Morgunblaðið - 27.05.1956, Page 6

Morgunblaðið - 27.05.1956, Page 6
6 morcunblaðið Sunndagur 27. maí 1956, S/d roðonn / austrí Skollaleikur konimúnista STJMIR þeirra kjósenda hér á landi, sem greiða kommúnistum atkvæði , hafa „tekið trúna,“ en hinir eru samt miklu fleiri, sem hingað til hafa fylgt þeim í kosn ingum, án þess að hafa nokkra hugmynd um, á hvaða óheilla braut þeir væru. Þess eru einnig mörg dæmi, að menn hafa léð þeim kjörfylgi sitt, þótt þeir gerðu sér ljóst, að „sæluríki kommúnismans“ væri leiðasta stjórnarfyrirkomulag, sem sögur fara af. „Það kemur aldrei til“, segir þessi flokkur manna, „að kommúnistar komizt til valda á íslandi, en þeir eru harðskeytt- ir í launakröfunum, og þessvegna fylgjum við' þeim.“ Það þykir óvænlegt til árang- urs að stökkva vatni á gæs, en ennþá tilgangslausara er að rök- ræða við sanntrúaðan kommún- ista. Oft og einatt eru þetta menn, sem gaman er að rabba við um aðra hluti, en þegar komið er við kennisetningarnar verða þeir skyndilega að umskiptingum. Út og inn, það er eitt og samt, aftur og fram, það verður jafnt. ★ ★ ★ Þessari manntegund er ná- kvæmlega sama, hvað snýr upp eða niður á félaga Stalín. f dag hrækja þeir í spor „barna- og hundavinarins,“ þessi spor sem þeir krupu við og kysstu fyrir skemmstu. Og komi skipun um það frá miðstjórninni í Moskvu, eru þeir þess fúsastir að sleikja sinn eiginn hráka úr sporum harðstjórans á morgun. Við þessi fyrirbrigði af mann- verum þýðir ekki að ræða. En hinir, sem að undanförnu hafa léð þeim kjörfylgi, ýmist hugs- unarlaust eða í þeirri trú, að kommúnistar hér væru allt öðru- vísi og miklu meinláusari en annars staðar, þeir verða: að gera sér Ijóst, að þeir eru að leika hættulegan leik. f ENGU ÞEIRRA LANDA, ÞAR SEM KOMMÚNISTAR RÁDA NÚ RfKJUM, HAFA ÞEIR KOMIZT TIL VALDA FYRIR FYLGI FÓLKSINS. ★ ★ ★ Kommúnista-„flokkurinn“ er í raun og veru ekki FLOKKUR í þeirri merkingu, sem það orð er notað í lýðræðisríkjum. Þeir eru harðsvíruð REGLA, sem að mörgu er sniðin eftir Jesúítaregl- unni. Það er örfámenn klíka, og stundum einn maður, sem öllu ræður. „FIokknum“ er stjórnað með járnaga ofan frá valda- hásæti miðstjórnarinnar. Hlut- verk flokksbræðranna, — „fé- laga“ Einars, „félaga“ Brynjólfs, „félaga“ Kristins, Þorvalds út- burðar og allra hinna, er að klappa þegar þeim er skipað; gera verkfall þegar þeim er skipað; kasta grjóti þeirar þeim er skip- að, og að leika lömb, þegar sú er línan að austan. „Dansaðu Krutsjov," skipaði Stalín. „Og hvað gat ég gert nema að dansa?