Morgunblaðið - 13.05.1956, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 13.05.1956, Qupperneq 9
Sunnudagur 13. maí 1956 MORGUNBLAÐIÐ Reykjavlknrbréff: Laugardagur 12. ma'n Vorgróður — Tamningaskóli — Bygging fosfatverksmiðju — Vísitalan hækk^r a ábyrgð Framsóknar — S000 kjósendnr leiddir til torgs — Kosningadagur - réttardagur — Spilltur hugsunarháttur tveggja flokksleiðtoga — titanríkisráð- herrann þógli og vinur hans — Sat, þagði og samþykkti.I „Hermann Jónasson og Haraldur Guðmundsson líta þannig á kjördaginn sem nokkurs konar réttardagv Þá ætla þeir að taka það starí að sér að draga þúsundir kjósenda sinna á dilka hvor annars, r étt eins og gangnamenn draga sauðfé úr almenningi í haustréttum‘"!J Vorar vel EKKI verður annað sagt, en að vel hafi vorað hér sunnanlands að þessu sinni. Hér í Reykjavík eru tré að verða allaufguð og tún og garðar orðin skrúðgræn. Hefir gróðri farið ört fram undanfarna daga. Miklu kaldara hefir verið fyrir vestan, norðan og austan. Á Vest- fjörðum og víða norðanlands hef- ir verið kuldagjóstur af norðri undanfarna daga. Er gróður þar miklu skemmra á veg kominn heldur en hér syðra. Sauðburður er nú byrjaður og hafa lamba- höld enn sem komið er verið góð. Eiginlega hafa engin veruleg hret komið á þessu vori. Hvort úr hvítasunnu hreti verður er auð- vitað ennþá óséð. En það er þó eitt af hinum hefðbundnu hret- um, sem a.m.k. gamla fólkið reiknar oft með. Tamningarskólinn á Hvanneyri LÍKLEGA er tamningaskóli Gunnars Bjarnasonar, hrossarækt arráðunauts á Hvanneyri einn yngsti skóli þessa lands. En hann er áreiðanlega mjög gagnlegur. Með vaxandi vélanotkun í sveit- um landsins hefir þeim mönnum fækkað mjög, sem kunna að temja hesta. En þætti hestsins er ekki lokið ennþá þrátt fyrir hina miklu tækniþróun síðustu ára í íslenzkum landbúnaði. Reiðhest- urinn og dráttarhesturinn eiga þar ennþá merkilegu hlutverki að gegna. En það verða að vera til menn, sem kunna að temja hesta. Það var því vissulega vel til fundið er Gunnar Bjarnason hófst handa um tamningakennslu á Hvann- eyri árið 1951 og fékk Pál Sig- urðsson í Fornahvammi sér til aðstoðar við kennsluna. Síðan hafa nemendur Bændaskólans á H' gnneyri stundað tamningar með vaxandi áhuga. Á s.l. vetri voru tamningamennirnir um 30. Tömdu þeir um 50 hesta. Einn af fréttamönnum Mbl. fékk nýlega tækifæri til þess að kynnast þessari starfsemi á hinu merka skólasetri á Hvanneyri. Þótti honum tilkomumikið að sjá hin ungu bændaefni temja ljón- fjöruga og fallega fola. Vera má að einhverjum finn ist þetta tamningastarf naum- ast frásagnarvert. En hér er þó um að ræða merkilegt fræðslustarf, sem nauðsyn ber til að sé unnið. Við megum ekki missa hestinn og við þurf um að halda áfram að eiga menn, sem kunna að temja hann. Það er kjarni málsins. Fosfatverksmiðja í Gufunesi ÞAÐ er vissulega merkileg frétt, sem skýrt var frá hér í blaðinu fyrir skömmu, að þýzkt fyrirtæki hafi lýst sig reiðubúið til þess að fcyggja fosfatverksmiðju í Gufu- nesi og lána fé til þeirra fram- kvæmda. Skal lánsféð síðan end- urgreitt með framleiðslu verk- smiðjunnar. Áburðarverksmiðjan í Gufu- nesi fullnægir nú þörf íslenzkra bænda fyrir tilbúinn köfnunar- efnisáburð. Og