Morgunblaðið - 18.05.1956, Page 1

Morgunblaðið - 18.05.1956, Page 1
Föstudagur 18. mal 1956 Cm hlíðar þessa sæbratta fjalls á vegurinn fyrir Stráka að liggja. Tæpur kílómete r leiðarinnar er lóðrétt standberg. Hillir undir bjurtu irumtíð í utvinnumúlum Siglfirðingu Það er fyrir forgöngu SjálfstœBis- manna, aB Siglufjörður er að réfta við FYRIR UM ÞAÐ BIL áratug síðan var Siglufjörður einn þekktasti athafnabær þessa lands, svo að suma / /51 á Siglufirði var æfintýri líT/. Þá var sjórinn við norðurströndina svartur af síld og þetta silfur hafsins færði Sigl- firðingum og þjóðinni allri full- ar hendur gulls. En svo synti þetta silfur hafsins á braut og hefur vart sézt síðan. En þetta hafði mjög afdrifarík áhrif á allt athafnalíf í síldarhöfuðstaðnum, sem byggt hafði megnið af sínu athafnalifi á sildinni. öllu tók nú að miða fremur aftur á bak en áfram og svo var að loknu kom- ið að fólk neyddist til þess að flýja staðinn og leita sér lífs- bjargar annars staðar. Og ekki bólar enn á sildlnnl í neitt likum mæli og var á gullöld síldveið- •nna. Það var því ekki um annað •ð ræða en að byggja upp at- vinnulífið að nýju og treysta þá á aðrar greinar. Enn sem fyrr hlaut það þó að vera sjófang, sem Siglfirðingar urðu að treysta á. Sveitin upp að Siglu- firði er sáralítil og til lands var því lítið svigrúm til athafna. TOGARARNIR LYFTISTÖNGIN. En það tekur nokkurn tíma að byggja upp atvinnulíf fyrir jafn stóran bæ og Siglufjörður er. Það er því ekki fyrr en nú um þessar mundir að talizt get- ur að lokið sé við að koma at- vinnulífinu í það horf að at- vinnuleysi sé ekkert. Togararnir eru sú lyftistöng sem mest munar um í hinum gjörbreyttu atvinnuháttum Sigl firðinga. Talsvert er um útgerð stærri og smærri vélbáta. Afli skipanna er lagður upp í tvö hraðfrystihús, sem komið hefir -<verið upp á staðnum, einnig er aflinn hertur og saltaður. All- ar skapa þessar vinnsluaðferðir mikla almenna vinnu, en þó mun mest muna um hraðfrystihúsin. Togarar Siglfirðinga eru tveir. Elliði keyptur 1947 og Hafliði, keyptur 1951. í upphafi gekk útgerð þeirra illa, en þeir voru þá reknir af Bæjarútgerð Siglu- fjarðar, sem enn er eigandi þeirra. En árið 1953 tóku Síldar verksmiðjur ríkisins við rekstr- inum og hafa síðan rekið þá af dugnaði og fyrirhyggju. Þess má þó geta í þessu sam- bandi að stórar fjárupphæðir af atvinnubótafé hafa verið veittar til þess að koma út- gerðinni á réttan kjöl. Er þetta einkum fyrir atbeina hins dugmikla þingmanns kjör- dæmisins; Einars Ingimundar- sonar og bæjarstjórnarinnar á staðnum. Nú gengur útgerð tog- aranna vel, eftir því sem vænta má af þeirri tegund útgerðar, eins og nú háttar til. TVÖ IIRAÐFRYSTIHÚS. Á Siglufirði eru, eins og fyrr segir, rekin tvö hraðfrystihús. Annað þeirra er rekið af Síldar- verks.miðjum ríkisins og að miklu leyti byggt fyrir atvinnubótafé á árunum 1952—53. Hús þetta veitir 90—100 manns vinnu, þegar það er starfrækt af fullum krafti og skilar það 15—20 tonnum af fisk- flökum á vinnsludegi. Húsið not- aði 7500 tonn af hráefni á árinu 1955. Húsið vinnur að langmestu leyti úr togarafiski. Þegar tíðindamaður blaðsins var á Siglufirði fyrir skemmstu var togarinn Elliði nýkominn að landi með 419 lestir af fiski, sem er metafli þar í bæ. Var því vinna alls staðar í fullum gangi. Hitt hraðfrystihúsið nefnist Isafold og er eign Þráins Sigurðs- sonar ,sem er kunnur athafna- og dugnaðarmaður. Hús þetta er all- miklu minna en hús Síldarverk- smiðjanna, en vinnur bæði úr tog arafiski og bátafiski. Af þessu verður greinilega séð að togar- arnir tveir eru megin lyftistöng athafnalífsins á Siglufirði í dag. TUNNUSMÍÐI VEITIR MIKLA VINNU. Það hefir lengi verið mikill á- hugi ríkjandi fyrir því að sem mest af tunnum þeim, sem við ís- lendingar þurfum að nota, séu smíðaðar hér innanlands. Smíði tunnanna fer fram að vetrinum til, þegar atvinnuástandið er daufast. Tunnuverksmiðja ríkis- ins í Siglufirði er sú særtsta sinn- ar tegundar hér á landi. Hún veit ir 30—40 manns atvinnu á meðan rekstur hennar stendur yfir, en það er á veturna og vorin. Á því starfsári, sem nú er að líða mun hún fullvinna 70 þúsund tunnur þar til hún lýkur störfum í vor. Það hefir verið ríkjandi stefna og á hana lögð mikil á- herzla, að allar þær tunnur, sem notaðar eru liér á landi undir saltsíld, séu smíðaðar hér inn- anlands og þá á Siglufirði og á Akureyri. Núverandi þingmenn þessara staða, þeir Einar Ingi- mundarson og Jónas G. Rafnar hafa flutt um þetta mál frum- varp á alþingi. Tunnuverksmiðja ríkisins á Siglufirði er myndarlegt hús, sem byggt var í ráðherratíð Jóhanns Þ. Jósepssonar á árunum 1948— 1949. SKREIÐARVINNSLA OG SÍLDARSÖLTUN. Mikil skreiðarframleiðsla er á Siglufirði og standa togararnir undir henni. Sem fyrr segir eru allmargir vélbátar gerðir út frá kaupstaðnum og hafa nýlega bætzt þrír nýir vélbátar í þann flota og voru þeir keyptir erlend- is frá. Þetta er að sjálfsögðu góð viðbót við þau atvinnutæki, sem fyrir eru. Siglufjarðarbær er eigandi að síldarverksmiðjunni Rauðku. Að sjálfsögðu hefir arðurinn af henni verið rýr undan farin sildarleys- isár. Hún hefir þó verið starfrækt á hverju sumri hin síðari ár og mun svo einnig verða á komandi sumri. Hefir þetta skapað tals- verða atvinnu. Rekstur þessi hef- ir notið ríkisábyrgðar og hefir þetta fengist Jyrir sérstaka fyrir- greiðslu þingmanns staðarins og bæjarstjórnarinnar. Að undan- förnu hefir alltaf verið saltað á um 20 „plönum“ á hverju sumri. Hefir þetta einnig veitt talsverða atvinnu á meðan á því hefir stað- ið. VEGURINN FYRIR STRÁKA. Fyrir mjög ötula forgöngu núverandi þingmanns hefir nú Frh. á bls. 19. Togararnir eru lífakkerið í atvinnumálum Siglfirðinga. Verið að skipa upp úr vélbáti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.