“ sagði Krutsjov á kommúnistaþinginu. Nú hefir hann tekið upp sama leikinn sjálfur. „Dansaðu Þórbergur," skipar Krutsjov. Og nú sem stendur er Þórbergur að dansa tangó (tvö spor áfram og eitt útundan sér) kringum hræið af Stalín, þótt ekki vilji hann reka löppina í fornvin sinn enn. ★ ★ ★ Með ofbeldi og lævísi, stund- um sitt á hvað og stundum hvorutveggja í senn, leikur þessi litla klíka, kjarni kommúnista- flokksins, refskák sína um heims- völdin. Aðferðin er æ ofan í æ hin sama. Þeir pretta aðra flokka í bandalag við sig með loforð- um heiðarlegt samstarf. Þeir læða inn flugumönnum hjá andstæð- ingum og samverkamönnum. Komist þeir í stjórn hreiðra þeir um sig og sofa með rýtinginn í erminni. Og þegar þeir telja, að stundin sé komin, er rýtingur- inn rekinn í bak sessunautarins, unz hið svokallaða „alræði ör- eiganna“ er komið á. Menn eru stundum furðu gleymnir á það sem gerist, og margir halda nú, að það hafi verið kommúnistar sem gerðu byltinguna i Rússlandi árið 1917. En þar þurfa menn að lesa upp og læra betur. Það voru aðrir flokkar, sem kipptu hinum fúnu stoðum undan keisaraveldinu með byltingunni í febrúar það ár. ★ ★ ★ En andrúmsloft ósigra og upp- lausnar — sem kommúnistar höfðu átt hvað mestan þáttinn í að skapa — grúfði yfir Rússlandi næstu mánuði. Það var einmitt í slíku andrúmslofti, sem þeir áttu heima og þrifust. Fyrsta ríkisstjórnin, sem þeir áttu sæti í, var samsteypustjórn, sem þeir mynduðu með vinstri öflum „sósialrevolutionerá“ flokksins, þess flokks, sem mest kúguðu Ieigulíðastétt Rússlands. Við valdatöku þessarrar sam- steypustjórnar er afmæli komm- únistabyltingarinnar í Rússland' miðað. Fylgi þeirra þá var "þó ekki meira en svo með þjóð- inni, að „sósíalrevolutionerir" fengu yfirgnæfandi meiri hluta í kosningum til stjórnlagaþings rétt á eftir, hinn 25. nóvember 1917. Þrátt fyrir valda-afstöðu sína tókst kommúnistum ekki að ná nema 175 þingsætum af 707. En þeir dóu ekki ráðalausir. Stjórn- lagaþingið var ekki fyrr komið saman en kommúnistar rufu það með vopnavaldi. Eftir nokkra mánuði voru „sósíalrevolution- erir“ úr stjórninni. Þeir höfðu gert sitt gagn, — hjálpað komm- únistum upp í valdasessinn. Nú þurfti ekki lengur á þeirra að- stoð að halda. Þeir máttu fara. í áratugi hefir rússnesk æska ekki lesið ólogið orð um minn- ingu þeirra. ★ ★ ★ Þarna er fyrsta dæmi þess, hvemig fer fyrir þeim sem trúa kommúnistum heiðarlegrar sam- vinnu. Til þess eru vítin að var- ast þau, og víst máttu menn þeg- ar í stað kenna úlfinn undir sauðagærunni. „En eitt dæmi sannar ekki neitt,“ kynnu sumir íslendingar að segja, sem hafa látið blekkj- ast til fylgis við þá undanfarið. Þetta sögðu fleiri og í ýmsum löndum. Þess munu bráðlega nefnd nokkur dæmi. Myndir þessar voru teknar fyrir 10 árum á Reykjavíkurflugvelli, þegar Liberator-flugvélin hóf fyrstu reglubundnu flugferðirnar 10 ár síðan Flugfélagið iióf fast millitandaflug IDAG eru 10 ár liðin frá því íslendingar hófu reglubundið milli- landaflug. Þann 27. maí 1946 lenti Liberator-flugvél, sem Flug- élag íslands hafði tekið á leigu í Skotlandi, í fyrsta sinn á Reykja- nkurflugvelli. Kom vélin hingað beint frá Prestvík, og voru far- .cgarnir sjö talsins í þessari fyrstu ferð: Daníel Gíslason, Gunnar lenjamínsson, Karl Guðmundsson, Jónas Guðmundsson, Björn Jjörnsson, Tryggvi Ófeigsson og einn Breíi, Mr. Stebbing að nafni. Hugstjóri var J. A. Dobson. 