Morgunblaðið - 19.05.1956, Page 1
16 síður
42. árgangur
112. tbl. — Laugardagur 19. maí 1956.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fiskiðnaðarsýningin í Kaupmannahöfn
íslenzka deildin vekur athygli
Ausfur-IÞjóðverjar vilja selja
«kkur þrjá iogara
Kaupmannahöfn 18. maí. Frá fréttaritara vorum.
ALÞJÓÐA fiskimálasýningin í Kaupmannahöfn var opnuð í dag
Hin smekklega sýning íslands á svölunum í Forum vekur ekki
hvað sízt athygli. |>ar eru sýndar m. a. allar helztu sjávarútvegs-
afurðir íslands.
Ýttiis lönd sýna nýjustu veiðitæki og fiskiðnaðarvélar. Til dæmis
sýna Vestur-Þjóðverjar net gerð úr perlon og sjálflýsandi perlon-
reipi. Einnig sýna Vestur-Þjóðverjar risastórar flökunarvélar, sem
breyta á einni klukkustund þrem smálestum af þorski í fiskflök.
Austur-Þjóðverjar sýna við Löngubrú þrjá togara, sem þeir
vilja selja til ísiands.
StEiiinispsf Frakka cg Bóssa
PARÍS: 18. maí: — Frakkar og
Sovét-Rússar hafa gert með sér
menningarlegan og efnahagsleg-
án sáttmála. Frá þessu var sagt í
Moskvu í kvöld, en þar hafa Guy
Mollet, forsætisráðherra og Pin-
au, utanrikisráðherra staðið í
samningum við leiðtoga sovétríkj
ánna undaníarna daga.
Samkvæmt fregn frá Bonn mun
Adenauer kanslari taka upp sam-
töl við frönsku ráðherrana strax
og þeir eru komnir heim og ræða
við þá möguleikana á þvx, að
vesturveldin reyni á nýjan leik
að komast að samkomulagi um
sameiningu Þýzkalands.
Okkur hiónunum
Ásgeir Ásgeirs-
son Sjölfkjerinn
forseti íslnnds
verða kigsað tii Islands
Bodil Hegfrup sendiráðherra
kveðusr Eand og þjóð í ufvarpinei
I EINSTAKLEGA hlýrri og
skemmtilegri ræðu kvaddi sendi
ráðherra Dana, frú Bodil Beg-
trup, land og þjóð í útvarpið í
gærkvöldi.
Á mjög skemmtilegan og lif-
andi hátt, brá hún upp myndum
frá ferðum sínum um landið,
byggðir þess og óbyggðir, kynn-
um sínum af fólki, til sjávar og
sveita.
ÞUNGBÆRAR MINNINGAR
HÖRFA
Sendiráðherrann kvað það
hafa orðið sér óblandið fagnað-
Frambjóðendur Sjálfstœðisflokksins
eru konur og karlar úr Öllum stéttum
Flokkurinn fyrsfur fil
að ákveða framboð
sin
ER framboð SjálfstæðLsflokksins hafði verið ákveðið hér í Reykja-
vík í fyrrakvöld, var þar með lokið að taka ákvörðun um framboð
flokksins í öllum 28 kjördæmum landsins. Hefur þá verið boðið
fram í 22 einmenningskjördæmum, 6 tvímenningskjördæmum og
svo í Reykjavík, sem hefur 8 þingmenn kjördæmakosna. Fram-
bjóðendur utan Reykjavíkur eru alls 45 og 16 eru þeir í Reykja-
vík. Er Sjálfstæðisflokkurinn fyrstur allra stjórnmálaflokkanna til
þess að ákveða framboð sín.
SÁ ELZTI 71,
SÁ YNGST 25 ÁRA
Frambjóðendur flokksins eru
af öllum stéttum, húsmæður,
bændur, forstjórar, verkamenn,
kaupmenn, embættismenn, sjó-
menn og iðnaðarmenn. Elzti í'ram
bjóðandi flokksins er Sigurður
Kristjánsson, forstjóri í Reykja-
vík, fæddur 1885, en næstir hon-
um koma allir á sama árinu, þeir
Jón Sigurðsson á Reynistaö, Pét-
ur Ottesen og Jón Pálmason
fæddir 1888. Yngsti frambjóðand-
inn er frú Ragnhildur Heiga-
dóttir, stud. juris. einn af fram-
bjóðendum flokksins í Reykjavík,
25 ára að aldri.
FRAMBOÐSFRESTUR
tTRUNNINN 23. MAÍ.