við höfum jafnvel flutt út slíkan áburð fyrir allmik- ið fé síðan verksmiðjan tók til starfa. En okkur vantar fosfat- verksmiðju til þess að geta verið sjálfum okkur nógir um tilbúihn áburð. Á það verður því að leg^ja mikla áherzlu að koma slíkri verksmiðju upp. Hefir það líka verið ráðgert að koma henrii upp eins fljótt og frekast væri kostur. Stjóm Áburðarverksmiðjunnar mun nú hafa tilboð hins erlenda fyrirtækis til athugunar. Má gera ráð fyrir að hún bjóði byggingu fosfatverksmiðjunnar út þegar tímabært verður talið að ráðast í framkvæmdirnar. Ef við eigum kost á fjár- magni til þessara fram- kvæmda nú ættum við ekki að draga þær lengi. — Bygging verksmiðjunnar verður áreið- anlega ekki ódýrari siðar. Hitt er miklu líklegra að kostnaður við hana muni stórhækka með hverjum mánuði, sem líður. Framsókn ber ábyrgð á áframhaldandi hækkun vísitölunnar RÁÐHERRAR Framsóknar í rík- isstjórninni hafa fyrir nokkru snúizt endanlega gegn þeirri til- lögu Sjálfstæðismanna að halda verðlaginu í skefjum og vísitöl- unni óbreyttri út þetta ár, þar til samkomulag hefir tekizt um nýj- ar leiðir til þess að stöðva verð- bólguna og tryggja rekstur fram leiðslutækj anna. Það er því á ábyrgð Fram- sóknarflokksins, áð vísitalan hækkar nú hröðum skrefum og áhrif þeirra ráðstafana, sem gerðar voru um síðustu áramót til stuðnings atvinnu- vegunum, verða sífellt minni. Framsóknarflokkurinn hefir með þessu, eins og með svo mörgu öðru, sýnt dæmaláust ábyrgðar- leysi. Hann hefir rofið allt ábyrgt samstarf um lausn aðkallandi vandamála og flúið á náðir úr- ræðalausrar stjórnarandstöðu, sem s.l. 6 ár hefir barizt trylltri baráttu gegn þeirri efnahagsmála stefnu, sem fylgt hefir verið og Framsóknarmenn hafa hælt sér af að hafa siálfir markað. En þjóðin verður að vita það að Sjálfstæðisflokkurinn hefir gert ábyrgar og rökstuddar tiilögur um að hindra vöxt dýrtiðarinnar og koma í veg fyrir að framleiðslutækin stöðvist. Framsóknarmenn hafa notað aðstöðu sína í ríkis stjórninni til þess að hindra framgang þessara tillagna. Fyrir það framferði munu þeir verða dregnir til ábyrgðar í kosningunum á komandi sumri. 9000 kjósendur leiddir til torgs í ÞESSARI viku hefir sennilega ekkert vakið eins mikla athygli í stjórnmálabaráttunni hér á landi eins og sú uppljóstrun Al- þýðublaðsins s.l. miðvikudag, að Framsóknarflokkurinn og Al- þýðuflokkurinn hafi ákveðið að leiða 9000 kjósendur sína til torgs og selja þá þar með mansali. Al- þýðublaðið komst þannig að orði um þetta: „Alþýðuflokkurinn ætlast til þess að 2000 kjósendur, sem kusu hann síðast, styðji nú frambjóðendur Framsóknar- flokksins. Þar með fær hann aðstöðu til þess að auka fylgi sitt um allt að 5000 atkvæði og verða aðilji að nýjum lands stjórnarmeirihluta.