'ERÐIR UM PRESTVÍK j Islands samið við skozka félagið Þá um vorið hafði Flugfélagj Scottish Aviation um leigu á flugvélum til að halda uppi áætl- unarflugi milli Reykjavíkur, Prestvíkur og Kaupmannahafnar. Voru farnar þrjár ferðir í viku milli íslands, Skotlands og Dan- merkur — þrjár ferðir til Prest- víkur og tvær ferðir þaðan áfram til Hafnar. Notaðar voru Douglas- vélar í ferðirnar milli Prestvíkur og Kaupmannahafnar. Libera- torvélarnar tóku ekki nema 14 farþega í fyrstu, en þeim var siðar breytt, þannig að unnt var að flytja 22. GULLFAXI TEKUR VIÐ Flugferðir þessar urðu brátt mjög vinsælar, og voru öll sæti upppöntuð til Hafnar fram í ágúst áður en fyrsta flugferðin var farin. Fyrstu sex mánuðina voru t. d. fluttir aær 2500 far- þegar. Flugfélag Islands hafði hinar skozku flugvélar á leigu í tvö ár eða þar til félagið festi kaup á Gullfaxa, sem kom hing- að til lands 8. júlí 1948. 53 ÞÚS. FARÞEGAR MILLI LANDA Það þótti mikill viðburður fyrir 10 árum að geta „skroppið1* til Hafnar á 9—10 tímum, enda notfærðu menn sér óspart hina nýju samgöngutækni milli landa. Á þessum fyrsta áratugi reglu- bundins millilandaflugs hefur Flugfélag íslands flutt um 53.000 farþega milli landa, og hefur farþegafjöldinn aukizt jafnt og þétt ár frá ári. Á s.l. ári fluttu flugvélar félagsins t. d. rösklega 10 þúsund farþega á millilanda- flugleiðum, og er þegar fyrirsjá- anlegt, að sú tala á eftir að hækka verulega í ár. Sextugur: Viljákur Amason skipsijóri VILHJÁLMUR Árnason, skip- stjóri, er sextugur í dag. Þetta er ,ekki hár aldur — það getur ekki verið — svo ungur og hress er Vilhjálmur enn, bæði til verks og í anda, enda maður fæddur til dugs og athafna, eins og mjög mörgum er kunnugt. Vilhjálmur er fæddur 27. maí 1896 á Stokkseyri, sonur hjón- mna Árna Vilhjálmssonar, bónda 'g sjósóknara þar, og konu hans, óigríðar Þorkelsdóttur. Starfs- leðin var snemma mikil, og efst í huga Vilhjálms var að bjarga ár sjálfur. Hann brauzt til náms og lauk prófi úr Stýrimannaskólanum Stöðug aukning tar- þegaflutninga til og trá landinu INÝÚTKOMNUM' hagtíðindum segir m. a. frá farþegaflutning- um til og frá landinu á árunum 1952—1955. Er yfirlit þetta samið eftir skýrslum, sem útlendingaeftirlitið hefur gert um far- þegaflutninga. FARÞEGATALAN í ÖRUM VEXTI Farþegaflutningar frá og til landsins fara árlega vaxandi og á það jafnt við um útlendinga sem íslendinga. Annað mjög at- hyglisvert kemur fram í skýrsl- unum, en það er hve flugvélarn- ar stórauka farþegaflutninga sína. Farþegatala frá útlöndum og til er nokkuð svipuð. Alls var farþegatalan frá útlöndum sem hér segir: 1952 9.766, 1953 11.653, 1954 13.409 og 1955 eru þeir svo komnir upp í 16.586. Farþegatalan með skipum helzt nokkuð lík, en aukningin verður öll með flugvélum. Útlendingar ferðuðust álíka mikið með skip- um árið 1952 og 1955, en íslend- ingar, sem með skipunum ferðast eru talsvert færri 1955 en 1952. FRÁ 34 ÞJÓÐLÖNDUM Útlendingarnir, sem hingað ferðast eru frá 34 þjóðlöndum og nokkrir ríkisfangslausir. Farþeg- ar frá Suður-Ameríku, Suður- Afríku og Ástralíu eru taldir í lið hver. Öll árin eru Bandaríkja- menn hæstir í farþegatölu út- lendinga, næstir að fjölda til eru Danir og þá Bretar. 