UTANKJÖRSTAÐAKOSNING
HEFST 27. MAÍ.
Frcstur til þess að skila fram-
boöum rennur út hinn 23. maí
n.k. að kvöldi, en landsiista má
skila 24. maí. Utankjörstaðakosn-
ing hefst hinn 27. maí og má þá
kjósa hjá öllum sýslumönnum,
bæjarfógetum og hreppstjórum
landsins.
KÆRUFRESTUR ÚTRUNNINN
2. JÚNÍ
Frestur til þess að kæra fólk
inn á og út af kjörskrá rennur
út hinn 2. júní n.k. Skal í þessu
sambandi brýnt f.vrir fólki að það
athugi í tíma hvort það er á kjör-
skrá eða ekki. Einkum á þetta við
um þá, sem flutt hafa búíerium,
því að oft kemur fyrir þegar svo
stendur á að fólk faiii niður af
kjörskrá.
GEFIÐ SKRIFSTOFUM
FLOKKSINS UPPLÝSINGAR
Að lokum skulu allir stuðnings
menn Sjálfstæðisflokksins hvatt-
ir til þess að hafa samband við
skrifstofur flokksins og gefa all-
ar þær upplýsingar, sem þeir geta
um þá, er fjarverandi verða á
kjördegi og annað er að gagni
má koma við kosningaundirbún-
inginn.
Frá Alsír:
Uppreistarmenn
ráðast é siærstu
borgirnar
ALSÍR: Uppreisnarmenn í Alsír
virðast vera byrjaðir nýja hern-
aðaráætlun og /irðist tilgangur
þeirra vera að ná á sitt vald
nokkrum stærstu borgunum í
landinu, og nota þær sem aðal-
bækistöðvar
Búizt er við árás á borgina
Telmecen öbúar 60 þúsund).
skammt frá landamærum Mar-
okkó á næstunni. Uppreisnar-
menn hafa 3 þúsuird manna her
í skógum umhverfis Telmecen.
Hillary vii! fara aftur
NÝJA SJÁLANDI, 18. maí: —
Sir Edmimri Hillary hefir látið
í ljós ósk um að klífa Everest
tind á nýjan leik, að þessu sinni
að noi-ðanverðu frá Tíbet. —
Flestar tilruunirnar til þess að
klífa Everest hafa verið gerðar
frá Tíbet.
Sir Edmund vill reyna þessa
gömlu leið og vera í hápi aðeins
nokkurra félaga sinna.Við viljum
ekki hafa neina blaðamenn með
okkur, sagði hann í blaðaviðtali
í dag og ekkert veður að gera
af þessu ferðalagi. Við viljum
aðeins reyra að klífa tindinn.
Hæprl flokkurinn
sigraði í Ausfurríki
VÍNARBORG, 18. maí: Tölur frá
kosningunum í Austurríki síðastl.
sunnudag hafa nú borizt. Þjóð-
flokkur Júlíusar Raab bar sigur
af hólmi yfir flokki jafnaðar-
manna. Flokkur Raabs hlaut að
þessu sinni 2.068.000 atkv. en
flokkur jafnaðarmanna 1.873.000
atkv. í næstu kosningum á und-
an höfðu jafnaðarmenn lítils
háttar maira atkvæðamagn en
flokkur Raabs.
Flokkur Raabs hefii nú 82 þing
menn (hafði 74), en jafnaðar-
menn 75 þrngmenn (áður 73).
MEÐ CULLFOSSI
MEÐAL farþega með Gullfossi
í gær var Vilhjálmur Finsen
fyrrum sendiherra íslands í
Þýzkalandi. Vilhjálmur kvaðst
aðeins hafa hér nokkurra daga
viðdvöl og býr hann á Hóel
Borg. Einnig kom með Gullfossi
Halldór Kiljan Laxness rithöf-
undur.
i arefni á þessum árum, að verða
j þess vör, hvernig margar þung-
j bærar minningar um samskiptin
við Dani, hafa smám saman
hörfað úr hugum manna og góð-
um Islendingi er nú ekki framar
nauðsyn að minnast þess sem
miður hefur farið, sagði sendi-
ráðherrann, sem einnig minntist
konungskorrunnar og hve vel
hún hefði tekizt
ÞEGAR HEIM KEMUR
"Sendiráðherra kvaðst mundu
er heim kemur, setjast í helgan
stein — í utanríkisráðuneytinu,
til þess að vinna þar að ýmsum
málum sem varða Norðurálfu-
búa og áð hún myndi aftur snúa
sér að mannréttindamálum.
