einkalestinni og
flutt hafði gestina áður til Bonn
og var allur aðbúnaður þar með
ágætum.
GULLFAXI FLÝGUR HEIM
Á leiðinni frá brautarstöðinni
í Hamborg til Fuhlsbuttel-flug-
vallarins, var numið stsðar á
bakka Alster. Þar stóð kvenna-
kór á grænni grasflöt og söng
nokkur íslenzk lög undir stjórn
Veru Senck. Voru þarna hrífandi
-fagrar kvenraddir, sesn kvöddu
íslenzku gestina með íslenzkum
þjóðlögum.
Á flugvellinum beið Gullfaxi
flugvél Flugfélags íslands og að-
eins nokkrar klukkustundir að-
skildu íslenzku ferðalangana frá
heimalandi sínu. Þangað var
komið kl. 6 um daginn.
Santalii vii dr. Kermoffl Eieansen
Framhald af bls. 2
að ýmsu leyti mjög varhugaverð-
ar og þeim fylgja ýmis konar
vandamál, sagði Hermann Ein-
arsson. Þar kemur einkum til
greina hættan á því að gengið sé
á uppvaxandi fiskistofna. Varð-
andi sandsíli, þá er ekki um upp-
vaxandi fisk að ræða, heldur full-
vaxinn og sama máli gegnir um
loðnuna. Reynslan hefur svo sýnt,
að í Norðursjónum er sandsíiið í
torfum á sumrin. Danskir fiski-
fræðingar hafa hvatt til þess að
veiðarnar yrðu auknar frá því
S'm nn er. þnr eð elrki sé oeneið
á ungviði annarra fiska með þess-
um veiðum. Öðru máli gegnir
svo um veiðar Dana á smásiid-
inni, lýsu og brisling, sem Norð-
menn, Svíar oeí Bretar hafa nú
orðið miklar áhyggjur af.
Brezkir Vísindamenn eru ekki
sammála um skaðsemi dönsku
sjnásiidveiðanna, en dr. Hodgson,
sem manna mest hefur athugað
„The East Anglian herring“, ber
fram harða gagnrýni á dönsku
veiðarnar í nýlegum greinum og
telur þær orsök síldarleysisins
við austurströnd Englands. H?nn I
telur þær einnig hafa orsakað
miklar breytingar á árgangaskip-
un aflans. Brevtingar þessar
urðu árið 1950 og virðist mér,
sagði Hermann, því tæplega hægt i
að rekja orsakir þeirra til dimsVu i
veiðanna. Hins vegar hafa veiðar
þessar aukizt svo gifurlega síðari j
árin, að mér þætti ekki ólíklegt,
að þær hefðu óhagstæð áhrif á j
ástand, sem þegar var_ orðið j
slæmt.^ Benda danskir vísinda- j
menn á, að hér gæti verið um |
náttúrusveiflur að ræða, t.d. flutn
Sng ^otstöðva frá suðlægari til
norðlægari stöðva, og mvndi
veiðibann iðnaðarfisks ekki bæta
neitt verulega ásigkomulag aust-
urenska stofnsins.
Það eru aðeins fáar þióðir sem
nýta lýsuna verulega, og við fiski
fræðingar vitum satt að se .
harla lítið um lýsustofninn. En i
Danmörku er hún orðin miki!
mnrkaðsVara sem iðnaðarfiskur,
or telia danskir vísindamenn.
iðnaðarfiskveiðarnar hreyfi að-
eins við litlum hluta stofr'úns
Ekki er þó vissa fyrir þessu
ss, vfl°na verða rannsóknir
Dnna næsta sumar ?ð mestu leyti
VioVngar bessu váridamáli og er
ætlun þeirra að toga á mörg
hundruð stöðum í Norðursjónum,
til þess að kanna magn og út-
breiðslu þessa fisks.
HÉR Á LANDI?
— Er nú ekki spurningin sú,
hvort iðnaðarfiskveiðarnar svo-
nefndu myndu eiga erindi til
okkar?
— Við verðum fyrst og fremst
að forðast að lenda í sömu vand-
ræðunum og Danir í sambandi
við veiðar í smáriðnar vörp-
ur. En áður en við förum að
hugsa um frekari framkvæmdir,
þá verðum við að gera hér veiði-
tilraunir og fá hreinlega úr því
skorið, að hægt sé að finna hér
sandsílistorfur. Vitað er að loðn-
an heldur sig í stórum torfum
á hryggningartímanum, fyrri
hluta ars inni á grunninu og sjó-
menn hafa veitt loðnu eftir þörf-
um til beitu á vertíð. En við verð
um að fá úr því skorið hvort hægt
sé að veiða hana á öðrum tíma
árs. þegar gera má ráð fvrir að
hún sé miklu betri vara Og þess
eru mörg dæmi, sagði Hermann,
að á síldveiðum kasti skipstjórar
í misgripum á loðnutorfur.
Þettá er vissulega merkilegt
ransóknarefni fyrir rannsókna-
skip, að kanna útbreiðslu þessara
tvéggja tegunda, bæði meðan á
hrygningu stendur og utan hrvgn
ingartímans. Ef hægt er að ganga
úr skugga um það að hægt sé að
veiða loðnuna og sandsílið í torf-
um, án þess að ungviði annarra
liska veiðist með, þá sé ég, frá
fiskifræðilegu sjónarmiði, ekkert
því til fyrirstöðu að þessar teg-
undir verði nýttar sem hráefni
fyrir síldarverksmiðjurnar og
fyrir útgerð bátanna sjáltra. Ef
með þessum veiðum mætti nýta
vélakost verksmiðjanna, sem nú
xernur ekki að fullum notum. —
Munu allir samdóma um að slíkt
sé hagstætt fyrir þjóðarbúið En
veiðar þessar yrði auðvitað að
vera undir ströngu eítiriiíi fiski-
iræðinga og yfi> ’-dda.
Að lokum s:-.gði d •. Hermann
Einarsson, að í þessu samtali
væri ekki um ýtarlegar tillögur
ð æða, heldur vildi hann fvrst
og fremst vekja útvegsmenn til
úmhugsunar um þetta mál úg
benda á möguleika til freksri
fjölbreyttni í fiskframleiðs .u
joðaiinnar.
Sv, Þ.