1919. Þegar árið 1928 var hann orðinn skipstjóri á bv. „Gylli“, og þótti það ungt í þá daga, en hann var með afbrigðum fengsæll, eins og öllum eldri og yngri starfs- bræðrum hans er kunnugt. Hér var á ferð maður, sem vildi vinna og kunni því betur, að menn sínir tækju á, enda meta honum vel- flestir þann skóla, sem hann gaf. Þá er Vilhjálmur fór af bv. „Gylli“ tók hann við skipsstjórn i bv. „Venusi“, enda varð hann og er meðeigandi þess fyrirtækis, :;em síðar eignaðist og bv. „Röð- ul“, er Vilhjálmur sótti utan og hafði skipstjórn á um nokkurt bil. Vilhjálmur var og er maður framfaranna. Oft var þungt und- an, en þetta var í þá daga, þegar menn vildu taka á. Vinnan var þeim fyrir öllu, gera sem mest og gera það sem bezt. Menn lögðu sig fram. Vilhjálmur var meðal stofn- enda Hampiðjunnar h.f., Netastof unnar og annarra fyrirtækja. — Hafði hann trú á slíkum rekstri hér, enda lagt þar gjörva hönd á plóginn. Þá.er þess að geta, að Vilhjálmur var frá byrjun, ásamt félögum sínum, með í því að stofna hvalveiðifélagið Hf. Hval. Naut það félag framsýni hans og ráða og nýtur enn þann dag í dag, og er nú orðið mikið að vöxtum. Metnaður Vilhjálms hefur alla tíð verið sá að vinna og gera vel. Hann hefur aldrei sætt sig við hálfkákið, aldrei við óheiðarleik- ann, verið dugmikill, hreinn og beinn og mikill vinur vina sinna. í kyrrþey hefur hann látið hina minnimáttar njóta stoðar sinnar, og er það í ótalin skipti. Vilhjálmur er prýðilega vel Vilhjálmur Árnason lesinn maður. Á hann gott bóka- safn og enga þá bók, sem hann ekki hefur lesið. Og svo verða menn sextugir. Það er ánægjulegur dagur, þegar hægt er að horfa yfir farinn veg, sem genginn var alla tíð til góðs, með skapfestu, dugnaði, fram- sýni, heiðarleik og því, sem bezt má verða. Þennan veg vill Vilhjálmur ekki hafa genginn einn. Kona hans hefur staðið honum við hlið, frú Guðríður Sigurðardóttir, greind fríðleikskona. Hefur þeim orðið þriggja barna auðið, Sig- ríðar, sem elzt er, gift Vilhjálmi Sigurðssyni frá Siglufirði, er starfar hjá SÍF hér í bæ og hefur getið sér mikið orð í bridge; Kristín, næstelzt, er gift Ásgeirl Bjarnasyni, iðnrekanda, einum aðaleiganda Héðins hf., vélsmiðj- unnar, og þeirra fyrrtækja; Árni, sem þegar er orðinn viðskipta- fræðingur, hefur staðið sig af- bragðsvel við doktorsnám í hag- fræði í Ameríku. Allt eru þetta farsæl börn, sem notið hafa góða upeldis og menntunar. Góðum dreng er óskað til ham- ingju. Aðrir verða til að gera þaS betur. Þegnar þjóðfélagsins slíkir sem Vilhjálmur Árnason eru nýt- ir menn. Taki þá aðrir sér til fyrirmyndar. J.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.