VEGANESTIÐ VINÁTTA
Þá sagði sendiráðherrann að
er þau hjónin hverfa af landi
brott, hafi þau að veganesti vin-
áttu fólks, sem þeim hafi liðið
vel með. Gáfur þess og hugar-
hlýja hefur glatt okkur, sagði
hún. Sendiráðherrann þakkaði
löndum sínum hér fyrir gest-
risni og góða viðkynningu og
samstarfsmönnum sínum —
dönsku ræðismönnunum — fyrir
stuðning í þeirri viðleitni að
treysta bræðraböndin með þess-
um frændþjóðum.
Orðum sínum lauk Bodil Beg-
trup, sendiráðherra, með því að
segja: Okkur hjónunum mun oft
verða hugsað tli íslands og við
munum fagna viðgangi þess og
velsæld.
Barizt er um
Tjarnarhólmann
KRÍAN á nú í harðri baráttu í
sínum gamla Tjarnarhólma. —
Hettumáfurinn, sem settist að í
hólmanum síðla vetrar, hefur
tekið að hreiðra um sig úti í
honum. Hvað eftir annað, hafa
menn verið sendir út í hólmann
til þess að steypa undan fuglin-
um, í þeirri von að með því megi
takast að fá kríunni á ný yfir-
ráðin í hólmanum, sem er óum-
deilanlega hennar landsvæði.
í gær átti Mbl. sem snöggvast
tal við Kjartan Ólafsson bruna-
vörð, sem var nýlega kominn úr
ferð út í Tjarnarhólmann. Hafði
hann tekið þar 20 egg úr hreiðr-
um hettumávanna, en aðeins
sárafá kríuhreiður voru í hólm-
anum, en undir venjulegum
kringumstæðum skipta hreiðrin
mörgum tugum.
Kjartan sagði, að í undanfar-
andi „innrásum“ í Tjarnarhólm-
ann hefðu verið tekin um 40 egg.
Við munum halda áfram, og
reyna að stugga svo við fuglin-
um, að hann hreinlega flýi hólm-
ÞJÓÐIN mun ekki ganga til for-
setakjörs að þes.->u sinni, þar eð
forseti íslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, hefur ákveðið að gefa
kost á sér til endurkjörs, en aðr-
ir veiða ekki í framboði. — Af
þeim sökum er Ásgeir Ásgeirs-
son sjálfkjörinn þjóðhöfðingi ís-
lands.
Frestur sá er væntanlegum
forsetaefnum var setur til þess
að skila frambuði sínu er út-
runninn á hádegt i dag, og var í
gærkvöldi ekki kunnugt um önn
ur framboð en Ásgeirs Ásgeirs-
sonar, forseta.
Munu tiiskilin gögn varðandi
framboð hans afhent í stjórnar-
ráðinu árdegis í dag,
Erjur í Suður-Kóreu
SEOUL, Suður-Kóreu, 18. maí. —■
Svo virðis sem Chang, fram-
bjóðandi demókrata við vara-
forsetakjörið í Suður-Kóreu
hafi fengið fleiri atkvæði en Lee,
varaforsetaefnið sem styður Syng
mann Rheo Talning hefir verið
stöðvuð og á eftir að telja 181
þúsund atkvæði. En áður en taln-
ing vár stöðvuð hafði Chang rúm
lega 73 þúsund atkvæði fram yfir
Lee.
Nokkur ókyrrð er af þessu til-
efni í Suður-Kórau.
Chang lct svo um mælt við
blaðamenn, sem hann hitti leyni-
lega í dag, að ekki sé allt með
felldu í Taegu, en þar fer talning
fram.
Ármaun J. Lárusson
glímukóngnr
ÍSLANDSGLÍMAN var glímd í
gærkvöldi að Hálogalandi. Voru
nú liðin 50 ár síðan fyrst var
keppt um Grettisbeltið og sá er
vann það nú var handhafi þess
síðustu ár, Ármann J. Láruson,
sonur Lárusar Salómonssonar
glímukóngs. — Lagði hann alla
keppinauta sína að velli. Annar
í glímunni varð Rúnar Guð-
mundsson fyrrv. glímukóngur,
með 8 vinninga einum færri en
Ármann. Þriðji varð Trausti Ól-
afsson Biskupsturigum, með 6 v.
Gamlir glímuköngar voru
heiðraðir við þetta afmæli Grett
isbeltisins. Fjölmargir gestir
voru við glímuna og fór hún hið
bezta fram.