“ Alþýðuflokkurinn hefir sam- kvæmt þessu samið um það að afhenda Framsóknarflokknum í sumar 2 þúsund kjósendur sína. — Framsóknarflokkurinn „selur“ Alþýðuflokknum hins vegar hvorki meira né minna en 7000 Framsóknaratkvæði. Ella getur hann ekki bætt við sig 5000 atkvæðum eftir að hafa áður afhent Framsóknarflokknum 2 þús. af sínum eigin kjósendum. Kosningardagur — rétttardagur! HERMANN Jónasson og Har- aldur Guðmundsson líta þann ig á kjördaginn, sem nokkurs konar réttardag. Þá ætla þeir að taka það starf að sér að draga þúsundir kjósenda sinna í dilka hvor annars, rétt eins og gangnamenn draga sauðfé úr almenningi í haustréttum! í þessu birtist afstaða leiðtoga Hræðslubandalagsins til hins al- menna kjósanda flokka þeirra. Að þeirra áliti á hann ekkert val- frelsi í einrúmi kjörklefans. Hann á að kjósa eins og þeir Hermann og Haraldur, og miðstjórnir flokka þeirra fyrirskipa þeim. Með þessum hætti hyggjast þeir Hermann og Haraldur „verða aðiljar að nýjum lands- stjórnarmeirihluta", eins og Al- þýðublaðið orðar það s.l. mið- vikudag.! SpiIItur hugsunar- háttur ENGUM hugsandi og vitibornum manni getur dulizt, að sá hugsun- arháttur, sem liggur til grund- vallar þessari atkvæðaverzlun, er spilltur og rotinn. Formenn tveggja stjórnmálaflokka í Reykjavík telja sig bæra um að ráðstafa 9000 atkvæðum þeirra kjósenda, er veittu þeim brautar- gengi í síðustu kosningum, með reikningskúnstum að sínum eigin geðþótta. Samhliða þessu er reynt að sniðganga reglur stjórnarskrár- innar um uppbótar þingsæti, er eiga að tryggja lýðræðislega skip an Alþingis. Þarna er allt á sömu bókina lært. Fyrirlitningin fyrir dómgreind fólksins og sjálfs- ákvörðunarrétti kjósandans er taumlaus. Og ekki er heldur hik- að við að gera tilraun til þess að sniðganga þær reglur stjórnar- skrár og kosningalaga, sem miða að því að Alþingi sýni sem rétt- asta mynd af vilja þjóðarinnar. Daufar undirtektir ÞAÐ er nú augljóst orðtð, að um allt land ríkir megn óánægja i röðum Framsóknarmanna og Al- þýðuflokksmanna með Hræðslu- bandalag þessara flokka og hina einstæðu atkvæðaverzlun. sem A1 þýðublaðið skýrir svo greinilega frá s.l. miðvikudag. Framsóknar- bændur gera uppreisn og neita að kjósa krataframbjóðendurna, sem troðið er upp á þá. Og verkafólk og sjómenn við sjávarsíðuna, sem fylgt hafa Alþýðuflokknum að málum, telja sér sýnda full- komna óvirðingu með því að krefjast þess að þeir kjósí fram- bjóðendur Framsóknar, sem ævin lega hafa fjandskapast við stærstu hagsmunamál verkalýðs- ins. Hræðslubandalagið hefir því litla ástæðu til bjartsýni um þessar mundir. Er það m.a, augljóst af Timanum og A'i- þýðublaðinu, sem bergmála af ótta og skelfingu hvern ðag, sem þessi blöð koma út. Utanríkisráðherrams þögli — og vinur hans DR. KRISTINN Guðmundsson utanríkisráðherra var vinsæll menntaskólakennari og skatt- stjóri á Akureyri, enda samvizku samur og góðviljaður maður. En hann hefir nú orðið fyrir rníklu óhapþi. Formaður Framsóknar- flokksins, Hermann Jónasson, sem er gamall vinur hans, hefír haft hann að skálkaskjóli við ábyrgðarlausar og heimskulegar ráðstafanir í utanríkis- og öryggis málum þjóðarinnar. Það er Her- mann Jónasson, sem ber ábyrgð á því, að hinn vinsæli menntá- skólakennari frá Akureyri er nú kohninn í einhverja þá verstu- klípu, sem maður í íslenzku ráð herraembætti hefir lent í. í desember í vetur tekur þessi íslenzki utanríkisráðherra þátt á því að lýsa þvi vfir í Pars,1 að riauðsynlegt sé að efla varmr hinná vestrænu lýðræðisríkja og áð ekkert mark sé takandi á „and ánnm frá Genf". í marzmár.uði lýsir þessi sami Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.